Morgunblaðið - 19.02.2000, Síða 57

Morgunblaðið - 19.02.2000, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000 57 UMRÆÐAN V erslunarráð Islands boðar þjóðarsátt í MORGUNBLAÐ- INU síðastliðinn laug- ardag er greint frá skýrslu Verslunarráðs fslands til Viðskipta- þings. í skýrslunni kemur fram að kostn- aðarvitund almennings í heilbrigðismálum sé nú lítil sem engin og sé brýnt að breyting verði þar á og kostnaður fluttur í einhverjum mæli frá ríkinu til þeirra sem þjónustunn- ar njóta. Hér kveður við gamalkunnan tón frá því í byrjun tíunda áratugarins þegar sem mest var um það rætt af hálfu stjórnvalda að inn- ræta veiku fólki kostnaðarvitund. Svo rammt kvað að þessari hugsun að um miðjan áratuginn voru gefín út svokölluð vasafjárlög þar sem gat að finna nákvæman útreikning á þvi hvað fatlað fólk kostaði samfélagið. Allt bar að sama brunni: að réttlæta niðurskurð og hlaða byrðunum á „neytandann“ eða „notanda þjónust- unnar“, hann átti að hafa kostnaðarvitund, gera sér grein íyrir því hver baggi hann væri á samfélaginu. Vitað var að sá sem býr yfir slíkri vitund gerir ekki mikl- ar kröfur. Verslunarráðið og kostnaðarvitundin Verslunarráð ís- lands vill ganga lengra en innræta sjúklingum kostnaðarvitund. í fyrmefndri skýrslu er hvatt til víðtækrar einkavæðingar í heil- brigðisþjónustunni. Og til hvers skyldi gera þetta? Ekki stendur á svari: Svo um velferðarþjónustuna skapist almenn sátt í þjóðfélaginu. Til að ná þessari sátt vill Verslunar- ráðið byrja á einkavæðingu ýmissa þátta velferðarþjónustunnar þar sem samkeppni verði vel komið við svo sem langlegudeilda og hvíldar- innlagna en einnig eigi að einkavæða starfsemi þar sem „engin rök eru Þjóðfélagsmál Boðskapur Verslunar- ráðs Islands um einka- væðingu heilbrigðis- þjónustunnar er á þá lund, segir Ögmundur Jdnasson, að ólíklegt má heita að um hann geti tekist þjóðarsátt. fyrir“ ríkisrekstri. Þar eru meðal annars nefnd þvottahús, apótek og mötuneyti. Þessir þættir séu best komnir hjá „aðilum með sérþekk- ingu“. Nú er það náttúrlega svo að sérþekkingu á þessum málum er að finna hjá heilbrigðisstofnunum landsins og fyrir þá sem ekki vita má geta þess að á sínum tíma fór fram ít- arleg skoðun á hagkvæmni þess að einkavæða þvottahús Ríkisspítal- Ögmundur Jónasson anna. Niðurstaðan varð sú að slíkt ■ myndi ekki borga sig fjárhagslega. Varðandi boðskap Verslunarráðs Islands um einkavæðingu heilbrigð- isþjónustunnar er það að segja að hann er á þá lund að ólíklegt má heita að um hann geti tekist þjóðar- sátt. Er til dæmis líklegt að ein- staklingurinn sé „líklegri til að taka ábyrgari afstöðu til heilsunnar ef hann getur átt von á því að þurfa að axla einhverja fjárhagslega ábyrgð af heilsubresti", svo vitnað sé til skýrslunnar. Eða vilja menn láta sérstaklega rukka fyrir aðhlynn- ingu vegna meiðsla af völdum slags- mála eins og Verslunarráðið leggur til? Og hvar skyldi Verslunarráðið vilja draga mörkin? Á ef til vill ekki að hlú að krabbameinsjúklingi sem hefur reykt um ævina, eða á að láta áfengissjúklinga sigla sinn sjó og hvað með fíkniefnaneytendur al- mennt? Hvers virði er heilsan? Ætli staðreyndin sé ekki sú að þá fyrst fari menn að huga að heilsunni og fyrirbyggjandi aðgerðum til heilsuvemdar þegar þeim skilst hve mikils virði heilsan er hverjum ein- staklingi; að hún er undirstaða lífs- gæða. Hvað slagsmálin áhrærir þá á ekki að refsa fyrir þau á sjúkrastof- unni, það skal gert í réttarsal ef þörf er á. Fyrst og fremst ber okkur þó að stunda fyrirbyggjandi uppeldisstarf á heimilum, í skólum og almennt í þjóðfélaginu til að útrýma obeldi. En aðeins nánar um þjóðarsáttina. Viðamesta könnun sem gerð hefur verið um afstöðu íslensku þjóðarinn*^ ar til skattlagningar og þjónustu- gjalda var framkvæmd á vegum Fé- lagsvísindastofnunar Háskóla íslands fyrir BSRB haustið 1998. Þar kom fram að yfirgnæfandi meiri- hluti þjóðarinnar er ánægður með ís- lenska velferðarþjónustu þótt víða telji menn nauðsyn á úrbótum. Þær úrbætur vilja menn fjármagna með almennum sköttum en ekki þjón- ustugjöldum og er athyglisvert í því sambandi að andstaðan gegn þjón- ustugjöldum hefur aukist borið sam- an við könnun sem gerð var árið 1989 af sama aðila. Þannig voru yfir 70 aí>‘ hundraði andvígir auknum þjónustu- gjöldum árið 1998 en einungis 60 af hundraði voru þeirrar skoðunar árið 1989. Á þessum áratug voru þjón- ustugjöld innleidd víða innan heil- brigðisþjónustunnar þar sem þau höfðu ekki þekkst áður. Þá kom einnig fram í könnuninni að fólk (67 af hundraði) var tilbúið að borga hærri skatta til að halda víðtækri fé- lagslegri þjónustu. Þetta ætti að verða Verslunarráði íslands um- hugsunarefni áður en næst verður boðað til þjóðarsáttar. Höfuadur er formaður BSRB og al- þingismaður. Engin útborgun 38 á mánuði Nú getur þú fengiö Freelander á rekstrarleigu Hinn frábæri sportjeppi Land Rover Freelander er nú fáanlegur i rekstrarleigu fyrir aöeins 38.000 kr. á mánuði (+vsk.) til 24 eða 36 mánaða.* Miðað er við Land Rover Freelander Base sem kostar kr. 2.350.000, allt að 20.000 km akstur á ári og 36 mánaða samning. Samtals með vsk. kr. 47.300 á mánuði. Komdu í B&L, Grjóthálsi 1, og kynntu þér kosti Freelander á rekstrarleigu. -c Grjóthálsi 1 • Sími söludeildar 575 1210 www.bl.is Þetta er innifalið í rekstrarleigu • Engin útborgun • Akstur allt að 20.000 km á ári • Afnot af bílnum til 2 eða 3 ára • Þjónustueftirlit á samnings- • Válarstilling og annaö tímabilinu venjubundið viðhald • Leigugreiðsla gjaldfærð að fullu • Olíuskipti og smurning á rekstrarreikning
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.