Morgunblaðið - 19.02.2000, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000 59^
UMRÆÐAN
„ERTU búin að lesa
greinina hennar Helgu
Sigurjónsdóttur í
Morgunblaðinu í dag
(5. feb.)?“ spurði glögg-
ur lesandi. „Hún segir
að dr. Matthías hafi
bara viljað útrýma fá-
vitum. Var hann svona
smitaður af kenningum
þýskra nasista?"
Eg kom af fjöllum.
Hvemig var hægt að
komast að þessari nið-
urstöðu? Dr. Matthías
var eldhugi og áhuga-
maður um uppeldi og
kennslu, mannvinur,
sem hlúði í hvívetna að þeim sem
minna máttu sín í samfélaginu. Þess
bera öll hans skrif og verk vitni.
Ég las greinina og bókina sem
vitnað er í: Greindarþroski og
greindarpróf. Síðasti
kaflinn heitir: Nota-
gfidi greindarmælinga
og hefði greinarhöf-
undur lesið allan kafl-
ann hefði hann kynnst
viðhorfum dr. Matth-
íasar tfi náms og
kennslu og að hann var
að bera hag nemenda
fyrir brjósti þegar
hann staðlaði sín
greindarpróf. Þau voru
tæki tfi að hjálpa kenn-
urum til að skfija betur
námserfiðleika nem-
enda sinna og mæta
þeim með árangursrík-
um aðferðum. Þau voru líka tæki tfi
að leiðbeina unglingum í náms- og
starfsvali. En Helga kaus að velja
aðeins þann hluta þar sem hann lýsir
áhyggjum sínum og annarra af því
Kennsla
Umræða um kennslu-
mál, segir Pálína
Jónsdóttir, þarf að
einkennast af réttsýni
og heiðarleika.
að hinn lággreindi hluti þjóðanna
auki kyn sitt örar en hinn hágreindi.
Hann er að tala um örvita ekki þá
nemendur sem sækja grunnskóla og
gengur þar illa í námi af ýmsum
ástæðum. Hann vissi auðvitað vel að
vangengi í námi er ekki endilega
vegna greindarskorts. „Greindar-
sérfræðin hefur verk að vinna að
mati dr. Matthíasar," segir greinar-
höíúndur og það er rétt en ekki að-
eins til þeirra nota, sem lögð er
áhersla á í greininni að „sortera“
burt þá sem ekki geta lært.
Hvaðan kemur höfundi sú vit-
neskja að dr. Matthías fagni lögun-
um um vananir frá 1938? Hann var í
þýskalandi frá 1930-1945, fyrst við
nám en síðan lektor við Háskólann í
Leipzig. Hann er að tala um að hægt
sé að nota greindarprófin til að skera
úr um fávitahátt á fjótlegan og til-
tölulega öruggan hátt. En hefði höf-
undur lesið alla greinargerðina, líka
kaflann: Takmörk mælanlegrar
greindar (bls. 82), hefði hann séð að
dr. Matthías gerir sér vel grein fyrir
þeim vanda sem prófanda er á hönd-
um við að ákvarða lágþróaða og
reyndar líka háþróaða greind.
Ég naut þeirrar ánægju að vinna
hjá dr. Matthíasi um tíma þegar
hann var að safna efni til að staðla
greindarpróf sín. Hann aðstoðaði
mig og aðra kennara við að finna
skóla erlendis þar sem hægt var að
stunda framhaldsnám. Sérkennslu-
nám var þá ekki til hér heima. Hann
stofnaði Barnaverndarfélag Reykja-
víkur 1949 og var formaður þess en
ég sat í stjórn þess mörg ár og tel
mig því dómbæra um hvar áhugi dr.
Matthíasar lá í uppeldis- og mennta-
málum.
-2-
Bamaverndarfélagið veitti einnig
að hans frumkvæði kennurum
námsstyrki , sem fóru til fram-
haldsnáms erlendis og sérhæfðu sig í
að kenna t.d. þroskaheftum einstakl-
ingum. Þannig sýndi dr. Matthías
áhuga sinn á þessum málum í verki.
Fyrir atbeina hans gaf félagið út
nokkrar bækur um uppeldi og voruéL
þær ætlaðar til fræðslu fyrir al-
menning. Fyrsta bókin fjallaði ein-
mitt um „afbrigðileg“ börn. Það var
svið sem honum var mjög hugleikið
og hann fann sárt til þess hve þess-
um málaflokki var lítið sinnt hér á
landi og fáfræði og fordómar ríkj-
andi. Bókin kom út 1959.
Ég beið með að senda þennan
pistil þangað til síðasta grein Helgu
birtist til þess að sjá hvort hún gæfi
ítarlegri og sannari mynd af kenn-
ingum og starfi dr. Matthíasi. Svo
var ekki.
Ég fagna allri umræðu urir*
kennslumál en hún þarf að ein-
kennast af réttsýni og heiðarleika.
Það er ómaklega vegið að dr. Matth-
íasi með því að draga út eitt atriði af
öllu því sem hann skrifaði um
kennslu- og menntamál og nota það
til að gera hann og starf hans tor-
tryggilegt í augum fólks. Það eru
óvönduð vinnubrögð og siðlaus.
Höfundur er kennari.
Að hagræða
sannleikanum
Pálfna Jónsdóttir
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
Afgreiðslustarf
Starfskraftur óskast til afgreiðslustarfa í ört
vaxandi kvenfataverslun.
Vinnutími fyrir eða eftir hádegi. Verðurað hafa
gaman af fötum og hafa auga fyrir litum og
samsetningum. Reyklaus vinnustaður.
Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl.,
merktar: „A — 9275", fyrir 25. febrúar.
FUMDIR/ MANNFAGNADUR
Aðalfundur Búlandstinds hf.
Aðalfundur Búlandstinds hf. verður haldinn
mánudaginn 28. febrúar nk. kl. 14 í kaffistofu
félagsins, Bakka 4, Djúpavogi.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
ÓSKAST KEVPT
Kaupum frímerki
Fulltrúi frá frímerkjafyrirtækinu POSTILJONEN,
verður á íslandi 25.-29. febrúar og kaupir eða
tekurtil uppboðsfrímerki og söfn, gömul um-
slög og erl. söfn.
Hafið samband við Kjell Larson, (Hótel Holti),
eða Postiljonen, Malmö, sími 0046 40 258850.
Fax 0046 40 258859.
Málverk
Málverkeftir Þórarin B. Þorláksson listmálara
óskast til kaups.
Hátt verð í boði fyrir gott málverk.
Tilboð merkt: „Þórarinn B. Þorláksson" sendist
auglýsingadeild Mbl. fyrir 26. febrúar nk.
KEMNSLA
Líföndun
Að anda er að lifa
Guðrún Arnalds verður með
námskeið í líföndun helgina
26.-27. febrúar.
Öndunin segir allt um líf þitt.
Líföndun er leið til að losa um
spennu og létta á hjartanu.
Gefur þú þér tíma tii að lifa?
Guðrún Arnalds, s: 551 8439/896 2396.
MAUOUMGARSALA
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Bjólfsgötu
7, Seyðisfirði, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Austurvegur 18—20, n.h., Seyðisfirði, þingl. eig. Jón Bergmann Ár-
sælsson, gerðarbeiðendur Fj'árfestingarbanki atvinnulífsins hf. og
sýslumaðurinn á Seyðisfirði, miðvikudaginn 23. febrúar 2000
kl. 14.00.
Austurvegur 49, Seyðisfirði, þingl. eig. Jón Bergmann Ársælsson,
gerðarbeiðendur Byggðastofnun, Ibúðalánasjóður og sýslumaðurinn
á Seyðisfirði, miðvikudaginn 23. febrúar2000 kl. 14.00.
Bláskógar 7, Egilsstöðum, þingl. eig. Dagur Kristmundsson, gerðar-
beiðandi íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 23. febrúar 2000 kl. 14.00.
Brattahlíð 2, Seyðisfirði, þingl. eig. Ársæll Ásgeirsson, gerðarbeiðend-
ur Lífeyrissjóðir Bankastræti 7, Lífeyrissjóður Austurlands og Lífeyr-
issjóður verslunarmanna, miðvikudaginn 23. febrúar 2000 kl. 14.00.
Deildarfell, Vopnafirði, þingl. eig. Anton Gunnarsson, gerðarbeiðandi
Búnaðarbanki íslands hf., miðvikudaginn 23. febrúar 2000 kl. 14.00.
Hafnarbyggð 17, Vopnafirði, þingl. eig. Bjarni E. Magnússon og Svava
Viglundsdóttir, gerðarbeiðandi Ferðamálasjóður, miðvikudaginn
23. febrúar 2000 kl. 14.00.
Hafnargata 37, Seyðisfirði, þingl. eig. Fjarðarnet ehf., gerðarbeiðandi
Byggðastofnun, miðvikudaginn 23. febrúar 2000 kl. 14.00.
Lagarbraut 7, norðurendi, Fellabæ, þingl. eig. Herðir hf. fiskvinnsla,
gerðarbeiðendur Byggðastofnun og íslenskar sjávarafurðir hf., mið-
vikudaginn 23. febrúar 2000 kl. 14.00.
Laugavellir 11, Egilsstöðum, þingl. eig. Haukur J. Kjerúlf, gerðarbeið-
andi Almenna málflutningsstofan sf„ miðvikudaginn 23. febrúar
2000 kl. 14.00.
Laugavellir 13, Egilsstöðum, þingl. eig. ÁsgrímurÁsgrímsson, gerð-
arbeiðandi Lín ehf., miðvikudaginn 23. febrúar 2000 kl. 14.00.
Lónabraut 34, Vopnafirði, þingl. eig. Vopnafjarðarhreppur, gerðarbeið-
andi Ibúðalánasjóður, miðvikudaginn 23. febrúar 2000 kl. 14.00.
Miðás 1—5, hl. 0101, Egilsstöðum, þingl. eig. Eikarás ehf., gerðarbeið-
andi Byggðastofnun, miðvikudaginn 23. febrúar 2000 kl. 14.00.
Miðás 19—21, ásamt lóðartækjum, vélum o.fl., Egilsstöðum, þingl.
eig. Vökvavélar hf„ gerðarbeiðendur Austur-Hérað og Fjárfestingar-
banki atvinnulífsins hf„ miðvikudaginn 23. febrúar2000 kl. 14.00.
Múlavegur 5, Seyðisfirði, þingl. eig. Þorsteinn H. Þorsteinsson, gerð-
arbeiðendur Kreditkort hf. og Landsbanki Islands hf„ Seyðisfirði,
miðvikudaginn 23. febrúar 2000 kl. 14.00.
Norðurgata 2, Seyðisfirði, þingl. eig. Lyfting ehf„ gerðarbeiðendur
Búnaðarbanki Islands hf. og sýslumaðurinn á Seyðisfirði, miðvikudag-
inn 23. febrúar 2000 kl. 14.00.
Smárahvammur2, Fellabæ, þingl. eia. Hrefna Hjálmarsdóttir og
Stefán Ásgrímsson, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður, miðvikudaginn
23. febrúar 2000 kl. 14.00.
Strandarvegur29—35, Seyðisfirði, þingl. eig. Strandarsíld hf„ gerð-
arbeiðandi sýslumaðurinn á Seyðisfirði, miðvikudaginn 23. febráur
2000 kl. 14.00.
Torfastaðir II, Vopnafirði, þingl. eig. Sigurður Pétur Alfreðsson, gerðar-
beiðandi Lánasjóður landbúnaðarins, miðvikudaginn 23. febrúar 2000
kl. 14.00.
Útgarður 2, Egilsstöðum, þingl. eig. Vilhjálmur Einarsson, gerðarbeið-
andi Húsasmiðjan hf„ miðvikudaginn 23. febrúar 2000 kl. 14.00.
Vallholt 9, Vopnafirði, þingl. eig. Jóna Benedikta Júlíusdóttir, gerðar-
beiðandi Lífeyrissjóður Austurlands, miðvikudaginn 23. febrúar2000
kl. 14.00.
Verkstæðishús vA/allarveg, ásamt vélum, tækjum o.fl„ Egilsstöðum,
þingl. eig. Dagsverk ehf„ gerðarbeiðandi Byggðastofnun, miðvikudag-
inn 23. febrúar 2000 kl. 14.00.
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði,
18. febrúar 2000.
ÝMISLEGT
KÓPAV OGSBÆR
Tónlist á vegum
Tíbrár í Salnum haustið
2000 til vors 2001
Auglýst er eftir umsóknum um tónleika
á vegum Tíbrár haustið 2000 til vors
2001.
Umsóknir um tónleikahald ásamt kjör-
tíma og hugmyndum um efnisval sendist
til Fræðslu- og menningarsviðs, Björns
Þorsteinssonar, Fannborg 2, sími 570-
1600. E-mail: bjornt@kopavogur.is eða
sigurbjorg@kopavogur.is
Umsóknir skulu berast fyrir 1. mars nk.
Tíbrá mun velja úr umsóknum og svara
öllum að vali loknu.
Fræðslu- og menningarsvið Kópavogs
SMAAUGLYSINGAR
KENNSLA
Brian Tracy (^y INTERNATIONAL
PHOENIX-námskeiðin
www.sigur.is
FÉLA6SLÍF
Ferðaáætlun
i ferðaáætlun Útivistar eru í boði
margar ferðir við allra hæfi allt
árið. Pantið eintak á skrifstofu
Útivistar eða með tölvupósti: uti-
vist@utivist.is.
Skíðaganga á sunnudag
20. feb. frá BSÍ kl. 10.30. Skíða-
ganga yfir Mosfellsheiði. Verð
1.400/1.600.
Næsta helgarferð
26.-27. feb. Skíðaferð á Nesja-
velli í kringum Hengil. Gengið
yfir Hellisheiði á Nesjavelli en þar
bíður heiti potturinn og veisla.
Seinni daginn er gengið um
Dyradal og endað i Hamragili.
Undirbúnings- og kynningarfund-
ur verður þriðjudaginn 22. feb. kl.
20.00 hjá Útivist.
Kynnið ykkur ferðir Útivistar
á: www.utivist.is.
Kl. 13.00 Laugardagsskóli fyrir
krakka.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533
Gönguskíði sunnudag 20.
febrúar: Leirvogsvatn — Þor-
móðsdalur — Hafravatn.
Gönguferð sunnudag 20.
febrúar: Helgafell — Reykjafell
— Hafravatn.
Brottför í báðar ferðir frá BSÍ og
Mörkinni 6 kl. 10:30.
Allir velkomnir. Verð 1300 kr.
Bókið tímanlega í skíðagöngu-
ferð um Hengilssvæöið 4.-5.
mars.
Kynnið ykkur áætlun F.l. á
www.fi.is og síðu 619 í texta-
varpi.