Morgunblaðið - 19.02.2000, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 19.02.2000, Qupperneq 62
62 LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ Alþjóðlegt samstarf á norðurslóðum ÞEGAR minnst er á norðurheimskauts- svæðið koma okkur fyrir hugskotssjónir endalausar ísbreiður og lífvana auðnir. En veruleikinn er nokkuð á annan veg. í þann mund sem þú lest þetta greinarkorn er margt að gerast hjá ^iágrönnum okkar allt í kringum norðurskaut- ið. í Nuuk leggur barnaskólakennari af stað til vinnu, smá- bátasjómaður út fyrir Lofoten leggur net og í iðrum Nova Sermilika stritar námu- verkamaður fyrir afborgunum af íbúð. Fjölskylda situr við kvöldverð- arborðið í Jakútsk. En á sama tíma, nokkru austar, sofa íbúar Barrow í Alaska fastasvefni. Norðurslóðir eru lífvænleg heimkynni fólks úr ólíkum samfélögum sem þrátt fyrir menningarflóruna deila með sér einu og sama vistkerfinu. Jk. Alþjóðlegt norður- slóðasamstarf Lífvænleiki norðlægi'a byggða er nátengdur sjálfbærri nýtingu stað- bundinna náttúruauðlinda, enda oft- ast að litlu öðru að hverfa. Það er einmitt fyrir þá staðreynd að norð- urheimskautsríkin átta, Noregur, Svíþjóð, Bandaríkin, Kanada, Rússland, Finnland, Danmörk og Island auk hagsmuna- samtaka frumbyggja, hafa stóraukið sam- vinnu sín í milli, þvert á öll hefbundin menn- ingarleg, pólitísk og efnahagsleg landa- mæri. Drifkrafturinn að baki þessu sam- starfi er þörfin fyrir rannsóknir og sam- vinnu í umhverfísmál- um, í víðasta skilningi þess orðs. Það er for- sendan fyrir að hægt sé að skilja og bregðast við aðsteðj- andi breytingum á vistkerfi norð- ursins. Óhætt er að fullyrða að vistkerfi norðurslóða hafi töluverða sérstöðu sé það skoðað í hnattrænu sam- hengi. Á fáum öðrum stöðum í heim- inum er hægt að sjá með eins skýr- um hætti náttúrufarslegar og mannvistfræðilegar afleiðingar staðbundinna og hnattrænna um- hverfisbreytinga. Eitt meginein- kenni norðurslóðasamstarfs í vís- indum er áhersla á þverfaglega samvinnu. Hún er nauðsynleg svo að hægt sé að skilja til hlítar samspil mannvistar og náttúru. Einhverjum kann að þykja að þessi áhersla á norðurslóðir einkennist af heimótt- Norðurslóðadagur Markmið Norður- slóðadagsins er að kynna nokkrar af lykil- stofnunum norður- slóðastarfs Islendinga, segir Jónas G. All- ansson, og efla umræðu um þá samvinnu. arskap. En norðurslóðir, „hjari heimsins" eins og það svæði er stundum nefnt, gegnir mikilvægu hlutverki langt út fyrir sín land- fræðilegu útmörk. Breytingar á um- hverfi norðursins hafa þýðingu fyrir loftslag, hafstrauma, mannvist og náttúrufar um allan heim. Fjölþjóð- legt samstarf í umhverfismálum á norðurslóðum er að margra mati prófraun á möguleika og getu slíkar samvinnu yfirleitt. Hlutverk íslendinga Hlutur Islendinga í norðurslóða- samvinnu er veigameiri en almennt gerist í alþjóðlegu samstarfi og helgast það af sérstöðu Islands í samfélagi norðurslóðaríkja. Islend- Jónas G. Allansson ÍSLEIVSKT MAL Sérhúnuppkoma öðru sinni jörðúrægi iðjagræna; falla fossar, flýgurömyfir, sáerá^alli fiska veiðir. Ekki get ég hugsað mér læs- an og greindan íslending, sem ekki skilji þessa þúsund ára gömlu vísu. Og ég man ekki í bili eftir þeim þjóðum sem lesið geti fyrirhafnarlaust þúsund ára gamlar bókmenntir sínar, ef þær eru þá til. Mér finnst þetta dásamlegt. Mér finnst sem okkur hafi verið gefinn gimsteinn, sem okkur hafi tek- ist að varðveita heilan aldartug - stóröld -, þó að hann hafí brákast eitthvað allan þennan tíma. Skylda þeirra, sem eiga gimstein, er að varðveita hann, en ekki glopra honum eða „selja úr hendi -sér“. Að slepptu lík- ingamáli, er það skylda okkar að varðveita málarf horfinna kynslóða. Ekki viljum við fá í sögunni heitið „kynslóðin sem týndi tungunni“. Gamalt fólk, sem ég ólst upp með, taldi það frávikslausa skyldu sína að skila arfinum til okkar sem ung vorum. Og söm er okkar skylda við æskuna. Það hefur gengið á ýmsu. Fyrstu siðaskiptasálmarnir voru ekki uppá marga fiska. Þá hugsuðu margir sem svo - slíkir eru því miður enn til - að öllu skipti að það skildist sem sagt væri, hversu böngulegt sem það væri í laginu. Eitthvert versta Ijóðskáld á tungu okkar, sem ég kann að greina, var nafni minn Gísli Jónsson, biskup í Skálholti (1558-1587). Hér er vers eftir hann og komið langan og hlykkjóttan veg úr latínu: Agn- us Dei, qui tollis peccata mundi etc. Gísli Jónsson sem sig nefndi Gilbertus Jonas Islandus og Umsjónarmaður Gísli Jónsson 1045. þáttur ónefndur maður hefur eftir hon- um hermt: Ó, guðslamb meinlausa, á krossinum var slaktað, þínum fóður vertu hlýðinn, hversu þú vart foraktað, allar syndir hefur þú burt tekið, ella værum vér fortaptir. Miskunna þig yfir oss, ú Jesú. Ó guðslamb, miskunna þig, ó guðslamb, gef oss þinn frið, Jesú. Það má þó nafni eiga að hann kann að beygja orðið Jesús. ★ Þegar svona var komið, sagði einn helsti málfarsbjargvættur okkar, herra Guðbrandur á Hól- um: Hingað og ekki lengra. Og hann lét ekki sitja við orð- in ein, enda var kjörorð hans: Bið þú og vinn (Ora et labora). Hann gaf út nýja og mikla sálmabók, og í stórmerkum for- mála krefst hann þess að sálm- amir séu á engan hátt lakari en annar kveðskapur okkar, sem hann kunni fullvel að meta. Hann krafðist þess að sálmar væru með stuðlum og höfuðstöf- um, og er hann hefur á margan hátt rökstutt að sálmar þeir, sem fyrir voru, séu ekki boðleg- ir, þó hann nefni ekki höfund- ana, segir hann svo: Fjnir þessar greinir, svo og einninn móðurmáli voru til sæmdar og fegurðar, sem í sjálfu sér er bæði Ijóst og fag- urt og ekki þarf í þessu efni úr öðrum tungumálum orð til Iáns að taka eða brákað mál né bög- ur að þiggja, þá hef eg alla tíma, síðan eg kom til þessa embættis (óverðugur), óskað þess og lagt þar hug og ástundan á, að vorir sálmar mættu með mjúkari málsnilld eftir réttri hljóðstafa- grein og hætti...“ Sú er skoðun umsjónarmanns að Oddur Gottskálksson og Guðbrandur Þorláksson hafi með útgáfu guðsorðs bjargað ís- lenskri tungu frá stórspjöllum eða jafnvel glötun. ★ Hinn strangi og siðavandi Hólabiskup átti til skopskyn og mildi, sem stundum hefur fallið í gleymsku. Honum hafði reynd- ar orðið það á, sem betur fór, að eignast dóttur í lausaleik, þá sem var Steinunn, móðir Þor- láks biskups og umsjónarmaður heldur að hafi verið móðir Hall- gríms Péturssonar, en það er önnur saga. En Guðbrandur sagði einu sinni í gáskakasti um lausaleik, að varla gæti verið stórsaknæmt, þó menn gripu til stelpu einstöku sinnum. Þá var það eitt sinn á „öld eiðsins“, 17. öldinni að kona í Skagafirði upphófst og heimtaði að hún mætti sverja sig hreina mey á Hegranesþingi. Eftir japl og jaml og fuður var henni leyft þetta. Þess má geta að meineið- ur varðaði lífláti á þessum tíma. Líða nú tímar fram og ekki langir, því að sex mánuðum síð- ar bar stúlkan í þennan synduga heim fríðan svein. Og nú voru versleg og andleg yfirvöld Skagfirðinga í verulegum vand- ræðum, og hvert skyldi leitað nema til herra Guðbrands, eins og vant var. I mildi sinni kvað biskup þá upp þennan eftir- minnilega dóm: Ja, verðum við piltar ekki að vísa því til guðs sem er ofvaxið mannlegum skilningi. Hitt er svo annað mál að danskir drjólar komust í málið seinna og fengu konunni drekkt. ★ Hlymrekur handan kvað: Og það var hún Hrafnsverta héðan, ’ún hafði ekki um fermingu séð’ann; en svo kom blessað ijósið útíKáranesfjósið og klippti mig ofan og neðan. ingar standa mitt á milli helstu markalína er einkennt hafa þessa samvinnu. Við erum sjálfstæð smá- þjóð sem byggt hefur upp iðnvætt tæknisamfélag þrátt fyrir að bróð- urpartur efnahagslífsins byggist á hreinni hráefnisframleiðslu. Þannig eigum við í senn margt sameiginlegt annarvegar með jaðarsamfélögum frumbyggja og hinsvegar íbúum kjarnabyggða í heimskautaríkjun- um. Það má líta á það sem vissa við- urkenningu á stöðu Islands í þessu samstarfi að hérlendis hafa verið starfræktar nokkrar af lykilstofnun- um norðurheimskautsamvinnunnar. Stjórnvöld hafa sýnt þá framsýni að styðja við bakið á innlendum félög- um og stofnunum sem starfa að mál- efnum norðurslóða. Fastlega má gera ráð fyrir að það starf sem nú er unnið á þessu sviði eigi eftir að auk- ast, ekki síst í menningar- og stjórn- málalegu tilliti. Samruni Evrópur- íkja sem nú er að verða að veruleika mun setja mark sitt á jaðarbyggðir álfunnar og auka þörfina á samstöðu þeirra. Norðurslóðadagur í dag, laugardaginn, 19. febrúar, stendur Stofnun Vilhjálms Stefáns- sonar fyrir sérstökum degi, Norð- urslóðadeginum, sem haldinn verð- ur í Norræna húsinu. Dagurinn er tileinkaður samstarfi og rannsókn- um Islendinga á norðurslóðum. Markmiðið er að kynna nokkrar af lykilstofnunum norðurslóðastarfs Islendinga og efla umræðu um þau málefni sem snerta þá samvinnu. Hérlendis starfa fjölmargar stofn- anir, samtök og einstaklingar að verkefnum er tengjast norðurslóð- um og mun dagskrá dagsins gefa ágæta innsýn í þá flóru. Stefnt er að því að Norðurslóðadagurinn verði að árvissum viðburði. Höfundur er sérfræðingur á Stofnun Vilhjálms Stefánssonar. Jafnrétti í skjóli ráðherravalds FYRIR Alþingi ligg- ur nú frumvarp tO laga um breytingar á lögum um jafna stöðu og jafn- an rétt kvenna og karla frá 1991. Frumvarpið var lagt fram á haust- þingi, mjög hrátt og flausturslega unnið, en var ekki afgreitt þá. Hefur það nú verið lagt fram í svohtið breyttri mynd og sniðnir af því verstu formgallamir. Hins vegar eru helstu efnisatriði frumvarps- ins óbrerft. Skrifstofa jafnréttismála er styrkt í sessi og hún gerð formlega að ríkisstofnun undir félags- málaráðuneytinu og henni fengin mun veigameiri verkefni, sem áður voru á verksviði Jafnréttisráðs. Kærunefnd jafnréttismála er enn álitsgefandi úrskurðaraðili um kærur vegna brota á lögunum, en hætt er við að gefa henni nýtt nafn eins og var í fyrra frumvarpþ (úrskurðamefnd jafnréttismála). I frumvarpinu er hnykkt á gagnsleysi kæranefndar fyrir brotaþola með því að tekið er fram að „Kæranefndin er ekki bær til að ákvarða um fjártjón og miska“ og nú er sérstakíega tekið fram að „Nið- urstöður nefndarinnar sæta ekki kæra til æðra stjórnvalds". Ekki er lengur um það að ræða að kæranefnd geti lagt mál undir dómstóla (á kostn- að ríkisins), heldur er tekið fram að ,Aðilar geta lagt ágreining sinn fyrir dómstóla með venjulegum hætti“. Að mínu mati er það ákaflega óheppilegt að skrifstofa jafnréttis- mála sé ríkisstofnun sem heyrir undir félagsmálaráðuneytið. Tengsl kæra- nefndar jafnréttismála við pólitískt ráðuneyti grefur undan sjálfstæði hennar og hlutleysi, einkum í málum þar sem ríkisvaldið sjálft er talið hafa brotið jafnréttislög. Vinnubrögð nefndarinnar hafa sætt miklu ámæli á undanfömum áram. Hún hefur m.a. þótt fara út yfir verksvið sitt, vinna ófaglega, vera höll undir ráðherra- vald, úrskurða í málum þar sem hún er vanhæf og um atriði sem hún hefur ekki sérfræðiþekkingu á. Málarekst- ur fyrir nefndinni hefur jafnframt með tímamun orðið æ viðameiri, sein- legri og dýrari. Flestum sem til þekkja er ijóst að afskipti kæra- nefndar jafnréttismála eru í besta falli gagnslaus íyrir brotaþola. Mun heppilegra væri að með úrskurðar- mál færi embætti umboðsmanns jafn- réttismála sem framkvæmdi ódýra og hraðvirka athugun á málsatvikum og mæti hvaða mál fengju eftirfylgjandi fjárhagsstuðning í dómsmálum. Þetta væri mun skilvirkari leið tO að auka eftiríylgni laganna um jafna stöðu kvenna og karla og mundi skapa mun ákveðnari réttarfarsstöðu í jafnréttis- málum. Verði núverandi frumvarp að lögum er nokkuð ijóst að dómsmálum í þessum málaflokki muni enn fækka, þar sem kostnaður er mikill og fyrirsjáanleg- ur ávinningur brotaþola nær enginn, þótt mál vinnist. Flestir munu því skirrast við að leggja út í málaferli. Einnig má benda á þá augljósu mismunun að kærendur verða sjálfir að kosta málarekstur sinn en atvinnurekend- ur, þar með talið ríkið, greiða lögfræðikostnað þeirra forstjóra sinna sem lögin brjóta á. Spumingin er því: Hver græðir á að viðhalda þessu apparati? Ekki brotaþolar og því er þetta fyrirkomu- lag einungis sýndarúiTæði til að slá ryki í augu almennings. Að mínu mati er það einnig spor aftur á bak í jafnréttismálum að Jöfnudur Frumvarp um breyting- ar á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, segir Hrefna Kristmanns- dóttir, er spor aftur ábak. styrkja stöðu og auka verkefni skrif- stofu jafnréttismála, sem nú verður n"kisstofnun beint undir félagsmála- ráðherra. Ég tel mun heppilegra, ódýrara og skilvirkara að félagsmála- ráðuneytið leggi skrifstofuna niður og feli óháðum félagasamtökum hluta þeirra verkefna sem nú heyra undir stofnunina og láti t.d. félagsfræði- deild háskóla vinna önnur verkefni. Þar með væru bæði hlutleysi og fag- leg vinnubrögð betur tryggð. Þó að hæft starfsfólk réðist tii lítillar stofn- unar eins og skrifstofu jafnréttismála er hætt við stöðnun og að endumýjun verði lítil. Borin von virðist að þar verði unnt að skapa þá breidd sem verkefnin krefjast, né að þau séu unn- in af sambærilegri fagmennsku og fæmi og á háskólastofnun. Að mínu mati er löngu orðið tímabært að leggja skrifstofu jafnréttismála niður og nýta þær rúmlega 30 mkr., sem þessi stofnun veltir árlega, til raun- veralegra úrbóta og framgangs jafn- réttis. Ég skora á alþingiskonur og -menn að gera raunhæfar endurbætur á lög- um um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla sem auka mundu jafnrétti í reynd, íyrst og fremst með stofnun embættis umboðs-manns jafnréttismála. Höfundur er jarðefnafræðingur. Hrefna Kristmannsdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.