Morgunblaðið - 19.02.2000, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000 63
UMRÆÐAN
Hvað fór úrskeiðis?
HINN 25. janúar sl.
sendi Samband dýra-
verndunarfélaga ís-
lands kæru til sýslu-
mannsins í Rangár-
vallasýslu, þar sem
óskað var eftir því að
opinber rannsókn færi
fram á meintum brot-
um á lögum um dýra-
vernd, lögum um bú-
fjárhald, forðagæslu
o.fl. og lögum um
dýrasjúkdóma og
varnir gegn þeim og ef
til vill fleiri lögum,
vegna meðferðar á
hrossum, kúm og
hundum á bænum Ar-
mótum, Rangárvallahreppi. Jafn-
framt var þess óskað að rannsakað
yrði hvort viðkomandi lögboðnir
eftirlitsaðilar, sem eru búfjáreftir-
litsmaður Rangárvallahrepps, ráð-
unautur Búnaðarsambands Suður-
lands, sveitarstjórn
Rangárvallahrepps og héraðsdýra-
læknirinn í Hvolsumdæmi hefðu
farið að ofangreindum lögum.
Talið er að mál þetta hafi átt sér
langan aðdraganda en hinn 24.
febrúar 1999 barst fyrst ábending
til Sambands dýraverndunarfélaga
íslands, SDÍ, um meinta vanfóðrun
og hirðuleysi á dýrum, sem voru á
býlinu Armótum í Rangárvallar-
hreppi. Var talið að ástandið væri
hörmulegt og að þá þegar hefðu
hross fallið úr hor. Munu skrokkar
þessara hrossa hafa legið í hirðu-
leysi úti á víðavangi langtímum
saman og fundist sl. sumar eða
haust. Jafnframt munu önnur hross
hafa fundist sjálfdauð á túninu að
Armótum nýlega. SDÍ hafði þegar
hinn 24. febrúar sl. samband við
Bændasamtök íslands, BÍ, sem
hafa yfirstjórn með framkvæmd
forðagæslunnar og fékk þær upp-
lýsingar að slæmt ástand myndi
vera á búinu og að málið væri til
meðferðar hjá réttum aðilum. Mál
þetta mun loks hafa borist sýslu-
mannsembættinu í Rang-
árvallasýslu um sl. áramót. Til við-
bótar við framangreint hefir nú
þurft að fella 45 hesta, sem talið var
að ekki ættu sér lífs von við þær að-
stæður, sem nú eru á búinu, vegna
langvarandi vannæringar þeirra, að
mati dýralækna. Jafnframt munu
um 200 nautgripir og um 20 hundar
á búinu hafa liðið
vegna vanfóðrunar og
hirðuleysis.
Sú staðreynd liggur
fyrir, að fyrir einu ári
var vitað að aðbúnaði
dýranna á Armótum
var svo mjög ábóta-
vant, að þau voru þeg-
ar tekin að falla vegna
vanhirðu og þá þegar
voru eftirlitsaðilar
með málið til meðferð-
ar. I lögunum eru ná-
kvæm ákvæði um þau
úrræði, sem ber að
beita ef grunur leikur
á að meðferð á dýrum
brjóti gegn þeim en
ekki virðist hafa verið beitt þeim
lögboðnu úrræðum, sem ofangreind
lög gera ráð fyrir, fyrr en málið var
komið í óefni.
Samkvæmt lögum um búfjárhald
o.fl. hafa búfjáreftirlitsmenn og við-
komandi búnaðarsambönd eftirlit
Hross
Lengi, segir Sigríður
Ásgeirsdóttir, hefír ver-
ið vitað um illan aðbún-
að og vanhirðu dýranna.
með ásetningi, fóðrun, beitilandi í
byggð og hirðingu dýra. Telji bú-
fjáreftirlitsmaður meðferð dýranna
ábótavant, skal hann tilkynna það
sveitarstjórn og landgræðslustjóra
þegar í stað og er þá sveitarstjórn
skylt að vara þann, er hlut á að
máli, þegar við og gefa honum viku
frest til úrbóta. Hafi dýraeigandan-
um ekki tekist að gera fullnægjandi
ráðstafanir innan frestsins, ber
sveitarstjórninni að útvega fóður,
hlutast til um fóðrun og umhirðu
eða ráðstafa fénu til fóðrunar.
Rannsaka þarf hvort þetta var gert
og þá hvenær.
Samkvæmt lögum um búfjárhald
skal sveitarstjórn eða búfjáreftir-
litsmaður í umboði hennar eða aðr-
ir, sem telja að meðferð á skepnum
brjóti í bága við gildandi lög eða
reglur, leita til héraðsdýralæknis.
Skal hann þá í samráði við yfir-
dýralækni og innan tveggja sólar-
hringa meta ástand skepnanna og
Sigríður
Ásgeirsddttir
aðstæður á staðnum, ásamt ráðuna-
ut búnaðarsambands og gefa búfjá-
reiganda fyrirmæli um ráðstafanir,
telji þeir það nauðsynlegt og veita
honum mest einnar viku frest til að
framkvæma þær. Rannsaka þarf
einnig hvort þetta hefir verið gert
og þá hvenær.
Ef búfjáreigandi hlítir ekki ráð-
stöfunum búfjáreftirlitsmanns,
sveitarstjórnar, trúnaðarmanns
búnaðarsambands eða héraðsdýra-
læknis eða hefir þær að engu og
fénaður hans líður sakir fóðurs-
korts, hirðuleysis eða harðýðgi að
áliti tveggja þessara aðila, er skylt
samkvæmt lögum um búfjárhald,
að tilkynna það lögreglustjóra
skriflega innan tveggja daga, ásamt
öllum málavöxtum. Skal lögreglu-
stjóri þá innan viku sjá um að úr-
bætur fáist í samræmi við dýra-
verndarlög en búfénu lógað að
höfðu sambandi við yfirdýralækni,
ef ekki er annarra kosta völ. Telji
framangreindir eftirlitsaðilar að úr-
bætur þoli ekki bið, getur lögreglu-
stjóri fyrirvaralaust tekið fé úr
vörslu eiganda og ráðstafað því með
þeim hætti, sem framangreindir
eftirlitsaðilar telja að tryggi best
HERBALIFE
SJÁLFSTÆBUR DREIFINGARABILI
S1 895 8225 'S"
Fréttir á Netinu
@ mbl.is
eiTTHVZKO PJÝTT
SKIPAPLOTUR - INNRETTINGAR
Æ PLÖTUR í LESTAR
Jl # V"^| SERVANT PLÖTUR
PP
&co
SALERNISH0LF
BAÐÞILJUR
ELDSHÚSBORÐPLÖTUR
Á LAGER-N0RSK
HÁGÆÐAVARA
Þ.ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29 S: 553 8640 t 568 6100
velferð þess. Samkvæmt lögum um
dýravérnd eru samsvarandi ákvæði
um eftirlitsskyldu og jafnframt víð-
tæk heimild til að kalla til lög-
regluna ef aðstoðar er þörf, en eins
og fram hefir komið var mál þetta
fyrst sent lögreglustjóra í janúar sl.
og var þá komið í mikið óefni.
Skýr fyrirmæli eru í lögum um
dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim,
hvernig fara skal með sjúk dýr, ef
grunur leikur á að þau séu haldin
smitsjúkdómi, en nú er komið í ljós
að salmonellusýking og/eða aðrir
sjúkdómar, svo sem hrossahitasótt,
munu hafa greinst á búinu. Rann-
saka þarf ítarlega hver dánarorsök
hestanna var, bæði hinna sjálf-
dauðu, sem hafa verið að finnast á
víðavangi og hinna 45, sem lógað
var fyrir skömmu, sem voru svo las-
burða að talið var að þeir ættu ekki
afturkvæmt til eðlilegs lífs. Sam-
kvæmt ákvæðum 5. greinar laganna
er sérstaklega áríðandi að fram fari
nákvæm rannsókn í slíkum tilvikum
og ná verður sýnum úr þessum
hrossum og jafnvel grafa þau upp
til þess, ef með þarf.
Samkvæmt framansögðu eru
samanlagðir frestir í framangreind-
um lögum tæpur einn mánuður og
ef farið hefði verið eftir þeim, hefði
málinu átt að geta verið lokið á sl.
vori. Þar með hefði verið komið í
veg fyrir þær þjáningar, sem dýrin
hljóta að hafa mátt þola síðan. Þeg-
ar kæra þessi var skrifuð var búið
að Armótum undir eftirliti lögreglu-
stjóra og sérstakur eftirlitsmaður
mun fylgjast með fóðruninni. Þessi
ráðstöfun er að sjálfsögðu til bráða-
birgða en það er á valdi lögreglu-
stjóra að ráðstafa búfénu þannig að
velferð dýranna sé sem best borgið.
Ljóst er að lengi hefir verið vitað
um illan aðbúnað og vanhirðu dýr-
anna að Armótum og reyndar er
það svo um fleiri staði á landinu.
Slík mál eru ekki aðeins á ábyrgð
viðkomandi dýraeiganda, heldur
margra lögboðinna eftirlitsaðila,
sem lögum samkvæmt ber að gera
skyldu sína. Ótrúlega algengt er að
þrátt fyrir skýr lagafyrirmæli um
úrræði og fresti og hverjum beri að
framfylgja þeim, er ástandið orðið
mjög slæmt þega slík mál koma upp
á yfírborðið. Málið að Armótum
verður að teljast það umfangsmesta
sinnar tegundar undanfarinn aldar-
fjórðung og vafalaust mun verða lit-
ið til meðferðar þess, sem fordæmis
í framtíðinni. Því er mjög nauðsyn-
legt að allir þættir málsins verði
rannsakaðir ítarlega og hvað fór úr-
skeiðis.
Höfundur er lögfræðingur Sam-
bands dýravemdunarfélaga Islands.
Barbour
.LLLu
Aðalfundur
Tæknivals hf. árið 2000
Aðalfundur Tæknivals h/f verður haldinn í
Þingsal A á 2. hæð Hótel Sögu (Radisson SAS)
miðvikudaginn 1. mars 2000 kl.16.00.
Dagskrá
Aðalfundarstörf samkvæmt 15. gr. samþykkta félagsins.
2) Tillögur til breytinga á samþykktum.
a) Heimild til stjórnartil að auka hlutafé.
fa) Heimild til stjórnartil að innkalla glötuð hlutabréf.
2) Tillaga um kaup félagsins á eigin hlutum skv. 55. gr.
hlutafélagalaga.
3) önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum sem bera á fram á aðalfundi
skulu hafa borist í hendur stjórnar með skriflegum
hætti, eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá, endanlegartillögur og ársreikningur félagsins
ásamt skýrslu endurskoðenda, munu liggja frammi á
skrifstofu félagsins, að Skeifunni 17, hluthöfum til sýnis
sjö dögum fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent við
upphaf fundarins. Minnt er á skyldu umboðsmanna til
að leggja fram skrifleg og dagsett umboð.
Reykjavfk 14. febrúar 2000
Stjórn Tæknivals h/f.
:S1
VEGNA FRAIIÆllRAK VlDTOKl
SELDIST VARAN UPP EN ER