Morgunblaðið - 19.02.2000, Síða 75
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Langt rövl á
SJONVARPA
LAUGARDEGI
SÍÐASTLIÐIÐ föstudagskvöld
birtist einhver lengsti rövlþáttur í
manna minnum á Sýn og mátti þó
halda að öll helstu met í leiðindum
haíl verið slegin nú þegar á hinni
nýju sjónvarpsöld, þar sem ungt
fólk heldur bara að
það sé fætt fyndið,
eins og náungarnir,
sem lentu í einskon-
ar hæstaréttarlegu
hægðastoppi með „gamansemi"
sína af því fleiri vildu fá „snilldina"
en fengu. Rövlþættir eins og á Sýn
eru næsta algengir í sjónvarps-
stöðvum erlendis og hafa ekki tek-
ist nema í sárafáum tilfellum. Hér
er vaðið út í þetta af því einhverjir
halda að þeir geti þetta og séu
drepfyndnir, sem þeir eru ekki, og
geta þess vegna hafa verið drep-
leiðinlegir frá fæðingu án þess að
fólk hafi beinlínis tekið eftir þeim
sjúkdómi fyrr en þeir vaða fram í
sjónvarpi með ekki neitt. Vilji fólk
sjá fyndna menn á það að horfa á
Ladda eða Örn Arnason og þá
menn sem í kringum þá hafa verið.
En að horfa á það harðlífi sem vin-
sælast hefur verið að undanförnu
og kallast gamanmál, held ég, hvað
skemmtun snerti, jafnist ekki á við
neitt nema ef það væri vist á Litla-
Hrauni.
Annað sjónvarpsefni er að ryðja
sér til rúms þessar vikurnar, kom-
ið úr dagblöðum og vikublöðum, en
það eru heilir þættir af fólki, sem
rembist við að sækja
skemmtistaði og
frumsýningar, jafnvel
í stórhríðum, í full-
vissu þess að það sé í
íslenska „þotuliðinu" og ljósmynd-
arar og sjónvarpsvélar bíða eftii-
að það birtist. Til allrar guðslukku
fylgdu ekki viðtöl þessu fólki, þeg-
ar myndh' birtust í blöðum, en í
sjónvarpi þarf það að tala og þá
sést að þetta eru svona megasar og
megusur, en það fólk fékk í einn
tíma viðurnefnið „meistarar" hjá
gelgjuskeiðsliðinu. Nú er komið
annað slíkt lið og það iðkar sama
atferlið og viðbættu meira dópi og
fleiri hnífsstungum. Jafnvel hálf-
áttræðir spekingar reyna að staul-
ast á þessa staði, þar sem von er á
myndatökum, til að horfa hálf-
brostnum augum yfir axlaberar
konur, sem eru á frumsýningum ef
þær eru ekki á opnun heysátusýn-
inga í myndlistarhöllum eða í þotu
yfir miðju Atlantshafi. Mér er nær
Sýn
að halda að fjölmiðlar stæðu jafn-
réttir eftir þótt þeir vissu ekki af
þessu fólki, sem talið er að sé um
hundrað manns. Kvikmyndasýn-
ingar hafa engar sérstakar verið í
sjónvarpi undanfarið utan kvik-
myndin hans Óskars Jónassonar,
Ur öskunni í eldinn, en lokahluti
hennar var sýndur á sunnudags-
kvöldið. Yfirleitt er ekki búist við
miklu af frekar stuttum kvikmynd-
um í sjónvarpi ó tímum þegar jafn-
vel myndh’ í fullri lengd ná ekki
áhorfi. En mynd Óskars var ágæt
og mætti jafnvel halda því fram að
þar væri loksins næsti kvikmynda-
leikstjóri framtíðar fundinn. Val á
leikurum sýndi gott auga leikstjór-
ans við að raða upp sem ólíkustum
persónum, því þar mega ekki allir
kettir verða eins. Þótt myndin
væri sérkennilega hrikaleg á köfl-
um, tókst henni að hafa yfir sér
ákveðinn léttleika. Ekki hef ég séð
líkbíl notaðan með sama hætti og
þarna var gert og þá tókust atriðin
með Hauki Morthens frábærlega
vel með því að fá fréttamann, eig-
inlega tvífara söngvarans heitins,
til að fara með hlutverk hans.
Indriði G. Þorsteinsson
Vinnuhesturinn McCartney
SVO virðist sem Sir Paul McCartney
hafi ákveðið að takast á við sorgina yf-
h- eiginkonumissinum með því að
hella sér út í vinnu.
I íyrra gaf hann út tvær breiðskíf-
ur. Sú fyrri var „Run Devil Run“.
Seinni skífan sem hann sendi frá sér
var „Working Classical" og af allt öðr-
um toga en á henni hélt hann áfram
að feta sig á sviði sígildra tónsmíða.
Gamli bítillinn virðist hins vegar
ekki ætla að láta þar við sitja um sinn
því þessa stundina er hann önnum
kafinn í heimahljóðveri sínu við upp-
tökur á nýrri breiðskífu. Þar verður á
ferðinni plata sem inniheldm’ á ný
frumsamin popplög, eins og honum
einum er lagið að smíða.
LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000 75
Nœturqatitm
Dansleikur í kvöld með Hilmar
Sverrissyni og Önnu Vilhjálms.
Borðapantanir í síma 587 6080.
HARMONIKUBALL
Dansinn dunar í kvöld í ÁSGARÐI,
Glæsibæ við Álfheima frá kl. 22.
Félagar úr Harmonikufélagi
Reykjavíkur leika fyrir dansi.
Ragnheiður Hauksdóttir syngur
Allir velkomnir, ungir sem aldnir. 7
Stólar
AJlar dýnur með
15-30% ajslcctti
Góutibékt
Dagana 19.- 26. fehrúar
Lagersala á lítílsMttar gölluðum
vörum ásamt dýnum, höfðagöflum,
náttborðum og hvfldarstólum.
aJJtað
70%
Rúmteppi Heilsukoddar
o.fl. o.fl...
jC'-. T-A350ftnna
Lane m
Mörkinni 4 • 108 Reýkjavík
Sími: 533 3500 • Fax: 533 3510 • www.marco.is
styðjum við bakið á
i
t
I
i
i