Morgunblaðið - 19.02.2000, Qupperneq 76

Morgunblaðið - 19.02.2000, Qupperneq 76
MORGUNBLAÐIÐ 76 LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000 «»»—.■■■—— ............■■■ — FÓLK í FRÉTTUM Hlin Diego Hjálmarsdóttir dansar í Goðsögnum i Borgarleikhúsinu Dansinn er lífsstíll sem krefst fórna Morgunblaðið/Golli Ur verkinu Diaghilev: Goðsagnir. Morgunblaðið/Jim Smart Hlín Diego Hjálinarsdóttir nam dans í Svíþjóð en dansar nú með íslenska dansflokknum. Hlín Diego Hjálmars- dóttir steig sín fyrstu ----------------7--------- dansspor með Islenska ^ dansflokknum í Borgar- leikhúsinu um síðustu ✓ helgi. I samtali við Sunnu Osk Logadóttur sagði hún frá námsárun- um í Svíþjóð og erfiðinu sem fylgir því að vera dansari af lífí og sál. DANSVERKIÐ Diaghilev: Goðsagn- ir er þriðji hluti Diaghilev-trílógíu höfundarins Jochens Ulrich og var *- það frumsýnt í Borgarleikhúsinu fyr- ir viku. Níu dansarar íslenska dans- flokksins taka þátt í sýningunni og er Hlín Diego Hjálmarsdóttir einn þeirra. Hún fluttist heim til íslands síðastliðið haust eftir að hafa búið og numið dans í Svíþjóð í fimm ár. Að- eins 16 ára gömul yfirgaf hún fóður- landið, alls ekki viss um að hún vildi verða dansari. Yngsti nemandi skólans „Ég hafði ákveðið að hætta að ^dansa og fór út til Svíþjóðar á sumar- námskeið," hefur Hlín söguna. „Með- an ég var úti voru haldin inntökupróf í Ballett Academy-skólanum í Stokk- hólmi. Ég sótti um en bjóst ekkert frekar við að komast inn en ég komst inn á þriðja ár.“ Hlín er yngsti nemandinn sem komist hefur inn á þriðja ár í skólan- um sem er mikil viðurkenning fyrir hana sem dansara. Hún útskrifaðist ári seinna og var þá búin að ákveða að leggja dansinn fyrir sig og sótti um í Sænska ballettskólann þar sem hún stundaði nám næstu þrjú árin. „í skólanum leggja nemendur jöfnum höndum stund á bóklegt og verklegt nám og taka stúdentspróf. Þetta er því nokkurs konar „Fame“-skóli,“ segir Hlín brosandi. „Það var alveg frábært að búa úti í Svíþjóð, ég bjó ein, hef séð um mig sjálf síðan ég var sextán ára. Mamma og pabbi voru vitaskuld hrædd um mig fyrst en ég kom reglulega heim til Islands til að vera með fjölskyldunni." Eftir að Hh'n lauk námi frá ballett- skólanum vann hún í eitt ár sem dans- ari í Svíþjóð. „Ég var á samningi í óp- erunni í Malmö. Leikhúsið þar er glæsilegt og er stærsta leikhús í Norður-Evrópu. Það var mjög spenn- andi að vinna þar en allt öðruvísi en hér heima. Dansinn er t.d. mikið bet- ur borgaður þar í landi.“ Á styrk frá sænska ríkinu Eftir farsælt starf í Malmö ákvað Hlín að koma heim til íslands síðasta haust. „Mér fannst tími til kominn að fara heim og hafði samband við Katr- ínu Hall, listdansstjóra hjá Islenska dansflokknum. Hún hafði áhuga á að fá mig en gat ekki boðið mér samning hjá flokknum. Þá sótti ég um styrk frá sænska ríkinu sem ég fékk, svo þeir í Svíþjóð borga launin mín núna,“ segir hún og hlær. „Ég vissi varla hveiju ég átti von á fyrst eftir að ég kom heim. En á svipuðum tíma kom til landsins danshöfundurinn Jochen Ulrich og honum leist vel á mig, þann- ig að ég fékk nóg að gera. Ég vonast til að komast á samning hjá dans- flokknum bráðlega því þetta hefur verið rosalega gaman. Eftir nokkur ár langar mig síðan að fara aftur tO útlanda." Grét á hverjum degi Hlín var ekki gömul er hún byijaði að dansa en áður en hún fór í dans- nám stundaði hún fimleika. „Ég byij- aði í fimleikum þegar ég var fimm ára. Ég þoldi það ekki, en Amór bróð- ir minn var svo duglegur í fimleikum að mamma og pabbi vildu að ég yrði það líka,“ rifjar Hlín upp og brosir góðlátlega. „Ég var svo hrædd í fim- leikum að ég grét á hverjum degi en mér fannst gólfæfingamar skemmti- legar því þar fékk ég að dansa.“ Þegar Hlín var níu ára fór hún í Kramhúsið og markar það upphaf dansferilsins. „Þar var rosalega gam- an. Kennarar þar sögðu að ég yrði að læra ballett líka til að ná tækninni og síðan þá hefur ballett verið hluti af mínu lífi.“ Skemmtilegt að vinna með tónl- istarfólki og leikurum Goðsagnir er fyrsta verkefnið sem Hlín tekm- þátt í með Islenska dans- flokknum. Goðsagnimar fjalla um Sergei Diaghilev sem var stjómandi Ballets msses í París í upphafi 20. aldarinnar og bylti hefðbundnum hugmyndum fólks um danslistina. Tónlistin í seinni hluta sýningarinnar er að stómm hluta eftir GusGus, bæði ný lög sem sérstaklega vora samin fyrir sýninguna auk eldri endurhljóð- blandaðra laga og flytur Daníel Ágúst Haraldsson tónlistina lifandi á svið- inu. Jochen Ulrich samdi Goðsagnir sérstaklega fyrir íslenska dansflokk- inn en verk eftir hann hafa áður verið sýnd hérlendis. „Það er mjög gaman að hafa Daníel Ágúst á sviðinu," segir Hlín og skemmtilegt fyrir okkur að fá tæki- færi til að vinna með tónlistarfólki svo náið. Á næstunni komum við til með að vinna með leikuram Borgarleik- hússins í Kysstu mig Kata sem er ekki síður áhugavert." Blóð, sviti og tár En skyldi Hlín oftar en einu sinni hafa ætlað að gefa dansinn upp á bát- inn? „Jú, guð minn góður, oft og mörg- um sinnum. Ég er alltaf að velta því fyrir mér hvort ég eigi að halda áfram því þetta er svo mikil vinna og illa borguð. Fólk endist heldur ekki mikið lengur í dansinum en til 35-40 ára aldurs. En allan tímann krefst vinnan blóðs, svita og tára, það er aðeins brot af tímanum sem maður nýtur sín til fulls. Það er erfitt að vera dansari, bæði líkamlega og andlega. Þetta er ekki vinna sem maður mætir í og fer síðan heim að hugsa um eitthvað ann- að. Þetta er vinnan, þetta er lífið, ákveðinn lífsstíll sem ég hef valið mér og ég verð að standa og falla með þeirri ákvörðun." NYJAR VORUR r-j H> . KRINGLUNNÍ Saman á frumsýningu LEIKKONAN Jennifer Aniston og kærastinn Brad Pitt mættu sam- an til frumsýningar myndarinnar „Hang- ing Up“ en vinkona Aniston úr Friends, Lisa Kudrow, leikur einmitt aðalhlutverkið í þeirri mynd ásamt Meg Ryan og Diane Keaton. Myndin fjallar um þijár systur og föður þeirra.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.