Morgunblaðið - 19.03.2000, Page 4

Morgunblaðið - 19.03.2000, Page 4
4 SUNNUDAGUR 19. MARS 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 12/3-18/3 ► SJÁLFSTÆTT fyrir- Málflutningur í Vatn- eyrarmálinu hafínn tæki verður stofnað um flutningskerfí raforku hér á landi á næsta ári, sem gæti tekið til starfa í árs- byrjun árið 2002 ef tillög- ur nefndar iðnaðar- ráðherra ná fram að ganga. ► SAUÐFÉ hefur fjölgað jafnt og þétt frá árinu 1995 þrátt fyrir markmið um fækkun. Ríkið hefur því gert samning við sauð- fjárbændur um að fækka sauðfá um 45 þúsund og hyggst það verja allt að 990 milljdnum króna í verkefnið. MÁLFLUTNINGUR í Vatneyrar- málinu hófst fyrir Hæstarétti á mið- vikudaginn, í máli ákæruvaldsins gegn Birni Kristjánssyni, Svavari Rúnari Guðnasyni og útgerðarfélaginu Hymó ehf. Bogi Nilsson ríkissaksóknari lét þau orð falla í málflutningi sínum að um pólitískt vandamál væri að ræða og löggjafans að leysa úr því. Lúðvík Kaaber hdl., verjandi Björns, sagði að Alþingi hefði með lögum um stjóm fiskveiða lögfest vilja hagsmunaaðila en leitt hjá sér hagsmuni meirihlutans. Mest geta liðið fjórar vikur uns dómur fellur í málinu. Deilur innan VMSÍ ► RÍKISSTJÓRNIN hefur lagt fyrir Alþingi frum- varp til breytinga á lögum um tckjuskatt, sem gerir ráð fyrir hækkun skatt- leysismarka í fjórum áföngum. Gert er ráð fyrir að skattleysismörk hækki um 2,5% um mánaðamótin. ► ÚTHAFSKARFAKVÓTI íslenskra skipa verður 45 þúsund tonn á þessu ári, sem er sami kvóti og á síð- asta ári. ► NORÐURÁ í Borgar- firði flæddi yfir veginn við Dalsmynni á fimmtudag- inn með þeim afleiðingum að hringvegurinn lokaðist í tvær klukkustundir. ► KEA hefur selt 20% hlut sinn í Húsasmiðjunni og er kaupandinn íslandsbanki F&M. Kaupverðið er talið vera um 1 milljarður króna og sagðist fram- kvæmdastjóri Islands- banka ekki lita á þau sem Iangtímafjárfestingu. HINAR hörðu deilur, sem komanar eru upp inan Verkamannasambands- ins, á milli Flóabandalagsins og félaga á landsbyggðinni, eru taldar geta leitt til klofnings sambandsins og innan verkalýðshreyfingarinnar er sú skoð- un uppi að klofningur VMSÍ myndi einnig leiða af sér klofning Landssam- bands iðnverkafólks. Deilurnar eru taldar geta komið í veg fyrir hug- myndir sem upi hafa verið um samein- ingu VMSÍ, Landssambands iðn- verkafólks og Þjónustusambandsins. SA og RSI handsala samning til 4 ára GRUNNUR að kjarasamningi milli Samtaka atvinnulífsins og Rafiðnaðar- sambandsins var handsalaður í húsa- kynnum sáttasemjara á föstudags- kvöld. Stefnt er að undirritun á miðvikudag og mun samningurinn gilda fram í febrúar árið 2004, eða í tæp fjögur ár. Það er eitthvert lengsta samningstímabil, sem um getur á al- menna vinnumarkaðnum hér á landi. Kínverjar hafa í hótunum við Taívana STJÓRN Taívans fyrirskipaði her landsins á fimmtudag að vera í við- bragðsstöðu vegna yfirlýsinga Kín- veija um að þeir kynnu að beita her- valdi ef sjálfstæðissinni færi með sigur af hólmi í forsetakosningunum sem fram fóru á Taívan í gær. Tang Fei, vai'narmálaráðherra Taívans, lagði þó áherslu á að ekkert benti til þess að Kínverjar væru að undirbúa árásir á landið. Hótanir Kínverja ollu miklum titr- ingi á hlutabréfamarkaðnum á Taívan og talið var að opinberir sjóðir hefðu dælt í hann andvirði 173 milljarða króna til að koma í veg fyrir verðhrun síðustu dagana fyrir kosningarnar. Áður hafði Zhu Rongji, forsætisráð- herra Kína, lýst því yfir að Kínverjar áskildu sér rétt til að beita hervaldi ef Taívanar sýndu „hvatvísi" með því að kjósa frambjóðanda sem vildi að Taív- an lýsti yfir sjálfstæði. Hann sagði að Kínverjar væru tilbúnir að „úthella blóði sínu og fórna lífinu til að verja einingu og virðingu ættjarðarinnar". Spænski Þjóðarflokk- urinn fær meirihluta ÞJÓÐARFLOKKURINN á Spáni fékk meirihluta þingsætanna í kosn- ingunum á sunnudaginn var og er þetta í fyrsta sinn sem spænskur hægriflokkur getur stjómað landinu án stuðnings annarra flokka eftir dauða Francos einræðisherra fyrir 25 árum. Spænskir fjölmiðlar lýstu úrslit- unum sem „pólitískum landskjálfta" og miklum persónulegum sigri José Maria Aznar forsætisráðherra, leið- toga Þjóðarflokksins, sem komst til valda fyrir fjórum árum eftir 14 ára valdatíma sósíalista. Sósíalistar og Vinstrabandalagið, undir forystu kommúnista, guldu mik- ið afhroð og leiðtogi sósíalista, Joaquín Almunia, sagði strax af sér. ► EVRÓPURÁÐIÐ sakaði jafnt Rússa sem Tsjetsjena um stríðsglæpi á mánudag og skoraði á rússnesk stjómvöld að helja strax viðræður við leiðtoga Tsjetsjena. Lára Margrét Ragnarsdóttir, sem var í sendinefnd Evrópuráðsins í Tsjetsjníu, sagði að ástandið væri skelfilegt, þorp og bæir væru rústir einar og fólkið hefði lítið sem ekkert haft fyrir sig að leggja dögum og jafnvel vikum saman. ► BILL Clinton Banda- ríkjaforseti og Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, hafa gefið út sam- eiginlega yfirlýsingu þar sem hvatt er til að aðgang- ur að öllum grundvallar- upplýsingum um arfbera manna verði „frjáls vís- indamönnum um allan heim“. Verð á hlutabréfum líftæknifyrirtækja lækkaði vemlega / kauphöllinni í New York við ti'ðindin. ► FRANSKIR friðar- gæsluliðar áttu i' átökum á miðvikudag við hundruð Serba, sem reyndu að brjótast inn á öryggis- svæði, sem komið var upp í borginni Mitrovica í Kos- ovo-héraði. Bandaríkja- stjórn setti ofan í við Kos- ovo-Albana og sagði að ef þeir hættu ekki árásum sínum á Serba yrði dregið verulega úr alþjóðlegum stuðningi við þá. ► ISRAELSK stjómvöld samþykktu á miðvikudag að Iáta af hendi 6,1% Vest- urbakkans fyrir næstu lotu friðarviðræðna við Palest- ínumenn. Yasser Arafat samþykkti tillöguna. Orkumálastjóri kynnir framtíðarsýn varðandi nýtingu orkulinda á nýrri öld Utflutningur orku æ veigameiri þáttur Dæmi um hugsanlega nýtingu íslenskra orkulinda til raforkuframleiðslu á næstu öld 50.000 GWstáári----------------------------------------- 45.000----------------------------------------------— 40.000-------------------------------------------------- 35.000----------------------------------------------— 30.000 25.000 20.000 15.000 10.000 5.000 0 1990 2000 2010 2020 2030 2040 2050 2060 2070 2080 2090 2100 ÍSLAND mun nýta orkulindir sín- ar í síauknum mæli á nýrri öld og munuútflutningur á raforku um sæstreng og eldsneytisframleiðsla verða æ veigameiri þættir í nýt- ingu orkulinda, á meðan stóriðja fer líklega dvínandi þegar líða tek- ur á seinni hluta aldarinnar. Þetta kom fram í framtíðarsýn sem Þorkell Helgason orkumálastjóri kynnti á ársfundi Orkustofnunar í vikunni. Þorkell velti fyrir sér hver þró- unin yrði í nýtingu orkulinda hér á landi og benti á ýmsa möguleika, svo sem aukinn orkufrekan iðnað, eldsneytisframleiðslu, til dæmis vetnisframleiðslu, og útflutning raforku um sæstreng. Hann sagði óþarft að stilla þessum framtíðar- möguleikum í orkumálum upp sem andstæðum. Orkulindirnar væru það ríkulegar að hægt væri að sjá fyrir sér fjölbreytta þróun og eins gæti hver þáttur átt sitt afmarkaða þróunarskeið. Þannig telur hann að tími stórframleiðslu á eldsneyti sé ekki runninn upp, en hann komi eflaust seinna á þessari öld. Einnig telur hann ekki sjálfgefið að ál- bræðslu verði haldið áfram út öld- ina, þó framan af henni kynni að verða drjúgur vöxtur í áliðnaði eða orkufrekum iðnaði. Hafa þyrfti í huga að þegar vetnisframleiðsla eða sæstrengur verði orðnir fýsi- legir kostir verði núverandi álver komin á elliár. Hann tók fram að auðvitað yrði það ekki svo að ál- bræðsla yrði látin víkja þegar elds- neytisframleiðsla hæfist, því í þeim markaðsbúskap sem framundan væri í raforkugeiranum myndi arð- semi ráða ferðinni en ekki miðstýr- ing, en álverin kynnu að verða undir í samkeppninni um orkuna ef verð á jarðefnaeldsneyti hækkaði stórlega og svigrúm til nýrra virkj- ana minnkaði. Mynd af hugsanlegri nýtingu orkulinda á öldinni Þorkell sýndi meðfylgjandi línu- rit þar sem sýnd er hugsanleg nýt- ing orkulinda á öldinni. Forsendur þessarar spár eru meðal annars þær að orkufrekur iðnaður vaxi allhratt næstu árin og nái hámarki árið 2025 og að eldsneytisfram- leiðsla verði fljótlega hafin í til- raunaskyni í litlum mæli, en kom- ist á skrið þegar stóriðjuvæðingin staðni. Nokkru eftir að stóriðjan nái hámarki verði lagður sæ- strengur, meðal annars í þeim til- gangi að styrkja allt raforkukerfið með tengingu út fyrir landstein- ana. Stóriðjan verði rekin í há- marki frá 2020 til 2060 en þá verði seglin dregin saman og hún látin víkja fyrir eldsneytisframleiðslu sem undir lok aldarinnar knýi skipa- og bflaflota okkar. Þorkell benti einnig á að ýmis- legt gæti orkað tvímælis í forsend- um spárinnar. Til dæmis gæti þótt ótímabært að reikna fastlega með vetnisvæðingunni, orkuþörf sam- göngutækja væri jafnframt óviss og hún kynni að víkja verulega frá þeirri þörf sem þarna væri lögð til grundvallar og einnig kynni sæ- strengur að koma fyrr til sögunn- ar. Þorkell lagði áherslu á að þessi mynd sem hann drægi upp væri ekki rökstuddur spádómur heldur væri henni einungis ætlað að reifa ýmsa möguleika og setja þá í sam- hengi. Hann sagði nauðsynlegt að framtíðarsýnir kæmu fram því þær hvettu til umræðu um núverandi stöðu og stefnumörkunar til fram- tíðar. * Biskup Islands skoðar afsökunarbeiðni SÉRA Gunnar Björnsson, sóknar- prestur í Holti, hefur sent biskupi Islands, herra Karli Sigurbjörns- syni, afsökunarbeiðni en eins og fram kom í Morgunblaðinu sl. þriðjudag hefur biskup áminnt séra Gunnar og óskaði hann jafnframt eftir viljayfirlýsingu frá séra Gunn- ari um einlæga iðrun hans og yfir- bót. Samkvæmt upplýsingum Þor- valdar Karls Helgasonar biskupsritara er bréf séra Gunnars nú til skoðunar og má búast við nið- urstöðu í málinu fljótlega upp úr helginni. Sl. fimmtudag sendi biskup ís- lands öllum prestum landsins bréf að gefnu tilefni vegna vandamála sem upp hafa komið í samskiptum presta og safnaða, eins og segir í bréfinu. Biskup minnir presta á að hlutverk þeirra sé fyrst og fremst þjónusta við söfnuðinn, skv. upplýs- ingum biskupsritara. Ljáðu þeim eyra á Súfistanum þríðjudaginn 21. mars kl. 20 Dagskrá í tilefni af útkomu Ijóðaþýðinga Þorsteins Gylfasonar Þorsteinn les úr nýrri bók sinni. Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Sif Ragnhildardóttir og Richard Simm flytja lög eftir Atla Heimi Sveinsson, Kurt Weill og Sergei Rachmaninov. I og menning|W| malogmennlng.is I |t| 1 ugavegi 18 • Slml 515 2500 • Síðumúla 7 • Sfml 510 2500 Frumvarp um veiðieftirlit Gjald nái til norsk-ís- lensku sfld- arinnar SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA hefur lagt fram í ríkisstjórn frumvarp um veiðieftirlitsgjald sem felur m.a. í sér þá breytingu að gjaldið verður lát- ið ná til norsk-íslensku síldarinnar. Ennfremur hefur ráðherra lagt fram frumvarp um breytingu á ýms- um gjaldtökuákvæðum laga, en það felur í sér að gjald sem rennur í Þró- unarsjóð sjávarútvegsins nær til norsk-íslenska sildarstofnsins. Sam- kvæmt upplýsingum úr sjávarútvegs- ráðuneytinu fela frumvörpin ekki í sér hækkun á þeim gjöldum sem lögð eru á sjávarútveginn í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.