Morgunblaðið - 19.03.2000, Side 11

Morgunblaðið - 19.03.2000, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. MARS 2000 11 Andstæðingar dauðarefsingar safnast ávallt sanian við San Quentin-fangelsið þegar aftökur fara fram. Darrell Keith Rich, eða Ungi Elgur, um að það leyti sem hann var handtekinn og um það leyti sem hann var liflátinn. Hann játaði morð á fjórum stúlkum og árásir á fimm aðrar. Annette Selix var aðeins 11 ára og yngsta fórnarlamb morðingjans. Annette Edwards, 19 ára gömul, var fyrsta fórnarlamb Unga Elgs. Pam Moore, 17 ára, var kyrkt og höfuð hennar brotið með steini. Linda Slavik, 27 ára, var neydd til að horfa á lfk Pam Moore, áður en morðinginn nauðgaði henni og skaut hana svo í höfuðið. Dauðadeildin alræmda í San Quentin-fangelsinu í Kalif- orníu, sem annast aftökurnar fyrir fylkið. myndavélar, hringar eru dregnir af fingrum og settir í stór umslög, pennar úr vösum. Hver og einn fær afhent tvö blöð og blýant. Klukkan er 23.20.1 næsta húsi er aftökuklefinn. Tuttugu mínútum síðar er sjúkrabíl ekið í stæði við aftökuklefann. Um svipað leyti gengur hópur vitna inn í húsið, þar sem aftakan fer fram, þeirra á meðal saksóknari ríkisins, lög- reglumenn, lögfræðingar hins dauðadæmda og tveii’ andlegir leiðtogar af Cherokee-ættbálkin- um. Klukkan 23.50 gengur annar hópur fólks inn, meðal annarra stjúpfaðir Annette litlu Selix og móðursystir hennar, bróðir Pam Moore, bróðir Lindu Slavik, ein kvennanna sem Rich nauðgaði og bróðir konu sem var nauðgað. Á sama tíma er Darrell Keith Rich leiddur frá dauðaklefan- um í aftökuklefann og reyrður niður á bekk. Hann er á 45. aldursári og hefur eytt hálfri æv- inni í fangelsi. Klukkan er rétt um miðnætti þegar blaða- menn, hver í fylgd eins fangavarðar, ganga yfir götuna og inn í hvítmálaða bygginguna á móti, sem líkist risastóru, hvítmáluðu verksmiðju- húsi. Vind hreyfir ekki og enginn segir orð. Það er eins og allt og allir haldi niðri í sér andanum. Okkur er vísað inn í hálfmánalagað herbergi, þar sem önnur vitni að aftökunni hafa þegar komið sér fyrir. Fremst situr fólkið sem á per- sónulegra harma að hefna og helst í hendur og fyrir aftan það standa önnur vitni. Hvítt tjald er dregið íyrir kúptan glugga á grænum aftöku- klefanum. Allir stara á tjaldið og bíða aftökunn- ar. Fangavörður opnar litla lúgu á hurð við hlið- ina á aftökuklefanum og kallar inn að vitnin séu öil komin. Um leið er tjaldið fyrir átthyrndum aftökuklefanum dregið frá. I klefanum liggur Darrell Keith Rich á bekk. Hann snýr frá flestum áhorfendum, sem horfa á hann inn um fimm glugga aftökuklefans. Ef hann liti til vinstri gæti hann séð Cherokee- indíánana tvo. Fórnarlömb hans sjá vinstri vanga hans. Blaðamenn, sem standa á pöllum, sjá aftan og ofan á hægri vanga hans. Með arnarfjöður á bringn Hann er klæddur í dökkbláar buxur og ljós- bláa, stutterma skyrtu, skólaus í hvítum sokk- um. I kross yfir bringu hans og um mittið eru svartar, breiðar ólar. Fætur hans eru bundnir niður með sams konar ólum. Handleggir hans eru njörvaðir niður og í báðum olnbogabótum eru æðaleggir. Önnur rásin verður notuð, hin er til vara. Hjartariti er tengdur við bringu. Hann er með húðflúr á hægri handlegg og á bringu hans liggur stór arnarfjöður. Hún hefur verið lögð þar eftir að hann var bundinn á bekkinn, með sérstöku leyfi fangelsisstjórans. Það er engu líkara en hann sofi. Hann er með lokuð augun og andar djúpt og reglulega. Eng- inn sviti perlar á honum. En það fær varla stað- ist að hann sé sofandi og samkvæmt reglum má hann ekki fá róandi lyf íyrir aftöku. Einhver réttir samam-úllað blað út um lúg- una við hlið aftökuklefans. Fangavörður tekur við því, flettir í sundur og les upp tilskipun um aftöku Darrells Keith Rich. Aftakan átti að heijast eina mínútu yfir mið- nætti, en klukkan er orðin 6 mínútur yfir þegar eitrið streymir í æðar hans. Tveir læknar stjórna eiturstrauminum. Héma áður fyrr voru menn sem höfðu þetta hlutverk kallaðir böðlar. Líklega er það ekki gert lengur, enda særir það eyru rétt eins og hengingarnar og eiturgasið særðu augu. Þeir eru í „aftökuteyminu" sem leggur sig í líma við að gera aftökuna sem mein- lausasta að sjá. Hvernig ætli læknaeiðurinn, sem þessir menn sverja, sé orðaður? Hugsan- lega eitthvað á þá leið, að þeii- skuli gera allt sem í þeirra valdi stendur til að viðhalda lífi, nema dómstólar ákveði annað. Nöfnum þessara manna og annama í teyminu er haldið leyndum. Þeir eru kannski ekki stoltir af starfinu þegar öllu er á botninn hvolft. Læknarnir og fangelsisstjórinn eru inni í litlu herbergi. Á vegg herbergisins era þrír símar. Einn er tengdur skrifstofu ríkisstjórans, annar er tengdur Hæstarétti Kalifomíu og skrifstofú saksóknara og sá þriðji er tengdur skrifstofu fangelsisstjórans. Verjendur Unga Elgs höfðu gert lokatilraun fyrr um daginn til að fá ríkis- stjórann eða Clinton forseta til að afturkalla af- tökuna. Þeim snýst ekki hugur þetta kvöld og enginn símanna hringir. Hann andar ennþá reglulega, sýnir engin svipbrigði, kyngir einu sinni eða tvisvar. Alltaf með lokuð augun. Líklega missir hann meðvit- und mjög fljótlega. Stjúpfaðir Annette hafði lýst því yfir íyrirfram að hann vildi ekld fyrir nokkurn mun missa af aftökunni, hann yrði að sjá þennan viðbjóð áður en hann yrði tekinn af lífi. Nokkrum sinnum lítur hann í áttina að manninum á aftökubekknum, en hann getur ekki horft á hann. Aðrir ættingjar fórnarlamba stara á hann. Konan, sem hann nauðgaði árið 1978, tekur ekki augun af honum. En hún bregður aldrei svip. Grafarþögn. Saltvatnslausn fer um æðaleggina á milli eit- urskammta. Guð má vita af hverju þeir telja sig þurfa að skola á milli. Næsti skammtur er áreið- anlega farinn að streyma, þessi sem á að lama hann. Dauðaþögnin er allt í einu rofin þegar konan sem hann nauðgaði hóstar. I fyrstu aðeins einu sinni, en svo aftur og loks stjórnlaust, þurrum, sárum hósta. Hún fær ekki við neitt ráðið. Kannski hefur þessi ægfiegi hósti náð tökum á henni þegar hún varpaði öndinni léttar við að horfa á kvalara sinn deyja. Bringa hans rís og hnígur sem fyrr. Svo hæg- ir á, maginn dregst inn. Saltvatnslausn. Hjarta- stöðvandi eitur. Nú sést engin hi'eyfing lengur. Ai-narfjöðrin, sem lyftist með hverjum andar- drætti, haggast ekki. Aftur opnast lúgan á hurðinni og pappírsrúlla er rétt út. Fangavörðurinn tekur við henni og les tilkynningu um dánarstund. Darrell Keith Rich var úrskurðaður látinn klukkan 13 mínút- ur yfir miðnætti. Ungi Elgur er allur. Alið á hatri í 22 ár Á götunni fyrir utan aftökuklefann stendur sjúkrabíllinn sem fyrr, tilbúinn að aka á brott með líkið. Fjórum dögum fyrir aftökuna kom í ljós, að morðinginn átti frátekið legstæði við hlið móður sinnar, í kirkjugarði í heimabænum Cottonwood í Norður-Kaliformu. Það leg- stæði var um 30 metra frá gröf Annette litlu Selix. Heimamenn urðu æfir og Darrell Keith Rich samþykkti að hann yrði jarðað- ur annars staðar. Áþriðjudags- morgni, hálfum sólarhring fyrir aftökuna, var kista móður hans grafin upp og hún jarðsett aftur á ókunnum stað. Sonur hennar verðúr jarðaður við hlið hennar. Hatrið, sem beindist að morðingjanum, var skiljanlegt. Afbrot hans voru skelfilegri en orð fá lýst. En hatrið hafði líka verið nært í 22 ár. Það beindist að Darrell Keith Rich, en skað- aði alla sem áttu um sárt að binda. Allir biðu endalokanna og enginn gat komið lífi sínu í skorður á ný fyrr en hann væri allur. Þessi bið er líklega sterk- asta röksemdin gegn dauða- refsingunni, fyrir utan þá hörmulegu staðreynd að stund- um reynast dauðadæmdir menn saklausir. Móðir Annette litlu treysti sér ekki til að skoða myndir af henni og teikningar sem hún hafði gert í skólanum fyrr en fór að líða nærri aftökunni. Hún og eiginmaður hennar hafa ekki farið að leiði Annette í mörg ár og hafa ekki enn treyst sér til að velja henni legstein. Þau segjast ef til vill geta gert það núna, þegar málinu er loksins lokið. Ef þau endalok hefðu komið fyrr, með dómi um lífstíðarfangelsi, þá er ekki loku fyrir það skotið að fjölskyldan hefði lært að lifa með sorg sinni. Engin þeirra fjölskyldna, sem Darrell Keith Rich skaðaði fyrir 22 árum, hefúr leitað sér að- stoðar vegna andlegra erfiðleika í kjölfar nauðgananna og morðanna. Allar fjölskyldum- ar hafa hins vegar þegið boð um aðstoð núna, eftir að morðinginn er allur. Núna fyrst sjá ætt- ingjamir möguleika á að taka upp þráðinn á ný, halda lífinu áfram eftir 22 ára kvalafullt hlé. Eftir aftökuna í San Quentin fangelsi lýsti fangelsisstjórinn því yfir, að Darrell Keith Rich hefði sagt eitt orð eftir að hann var bundinn á aftökubekkinn. Peace. Friður. Kannski var hann að vísa til þess að hann fengi sjálfur frið, kannski var hann að óska öllum þeim, sem hann hafði skaðað, friðar. Stjúpfaðir Annette hélt stutta tölu eftir aftök- una og sagði nauðsynlegt að stytta tímann sem líður frá því að dauðadómur er kveðinn upp þar til sá dæmdi er tekinn af lífi. Bróðir Pam Moore sagði að loks væri réttlætinu fullnægt. Fjöl- skyldan hefði kvalist í biðinni og það hefði verið óþolandi að heyra lýsingar á því hversu mikill fyrirmyndarfangi morðinginn væri og hve mjög hann iðraðist. „Ef hann hefði raunverulega iðr- ast, þá hefði hann ekki notað alls konar laga- flækjur til að slá aftökunni á frest. Meira en tuttugu árum eftir að systir mín var myrt er réttlætinu loksins fullnægt." Bróðir Lindu Slav- ik sagði að morðinginn hefði iðrast þess eins að láta lögregluna grípa sig. Fangaverðir lásu upp tvær yfirlýsingar til viðbótar. Ein þeirra kvenna sem hann nauðgaði sagðist loksins hafa fengið frið. Darrell Keith Rich gæti ekki lengur ofsótt sig í svefni sem vöku. Lokayfirlýsingin var frá systur Annette Edwards. Hún sagði aftökuna hafa verið of auð- velda lausn, eftir allt það sem fjölskylda hennar hefði þurft að þola í 22 ár. Kannski hefur hún verið að vísa til þess, að síðasta stund morðingj- ans var friðsæl, þrátt fyrir allt. Síðustu stund- irnar sem fórnarlömb hans lifðu voru hins vegar fullar ólýsanlegri skelfingu og sársauka. Hin fullkomna hefnd, auga fyrir auga, hafði ekki náð fram að ganga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.