Morgunblaðið - 19.03.2000, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 19. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Óðinn Ásgeirsson sækir að körfu Hauka.
Magnús Heigason
„ÞEIR stóðu sig vel mínir
menn,“ sagði einn mikill knatt-
spyrnuáhugamaður á föstu-
dagsmorguninn, þegar hann
mætti til vinnu. „Já, Werder
Bremen átti ekki möguleika í
Arsenal," sagði félagi hans. „Því
er ég sammála, en ég átti ekki
við Arsenal - heldur mínir menn
að norðan. Þórsarar eru að
koma fram með öflugt körfu-
knattleikslið."
Jú, það er rétt hjá knattspyrnuá-
hugamanninum - leikmenn
Þórs veittu Haukum heldur betur
harða keppni i 8-liða
Eftir úrslitunum um Is-
SigmundÓ. landsmeistaratitlinn
Steinarsson í körfuknattleik.
Miklu meiri keppni
en menn reiknuðu með.
Þórsliðið er skipað ungum og
skemmtilegum leikmönnum, sem
eru ekki mikið þekktir fyrir utan Ak-
ureyri. Hverjir eru þessir ungu leik-
menn? Eru Akureyringar að koma
upp með spútniklið, sem á eftir að
veita liðunum frá Suðumesjum
harða keppni á komandi árum?
Verður Þórsliðið í körfuknattleik
eins og KA-liðið var í handknattleik?
Við leituðum svara hjá þjálfara liðs-
ins - Ágústi Guðmundssyni og til að
forvitnast um strákana hans. Já,
hverjir eru mennirnir hans Orra
Páls Ormarssonar?
„Kjarninn í Þórsliðinu eru strákar
sem ég byrjaði að þjálfa í níunda
flokki, þá þrettán ára gamlir. Ég hef
verið með þá óslitið síðan og gengið
nokkuð vei. Þegar við byrjuðum í
yngri flokkunum vorum við í C-
Maurice Spillers á vítalínunni.
flokki, en unnum okkur jafnt og þétt
upp í A-flokk - höfum síðan hampað
nokkrum meistaratitlum,“ sagði
Ágúst, sem tók við meistaraflokki
Þórs fyrir síðasta keppnistímabil.
„Ég var strax staðráðinn að veðja á
mína menn. Þeim til stuðnings fékk
ég Konráð Óskarsson til baka og þá
var hafíst handa að byggja upp lið.
Ég var ákveðinn að vinna með það
sem ég hafði í höndunum - gefa ungu
strákunum tækifæri að leika mikið.
Við vorum óheppnir með útlending
en þegar Maurice Spillers kom, kom
til okkar leikmaður sem féll strax inn
í liðsheildina. Við erum með mjög
sterkan leikmannahóp, sem Ieggur
hart að sér til að ná árangri. Það hef-
ur lengi verið draumur okkar Akur-
eyringa að eignast gott körfuknatt-
leikslið - sá draumur er á góðri leið
með að rætast,“ sagði Ágúst.
Nær Ágúst að halda mönnum sín-
um saman næstu árin? „Já, ég sé það
fyrir mér. Það er mjög þýðingarmik-
ið fyrir okkur að það er háskóli hér á
Akureyri. Þá er ég með mjög stóran
hóp, átján leikmenn, þannig að þó
svo að einn eða tveir detti út, koma
aðrir leikmenn tvíefldir í þeirra stað.
Það hefur mikla þýðingu að við
byggjum liðið upp eingöngu á heima-
mönnum, leikmönnum sem eru að
leika fyrir Akureyri og Þór.“
Sigurður Sigurðsson
hendi. Áhuginn fyrir liðinu hefur
vaxið jafnt og þétt - farið stigmagn-
andi. Það var stórkostlegt að sjá
hvað margir fylgdu okkur til Hafnar-
fjarðar er við lékum gegn Haukum.
Þeir stuðningsmenn veittu okkur
mikinn stuðning og vonandi fáum við
enn meiri stuðning í íþróttahúsinu á
Akureyri á sunnudagskvöldið," sagði
Ágúst Guðmundsson.
Morgunblaðið/Kristinn.
Ágúst Guðmundsson, þjálf-
ari Þórs, gefur sínum mönn-
um góð ráð I hita leiksins
gegn Haukum.
Hefur þú trú á því að liðið eigi eftir
að skáka Suðumesjaliðunum ífram-
tíðinni?
„Efniviðurinn er fyrir hendi. Ef
haldið er rétt á spilunum með liðið,
þá sé ég ekki annað en við getum fest
okkur í hópi fjögurra sterkustu iið-
anna. Við höfum verið að leika vel að
undanförnu."
Er Pórsliðið að verða eins og KA-
liðið í handknattleik, þegar það vann
hugpg hjarta Akureyringa?
„Ég verð að segja eins og er, að
KÁ-menn höfðu meiri peninga á milli
handana til að gera stóra hluti. Við
verðum að nýta okkur vel þau sókn-
arfæri sem við eigum. Þau eru fyrir
Leikmenn Þórs
Leikmenn, aldur. Leik-
menn sem eru feitletrað-
ir, eru leikmenn sem
Ágúst Guðmundsson
hefur alið upp hjá Þór:
Ásmundur Oddsson...........20
Davíð J. Guðlaugsson.......20
Einar H. Davíðsson.........26
Einar Valbergsson..........27
Einar Ö. Aðalsteinsson.....20
Guðmundur Aðalsteinsson....20
Guðmundur Oddsson...........22
Hafsteinn Lúðvíksson.......24
Hermann Daði Hermannsson ....19
Hrafn Jóhannesson...........19
Konráð Óskarsson............35
Magnús Helgason.............20
Maurice Spillers............26
Óðinn Ásgeirsson............21
Sigurður Sigurðsson........21
Þðrarinn Jóhannesson........20
Þjálfari:
Ágúst Guðmundsson...........33
„Min
men