Morgunblaðið - 19.03.2000, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. MARS 2000 19
LISTIR
Ljósmynd/Þjóðleikhúsið
Jón Hreggviðsson og Snæfríður íslandssól. íslandsklukkan 1960.
Islensk leikrit í
Listaklúbbnum
í TILEFNI af 50 ára afmæli Þjóð-
leikhússins standa Listaklúbbur
Leikhúskjallarans og Þjóðleikhúsið
fyrir leiklestraröð sem ber yfir-
skriftina Gullkistan. Lesin verða
brot úr leikritum þeirra íslensku
höfunda sem helst settu svip á fyrstu
áratugi hins nýja Þjóðleikhúss Is-
lendinga og fjallað um höfundar-
verk þeirra. Þeir höfundar sem
minnst verður á þennan hátt eru
Halldór Laxness, Agnar Þórðarson,
Oddur Björnsson og Guðmundur
Steinsson. Leikritin sem fyrst verða
dregin upp úr gullkistunni eru eftir
Halldór Laxness. Sveinn Einarsson
segir frá skáldinu og stýrir leiklestr-
um á brotum úr Islandsklukkunni,
Silfurtúnglinu, Prjónastofunni Sól-
inni, Strompleik, Húsi skáldsins og
Sjálfstæðu fólki.
Aðstoðarmaður Sveins er Bjöm
Gunnlaugsson. Leikarar sem flytja
brot úr verkunum em Ingvar E. Sig-
urðsson, Sigurður Sigurjónsson,
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Lilja
Guðrún Þorvaldsdóttir, Hilmir Snær
Guðnason og Arnar Jónsson. Næstu
dagskrám stýrir Jón Viðar Jónsson
og verða þær haldnar 3. og 17. apríl.
Dagskráin um Halldór Laxness
verður mánudaginn 20. mars og
hefstkl. 20:30.
Húsið verður opnað kl. 19:30.
Sunna með glæsikvartett
TONLIST
M ú I i n n á S ð 1 o n i
íslandusi
DJASSTÓNLEIKAR
Kvartett Sunnu Gunnlaugsdóttur.
Tony Malaby, tenórsaxófónn,
Sunna Gunnlaugsdóttir, píanó,
Drew Grass, bassi og Scott McLem-
ore, trommur. Sunnudagskvöldið
12. mars 2000.
SUNNA Gunnlaugsdóttir er enn
komin frá New York þarsem hún hef-
ur starfað um árabil sem djasspían-
isti og ekki látið samkeppnina í höfuð-
borg djassins buga sig, heldur haldið
sínu striki og þroskast sem listamað-
ur jafntogþétt.
Hún lét sér ekki nægja að halda
tvenna tónleika í Reykjavík sl. sunnu-
og mánudagskvöld, heldur lék einnig
með kvartetti sínum á Isafirði, Akur-
eyri og Húsavík. Vonandi hafði hún
árangur sem erfiði því þó djassinn
hennar sé engin framúrstefna er
hann nútímalegur í besta skilningi
orðsins og ekkert gefið eftir í listræn-
um metnaði.
Verkin á efnisskránni vora öll eftir
Sunnu utan eitt eftir trommarann
Scott, en hún kryddaði tónleikana
með fjóram söngvum er íslendingar
kyrja oft, einn ættaður frá Dan-
mörku, annar frá Hawaú og svo tvö
íslensk þjóðlög: Sofðu unga ástin mín
og Undir himinsbláum boga. Bar út-
setning þess af hinum einsog gull af
eir og féll fullkomlega að spilastíl
kvartettsins. Malaby varð eitt með
laginu, en ekki tvöfaldur einsog í
Sofðu unga ástin mín, þó sóló hans
þar væri áhrifamikill einsog í flestum
verkanna.
Síðast heyrði ég Sunnu leika hér-
lendis í Seltjamameskirkju í desem-
ber 1998. Þá var Scott með henni á
trommur og Gunnlaugur Guðmunds-
son á bassa. Þeir tónleikar vora dálít-
ið litlausir og átakalitlir og það á bet-
ur við Sunnu, að mínu viti, að leika
með kvartetti en tríói. Hún er nokkuð
lúnkin að semja og sérílagi era ball-
öður hennar fallegar, s.s. Minful og
Evensong er hún lék í Múlanum. Þó
Sunna hafi aldrei lagt stund á klass-
ískan píanóleik bregður stundum íyr-
ir klassískum hendingum hjá henni
einsog algengt er á voram dögum,
enda heyrist að Keith Jarrett og ekki
síður yngri píanistar á borð við Brad
Meldhau era henni hugleiknir. Þó
hefur hún náð að móta nokkuð pers-
ónulegan stíl, en þó Sunna sé nokkuð
innhverf í túlkun sinni er hún mun
amerískari en norræn.
Scott og Sunna léku vel saman
einsog við höfum heyrt hérlendis áð-
ur, en meðleikarar þeirra komu held-
ur en ekki á óvart. Drew Grass er
traustur bassaleikari með fínan tón
og hryntilfinningu. Hann er vel
Stimpilklukkukerfi
KERFISÞRÓUN HF.
Fákaleni 11 • Sími 568 8055
http://www.kerfisthtoun.is/
þekktur og hefur leikið og hljóðritað
með ótal djassleikuram. Hann hefur
leikið mikið framúrstefnudjass með
liðinu sem gjaman er kennt við Knitt-
ing Factory liðið og það hefur saxist-
inn Tony Malaby einnig. Hann hafði
ég aldrei heyrt áður og sá kom á
óvart. Fautasaxisti sem hefur tekist
að skapa sér eigin stfl litaðan af Coltr-
ane, en þó Mobley-mattan ogýlfrandi
á stundum einsog í því lagi Sunnu er
mér fannst skemmtilegast, Bad Seed.
Kom þá Gato Barbieri uppí hugann
þó Malaby spilaði ekki af jafnmiklum
hita og tilfinningu - en ýmislegt í
blæstri hans, semog laglínu Sunnu,
minnti á Argentínumanninn.
Sunna hefur leikið mikið með þess-
um drengjum síðasta árið enda bar
samleikurinn þess merki og hún hef-
ur hljóðritað disk með þeim félögum
og ég er illa svikinn ef hann á ekki eft-
ir að bera hróður kvartettsins víða -
auðnist henni að koma honum til út-
gáfu hjá fyrirtæki þarsem dreifingin
er í lagi.
Vernharður Linnet
Mikið úrval af
Silki-damaski
í metratali
Skólavörðustíg 21, Rvík, sími 551 4050.