Morgunblaðið - 19.03.2000, Side 20

Morgunblaðið - 19.03.2000, Side 20
20 SUNNUDAGUR 19. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Sýning íslenskra leirlistarkvenna á Long Island Frá sýningunni Hot Zone Five á Long Island. Verk eftir Kristínu ísleifsdóttur. N áttúra leirsins Hann kennir sig við varmasvæði Islands hópur fímm leirlistarkvenna sem sýna verk sín í sýningarsal og á bókasafni Adelphi-háskólans á Long Island undir ‘ ------------------7------- yfirskriftinni Hot Zone Five. I tengslum við sýningu sína héldu listakonurnar þrjá fyrirlestra þar sem þær fjölluðu um verk- in og sýndu fram á tengsl þeirra við ís- lenska náttúru. Hulda Stefánsdóttir fréttaritari í New York kynnti sér málið. LISTAKONURNAR eru Ólöf Erla Bjarnadóttir, Sigríður Erla Guð- mundsdóttir, Kristín Isleifsdóttir, Elísabet Haraldsdóttir og Sigríður Ágústsdóttir. Þær hafa ekki sýnt saman áður en verk þeirra voru val- in í samvinnu við prófessor Judith Ackerhalt, kennara við háskólann. Judith kom til Islands fyrir fjórum árum og hreifst þá af leirverkum sem hún sá á sýningu í Reykholti. I framhaldinu skoðaði hún fleiri verk íslenskra leirlistarmanna og hug- mynd að samsýningu hér vestra kviknaði. Listadeild háskólans tók vel undir hugmynd Judithar og þótti þetta kærkomið tækifæri til að víkka sjóndeildarhring nemenda deildarinnar og kynna þeim og öðr- um nokkuð sem þau hefðu aldrei komist í tæri við áður. í tengslum við opnun sýningarinnar fluttu lista- konurnar þrjá fyrirlestra þar sem þær kynntu verk sín, annars vegar við háskólann og hins vegar við lista- deild Nassau-College í næsta ná- grenni. Sýndu þær einnig myndir úr náttúru og landslagi Islands sem þær hafa allar sótt innblástur til með einum eða öðrum hætti. Formleysa efnisins gefur frelsi í sköpun Aðalsteinn Ingólfsson, forstöðu- maður Hönnunarsafnsins, ritar grein í bækling sem gefin var út í til- efni sýningarinnar. Hann rekur skamma sögu leirlistar á Islandi auk þess að gera grein fyrir ólíkum höf- undareinkennum listakvennanna fimm. Minnir Aðalsteinn á hversu ungt landið er og þar af leiðandi lítið um nýtanlegan leir í jörðu. Hann segir starfandi kjmslóð leirlistar- manna á íslandi láta sig mörk nytja- listar og skúlptúrs litlu varða og að Listakonurnar fyrir utan galleríið. Morgunblaðið/Hulda Stefánsdóttir þeir hafi sótt sér menntun til svo ólíkra staða sem Japans, Finnlands og Bandaríkjanna. Bryndís Schram sendiherrafrú opnaði sýninguna og ávarpaði gesti. „Það hversu litla hefð leirlist á sér á Islandi veitir okkur ákveðið frelsi til tilrauna með efnið,“ bendir Ólöf Erla á. „Leirinn er í eðli sínu alger formleysa og því eru allar vegir opnir við mótun hans.“ Verkin á sýningunni spanna enda mjög vítt svið. í sýning- arsal háskólans eru sýndir leirskúlpt- úrar og lágmyndir en í anddyri bóka- safnsins eru minni hlutir sem flestir myndu teljast til nytjalistar, s.s. skál- ar og vasar, bollar, katlar og könnur. Höfundareinkenni eru þó alltaf skýr. Sigríður Erla Guðmundsdóttir kýs að vinna með hreinan íslenskan leir en einkenni hans eru m.a. óvenju mikil fjölbreytni litatóna. Hún reynir að ná einkennum leirsins í hráum, grófgerðum formum sem hún þekur síðan að hluta til litskrúðugum smákuðungum. „Það er þetta tæra samband við jörðina sem heillar mig,“ segir Sigríður Erla. Einföld form eru einkennandi í verkum Sigríðar Ágústsdóttur. Lita- tóna sækir hún í íslenska náttúru belgmiklir vasaskúlptúrar hennar á sýningunni hér bera nöfn þekktra ís- lenskra eldfjalla eins og Kötlu og Heklu. Um verk sín á sýningunni segir Ólöf Erla Bjarnadóttir að hún velji sér eitt form, tígulformið, og reyni að fara með það eins langt og hún geti, bæði í mótun formsins og yflr- borðsteikningu. Á meðan litirnir séu sóttir til íslenskrar fjallanáttúru þá byggist formið á hugmyndum úr kristinni táknfræði um anda og efni. Kristín ísleifsdóttir styðst við let- ur úr 33 tungumálum sem tekið er úr þekktum bókmenntaverkum. Hún silkiþrykkir á form sín, skálar eða kúlur, sem höfð eru einföld svo að letrið fái sín notið. I verki sem hún nefnir vorleysingar notar hún þykkan og seigan glerjunginn sem tákn fyrir það þegar ísa fer að leysa, glær skán liggur yfir jörðu svo glampar á í sólinni. Elísabet Haraldsdóttir sýnir lág- myndir á vegg, fjöll sem breiða úr sér eins og í ílöngum sjóndeildar- hring sem teygir sig út í hið óend- anlega. Leirinn málar hún ýmsum bláum og rauðbrúnum tónum. Listakonan hefur lengi búið á Hvanneyri og segir verk sín óneit- anlega hafa mótast af nálægðinni við náttúruna. I skálum sínum sæk- ir hún svo form og mynstur í þara og steina fjörunnar. Sýningin stendur yfir til 23. mars nk. Islensk leirlist vekur athygli New York Times DAGBLAÐIÐ New York Times fór nýlega Iofsamlegum orðum um sýn- ingu íslensku leirlistakvennanna í Adelphi háskólanum og kallaði blaðið sýninguna „ævintýralega“. I umfjöllun blaðsins segir: „Island er þekkt fyrir bókmenntaarfleifð og þinghald sem á sér um þúsund ára sögu, en ekki fyrir leirlist sína. í raun segir í bæklingi þessarar æv- intýralegu sýningar fimm íslenskra leirlistakvenna að fslensk Ieir- listasaga heíjist ekki fyrr en á 20. öld þegar keramikverkstæði voru stofnuð. Og í dag notfæra leirlista- mennirnir sér tækni sem byggir á því besta sem finna má í evrópskri, asískri og amerískri leirlistarsögu. Leirskúlptúra er að finna í lista- miðstöð háskólans, á meðan nylja- hlutir eru hafðir til sýnis í anddyri bókasafnsins. Enda eru veggskápar og glerkúplar vel til þess fallinn sýna skálar, platta og drykkjarílát. Ljósmyndir veita enn fremur inn- sýn í undraverða jarðfræðisögu ís- lands, þar sem hraunflæði og jarð- hitasvæði kunna að virðast hin fullkomna staðsetning fyrir leir- brennsluofn þó landið sé of ungt til að góður leir hafi náð að myndast. Sýningin er engu að síður til vitnis um að listamennirnir bregðast sterklega við sínu sérstaka um- hverfí. Hrjóstrugt jörðin endurspeglast í verki Elísabetar Haraldsdóttur, Trúin flytur fjöll, þar sem myndefn- ið nær að fjá bæði sléttur og hæðir. Lágmynd úr flísum þar sem rákir af glerungi liggja horna á milli líkjast því að horft sé á jarðarfláka úr lofti, á meðan oddhvassar ræmur sem komið hefur verið fyrir á ál hillum minna mest á fjallgarð sem horft er á úr fjarlægð. Þrfhymingslaga veggplattar eft- ir Ólöfu Erlu Bjamadóttur gefa einnig landslagið til kynna þó það sé hér fært meira í stílinn. Hver einn þáttur likist öðrum hlutum verksins, en er jafnframt einstakur hvað varðar efniskennd og lit- brigði. Turnar listakonunnar sam- einast til að mynda um lögun sína og tígullaga munstur, en eru þó all- ir einstakir líkt og um hóp náinna ættingja væri að ræða. Listakonan Sigríður Erla Guð- mundsdóttir notar leir sem hún finnur á Islandi og mótar úr honum frumstæð ílát sem virðist líklegra að séu notuð til helgihalds en hvers- dagsnota. Þau eru alsett kuðungum sem er komið þannig fyrir að at- hyglin beinist að spírallaga lögun kuðungsins og þannig er íjað að náttúrumótuninni. Þá mótar Sigríð- ur Ágústsdóttir organísk form, sem eru brennd í seinna skiptið með við- arspónum, sem veitir verkunum flekkótta, reykkennda áferð sem líkja má við„raku“ Kristín ísleifsdóttir notar sáld- þrykk við gerð tilbrigða sinna við skálarformið og veitir yfirborði verkanna þannig líf. En glerungur- inn veitir þá tilfinningu að munstr- in séu að bráðna saman og eflir þannig ímynd þýðunnar sem heiti verkanna, Vorbyrjun, gefur til kynna. Þá er verk hennar, Tölum saman, eins konar tungumála happadrætti þar sem postulínskúl- um hefur verið komið fyrir í hnatt- laga stálbúri, hver tákn fyrir eitt tungumál þar sem ekkert telst öðru æðra.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.