Morgunblaðið - 19.03.2000, Side 28

Morgunblaðið - 19.03.2000, Side 28
YDDA/SÍA 28 SUNNUDAGUR 19. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ ímm Aðalfundur Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis Aðalfundur Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis verður haldinn á Hótel Loftleiðum, Þingsölum 1 - 4, kl. 16:30, föstudaginn 24. mars 2000 Dagskrá: Skýrsla stjórnar um starfsemi sparisjóðsins á árinu 1999. Lagður fram til staðfestingar endurskoðaður ársreikningur sparisjóðsins fyrir árið 1999 ásamt tillögu um ráðstöfun tekjuafgangs fyrir liðið starfsár. Kosning stjómar. Kosning endurskoðanda. Tillaga um ársarð af stofnfé. Tillaga um þóknun stjórnar. Tillaga um breytingu á 4. gr. samþykkta sparisjóðsins. Önnur mál. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir á fundarstað í fundarbyrjun. Stjórn Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis * SPARISJÓDUR REYKJAVlKUR OG NÁGRENNIS PrícewaterhouseCoopers, í samstarfí víð Samtök verslunar og þjónustu, boðar til námsstefnu um vöru- og framleíðslustjórnun þann 23. mars nk. á Hótel Loftleíðum (í þingsal 4) kl. 9:00 -13:00. Allar spár benda til þess að viðskiptaumhverfið muni breytast verulega á næstu árum m.a. með auknum viðskiptum á netinu og beinum tengingum milli fyrirtækja. Því vakna upp spurningar eins og: • Hvernig má hámarka nýtingu og lágmarka kostnað í vörukeðjum fyrirtækja? • Hvernig aðlögum við vöru- og framleiðslustjórnun að þörfum breyttra viðskiptahátta? • Hvernig komum við vörum, sem keyptar eru á netinu, til viðskiptavina með sem minnstum tilkostnaði? Dagskrá námsstefnunnar: 9:00-9:15 9:15 - 11:00 11:00-11:15 Setning Óskar Jósefsson sviðsstjóri rekstrarráðgjafar hjá PwC á íslandi. Stjórnun vöruhúsa og dreifingar (Warehousing and Distribution) Poul Zinck ráðgjafi hjá PwC í Danmörku. Kaffihlé 11:15-12:30 Framleiðslustefna (Development of Production Strategy - DPS) Knud Sant ráðgjafi hjá PwC í Danmörku. 12:30- 13:00 Umræður Fundarstjóri: Einar Þorsteinsson forstjóri íslandspósts. Námsstefnan fer fram á ensku og er ætluð stjórnendum framleiðslu-, innflutnings- og dreifingarfyrirtækja. Skráning fer fram hjá Fríðu Jónsdóttur í síma 550 5300. Tölvupóstfang: frida.jonsdottir@is.pwcglobal.com Verð: 19.500 kr. PricewaTerhouseQopers ® ........................... ...................................... y m Samlfik wrtlnmiritjf þjónn^tu Borgarstjóri um tillögu sjálfstæðis- manna um úttekt á snjó- bræðslukerfum og snjómokstri Þarf ekki sérstaka nefnd í málið TILLAGA borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að skipa nefnd til að gera úttekt á snjóbræðslukerfum gangstétta í borginni og snjómokstri var lögð fram á borgarstjómarfundi á fimmtudag og samþykkti meirihluti borgar- stjórnar að vísa henni til starfshóps sem hefur þessi mál til meðferðar. Alfreð Þorsteinsson, borgarfulltrúi Reykjavíkurlista, sagðist fagna áhuga sjálfstæðismanna á þessu máli en sagði að þegar væri starfandi starfshópur um þetta mál og lagði hann til að tillögu sjálfstæðismanna yrði vísað til þessa starfshóps sem tæki hana til efnislegrar meðferðar. Starfshópinn skipa gatnamálastjóri og forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og flutningsmaður tillögunnar, sagðist vita af umrædd- um starfshópi en benti á að þetta væri nefnd embættismanna og sagð- ist hann telja nauðsynlegt að skipa pólitíska nefnd í þessu máli þar sem um væri að ræða stefnumótun og forgangsröðun. Ljóst að endurskoða þarf framkvæmd snjómoksturs Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti sjálfstæðismanna, sagði að með hlið- sjón af þeirri reynslu sem borgar- búar hefðu orðið fyrir í vetur hlyti að vera ljóst að endurskoða þyrfti fram- kvæmd snjómoksturs í borginni því það hefði sýnt sig að núverandi fyrir- komulag dygði ekki. Hún sagði það merkileg skilaboð til borgarbúa, nú í lok þessa snjóþunga erfiða veturs, að borgarfulltrúar meh'ihlutans treystu sér ekki til að skipa nefnd til að end- urskipuleggja framkvæmd snjó- moksturs. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri lýsti yfir undrun sinni yfir viðbrögðum sjálfstæðismanna, því tekið hefði verið vel í tillögu þeirra efnislega. Það eina sem við hana væri að athuga væri að skipa þyrfti nefnd í málið. Hún sagði ekki þurfa sérstaka nefnd í þetta mál heldur gæti sá starfshópur sem hefði það meðferðar skilað tillögum til borgar- yfirvalda sem tækju síðan afstöðu til þeirra. Morgunblaðið/Finnur Litið eftir smáfuglunum Tálknafírði. Morgunblaðið. Að undanförnu hefur Vetur kon- ungur minnt rækilega sig. Tals- verðan snjó hefur sett niður og sumstaðar eru jarðbönn. Þá þarf að muna eftir smáfuglunum. Danícl Pétur, sem er þriggja ára, hefur þann starfa á sfnu heimili að sjá til þess að þessir kærkomnu gestir fái í svanginn. Að sjálfsögðu er vandaverk að taka á móti gestum og ber að taka alvarlega. Sveitarfélög á Vestfjörðum Tillaga um framtíðarnefnd FUNDUR sveitarfélaga á Vestfjörð- um um fjármál og tekjuþörf og verk- efni sveitafélaga, haldinn í Þróunar- setri Vestfjarða á Isafirði 15. mars 2000, sendi frá sér eftirfarandi til- lögu: „Skipuð verði nefnd með fulltrú- um þeirra sveitarfélaga er fulltrúa á fundinum eiga; ísafjarðarbær, Súða- víkurhreppur, Bolungarvík, Reyk- hólahreppur, Vesturbyggð, Tálkna- fjarðarhreppur og Hólmavíkur- hreppur. Hvert sveitarfélag skipar einn fulltrúa, formaður kemur frá ísafjarðarbæ. Oskað verði eftir því að Samband íslenskra sveitarfélaga og félags- og fjármálaráðuneyti skipi fulltrúa í nefndina. Nefndin samræmi þau málefni sem mestu skipta fyrir sveitarfélög á Vestfjörðum í endurskoðun á tekju- stofnum sveitarfélaga, tekjuþörf og verkefni, endurskoðun á málefnum félagslega húsnæðiskerfisins og skuldastöðu sveitarfélaga. Nefndin mun ekki fjalla sérstaklega um mál- efni einstakra sveitarfélaga. Framkvæmdastjóri Fjórðungs- sambands Vestfjarða leggi drög að erindisbréfi nefndarinnar fram á fyrsta fundi hennar sem skal haldinn fyrir lok marsmánaðar eftir að sveit- arfélög, ráðuneyti og Samband ís- lenskra sveitafélaga hafi tilnefnt sína fulltrúa. Nefndin skal jafnóðum kynna verkefni sín fyrir sveitarfélögum á Vestfjörðum. I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.