Morgunblaðið - 19.03.2000, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 19.03.2000, Qupperneq 30
30 SUNNUDAGUR 19. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ Magnús Og Þóra. Morgunblaðið/Árni Sæberg FÓRNUÐUM OKKUR FYR- IR MARKAÐSHL UTDEILD VEÐSK3FTIAIVINNULÍF Á SUNNUDEGI ► Smíði og hönnun eru ávallt hluti af daglegu lífi og ekki að undra þótt ungur blikksmiður teldi það vænlegt til framtíð- ar að stofna fyrirtæki með slíkt að leiðarljósi. En Magnús Jónsson gat ekki órað fyrir því árið 1997, er hann stofnaði fyrirtækið Grid ehf., hvar hann stæði í dag. Eftir Guámund Guðjónsson AGNÚS er fæddur í Reykjavík árið 1966. Hann hélt hefðbundna menntabraut framan af, en síðan vann hann ýmis störf, m.a. sem taekjamaður suður á Keflavík- urflugvelli og í Blikki og stáli á ár- unum 1983 til 1991 enda orðinn lærður blikksmiður. Eftir törnina hjá B og S tók við starf hjá Ofna- smiðjunni þar sem hann starfaði til ársins 1995, en þá settist hann á skólabekk og nam véliðnaðarfræði. Það hefur hins vegar tafið hann frá því að ljúka síðustu önn þess náms, að hann stofnsetti fyrirtækið Grid eftir að hann byrjaði námið og fyrir- tækið hefur runnið upp eins og fífill í túni. Eiginkona Magnúsar og eig- andi fyrirtækisins með honum er Þóra Erlingsdóttir, hornfirskur sjúkranuddari, menntuð sem slík í Boulder í Colorado. Börnin eru tvö, Bjarney 7 ára og Daníel 4 ára. Það þriðja er á leiðinni og frúin því ekki útivinnandi sem stendur. Grid er stofnað árið 1997 og er óskylt náminu sem Magnús nam og á fremur rætur að rekja til reynslu af fyrri störfum á lífsleiðinni. Skóla- gönguna hugsaði Magnús sér til að búa sig undir fyrirtækjarekstur, það stóð um tíma til að kaupa hlut í vélsmiðju, en þegar það fór út um þúfur lét Magnús slag standa og steig skrefið. „Fyrirtækið er nú orðið tvískipt þar sem önnur deildin, þ.e.a.s. smíðajárnsdeildin, sem á undan kom, er orðið vel mótuð og rótgróin og sú síðari, innréttingadeildin, er að hlaða verulega utan á sig þessi misserin. Ég kem að því nánar, en fyrirtækið byrjaði sem smíðaverk- stæði með ítölsku smíðajárni frá þekktu fyrirtæki, Euro-FER, einu stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í Evrópu sem hefur viðskipti í 65 löndum, meðal annars í Bandarikj- unum og Rússlandi. Það var eitt- hvað um svona smíði hér á landi fyr- ir, en mjög lítið og verulega ómarkvisst í kynningu og sókn. Eg fór út og skoðaði verksmiðjurnar, lagði síðan mikla vinnu í að kynna efnið og þjónustuna hér heima. Þetta fór hægt af stað, en eins og oft vill verða, þegar verkin byrjuðu að seytla inn spurðist það fljótt út hvað hér var að gerast. Starfsemi þessar- ar deildar fyrirtækisins hefur vafið upp á sig frá því að vera með mig einan innanbúðar í 90 fermetra hús- næði og upp í að vera átta manna vinnustaður í 500 fermetrum. Hús- næðið má ekki minna vera, en það er þó ekki á dagskrá alveg í augnablik- inu að bæta þar við. Ég var farinn að ráða mannskap strax eftir sex mán- uði,“ segir Magnús. En hvað ertu að smíða? „Stærsti þátturinn er handriða- smíði, bæði innanhúss og utan og einkum og sér í lagi ítölsk snið þar sem gamli tíminn svífur yfir vötnun- um, enda hef ég haft nóg að gera í gamla miðbænum þar sem hvað mest er um friðuð hús. Þá hefur bæst við ný lína frá grísku fyrirtæki, Þetta fór hægt af stað, en eins og oft vill verða, þeg- ar verkin byrjuðu að seytla inn spurðist það f Ijótt út hvað hér var að gerast. Alumenko. Þar eru á ferðinni við- haldsfrí álgrindverk. Þetta er heil- steypt ál, lakkað með innbrenndu lakki, dufthúðað og innbrennt við 200 stiga hita. Þetta er nýtt og lofar verulega góðu. Menn geta séð hvernig gamla góða smíðajúrnið frá Italíu kemur út, t.d. við Alþingisskrifstofurnar í Vonarstræti. Þessi grindverk eða handrið eru víða að sjá, ég hef t.d. haldið tölu yfir þau innihandrið sem fyrirtækið hefur smíðað frá stofnun þess árið 1997, þau eru 240 talsins og starfsfólkið orðið svo þrautþjálf- að að það beinlínis rumpar verkefn- unum af. Það má svo ekki gleyma, að við erum ekki síður í því að hanna og smíða stiga fyrir fólk og fyrir- tæki, en ég kem kannski nánar að því á eftir.“ Tvenns konar tíska Magnús segir aðspurður að tvenns konar tíska sé í gangi þegar handrið og stigar og þess háttar er annars vegar. „Það er annars vegar það sem við köllum arkítektatískan og hins vegar það sem við köllum einstaklingatískan. Ef við skoðum það fyrra, þá kemur fólk oft til okk- ar með teikningar frá arkítektum og í flestum tilvikum vilja þeir hafa formin sem beinust og einföldust. Stílhrein. Við getum kallað það nú- tímalegan stíl. Margt af þessu fólki verður hins vegar fljótlega hugfang- ið af gamla smíðajárninu þegar það sér það hjá okkur að ég tali nú ekki um alla þá möguleika sem þar eru á ferðinni. Við erum með 70 útfærslur af því á lager og flestum eða öllum þeirra má blanda saman á þann hátt sem fólk sjálft kýs. Margir koma með hugmyndir um að finna réttu lausnina með smíðajárninu og það er einstaklingstískan sem ég talaði um. Þetta er líka í flestum tilvikum verulega hagstæðara í verði, viðar- handrið eru t.d. að mínu mati fárán- lega dýr hér á landi. Þá kemur stundum fólk hingað með teikningar og verðtilboð í tré- stiga upp á hálfa aðra milljón króna. Fólkið er nánast hvítt í framan. Við getum sýnt þessu fólki samsvarandi stál- og smíðajárnsvinnu upp á 5- 700 þúsund krónur. Svo er ekki allt talið, það er í raun enginn endir á því hvað við getum smíðað úr þessu efni og þannig tínast til ótal smíða- verkefni, t.d. útihlið, blóma- og fata- hengi, gardínustangir, arindót, höldur margs konar og margt, margt fleira. Þá erum bæði við og viðskiptavinir okkar með eigin skyssur og hugmyndir sem hægt er að samræma allt eftir fjárhag, og aðstæðum." En burtséð frá þessum verðmun sem þú nefndir, er þetta yfír höfuð dýrvinna? „Ég vil ekki meina að þetta sé Morgunblaðið/Ámi Sæberg Unnið við grindverk.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.