Morgunblaðið - 19.03.2000, Síða 35

Morgunblaðið - 19.03.2000, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 19. MARS 2000 35 Heilsa á markaði „Eru stofnanir og hefðir í læknisfræði og heilsugœslu siðferðislega samrýmanleg- ar kenningum og hugmyndum um markaðslögmálin ? “ Daniel Callahan: „Medicine and the Market: A Research Agenda.“ SPURNINGIN um það, hvort ráðlegt sé að markaðslögmálin verði látin ráða að einhverju eða jafnvel öllu leyti í heilbrigðisþjónustu, vekur spurningar um það hvort þau gildi sem liggja markaðs- hugmyndinni til grundvallar séu siðferðislega samræmanleg þeim grundvallargildum sem liggja að baki almennri heilsu- gæslu. Sú hugmynd að rétt sé að láta markaðslögmálin gilda í heilbrigðisþjónustu er ný af nál- inni, nema í Bandaríkjunum, þar sem málum hefur að sumu leyti verið öfugt farið og margir hafa viljað VIÐHORF Eftir Kristján G. Arngrímsson leita leiða til að gera heilsugæsl- una undan- þegna markaðsgildunum. Væri reyndar fróðlegt að vita hvenær fyrst fór að bera á þeim hug- myndum að sleppa markaðnum lausum í heilsugæslunni í Evrópu og Kanada. An þess að fyrir því liggi nokkrar rann- sóknir dettur manni í hug að eiginlega hafi ekki farið að bóla á þessari hugsun fyrr en á þess- um áratug. Önnur spurning er sú, hvers vegna mönnum hafi orðið þetta svona hugleikið. Af hverju að láta markaðslögmálin gilda í þessum efnum? Við þessari spurningu er svarið sennilega tvíþætt. Annars vegar vakir fyr- ir mönnum að draga úr kostnaði og bæta þjónustuna og hins vegar eru menn reknir áfram af djúpstæðum, hugmyndafræði- legum ástæðum. Þar sem gengið hefur verið í að athuga hvort markaðsvæðing í heilsugæslu dragi í raun og veru úr kostnaði og bæti í raun og veru þjónustuna virðast nið- urstöðurnar hafa verið á þá lund að svo sé ekki. Auk þess fari einkavæðing illa með þá gömlu hugmynd að jöfnuður skuli ríkja meðal fólks um að- gang að heilsugæslu. Eigi að síður halda menn áfram að tala um nauðsyn þess að markaðsvæða heilbrigðis- þjónustuna, og þar eð fyrri lið- ur svarsins um ástæðu þessa útskýrir ekki hvers vegna, hlýt- ur seinni liður svarsins að vera hin eiginlega ástæða. Það er þá hugmyndafræðin sem rekur menn áfram. Trúin á markað- inn, alveg jafnt sem hagnaðar- von og skilvirkni. Sennilega hef- ur mönnum sést yfir að markaðslögmálin eru fyrst og fremst hugmyndafræði, en ekki bara „ómengaður raunveruleik- í þriðja hefti Journal of Medicine and Philosophy (Tíma- rit um læknisfræði og heim- speki) á síðasta ári skrifar Dan- iel Callahan, starfsmaður Hastingsstofnunarinnar í Bandaríkjunum, um þá spurn- ingu hvort og þá hvernig mark- aðslögmálin og heilbrigðis- hugsjónin fari saman. Hann segir spurninguna í grundvall- aratriðum siðferðislega. Eru stofnanir og hefðir í læknis- fræði siðferðislega samrýman- legar markaðshugsun og mark- aðsstarfsemi? Annað sem Callahan bendir á að flæki málið, er mismunandi skilningur fólks á grundvallar- atriðum á borð við „markað" og „heilsugæslu" (hann notar orðið „medicine" sem ef til vill ætti strangt tekið að þýða sem „læknisfræði"). Hugtakið mark- aður þýði í huga sumra fyrst og fremst frelsi undan höftum, reglugerðum og öðrum ríkis- afskiptum, og sé þannig ávísun á óheft frelsi fólks. Aðrir skilji „markað“ sem ómannúðlega maskínu er leiði til óréttlætis, ójöfnuðar og misnotkunar undir formerkjum og fagurgala um óheft frelsi allra. Þessi mismunur á skilningi fólks á markaðnum er í raun og veru nóg til að sýna fram á hversu erfitt er að fínna svar við spurningunni sem lagt var upp með. Þarna skipta nefni- lega höfuðmáli fordómar fólks, það er að segja þeir dómar sem fólk fellir áður en umræða hefst og hefur með sér og gerir að forsendum sínum í umræðunni. Og þá ber á að líta, að bæði ofangreind viðhorf til markaðar- ins eru fordómar, í þessum skilningi. Ætli maður að reyna að þoka umræðu áfram er ekki til bóta að sitja fast á því að manns eigin grundvallargildi séu einfaldlega staðreyndir sem ekki sé hægt að efast um, en grundvallargildin sem and- mælendur manns hafa að leiðar- ljósi séu barnalegir fordómar og til marks um veruleikafirringu. Callahan kveðst ekki geta veitt endanlegt svar við grund- vallarspurningunni, en leggur til að spurt sé frekari spurn- inga, meðal annars um það, hvers vegna menn á Vestur- löndum hafi á undanförnum áratugum snúið sér til markað- arins til að leysa fjárhagsvanda og skort á þjónustu í heilbrigð- isgeiranum. Hann stingur upp á því að svarið megi meðal annars rekja til þeirra almennu, já- kvæðu áhrifa sem markaðs- lögmálin hafi haft á efnahag vestrænna ríkja, og til þeirrar virðingar sem markaðurinn njóti. Einnig sé það að líkindum partur af svarinu að einstakl- ingshyggju hafi vaxið fiskur um hrygg í mörgum löndum, og þáttur í því séu fyrirheit um að fólki veitist aukið val um að- ferðir við gæslu á þess eigin heilsu. Eftir að hafa enn slegið þann varnagla að svör sín séu með fyrirvara bendir Callahan á, að svo virðist sem grundvallargildi læknisfræðinnar séu ósamrým- anleg grundvallargildum mark- aðshugsjónarinnar. Læknis- fræðin (og þar með heilsugæsla, mætti ætla) feli greinilega í sér fórnfýsi og miði að heilbrigði. Aftur á móti miði markaðurinn fyrst og fremst að því að val og skilvirkni sé í hámarki, og reyni að fullnægja eiginhagsmunum einstaklinga. ÞÓRUNN EGILSDÓTTIR + Þórunn Egils- dóttir fæddist í Reykjavík 15. ágúst 1912. Hún lést á hcimili sínu, vist- hcimilinu Seljahlíð í Reykjavík, aðfara- nótt 12. mars síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Egill Þórðarson, skipstjóri frá Ráðagerði, f. 3.11. 1886, d. 6.1. 1921, og Jóhanna Ilalldóra Lárusdóttir frá Gerðubergi í Eyjahreppi í Hnappadalssýslu, f. 9.12. 1886, d. 21.12. 1962. Þórunn átti fjögur systkini, þau voru: Þórður, f. 20.2.1909, d. 7.7. 1921, Guðbjörg, f. 20.6. 1911, d. 4.5. 1997, Guðríð- ur, f. 10.1.1920 og Agla Þórunn, f. 29.6 1921, d. 21.6.1959. Hinn 25. maí 1940 giftist Þór- unn Ásgrími P. Lúðvíkssyni hús- gagnabólstrara, f. 2.11. 1916, d. 6.8. 1998. Foreldrar hans voru Lúðvík Hjálmar Ásgrímsson, pípulagningameistari, járnsmiður og vélstjóri, f. 29.1.1893, d. 20.6.1970 og Guðrún Eiríksdóttir, verslunareigandi, f. 20.9.1885, d. 9.8. 1960. Börn Þórunnar og Ás- gríms eru: 1) Egill, bólstrara- meistari, f. 1.4.1943, kvæntur Sig- ríði Lúthersdóttur, rekur fyrirtæki með eiginmanni sínum Elsku amma. Nú þegar komið er að því að kveðja er allt svo óraun- verulegt. Kannski er það vegna þess hve langt í burtu ég hef verið en kannski er það vegna þess að mér fannst ég eiga eftir að ræða ýmis- legt við þig. En eflaust fáum við tíma til þess seinna. Til þess hlakka ég því enginn segir eins skemmti- lega frá og þú. Engan þekki ég eins ílinkan og þig í að draga upp mann- lýsingar í stuttu máli. Þegar þú lýst- ir manneskju á þinn sérstæða hátt þá sá ég alltaf mynd af henni ljóslif- andi fyrir mér. Lýsingunni var yfir- leitt skotið inn í samtal svona til að krydda það. A alveg einstæðan hátt tókst þér að sjá spaugilegu hliðarn- og eiga þau tvö börn, Þórunni og Egil Örn. 2) Ragnheiður Mar- gét, kennari, f. 12.3. 1946, gift Guðbjarti Sigfússyni verk- fræðingi og eiga þau þrjú börn, Ásgrím, Kristján og Elínu Maríu. 3) Asgrímur Þór, bólstrarameist- ari og verslunar- maður, f. 22.11. 1948, kvæntur Mörtu Kristínu Sigmarsdóttur kenn- ara og eiga þau þrjú börn, Guðrúnu Mörtu, Sigmar Torfa og Jóhönnu Þórunni. Auk þess á Ásgrímur son fyrir, Guð- mund Kristin. 4) Jóhann Gunnar, viðskiptafræðingur, f. 2.6. 1952, kvæntur Herdísi Alfreðsdóttur hjúkrunarfræðingi og eiga þau tvo syni, Tryggva Þór og Tómas Þór. Auk þess á Jóhann Gunnar tvö börn af fyrra hjónabandi, Mar- gréti Ásu og Þörarin. Langömmu- börnin eru orðin fimm. Þórunn vann sem ung kona í tólf ár í Verslun Björns Kristjáns- sonar, VBK, en var heimavinn- andi alla tíð eftir að hún eignaðist börnin. Útför Þórunnar fer fram frá Dómkirkjunni á morgun mánu- daginn 20. mars og hefst athöfnin klukkan 15. ar á ótrúlegustu málum. Ef ekkert úr nútíðinni gaf tilefni til léttra at- hugasemda sagðir þú sögur úr for- tíðinni sem fengu mann til að hlæja. Stundum hringdirðu í mig til að segja mér frá einhverju spaugilegu en best fannst mér að hitta þig og sjá þig segja frá. Minnisstæðast núna er þegar ég veiktist í suðurferð og hringdi í þig til að segja þér að ég kæmi ekki til að kveðja þig áður en ég færi heim. Ekki vildi ég smita gömlu konuna. Þú kvaddir mig í síma en varst svo komin skömmu síðar til mín og sagðir mér sögur sem fengu mig til að emja af hlátri. Ég mátt bara ekki hlæja í áttina að þér og þurfti að hafa sængina yfir ERLA JÓNÍNA EINARSDÓTTIR + Erla Jónína Ein- arsdóttir fæddist á Miklabæ í Skaga- fiði 17. nóvember 1933. Hún lést á Landsspítalanum 7. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Kristín Sigfús- dóttir og Einar Jóns- son. Erla átti þrjú hálfsystkini sam- mæðra, Friðgeir og Trausta, sem báðir eru látnir, og Lilju, sem búsett er í Reykjavík. Erla giftist Friðriki Kjartans- syni, en slitu þau samvistir. Erla átti einn son með Halldóri Jóns- syni, Geir Elvar, f. 21.7. 1951, d. 7.3. 1976, hans kona var Birna Jónsdóttir, f. 5.8.1951, þeirra son- ur er Jón Björn, f. 9.7. 1972. Eitt Iangömmubarn átti Erla, Söndru Dís, f. 30.7.1994. títför Erlu fer fram frá Akur- eyrarkirkju mánudaginn 20. mars og hefst athöfnin klukkan 13.30. Hún Erla frænka er dáin. Það voru hressilegar stundir þegar hún leit inn í Norðurgötuna. Þá hafði hún alltaf frá einhveju skemmtilegu að segja sem hægt var að hlæja af. Ef það er rétt að hláturinn lengi lífið þá hefur hann lengt líf hennar því hún gat hlegið svo innilega. Erla átti við heilsuleysi að stríða í mörg ár og ekki var líf hennar alltaf dans á rósum. En alltaf var hún samt hress og kát. Síð- ustu árin höfðum við lítið samband og sakn- aði ég frænku minnar oft. Erla mín, ég þakka allar góðu stundirnar sem við áttum saman og bið góðan guð að geyma þig. Dýrleif Jónsdóttir. Erla er dáin. Þessi þungu orð heyrði ég í gegnum símann. Eg var lengi að hugsa um þessi stóru orð og ég vissi ekki um hvað ég átti að hugsa. Hugurinn var tómur. Þegar hugurinn fór á reik aftur þá komu upp allar góðu stund- irnar sem ég upplifði með henni, Henni þótti svo undur vænt ;un litla langömmubarnið sitt sem ' hetfriar eina barnabarn átti. Hún.vildi allt fyrir litlu fjölskylduna gera. Aúðvit- að var hún með allar ráðleggingar á hreinu, hvernig best væri nú að haga hlutunum á heimilinu. En auðvitað var það allt gert af einskærri góð- semi. Henni þótti svo gaman að kaupa föt og dót handa litla lang- ömmubarninu, og passaði hún vel upp á það að gera ekki upp á milli systra þó svo að sú eldri væri aðeins „kjörlangömmubarn". Henni þótti vænt um þær báðar og lét það Ijós skína óspart. Leiðir okkar Jóns Björns (sonar- sonar hennar) lágu saman árið 1992. og árið 1994 eignuðumst við Söndru vitunum. Þú sast teinrétt á stól- brúninni og bunaðir út úr þér skemmtisögum af samferðamönn- um til að stytta mér stundir. Svona mun ég alltaf sjá þig fyrir mér, tein- rétta í baki með spaugsyrði á vör- um. Auðvitað voru ekki allir dagar þannig en svona ætla ég að muna þig. Eg ætla líka að muna eftir þér þegar þú sigldir inn ganginn á fæð- ingardeildinni í þínu finasta pússi og varst örugglega flottasta langamm- an. Alveg fannst mér merkilegt hvernig þú gast munað hve lengi þú hafðir þín börn á brjósti, hve marg- ar mínútur á dag það tók þig að skipta á þeim o.s.frv. En það var lík- lega hluti af þeim hæfileikum þínum að muna. Þú gast þulið upp heilu ættirnar lið fyrir lið og komið með ýmsan fróðleik svona til hliðar með bláköldum staðreyndum. Þetta fannst mér að vísu ekki mjög fyndið þegar ég var yngri og gat engan veginn fylgt þér þegar þú komst á flug. En með auknum þroska kunni ég æ betur að meta þetta. Þá nýtti ég mér oft ættfræðiþjónustu frú Þórunnar. Þú varst fljót að finna út úr því sem ég spurði um og klykktir yfirleitt út með því að segja: „Var það eitthvað fleira fyrir þig, góða mín?“ Svo áttir þú til að hringja í mig ef einhver okkur skyldur birtist í fjölmiðlum. Þá sagðir Jdú mér auð- vitað hvernig þessi bráðmyndarlega manneskja var skyld okkur. Ein- hvern veginn virtust allir okkur skyldir vera stórir og myndarlegir. Allavega stórir. En það er nú önnur saga. Annar eiginleiki þinn var ótrúleg- ur hæfileiki til að læra tungumál. Mikið öfundaði ég þig af því. Þú tal- aðir ensku, þýsku, dönsku, norsku og eflaust eitthvað fleira. Ég bara skildi aldrei hvernig þú fórst að þessu. Ekki þurftir þú mikla skóla- göngu eða utanlandsferðir. Þú bara lærðir málin. Hvernig þú gerðir það segirðu mér vonandi seinna. Þegar minn tími kemur hlakka ég til að hitta þig í himnaríki, amma mín. Samkvæmt þínum upplýsingum hlýtur það að vera dásamlegt fyrir allar húsmæður. Þar þarf maður ekki að elda mat eða þvo þvott. Því þar eru menn víst alltaf í sömu föt- unum ef þeir vilja. Þetta ræðum við allt seinna og svo miklu meira. Takk fyrh’ allt, elsku amma mín. Blessuð sé minning þín. Þórunn Egilsdóttir yngri. Dís, litla sólargeislann hennar Erlu. Erla átti í langan tíma við van- heilsu að stríða en lét það ekkert aftra sér í einu né neinu. Hún reyndi að heimsækja okkur á Vestfirðina eins oft og hún frekast gat. Hún varð að fá að sjá litla sólargeislann sinn. Það var ekkert hamingjuríkt á ár- inu 1996 þegar litli sólargeislinn greindist með krabbamein. Það tók ekkert minna á Erlu en okkur hin. Útlitið var svart. Eins og svo margir aðrir hafði Erla stórar áhyggjur af litlu Dísinni sinni. Hún dró sig samt aðeins í hlé en hringdi mjög oft til að fá fréttir. Svo þegar líða tók á árið þá sáu læknar að þetta gæti blessast eftir allt og þá var andað léttar. í júlí 1996 skildu leiðir okkar Jóns Björns. Sambandið þoldi ekki álagið sem á það var lagt þegar Sandra Dís veikt- ist. Við skildum samt í góðu og hefur Jón Bjöm lagt hart að sér að halda fjölskylduböndin. Og í hvert sinn sem Érla kom suður lét Jón Björn mig vita svo hún gæti nú fengið að hitta litla sólargeislann sinn. Og allt- af þegar leiðir lágu til Akureyrar þá hikaði maður ekki við að hringja og • leyfa Erlu að-hitta bömin sem henni þótti svö vænt um. Ekki óraði- mann fyrir að þétta yrði siðasta heimsöknin okkar til Erlu í sumar þegar ég lagði leið mína með börnin norður til Akur- eyrar. Maður er enn að átta sig í raun og veru. En ég minnist Erlu sem góðhjartaðrar konu sem vildi öllum það besta. Ég votta Jóni Birni mína dýpstu samúð og svo Birnu, Nonna, Pétri og öllum þeim sem eiga um sárt að binda vegna fráfalls hennar. Megi Guð styrkja ykkur í þessari sorg. Helga Linnet, Sandra Dís og Viktoría Rós.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.