Morgunblaðið - 19.03.2000, Side 50
50 SUNNUDAGUR 19. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HUGVEKJA
ÍDAG
A
\
Landtaka í Eyjum með kirkjuvið 18. júní árið 1000
(teikning Gísli Ólafsson)
Fyrsta sóknar-
kirkja á Islandi
Kirkjuviði var skipað á land og kirkja
reist í Vestmannaeyjum kristnitöku-
árið 1000. Stefán Friðbjarnarson veltir
fyrir sér hvort hún hafí verið fyrsta
sóknarkirkjan hér á landi.
MEGINHLUTI eignaog
tekna þjóðarinnar á 20.
öldinni var sóttur í auð-
lindir sjávar. Sjávarplássin vóru í
raun „fyrirvinnur“ þjóðarbúsins.
Vestmannaeyjar eru í margra
augum „drottning“ íslenzks sjáv-
arútvegs, undirstöðuatvinnuvegar
landsmanna. Kveikjan að pistli
dagsins er sú staðreynd að 18.
júní kristnitökuárið 1000 skipuðu
Gizur hvíti og Hjalti Skeggjason
kirkjuviði á land í Eyjum, hvar
reist var kirkja, að margra áliti
fyrsta sóknarkirkjan í landinu.
Vestmannaeyjar byggðust
seint á landnámsöld, líklega um
920. Þar var þó verstöð áður en til
fastrar búsetu kom. Landnáma
gerir því skóna að eyjamar hafi
fengið nafn af húskörlum og þræl-
um Ingólfs Amarsonar, sem
fyrstur norrænna manna festi
byggð í landinu, en Hjörleifur,
fóstbróðir Ingólfs, elti strok-
uþræla út í Eyjar. Fræðimenn
draga þessa skýringu í efa. Norð-
menn kölluðu norræna menn, bús-
etta í heimahögum, Austmenn, en
norræna menn, er sezt höfðu að á
Bretlandseyjum, Vestmenn. Það
nafn var ekki notað um Kelta. Jó-
hann Gunnar Olafsson hefur sett
fram þá tilgátu að Vestmannaeyj-
ar sæki nafn til Herjólfs, land-
námsmanns eyjanna, sem var nor-
rænn víkingur búsettur á Irlandi
um nokkurn tíma (sjá frásögn um
landnám Eyjanna í Hauksbók).
Jóhann Friðfinnsson, safnstjóri
Byggðasafns Vestmannaeyja og
formaður sóknarnefndar Landa-
kirkju, minnir á það í grein í
Morgunblaðinu (Menningarblað
8. maí 1999) að Vestmannaeyjar
hafi komið við sögu löngu áður en
Herjólfur settist þar að. Hann
segir:
„Þegar Eyjamenn horfa yfir
sviðið staldra þeir við hjá
keltneska krossinum í Heima-
kletti. Svo skemmtilega vill til að
fornleifafræðingar frá Kanada og
Eistlandi, sem hafa verið að
kanna og mæla sams konar krossa
og hér finnast, m.a. á írlandi og
skozku eyjunum, voru hér á ferð í
marz síðastliðnum að mæla kross-
inn í Heimakletti. Krossinn þar er
af sömu stærð og aðrir sams kon-
ar krossar á þeimstöðum sem
fyrr er getið. Munnmæli herma að
krossinn í Heimakletti sé frá írsku
munkunum er hingað hafi leitað
eftir leiðangur Brendans seint á 6.
öld, löngu fyrir landnám nor-
rænna manna...“
Safnstjórinn og sóknarnefndar-
formaðurinn minnir á annað, sem
vel er við hæfi að rifja upp á 1000
ára kristniafmæli þjóðarinnar:
„Kiistnisaga segir okkur ítar-
lega frá Islandstrúboðunum
Gizuri hvíta og Hjalta Skeggja-
syni. Þeir tóku land á Heimaey
þriðjudaginn 18. júní árið 1000.
Höfðu þeir fyrirmæli konungs um
að þar sem þeir kæmu fyrst að
landi skyldi kirkjuviði, sem þeir
höfðu meðferðis, skipað upp og
sóknarkirkja reist á staðnum.
Fyrsta kirkjan var því reist í Eyj-
um.“
Víða er að finna sagnir um
kristna landnámsmenn, sem líkur
standa til að hafi reist kirkjur á
jörðum sínum. Sjálfsagt verður
erfitt að færa óyggjandi sönnun á
það, hvenær og hvar fyrsta kirkj-
an var reist hér á landi. Það breyt-
ir ekki því að kirkjan sem reist var
í Vestmannaeyjum kristnitökuár-
ið 1000 er trúlega fyrsta sóknar-
kirkjan reist hér á landi í kristn-
um sið. Það eru gleðitíðindi að
Stórþingið norska hefur ákveðið
að færa okkur að gjöf á 1000. af-
mælisári kristnitöku Islendinga
stafkirkju af sömu gerð og reist
var í Noregi á upphafsárum krist-
ins siðar þar. Vináttugjöf frænda
okkar, Normanna, mun rísa í
skjóli hraunkantsins frá jarð-
eldunum í Heimaey árið 1973.
Landakirkja í Vestmannaeyj-
um, fúllbyggð um 1778, er veglegt
staðartákn í þessu glæsilega og
söguríka sjávarplássi. Eftir hörm-
ungar Tyrkjaránsins 1627, þegar
fyrsta Landakirkjan var brennd,
þótti rétt að staðsetja nýja kirkju
á nýjum stað. Mörgu hefur að vísu
verið breytt í tveggja alda sögu
hennar, en hún er samgróin kyn-
slóðum, mannlífi og sögu Eyj-
anna. Hún var eina húsið í Eyjum
sem ekkert var fjarlægt úr í jarð-
eldunum 1973. „Ef Landaldrkja
hefði verið á upphaflega staðn-
um,“ segir Jóhann Friðfinnsson í
tilvitnaðri grein, „hefði hún eyði-
lagst undir hraunflóði" árið 1973.
En Landakirkja stóð af sér eld-
ana. Hún verður tákn og vegvísir
íbúanna inn í nýja öld.
18. júní árið 1000 var kirkjuvið
skipað á land í Vestmannaeyjum.
Þennan dag, þúsund árum síðar,
munu Vestmanneyingar trúlega
minnast kristniboðanna Gizurar
hvíta og Hjalta Skeggjasonar sem
svo mjög komu við sögu kristni-
tökunnar á Alþingi þetta sama ár.
Norska stafkirkjan, er reist verð-
ur í Eyjum, og Landakirkja, sem
stóð af sér eldana 1973, verða
musteri eyjaskeggja á nýju ár-
þúsundi, sem er í hlaðvarpanum.
VELVAKAIVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Þakkir til ríkis-
stjórnarinnar
ÉG vil þakka núverandi rík-
isstjóm fyrir að sýna svart á
hvítu, að þeir telji bætur tii
okkar öryrkja ekki vera
laun. Kjarasamningar gera
ráð fyrir að lægstu laun
hækki um 30% á samnings-
tímanum, á meðan almenn
laun hækka um 12,71% á
samningstímanum. Hækk-
un almannatrygginga mið-
ast við þessa almennu
launahækkun, en ekki
hækkun lægstu launa.
Lægstu launin era um
70.000 krónur á mánuði. Ég
taldi að 69.598 krónur, sem
eru hámarksbætur ein-
staklings, miðað við að ör-
yrkinn búi einn eða með
barn undir 18 ára aldri á
sínu framfæri og fái ekkert
úr lífeyrissjóðum, væri und-
ir lágmarkslaunum, en nú
veit ég betur. Ég fæ ekki
laun, heldur eitthvað sem
ég veit ekki hvað kallast.
Hvað kallar ríkisstjórnin
„þessar bætur“?
Hildur Embla
Ragnheiðardóttir
Slæm aðkoma
að Sjúkrahúsi
Reykjavíkur
ÉG er einn af þeim sem
lenti í því að fótbrotna og
þurfti að koma í endurkomu
á Slysavarðstofu Sjúki'ahús
Reykjavíkur í Fossvogi.
Það er mjög erfitt að fá bíla-
stæði nálægt útidyrunum
og er það að mestu starfs-
fólk sjúkrahússins sem
leggur í stæðin. Þama
þyrftu að vera einhvers
konar skammtímastæði fyr-
ir sjúklinga, þar sem þeir
gætu lagt bílunum nálægt á
meðan stoppað er.
Gísli Magnússon
Yfír strikið?
ÉG get ekki orða bundist,
eftir að hafa horft á þátt
Fóstbræðra á Stöð 2 mið-
vikudagskvöldið 15. mars sl.
Þessi þáttur var á mjög lágu
plani og fannst mér þeir
fara gjörsamlega yfir strik-
ið. Þarna var verið að gera
grín að geðveiku fólki, fólki
með heilaæxli og viðrekstur
var greinilega í hávegum
hafður. Það hlýtur að vera
hægt að gera betur en
þetta.
H.G.
Þakkir
tU Útilífs
OLGA hafði samband við
Velvakanda og vildi koma á
framfæri þaldtlæti til versl-
unarstjóra Útilífs og þakka
fyrir góða þjónustu. Hún
hafði keypt galla á útsölu
hjá þeim og hann var smá-
gallaður. Hún átti leið til
borgarinnar og datt í hug að
sýna þeim hann. Fékk hún
alveg frábærar móttökur
hjá þeim og nýjan galla.
Hafið bestu þakkir fyrir.
Tapad/fundid
Stálkvenúr týndist
GLANSANDI stálkvenúr
af gerðinni Fossil týndist
18. febi-úar sl„ annaðhvort í
eða við Tónabæ eða við
Loftkastalann. Keðjan eru
hlekkir, tengdir saman með
gylltum festingum. Úrið er
eigandanum kært. Skilvís
finnandi er vinsamlegast
beðinn um að hafa samband
við Katrínu í síma 437 2390
eða 437 2027.
Týnd læða
NIU mánaða læða, hvít,
brún og svört, hvarf frá
heimili sínu að Setbergi í
Hafnarfirði laugai'dags-
kvöldið 11. mars sl. Hún er
með ól og eymamerkt
00G12 og er það mjög áber-
andi. Ef einhver hefur orðið
hennar var, er hann vinsam-
legast beðinn um að hafa
samband við Laufeyju í
síma 565 5385 eða 699 4603.
svarta drottningin fellur) 43.
Dc6 og svartur er mát. 42.
Bxf6+ Kd7 43. h3 Rd5 44.
IJmsjnn: Helgi Áss Hdl Ke6 45. Hel+ Kd7 46.
(■rétai'sson Be5 og hvítur vann nokkru
síðar.
SKÁK
ÞESSI staða kom upp á
milli Gan-ys Kasparovs
(2.851) og Michaels
Adams (2.715) á bikar-
móti Kasparovs sem
haldið var á Netinu fyr-
ir skömmu. Stigahæsti
skákmaður heims
stýrði hvítu mönnunum
og fann leið til að bijót-
ast í gegnum sterkar
vamir svarts. 41. Bxd4!
Dxf6 Ef svartur þiggur
biskupsfórnina með 41.
...cxd4 kemur 42. Hc8+! Hvíturáleik.
Kd7 (42. ...Kxc8 43. Dxe7 og
Víkverji skrifar...
að sem miður fer hjá börnum og
unglingum ratar oft í fréttir
fjölmiðla og kvartar fólk gjarnan yf-
ir því að það sem vel er gert þyki
ekki nógu fréttnæmt. Víkveiji gleðst
auðvitað yfir því að það þyki ekki
fréttnæmt, í sjálfu sér, að böm og
unglingar hagi sér vel - en að sjálf-
sögðu er gott að draga hið jákvæða
fram á stundum.
Víkverji hefur undir höndum bréf
sem skólastjóri Réttarholtsskóla
sendi nemendum skólans og foreldr-
um þeirra á dögunum og þykir rétt
að birta það í heild - vegna þess hve
jákvætt og gott innihaldið er.
Bréfið er svohljóðandi:
.Árshátíð skólans var haldin 24.
febrúar og var eins og undanfarin ár
haldin í samvinnu við félagsmiðstöð-
ina Bústaði og Bústaðakirkju.
Hátíðin hófst í Bústöðum kl. 18:00,
síðan var tvíréttaður hátíðarmáls-
verður í safnaðarheimilinu. Um
hann sá Lárus Loftsson matreiðslu-
meistari með sínu liði eins og undan-
farin ár en starfsmenn Bústaða,
kennarar, umsjónarmaður safnaðar-
starfs og sóknarpresturinn aðstoð-
uðu við framreiðsluna og þjónuðu til
borðs.
Síðan var dagskrá í samkomusal
skólans og loks dansað til kl. 01:00
við undirleik hljómsveitarinnar
Land og synir. I hléi var marserað
og dansað með „haldi“ enskur vals
og fleiri virðulegir samkvæmisdans-
ar. Salurinn og gangar skólans voru
skreyttir sérlega smekklega og hafði
stór hópur nemenda lagt mikla
vinnu í skreytingarnar og dag-
skrána.
I einu orði tókst hátíðin frábær-
lega. Allir voru í sínu besta pússi og
lögðu sig fram við að skemmta sér
og engin vandamál af einu eða neinu
tagj.
Eg vildi að þið, foreldrar góðir,
hefðuð getað verið flugur á vegg og
séð unglingana ykkar. Þið getið
sannarlega verið stolt af þeim.
Með bestu kveðjum.
Haraldur Finnsson skólastjóri."
Svo mörg voru þau orð og sannar-
lega ánægjuleg.
xxx
Yíkverji rakti raunir sínar vegna
símabilunar síðastliðinn þriðju-
dag. Ekki skorti viðbrögðin. Honum
barst sending frá framkvæmda-
stjóranum og baðst hann afsökunar
á töfum á viðgerð og tók fullt tillit til
kvartana Víkverja. Hann útskýrði
ástæður tafarinnar og sagði sett
undir slíkan leka í framtíðinni. Sím-
inn var svo kominn í lag daginn eftir
eftir miklar viðgerðir. Víkverji
þakkar skjót viðbrögð, þegar að
þeim kom, og vonar að framvegis
þurfi fólk ekki að búa við bilaðan
heimilissíma langtímum saman.
xxx
Furðu lostinn karlmaður hafði
samband við Víkverja og bað
hann að koma eftirfarandi á fram-
færi:
í Morgunblaðinu 27. febrúar
auglýsti SAÁ eftir fólki í þrif og um-
sækjendur beðnir um að hafa sam-
band við konu að nafni Þórunn. Sam-
býliskona mannsins sótti um, en um
var að ræða hlutastarf frá klukkan
átta til tólf. Umsækjandinn var
spurður hvort hann kannaðist við
sjúkdóminn alkóhólisma og játti
konan því; sagðist sjálf vera óvirkur
alkóhólisti. Og hún hefði ekki snert
áfengi síðustu níu mánuði. Þá kom
hins vegar babb í bátinn: henni var
tilkynnt að SÁA ráði ekki alkóhól-
ista í vinnu nema þeir hafi verið frá
áfengi í tvö ár. Þetta finnst mannin-
um einkennilegt og hefur reyndar
áhuga á því að fá svar við þeirri
spurningu hvort þetta standist lög,
vinnuverndarlög eða önnur.
Víkverji er á því að með þessum
vinnubrögðum styrki SÁA ekki
beinlínis sjálfsmynd óvirkra alkóhól-
ista. Telja forystumenn samtakanna
meiri hættu á að óvirkir alkóhólistar
„falli" ef þeir umgangast fólk sem er
í áfengismeðferð en aðra? Er það ef
til vill vísindalega sannað?
xxx
Víkverja barst á dögunum bréf í
tölvupósti sem ekki er annað
hægt en flokka sem argasta atvinnu-
róg um snyrtistofu hér í borg, en
undir skrifaði aðeins óánægður við-
skiptavinur. Ekkert nafn. Fæstum
finnst skemmtilegt að fá inn um lúg-
una hjá sér svokallaðan ruslpóst, en
engu síður lætur fólk sínkt og hei-
lagt frá sér fara álíka sendingar á
Netinu; skrýtlur og hjálparbeiðnir
af öllu mögulegu tagi; til að bjarga
regnskógum og þar fram eftir göt-
unum. Sá póstur meiðir svo sem
engan en hjálpi mér allir heilagir,
eins og amma Víkverja orðaði það
gjarnan: Hver hefur áhuga á slíku
skítkasti eða svívirðingum, eins og
fram koma í umræddu bréfi, rigni
yfir hann hvort sem er í vinnu eða
heima fyrir? Hvernig væri að brúka
mannasiði í bréfasamskiptum rétt
eins og í öðrum samskiptum manna í
milli? Og hvernig væri að láta það
eiga sig að senda svona bréf áfram
og leggja frekar metnað sinn í að
rjúfa keðjuna!