Morgunblaðið - 19.03.2000, Page 56

Morgunblaðið - 19.03.2000, Page 56
,56 SUNNUDAGUR 19. MARS 2000 MGRGUNBLAÐIÐ HÁTÍÐARFATNAÐUR ÍSLENSKRA ' ... . KARLMANNA Hátíðarföt m/vesti 100% ull kr. 22.900 Stærðir 46-64 Long-stærðir 98—110 Ný sending Hátíðarfatnaður íslenskra karlmanna hefur notið mikilla vinsaeida frá því farið var að framieiða hann. Færst hefur í vöxt að íslenskir karlmenn óski að klæðast búningnum á tyllidögum svo sem við útskriftir, giftingar, á 17. júní, við opin- berar athafnir hériendis og erlendis og við öll önnur hátíðleg tækifæri. herradeild, Laugavegi, sími 511 1718, herradeild, Kringlunni, sími 568 9017. saulján \ Fréttagetraun á Netinu ^mbl.is FÓLKí FRÉTTUM Herranótt frumsýnir í Tjarnarbíói í kvöld. Morgunblaðið/Sverrir Þessar persónur hafa ekki alltaf verið kvenkyns. Morgunblaðið/Sverrir Kládió að spila á „luftgítar“. Shakespeare og kynskiptingar LEIKFÉLAG Menntaskólans í Reykjavík, Herranótt, frumsýnir í kvöld uppfærslu sína af leikritinu „Ys og þys út af engu“ eftir William Shakespeare. Gamanleikurinn fjallar meðal annars um vini og óvini ástar- innar og hvemig fólk getur fundið ást á stöðum sem það á síst von á henni. t>að fer eflaust titringur um ein- hverja á þessum söngleikjatímum við þær fréttir að menntaskólaleikhópur sé að ráðast í slíkt stórvirki. „Okkur langaði að fara út í eitt- hvað bitastæðara og metnaðai'fyllra en það sem við gerðum í fyrra þannig að það var kjörið að taka Shake- speare,“ segir Dóra Jóhannsdóttir, aðstoðarleikstjóri og framkvæmda- stjóri sýningarinnar. Það er Magnús Geir Þórðason, leikhússtjóri Iðnó, sem leikstýrir hópnum en hann er MR-ingur í húð og hár og kaus því að vinna með skólanum í vor. Hann hef- ur tvisvar áður leikstýrt Herranótt, Sjálfsmorðingjanum árið ’96 og And- orra ári seinna. Nýjar nálganir „Það hafa oft áhugaleikhús reynt að setja upp Shakespeare og oftast endað með því að þylja bara upp text- ann, sem er ekki mjög spennandi. Þannig að við eyddum langmestum æfingatímanum í það að gera textann okkur nálægan og eðlislægan í hugs- un. Mér finnst það hafa tekist mjög vel tál,“ segir Dóra með tón sem gefur vísbendingu um að afrakstur erfiðis- ins sé ljúfur. „Síðan fórum við í það að gera þetta létt og skemmtilegt. Settum leikritið í búning áttunda áratugarins, bættum inn skemmti- legri tónlist og öði;uvísi dansatriðum. En það voru þær Alfrún Omólfsdótt- ir og Margrét Bjarnadóttir, sem eru báðai- í Listadansskóla Islands, sem hönnuðu fyrir okkur mjög skemmti- legai- samsetningar sem lífga mjög vel upp á sýninguna." Tónlistin í leikritinu er úr ýmsum áttum en þó er stuðst við mjög þægi- legan undirtón sem tengir lögin vel saman. Það er lifandi hljómsveit, samansett af nemendum, sem sér um undirleik. Lagavalið er allt frá rokk- slögurum áttunda áratugsins til einn- ar straumlínulöguðu hljómsveitar okkar tíma, Air. En kölluðu slíkar breytingar á ekki á breytingu textans? „Það er eiginlega ekki hægt að segja það, þó svo að það séu klipptar út stakar setningar sem urðu fáran- legar við þessa breytingu." Ekki fengu allar persónumar að vera ósnertar því nokkram þeirra var snögglega snarað í kynskiptiað- gerð. „Það eru tvær mjög skemmti- legar karlkynspersónur í leikritinu sem eru algjörir vitleysingar. Við breyttum þeim í tvær kerlingar, mjög snobbaðar og skemmtilegar. Þær eru svoldið eins og teiknimynda- persónur eftir breytinguna. Síðan er annað hlutverk, Ski'ifarinn svokallað- ur, sem er mjög leiðinlegt og litlaust hlutverk og við breyttum þeiiri per- sónu í þrasu bombu,“ segir Dóra. En hver er ástæðan fyrir því að MR hefur ekki smitast af söngleikja- bakteríunni sem flestir menntaskól- ar landsins hafa nælt sér í? „Þetta er náttúrulega leikfélag og metnaður okkar felst í því að leika, setja upp leiksýningar en ekki syngja og dansa. Þó svo að við höfum náttúru- lega alla hæfileika til að gera hvort- tveggja. Við hugsum þetta fyrir þá sem vilja stíga sín fyrstu spor í leik- listinni." Þar sem Tjamarbíó er athvarf allra menntaskóla á höfuðborgar- svæðinu standa sýningar á leikritinu aðeins yfir í tvær vikur, þannig að það er fyrir öllu að verða sér úti um miða sem fyrst. Gódmyndbönd Skrifstofurými / Office Space Fersk og bráðfyndin gamanmynd um þrúgandi veruleika vinnunnar á tímum markaðshyggju og stórfyrir- tækja. Fyrri helmingur myndarinn- ar tekur á þessu efni á snilldarlegan hátt en fer síðan út í aðra og ómerkilegri sálma. Mookie ★★1/4 Létt og skemmtileg frönsk gam- anmynd sem fjallar um trúboða og atvinnuboxara á fiótta með talandi apa. Fótboltakappinn EriCantona er bráðskemmtilegur í hiutverki boxarans. Framapot / Election ★★★% Pað gerist alltof sjaidan að eins safaríkar myndir og þessa rekur á fjörurnar. Hárfínt og beitt handrit- ið hittir beint í mark í meðferð leik- ara sem eru hver öðrum betrí. Hvunndagshetjan / The Jack Bull ★★★ Fullkomið dæmi um hinar vönd- uðu kapalsjónvarpsmyndir sem ver- ið er að framleiða um þessar mund- ir vestanhafs. Vandaður vestrí, gerður af einvalaliði. Konfektmoli fyrir vestraunnendur. Óveður aidarinnar / The Storm of the Century ★★★ Enn ein Stephen King-sagan kvikmynduð og er þessi vel yfir meðallagi góð. Það virðist gefa góða raun að láta hann sjálfan skrifa handrítið. Besta sjónvarpsmynda- syrpan sem gerð hefur verið eftir sögu Kings. Mill on the FIoss /Myllan við ána Floss ★★% Emily Watson bregst ekki frekar en fyrri daginn í meðalgóðri útgáfu af bók George El- iot. Bernard Hill skín í hlutverki föð- uríns. Gunshy / Byssur- agur **V4 Góður leikur, sérstaklega hjá Michael Wincott, og gott handrit halda þessarí hefð- bundnu glæpa- heimsmynd fyrir ofan meðallag. Falcone / Falcone dómari ★★% Góð mynd sem byggir á sann- sögulegum atburðum um baráttu dómarans Falcone við hina gífur- lega valdamiklu mafíu. Hlauptu, Lóla, hiauptu / Lola Rennt ★★★% Kvikmyndin um hlaupagikkinn Lólu þykir bera með sér ferska strauma inn íþýska kvikmyndagerð en hún hefurnotið vinsælda víða um lönd. Myndin er nýstárleg, hröð og kraftmikil en þar er blandað saman ólíkri tækni til að ná fram sterkri sjónrænni heild. Frumleg og vel heppnuð tilraun með möguleika myndmiðilsins. Jarðarför í Texas / A Texas Funer- al ★★% Vel skrifuð kvikmynd sem byggir smám saman upp fram- bærilegt fjöl- skyldudrama. Hverri persónu er gcfið gott svigrúm og leikarar njóta sín vel í bit a- stæðum hlutverk- um. Limbó / Limbo ★★★W Þessi nýjasta mynd leikstjórans John Sayles er vel skrifuð og for- vitnilega upp byggð. Hún bregður upp skarpri mynd af smábæjarlífí í Alaska og kafar síðan djúpt í tilfinn- ingalíf nokkurra aðalpersóna. Ovenjuleg og töfrandi kvikmynd. Stáltaugar / Pushing Tin ★★W Létt og skemmtileg gamanmynd sem fjallar um flugumferðarstjóra á ystu nöf. Vel valið leikaralið, sem skartar þeim John Cusack, BiIIy Bob Thornton og Cate Blanchett, bætir upp fyrir mcðalgott handrit. Heiða Jóhannsdóttir Ottó Geir Borg Skarphéðinn Guðmundsson Billy Bob Thornton í hlut- verki flugumferðarstjóra í kvikmyndinni Pushing Tin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.