Morgunblaðið - 19.03.2000, Page 64

Morgunblaðið - 19.03.2000, Page 64
VIÐSKIPTAHUGBÚN AÐUR Á HEIMSMÆLIKVARÐA <Q> NÝHERJI S: 569 7700 fVtotgftitMilMfr heim að dyrum www.postur.is I PÓSTURINN MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNl 1,103 REYKJAVÍK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTl 1 SUNNUDAGUR 19. MARS 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Verkamannasamband fslands gagnrýnir málflutning SA harðlega Saka atvinnurekendur um atlögu að vinnulöggjöfinni FORYSTA Verkamannasambands íslands gagn- rýnir harðlega orð Ara Edwald, framkvæmdastjóra SA, og málflutning Samtaka atvinnulífsins eins og hann birtist í Morgunblaðinu í gær. Formaður VMSÍ segir ummælin atlögu að vinnulöggjöfinni. Samtök atvinnulífsins gagnrýndu forsvarsmenn VMSI í gær fyrir að tala opinberlega eins og launa- kröfur takmörkuðust við 15 þúsund krónur, en slfkt væri þó fjarri lagi. Var tekið dæmi af starfsfólki í mjölbræðslum sem í raun fæli í sér ríflega 40% launahækkun þegar allir þættir kröfugerðar VMSÍ væru taldir saman. Sagði Ari Edwald undarlegt að ^ félögin miðluðu ekki ítarlegri upplýsingum til fé- lagsmanna sinna, sem nú greiddu margir hverjir atkvæði um verkfall. Bjöm Grétar Sveinsson, for- maður Verkamannasambandsins, sagði að þessi at- laga atvinnurekenda hefði ekki farið vel í menn við samningaborðið í Karphúsinu í gær. „Það er greini- legt að atvinnurekendur eru þarna að reyna að hafa bein áhrif á niðurstöðu atkvæðagreiðslu í félögun- um um verkfall og slíkt eitt og sér fer ansi nærri því að ganga gegn vinnulöggjöflnni. Auk þess er afar öjálslega farið með í veigamiklum atriðum,“ sagði hann. „Mér finnst að atvinnurekendur þurfi heldur betur að rekja upp prjónana sína; einhvers staðar hefur orðið heldur hressilegt lykkjufall." Bjöm Grétai’ bendir á að í öllum félögum Verka- mannasambandsins hafi verið vandlega farið yfir kröfugerðina og hún í raun mótuð þar. Fjórir for- mannafundir hafi verið haldnir um málið og því sé fjarstæðukennt að halda því fram að kröfumar séu ekki nægilega vel kynntar. „Allur þessi málflutn- ingur er út úr korti. Með miklum vilja gæti ég skilið þetta þannig að Ari vilji að við föllum frá einhverj- um hliðarkröfum, sem hafi jafnvel ekkert með laun að gera, til að hægt sé að standa við kröfuna um 15 þúsund kr. hækkun á ári. Ég vil gjaman ræða það við hann,“ sagði Bjöm Grétar. Hins vegar væri um- hugsunarefni hvort framkvæmdastjóri SA hafi í raun sprengt launarammann og það skýri upphlaup hans. „Okkur sýnist jafnvel að í öðrum samningum, sem liggja í hærri kauptöxtum en við þekkjum, séu Samtök atvinnulífsins komin upp fyrir 3,9% launa- hækkun." Formaður VMSÍ segir að skv. ákvæðum vinnu- löggjafarinnar sé atvinnurekendum óheimilt að hafa áhrif á skoðanir launþeganna, bæði hvað varð- ar stjórnmál og verkalýðsmál. „Hins vegar fyrir- gefum við mönnum sem eru bara greinilega ekki betur að sér í fræðunum en þetta,“ sagði Bjöm Grétar ennfremur. Gert að í Kletts- víkinni GEORG Arnarson, trillukarl og eig- andi Blíðu VE, gerir að vænum hrognaþorski í Klettsvíkinni í Vest- mannaeyjum. Georg, sem hefur verið í trilluút- gerð síðan 1987, sagði gott að gera út frá Eyjum því það væru aðeins 10 mínútur á miðin. Hann sagði að veiðin hefði verið góð í janúar og febrúar. „Það var mjög góð veiði áður en loðnan kom hingað - vaðandi ýsa yfir öllu,“ sagði Georg, en bætti því við að veiðin í mars hefði verið dræm. „Þaðhefur varla gefið á sjó í mars. Ég held ég hafi farið í einn róður. Það er yfirleitt alger ör- deyða á miðunum í svona tvær til þrjár vikur eftir að loðnan fer. Þetta ætti samt að fara að glæðast enda komnar rúmar tvær vikur síð- an hún fór hérna yfir.“ Heilsuvernd á vinnustöðum Lög frá 1980 enn ekki virk FYRIRKOMULAG um heilsuvernd staifsmanna sem kveðið er á um í lögum frá árinu 1980 er enn ekki orð- ið virkt og starfsfólk hinna ýmsu fyr- irtækja á fáa kosti og enga góða þeg- ar það stendur frammi fyrir atvinnusjúkdómum, segir Magnús Ingi Erlingsson, fyrrverandi lög- maður Vinnueftirlits ríkisins, en hann hefur haldið fyrirlestra um það sem hann kallar „ófremdarástand" í þessum málum síðustu misseri. Magnús bendir á að í samnor- rænni könnun sem gerð var á Norð- urlöndunum á árunum 1980 til 1992 komi fram að atvinnusjúkdómar mælist varla nema í undantekning- artilvikum hér á landi og það geti vart stafað af öðru en því að tilkynm ingarskylda er ekki fyrir hendi. I reglunum frá 1980 stendur m.a.: „Stjórn Vinnueftirlits ríkisins skal í samráði við heilbrigðisyfirvöld setja reglur um, að starfsmenn skuli gangast undir læknisskoðun áður en þeir eru ráðnir til starfs, meðan þeir eru í starfi og þegar við á...“ „I stuttu máli hafa þessar reglur ekki orðið virkar og fólk getur lent á algjörum flæðiskerjum," segir Magnús, en í skýrslu frá Vinnueftir- H litinu segir að framkvæmdin hafi taf- ist þar sem uppbygging heilsugæslu- stöðva hafi ekki farið fram með þeim krafti sem reiknað hafi verið með. ■ Stjórnvöld/22 Morgunblaðið/RAX Tæpum 10% veiddra laxa var aftur sleppt í árnar árið 1999 Þokkalegar laxveiðihorfur ÚTLIT er fyrir að stangveiðin næsta sumar geti orðið þokkaleg. Sam- kvæmt spám sérfræðinga Veiðimála- stofnunar eru líkur taldar á að lax- veiðin í sumar geti orðið nálægt meðalveiði áranna 1974-1998. Guðni Guðbergsson, fiskifræðing- ur hjá Veiðimálastofnun, bendir þó á að spár um laxagöngur séu ekki byggðar á strangvísindalegu spálík- ani og þær séu háðar ýmsum ólíkum forsendum en Veiðimálastofnun gerir ráð fyrir að fjöldi veiddra laxa. í sumar gæti orðið á bilinu 29.00-35.000 laxar. A ársíúndi Veiðimálastofnunar á Þú smellir og seðillinn er greiddur @ BÚNAÐARBANKINN Traustur banki föstudag voru m.a. kynntar horfur í veiði á sumri komanda. Rúmlega 31 þúsund laxar veiddir á stöng á seinasta ári Guðni segir að margir þættir hafi áhrif á laxagöngur og veiði, m.a. hlut- fall smálaxa og stórlaxa, og gefur smálaxaveiði á síðasta ári engar sér- stakar vonir um sterkar stórlaxa- göngur í sumar. Stærð seiðaárganga í ánum er nú í meðallagi en ástand sjávar er með betra móti en sterk tengsl eru á milli ýmissa þátta í ástandi sjávar og laxveiði, að sögn Guðna. Skv. bráðabirgðatölum veiddust nálægt 31.200 laxar á stöng á síðasta sumri en það er um 13% minni veiði en meðalveiði áranna 1974-1994.1 net veiddust um 7000 laxar en það er um helmingur meðalveiði umrædds tíma- bOs. Úr hafbeit endurheimtust um 11 þúsund laxar en dregið hefur úr haf- beit á undanfömum áram. fslendingar taldir verja 500 millj. á ári til veiðileyfakaupa Færst hefur í vöxt á seinustu árum að löxum sem veiddir era á stöng sé sleppt aftur í ámar. Skv. upplýsing- um Veiðimálastofnunar var 669 löx- um sleppt árið 1996 en það eru 2,3% af heOdarveiði ársins. 1997 var fjöldi Fjöldi stangveiddra laxa á Islandi 1974-1998 bráðab.tölur fyrir árið 1999 og spá um árið 2000 60.000 Meðalveiði 1974-1998 30.000 20.000 10.000 1980 1300 1930 1975 1991/ slepptra laxa 1.558 (5,4% af heildar- veiði), 2.826 laxar árið 1998 (7% ) og skv. bráðabirgðatölum Veiðimála- stofnunar var alls 3.015 löxum sleppt aftur í árnar á síðasta laxveiðisumri eða 9,7% af heildarveiði síðasta árs. Fram kemur í formála Sigurðar Guðjónssonar, framkvæmdastjóra Veiðimálastofhunar, í ársskýrslu að ár- leg velta kringum stangveiði á Islandi sé áætluð um 1,8 milljarðar króna og er um helmingur þess fjár tekjur veiðifé- laga. Aætlað er að Islendingar veiji 500 mOljónum kr. tíl veiðOeyfakaupa á ári. Sigurður bendir á að laxveiði sé nær fullnýtt á landinu og eftirspumin sé vaxandi. Þetta þýði að verð veiði- leyfa hafi hækkað. Við þær aðstæður sé tilhneiging í þá átt að auka sókn í veiðinni, bæði beint og óbeint. „Þetta er talsvert áhyggjuefni þar sem við vitum ekki nákvæmlega hvar veiðiþolmörk laxastofnanna liggja. Þar við bætist að endurheimtur úr sjó hin síðari ár hafa verið lægri en áður var. Hætt er því við að nærri sumum laxastofnum sé gengið," segir Sigurð- ur í formála ársskýrslunnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.