Morgunblaðið - 21.03.2000, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 2000 B 7
SUND
Mikið ævintýri að
koma til íslands
„VIÐBRIGÐIN voru rosaleg að koma til íslands. Það var komið vor
heima á Ítalíu og blóm voru farin að springa út. Það voru því miklar
andstæður að koma í veðráttuna hér. Þetta er búið að vera mikið
ævintýri og skemmtileg reynsla," sagði Flora Christina Montagni
frá Ítalíu, sem var meðal keppenda á Meistaramótinu.
Flora keppti fyrir KR en markmið
hennar er að ná lágmörkum fyr-
ir Olympíuleikana og keppa þar fyrir
Islands hönd. Móð-
Eftjr ir Floru er íslensk,
Bjöm Hjördís Hauksdótt-
Blöndal ir, sem hingað var
komin með dóttur
sinni en hún hefur búið á Ítalíu ásamt
manni sínum í 20 ár. Hjördís sagi að
Flora ætti þann draum stærstan að
keppa fyrir ísland og á öllum mótum
sem hún tæki þátt í bæri hún íslenska
fána, ýmist á sundhettu eða bol.
„Það var faðir hennar sem hefur
hvað mest hvatt hana til dáða og hann
vildi að Fora keppti fyrir Island.
Þetta hefur verið töluvert mál en hún
er nú komin með tvöfalt ríkisfang
sem gerir henni kleift að keppa á
mótum sem íslendingur," sagði Hjör-
dís móðir Floru. „Við mæðgur erum
öllum þeim sem hafa stutt okkur í
þessa ferð ákaflega þakklát. KR-ing-
um fyrir alla þá hjálp og stuðning sem
þeir hafa veitt okkur og einnig Heild-
verslun Ingvars Karlssonar, sem
greiddi götu Floru til íslands og gerði
þessa ferð að veruleika,“ sagði Hjör-
dís Hauksdóttir ennfremm-.
Sérgreinar Floru Christinu eru
200 og 400 m fjórsund og sigraði hún í
þeim greinum með talsverðum yfir-
burðum á mótinu. Hún ætlai’ að
reyna við lágmörkin næst á móti í
Torini, síðan í Róm og loks mun hún
koma til móts við íslenska landsliðið í
Frakklandi.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Mæðgurnar Flora Christina Montagni og Hjördís Hauksdóttir
voru sérlega ánægðar með íslandsferðina.
Unnu ferð
til Lundúna
í lokahófi íslandsmeist-
aramótsins voru veittar
viðurkenningar fyrir ýmis
afrek sem unnin voru á
inótinu. Jakob Jóhann
ÍSveinsson, Ægi, og Kol-
brún Ýr Kristjánsdóttir,
ÍA, unnu hvort um sig
farmiða til Lundúna og
heim aftur fyrir tvö stiga-
hæstu sund mótsins. Jakob
fékk samtals 1.633 stig
fyrir 100 og 200 m bringu-
sund og Kolbrún 1.764 stig
fyrir 50 m baksund og 50
m flugsund.
Þá var einnig veittur
bikar fyrir stigaliæstu
sund í karla- og kvenna-
flokki. Þá unnu Hjalti
Guðmundsson, SH, fyrir
100 m bringusund og Kol-
bi-ún fyrir 200 m baksund.
Einnig var kunngjört
hvert væri efnilegasta
sundfólk mótsins, en það
er valið úr hópi þeirra sem
eru að keppa annað árið í
röð á mótinu. Fyrir valinu
urðu Heiðar Ingi Marinós-
spn, Vestra, og Berglind
Ósk Bárðardóttir, SH.
FIMM sundmenn náðu lágmarki
til þátttöku á Norðurlanda-
meistaramótinu, sem fram fer
næsta vetur, á íslandsmeistaramót-
inu í sundlaug Keflavíkurflugvallar.
Guðgeir Guðmundsson, IA, náði
lágmarkinu í 200 m flugsundi er
hann kom í mark á 2.09,96 mínút-
um, en lágmarkið er 2.10,00. Hafdís
Erla Hafsteinsdóttir, Ægi, vann sér
inn þátttökurétt á NM með því að
synda 50 m bringusund á 35,36 sek-
úndum og vera 14/100 úr sekúndu
undir lágmarkinu. Anja Ríkey Ja-
kobsdóttir, SH, synti 200 m baks-
und á 2.25,83 mínútum og var einn-
ig 14/100 úr sekúndu undir
lágmarkinu. Berglind Ósk Bárðar-
dóttir, SH, vann sér inn farseðil á
NM með því að synda 200 m bring-
usund á 2.38,72 en lágmarkið er
2.40,00. Þá vann Elva Björk Mar-
geirsdóttir, Keflavík, ser einnig inn
keppnisrétt á NM unglinga er hún
synti 200 m flugsund á 2.28,28 en
lágmarkið er 2.31,00.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Þau tryggðu sér þátttökurétt á Norðurlandamóti unglinga. Frá vinstri til hægri eru: Guðgeir Guðmundsson ÍA, Hafdís Erla Hafsteins-
dóttir Ægi, Elva Björk Margeirsdóttir Keflavík, Anja Ríkey Jakobsdóttir SH og Berglind Ósk Bárðardóttir SH.
Formúla 1
Silverstone
Einstök ferð fyrir áhugafólk um
kappakstur og kappakstursbíla
www.samvjnn.ls
á mann f tvíbýli á fjögurra stjörnu hóteli.
Innifaliö: Flug, skattar, gisting meö
morgunveröi, akstur til og frá flugvelli
erlendis, miði á aðalkeppnisdaginn, akstur
til og frá keppni á sunnudeginum og
fararstjórn.
Samvinnuferðir
Landsýn