Morgunblaðið - 31.03.2000, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 31. MARS 2000 C 7
BÍÓBLAÐIÐ
od
Þaö er hægt aö
treysta á hiö ótrúlega
bjarta öreindarljós við hvaöa
aðstæður sem er.
Hvort sem er i leik eða starfi munu
smæð þess og léttleiki gera þér kleift
að hafa það ávallt á þér.
Við ábyrgjumst að óbrjótanleg
Ijósaperan endist að eilífu, en hún er
knúin af endingargóðri litíum-rafhlöðu
sem hægt er að skipta um.
Kvikmyndabækur
flrnaldur Indríðason
High Concept: Don Simpson and
the Hollywood Culture of Excess.
Doubleday 1998.293 síður.
Einstaka sinnum eru skrifaðar bækur
sem gefa góða innsýn í Hollywood, þá
sem þar starfa, þá sem taka ákvarð-
anir um hvaða myndir eru gerðar,
hvaða fólk þetta er, hvaðan það kem-
ur, af hverju það stjómast. Þetta eru
bækur sem skoða lffið á bak við dýrð-
arljómann og þær bestu kryfja Holly-
wood-kerfið til mergjar og veita nýja
sýn á draumaverksmiðjuna. Slík bók
er til dæmis Þú munt aldrei aftur
snæða hádegisverð í þessum bæ eftir
Julia Phillips, sem var skemmtilega
rætin, og Lokaklippingin eða Final
Cut, er fjallaði um hörmungina sem
var gerð Himnahliðsins og hvemig sú
stórkostlega bmðlframleiðsla lagði að
velli eitt elsta kvikmyndaverið í
Hollywood, United Artists. Slík bók
er einnig High Concept: Don Simp-
son and the Hollywood Culture of
Excess eða Sölumyndin: Don Simp-
son og bruðlmenningin í Hollywood
eftir Charles Fleming.
Don Simpson var eins og margir
vita annar helmingurinn af framleið-
endadúettnum Simpson/Brackhei-
mer en varla er til það mannsbam á
vesturhvelinu sem ekki hefur séð ein-
hveija af myndum þeirra (Flash-
dance, Top Gun, Beverly Hills Cop,
Days of Thunder, Bad Boys, Crimson
Tide, The Rock, Con - Air svo nokkr-
ar séu nefndar). Þeim er þakkað að
hafa átt hvað stærstan þátt í því að
búa til það sem kallað er „high
concept“ og er erfitt að skýra ná-
kvæmlega á íslensku en er örstutt
lýsing á hugmynd sem gæti orðið
metsölumynd. Slíkar hugmyndir
ganga kaupum og sölum í drauma-
borginni fyrir svimandi háar fjárhæð-
ir en sem dæmi má nefna að hug-
myndin að Con - Air myndi vera lýst
sem Die Hard um borð í flugvél. Þeim
má ennfremur þakka hversu hallær-
islegar og ömurlega innihaldslausar
topphasarspennumyndimar era
orðnar, ekki mikið merkilegri en
hvert annað rokkmyndband.
Simpson og Brackheimer urðu
framleiðendur í Hollywood í byijun
níunda áratugarins þegar framleið-
andinn var að taka æ meiri völd af
leikstjóranum. Ein ástæðan fyrir því
hversu góðar myndir voru gerðar á
áttunda áratugnum er sú, að þær
vora runnar undan rifjum leikstjór-
anna (sem margir hveijir komu af
austurströndinni) og það vora í stór-
um dráttum leikstjóramir sem réðu
gerð myndanna. Þetta breyttist á
níunda áratugnum (og jafnvel fyrr)
með hugmyndinni um „sölumyndina".
. Framleiðandinn varð allsráðandi,
hann keypti hugmyndina eða kom
fram með hana sjálfur, keypti hand-
ritshöfund til þess að gera handrit eft-
ii- henni, réð leikstjórann og leikarana
í aðalhlutverkin og réð, samkvæmt
lýsingu á vinnubrögðum Simpsons í
bókinni, öllu við gerð myndarinnar í
stóra og smáu. Allt snerist um að gera
metsölumynd. Pakldnn sem settur
var saman átti að tryggja 100 milljón-
irdollaraíkassann.
Bókin rekur ris og fall Simpsons
með hinum breyttu tímum og lýsir í
leiðinni Hollywood sem furðustað þar
sem nákvæmlega allt snýst um gerð
bíómynda og þar sem nánast hver
sem er getur komist í gríðarlegar
álnir. Það þarf til dæmis enga
menntun til þess að komast
áfram vegna þess að, eins og
handritshöfundurinn William
Goldman hefur bent svo
listilega á, þá veit enginn
neitt í Hollywood um hvað
það er sem gengur og geng-
ur ekki í áhorfendur. Simp-
son, strákur sem alist hafði
upp í Alaska, rataði á réttu
blönduna á ákveðnum tíma-
punkti og varð margfaldur
millj arðamæringur.
Það sem eyðilagði hann á end-
anum var ekki að hann framleiddi
lélegar myndir (þótt ekki væra þær
góðar og hlytu iðulega slæma út-
reið gagnrýnenda flykktist
fólk á þær) heldur lifði
hann slíku dóplffi
að rómverskur
sukkkeisari
hefði orðið
stoltur af. Höf-
undurinn
Fleming lýsir
því í oft mjög
Beverly Hills Cop: Mataðigull fyrir Simpson.
krassandi smáatriðum studdur heim-
ildum hvemig hann notaði auð sinn til
þess að lifa bílffi. Mellumamman
Heidi Fleiss sá honum fyrir konum,
hann notaði kókaín og margt annað
dóp á hverjum degi, meðferðir
höfðu engin áhrif, hann belgd-
ist út þar til hann þorði
ekki lengur út af
heimili sínu og
smám saman
einangr-
aðist
hann;
félagar
sem
hann hafði starfað með snera við hon-
um baki og vinur hans, Bruckheimer,
sleit að lokum samstarfinu. Simpson
lést skömmu síðar af hjartaslagi á
heimili sínu.
Charles Fleming býður upp á æv-
intýralega frásögn af því peninga-
flæði sem streymir um Hollywood og
braðlið sem tíðkast í samningum og
hvemig maður eins og Simpson
hreinlega virtist ekki geta ráðið við
ofgnóttina sem við honum blasti. Bók-
in er fengur þeim sem áhuga hafa á
kvikmyndum og sérstaklega þeim
sem gerðar era í Hollywood.
ÁRBÆJARBLÓM HRAUNBÆR
ÁSTUND AUSTURVERI
BÍLABÚÐ BENNA VAGNHÖFÐA
BÍLANAUST VERSLANIR
ELLINGSEN GRANDAGARÐI
GÍSLI JÓNSSON EHF. BÍLDSHÖFÐA
GUÐMUNDUR HERMANNSSON -
ÚRSMIÐUR SMÁRANUM
Heimskringlan Kringlunni
HESTAVÖRUR SÍÐUMÚLA
HLAÐ SF. BÍLDSHÖFÐA
INTERSPORT BÍLDSHÖFÐA
J. VILHJÁLMSSON BYSSUSMIÐUR
MARKIÐ ÁRMÚLA
MERKÚR HF. SKÚTUVOGI
NANOQ KRINGLUNNI
POLARIS KÓPAVOGI
RAKARASTOFAN HÓTEL SÖ
SELECT SMÁRANUM
SELECT SUÐURFELL
SELECT VESTURLANDSVEG
SPORTBÚÐIN TÍTAN SELJAVEGI
TOKYO GARÐABÆR
TÖLTHEIMAR FOSSHÁLSI
ÚTILÍF GLÆSIBÆ
VEIÐIHORNIÐ HAFNARSTRÆTI
VEIÐIVON MÖRKIN
VESTURRÖSTLAUGAVEGI
—
Dreifing
Veiðihúsið Sakka efh.
Hólmaslóð 4 101 RVK
Símar 898 4047 • 562 0095
Fax 562 1095
Netfang vs.palli@xnet.is
GU
m
i
ÚtsölustaðiR
BENSÍNSTÖÐIN ÍSAFIRÐI
DROPINN KEFLAVÍK
HLAÐ SF. HÚSAVÍK
J&J Kjarnanum Selfossi
PÓLARIS EHF. AKUREYRI
SJÓBÚÐIN AKUREYRI
SMUR OG DEKK HORNAFIRÐI
VERSLUNIN BLÁFELL GRINDAVÍK
VEIÐIKOFINN Egilsstaðir
VERSLUNIN VÍK NESKAUPSTAÐ
VERSLUNIN ALDAN SANDGERÐI
RÁS EHF. ÞORLÁKSHÖFN
abv«gd
Wðtðku
ÉÍÍ'/ ** v«gerö „J*6 M °Wcar
■T bér að fáöu nýtt
LITIR I lÓSTÍÐNI LJÓSGEISLI í GRÁDUM RAFHLADA LÍFTÍMI RATHLÖDU
MÖÐÖfí 626 nm. 24° víður 1 X Lithium CR-2032 124 klst.
í\PP£L5ÍMI/ GI/LUÍi 605 nm. 15° mjór 1 X Lithium CR-2032 124 klst.
GÍ/LÍ/K 590 nm. 15° mjór 1 X Lithium CR-2032 124 klst.
GBÆNN 525 nm. 30° víður 1 X Lithium CR-2032 200 klst.
MGJlí£íM 500 nm. 30° víður 2 X Lithium CR-2016 12- 14klst.
470 nm. 30° víður 2 X Lithium CR-2016 12- 14klst.
iiyÍJUK 6500 kelvin 20° mjór 2 X Lithium CR-2016 12 - 14 kist.
INFSARAUÐUR ??? ??? 1 X Lithium CR-2032 ???
mmmrn
■