Morgunblaðið - 27.06.2000, Page 1
STOFNAÐ 1913
TBL. 88. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Þingkosningarnar
í Japan
Mori
heldur
velli
Tdkýí.AFP.
STJÓRNARFLOKKARNIR í Jap-
an lýstu í gær yfir stuðningi við
Yoshiro Mori forsætisráðherra, sem
hefur verið kennt um mikið fylgistap
þeirra í þingkosningunum á sunnu-
dag. Komu leiðtogar flokkanna sam-
an og samþykktu að kalla þing saman
4. júlí til að staðfesta að Mori héldi
embættinu.
Áður hafði Mori játað að hann bæri
ábyrgð á fylgistapi Frjálslynda lýð-
ræðisflokksins, sem missti meirihluta
sinn í neðri deild þingsins. Hinir
stjórnarflokkarnir tveir töpuðu einn-
ig mikiu fylgi en stjómin er þó enn
með meirihluta í deildinni.
„Mori forsætisráðherra heldur
velli um sinn, en við efumst um að
hann geti haldið embættinu þar til
næsta sumar í ljósi þess að fylgi hans
er sáralítið," sagði japanski stjóm-
málaskýrandinn Shigenori Okazaki.
Gagnrýndur fyrir ummæli sín
Samkvæmt skoðanakönnunum er
Mori einn af óvinsælustu forsætis-
ráðherram Japans eftir síðari heims-
styrjöldina vegna ýmissa ógætilegra
yfirlýsinga hans. Hann var gagn-
rýndur harkalega fyrir að lýsa Japan
sem „landi guðs, með keisarann sem
þungamiðju." Þá sætti hann einnig
gagnrýni eftir að hafa hvatt óákveðna
kjósendur til að „sofa á kjördag".
Margir virðast þó hafa farið að ráði
hans því kjörsókn var 62,49%, hin
næstminnsta í sögu landsins.
■ Kjósendur völdu/24
Jafnt fylgi flokkanna ZANU-PF og MDC í þingkosningunum í Zimbabwe
AP
Drengir úr norðurhluta Zimbabwe við auglýsingar fyrir stjórnarand-
stöðuflokkinn MDC, í nágrenni kosningamiðstöðvarinnar í Guruve.
Drengirnir sýndu gestum og gangandi hvaða flokk þeir styddu, en MDC
var lengi með meirihluta atkvæða. Stjórnarflokkurinn ZANU-PF náði
síðan naumri forystu er rúmur helmingur atkvæða hafði verið talinn.
Endanleg úrslit kosninganna lágu ekki fyrir er blaðið fór í prentun.
Stjórnarliðar
með nauma
forystu
Harare. AP, AFP, Reuters.
ÞINGKOSNINGAR fóru fram í
Zimbabwe um helgina og hafði
stjórnarflokkur Roberts Mugabes,
ZÁNU-PF, nauma forystu er rúm-
ur helmingur atkvæða hafði verið
talinn. Áður hafði stjórnarand-
stöðuflokkurinn, Hreyfing fyrir
lýðræðislegum breytingum (MDC)
leitt kosningarnar. Endanleg úrslit
kosninganna lágu ekki fyrir er
blaðið fór í prentun, en að sögn
AFP-fréttastofunnar hafði ZANU-
PF þó tryggt sér þau 46 þingsæti
sem flokkurinn þurfti til að halda
þingmeirihluta.
Kosningarnar fóru að sögn al-
þjóðlegra eftirlitsmanna friðsam-
lega fram, en kosningabaráttan
hafði einkennst af ofbeldi og ógnun-
um stuðningsmanna ZANU-PF á
hendur stjórnarandstæðingum.
Lögregla í Zimbabwe hafði því við
mikinn viðbúnað í gær til að koma
mætti í veg fyrir að átök brytust út.
Hvatt til stillingar
Allt var þó með kyrrum kjörum
fram eftir kvöldi í gær og hvatti
lögregla fólk til að halda ró sinni.
„Þeir sem fara með sigur af hólmi
verða að sýna stillingu og ráðast
ekki gegn þeim sem bíða ósigur.
Þeir sem tapa verða að taka því
með ró,“ sagði Augustine Chihuri,
lögreglustjóri, í ávarpi til þjóðar-
innar í gær.
Þingkosningarnar í ár voru þær
fyrstu sem taldar voru geta fellt
stjórn Mugabes, sem hefur verið
við völd frá þvi að Zimabwe hlaut
sjálfstæði árið 1980.
Ekki var ljóst í gær hvort stjórn-
arflokkurinn hefði hug á að virða
úrslit kosninganna yrði niðurstaðan
sú að MDC færi með sigur af hólmi,
en John Nkomo, formaður ZANU-
PF, sagði á sunnudag að flokkurinn
myndi vera áfram við völd sama
hver úrslit kosninganna yrðu.
Kjörsókn mikil
Kjörsókn vegna þingkosning-
anna var mikil og var talið að um
65% kjósenda hefðu neytt atkvæð-
isréttar síns. Kosningaþátttaka í
Zimbabwe hefur ekki mælst meiri
frá því kosið var í sjálfstæðiskosn-
ingunum 1980. Að sögn Tobaiwa
Mudede, sem hafði yfirumsjón með
talningu atkvæða, olli þetta því að
tölur vora seinna á ferðinni en ráð
hafði verið gert fyrir. „Þátttakan er
bara of mikil, yfirþyrmandi... næst-
um því helmingi meiri en við gerð-
um ráð fyrir,“ sagði Mudede við
fréttamenn.
Kosið var um 120 af 150 þingsæt-
um, en Mugabe velur 20 þingmenn,
auk þess sem höfðingjar 10 ætt-
flokka eiga einnig sæti á þingi.
Þurfti stjórnarandstaðan því að ná
76 þingsætum til að ná þingmeiri-
hluta á meðan að stjórnarflokknum
dugðu 46 sæti til þess.
Finnland
Mannskæð
Jónsmessa
Helsinki. AP.
,AF hverju aftur? Hvers vegna
læram við aldrei?" var fyrirsögn
finnska dagblaðsins Iltalehti í
gær eftir að 28 manns fórast í
Finnlandi nú um helgina. Helgin
í kringum Jónsmessu er sá tími
sem hvað flestir Finnar halda í
sumarfrí og hefur fjöldi dauðs-
falla um þessa helgi farið vax-
andi undanfarin þijú ár.
I ár drukknuðu 15 manns, tíu
fórast í umferðaróhöppum og
ofbeldi kom við sögu við dauða
þriggja. Að sögn AP-fréttastof-
unnar fórast 20 um þessa sömu
helgi í fyrra og 15 árið áður.
Svo virðist sem að upphafi
sumarleyfistímans í Finnlandi
fylgi gjaman ótæpileg neysla
áfengis. Þetta hefur reynst
mörgum Finnum banvæn
blanda, skv. sögn finnsku lög-
reglunnar, sem telur að áfengi
hafi komið við sögu í flestum
dauðsfallanna. Finnar fagna
Jónsmessunni gjaman með því
að halda út í sveit og neyta þar
áfengis í miklum mæli.
Vinnu við frumgerð að korti yfír erfðamengi mannsins lokið
Spáð byltingu í barátt-
unni
Washington, London. AP, Rcuters.
TALSMENN vísindastofnana
beggja vegna Atlantshafsins skýrðu í
gær frá því í sameiginlegri yfirlýs-
ingu að búið væri að Ijúka við fram-
gerð að korti yfir genamengi manns-
ins.
Aukin þekking á genum, öðra nafni
erfðavísum mannsins, og þætti þeirra
í þróun sjúkdóma er talin geta valdið
byltingu í læknisfræði. Vitað er að
erfðir leika mikilvægt hlutverk í sjúk-
dómum á borð við ýmis krabbamein
og hjartasjúkdóma.
„Þetta er stórkostleg uppspretta,"
sagði Bandaríkjamaðurinn James D.
Watson í gær en hann fékk ásamt
tveimur Bretum Nóbelsverðlaun
1962 fyrir að uppgötva tvöfalda helix-
inn, uppbyggingu erfðaefnisins DNA.
í samtali við BBC sagði hann að nú
hefðu menn komið höndum yfir leið-
arvísi að mannlegu lífi og þróunin yrði
hröð. „Eftir að prentvélin var fundin
gegn sjúkdómum
Bill Clinton Bandaríkjaforseti skýrir frá
kortlagningu genamengisins á blaðamanna-
fundi í Hvíta húsinu í gær.
upp varð sprenging, fleiri gátu fengið
upplýsingar. Við munum öðlast betri
skilning á okkur sjálfum, átta okkur
betur á því hvert eðli mannsins er.“
Bill Clinton Bandaríkjaforseti og
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, héldu í gær sameiginlegan
blaðamannafund með aðstoð sjón-
varpsskjáa til að skýra frá
árangrinum. Sagði Clint-
on að með betri þekldngu
á genamenginu myndu
vísindamenn fá „gríðar-
legt, nýtt afl til að lækna“
með því að ráðast að
erfðafræðiiegum rótum
sjúkdóma. Blair sagði að
genamengiskortið myndi
hafa afleiðingar sem yrðu
jafnvel „mun víðtækari
en uppgötvun fúkkalyfja.
Með afrekinu hafa nýir
tímar í sögu mannsins
runnið upp.“
Tveir aðilar hafa unnið að kortlagn-
ingunni, annars vegar Genamengis-
áætlunin (HGP) frá 1990 en einnig
hefur einkafyrirtækið Celera Genom-
ics undir stjóm Craigs Venters keppt
við HGP sem er samstarf 16 opin-
berra stofnana, aðallega í Bandaríkj-
unum og Bretlandi. Samvinna tókst
nýlega miili keppinautanna tveggja.
Venter sagði í gær að fyrirtæki
hans hefði greint að fullu rámlega
þijá milljarða basaraða sem mynda
genamengið. Sýnin hefðu verið úr
sjálfboðaliðum, þremur konum og
tveimur körlum af ýmsum kynþátt-
um. Talsmaður HGP, Francis Collins,
skýrði frá því að liðsmenn hans hefðu
lokið greiningu á 97% af genameng-
inu og 85% basaraðanna hefðu þegar
verið staðsett á litningum.
■ Grundvöllur/35
MORCUNBLAÐIÐ 27. JÚNÍ 2000