Morgunblaðið - 27.06.2000, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Afkoma rfkissjóðs fyrstu fímm mánuði ársins
Tekj uafgangur
6,5 milljarðar
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónsson
Sprungur eru í Klifinu og er talin stafa hætta af þeim.
Hætta talin
stafa af sprung-
um í Eyjum
TEKJUAFGANGUR á ríkissjóði
fyrstu fimm mánuði ársins nemur
rúmlega 6,5 milljörðum króna, skv.
upplýsingum fjármálaráðuneytis-
ins, en fyrstu fimm mánuði ársins í
fyrra nam afgangurinn 4,3 milljörð-
um króna og 0,7 milljörðum árið
1998. Hreinn lánsfjárjöfnuður
fyrstu fimm mánuði ársins var já-
kvæður um 5,6 milljarða króna sem
er einnig talsvert hagstæðara en ár-
in 1998 og 1999.
Tölur um afkomu ríkissjóðs á
fyrstu fimm mánuðum ársins 2000
eru nú fyrir hendi á greiðslugrunni
og því ekki sambærilegar við fjárlög
ársins, að því er kemur fram í til-
kynningu fjármálaráðuneytisins, en
fjárlög eru sett fram á rekstrar-
grunni. Geir H. Haarde fjármála-
ráðherra segir að menn séu af þess-
um sökum ekki tilbúnir til að
fullyrða að þetta þýði að í árslok
verði afkoma betri fyrir árið í heild
á rekstrargrunni en tölurnar veki
engu að síður ákveðnar vonir um
það.
„Þessar tölur sýna að ríkissjóður
stendur mjög traustum fótum og ef
eitthvað er þá eru tekjurnar heldur
meiri en við höfðum reiknað með, á
VERULEGA hafði dregið úr virkni
á jarðskjálftasvæðinu á Suðurlandi í
gær og sagði Vigfús Eyjólfsson,
jarðfræðingur á Veðurstofunni, í
gærkvöld, að 363 smáskjálftar hefðu
mælst á síðasta sólarhring en það er
það minnsta frá því skjálftavirknin
hófst fyrir rúmri viku.
Stærsti skjálftinn varð í Fagra-
dagsfjalli á Reykjanesskaga kl. 21.37
í gærkvöld og mældist hann 3,2 á
Richter. I Grindavík fannst hins veg-
ar fyrir skjálfta sem varð kl. 18.11 í
gærdag tæpa fimm kílómetra norð-
meðan útgjöldin aukast ekki að
sama skapi. Síðan sést vel á þessu
að skipulega er verið að greiða upp
skuldir," sagði Geir en á fyrstu
fimm mánuðum ársins námu af-
borganir lána 19,3 milljörðum
króna.
Á móti komu lántökur að fjárhæð
12,7 milljarðar króna og þegar
hreinn lánsfjárjöfnuður er hafður í
huga var greiðsluafkoma ríkissjóðs
því neikvæð um tæplega 1 milljarð
króna, sem er rúmlega 4 milljörð-
um króna hagstæðari niðurstaða en
í fyrra.
Heildartekjur ríkissjóðs
nema 81 milljarði króna
Heildartekjur ríkissjóðs námu 81
milljarði króna á tímabilinu janúar-
maí, samanborið við tæplega 73
milljarða á fyrstu fimm mánuðum
síðasta árs og 62 milljarða árið
1998. Aukningin frá fyrra ári nem-
ur 11%, samanborið við 17,% árið
áður. Heildargjöld ríkissjóðs námu
74,5 milljörðum króna á fyrstu
fimm mánuðum þessa árs, sem er
hækkun um tæpa 6 milljarða, eða
8,6% frá sama tíma fyrir ári.
Fjármálaráðherra segir að tekju-
austur af Grindavík, jafnvel þó að
hann væri aðeins 2 á Richter.
Kortið er fengið af vef Veðurstof-
unnar, www.vedur.is/ja/skjalftar/
svest.html, og uppfærist sjálfvirkt á
hálftíma fresti. Dökkrauðir punktar
tákna nýjustu skjálftana og dökkblá-
ir þá elstu en um er að ræða alla
skjálfta sem átt hafa sér stað 48
klukkustundir fyrir útgáfu kortsins.
Skjálftar stærri en 3 á Richter-
kvarða eru táknaðir með grænum
stjörnum, óháð því hvenær innan
tímabilsins þeir urðu.
aukningin sýni að enn séu mjög
mikil umsvif í þjóðfélaginu „og það
sem er athyglisvert er að það eru
ekki síst tekjuskattar sem hækka,
en ekki fyrst og fremst veltuskatt-
ar, eins og sumir hafa talið“.
Tekjuskattur einstaklinga skilaði
tæplega 15% meiri tekjum á fyrstu
fimm mánuðum þessa árs en á sama
tímabili í fyrra og segir í tilkynn-
ingu fjármálaráðuneytisins að til
samanburðar megi nefna að launa-
vísitalan hækkaði um rúmlega 5% á
þessu tímabili. Ljóst sé því að mikil
eftirspurn á vinnumarkaði birtist í
þessum tölum.
Aðspurður um það hvort ekki
megi túlka þessar tölur sem vís-
bendingu um áframhaldandi þenslu
segir Geir, að þar sem veltuskattar
séu helsti mælikvarðinn á þenslu sé
þensluaukning mun minni fyrstu
fimm mánuði þessa árs heldur en á
sama tímabili í fyrra.
Fram kom í máli fjármálaráð-
herra að framvegis yrðu tölur um
afkomu ríkissjóðs birtar mánaðar-
lega og sagði hann að það ætti ekki
síst að gagnast aðilum markaðarins
sem fylgjast vildu grannt með stöðu
ríkisfjármála.
VISS hætta er talin stafa af sprung-
um í Heimaey að mati almanna-
varnanefndar Vestmannaeyja og er
nefndin að íhuga að ýta lausu grjóti
eða sprungum niður, hugsanlega
með sprengingum. Vegum og
gönguleiðum við Klifið hefur verið
lokað og verða ekki opnaðar aftur
fyrr en menn hafa sannfærst um að
veruleg hætta sé ekki á grjóthruni.
Þá hefur tjaldstæðum í Herjólfsdal
verið lokað en Shell-mót hefst í Eyj-
um á morgun og munu gestir á mót-
inu reisa tjöld sín við Þórsvöllinn.
Karl Gauti Hjaltason, sýslumað-
ur í Vestmannaeyjum og formaður
almannavarnanefndar í Eyjum,
sagði að nefndin hefði rætt þá
hættu sem stafar af hruni í Vest-
mannaeyjum. Hann sagði að víða
væru sprungur og laust grjót en
hættan væri talin mest í Klifinu og í
nágrenni við það og þar hefði
gönguleiðum verið lokað. Hann
sagði að í athugun væri að sprengja
laust berg niður og draga þannig úr
hættu á að það félli nærri fólki.
Mjög erfitt væri að meta hversu
mikil hætta stafaði af sprungunum.
Það gæti tekið áratugi eða hundruð
ára fyrir sprungur að falla fram en
tíminn gæti einnig verið miklu
styttri og nefndin ætlaði að skoða
þetta mál betur á næstunni.
Sem kunnugt er fótbrotnaði
stúlka í Herjólfsdal á þjóðhátíðar-
daginn þegar jarðskjálfti reið yfir
landið og grjót úr hlíðinni féll á
hana. Tjaldstæði í dalnum eru enn
lokuð. Guðjón Hjörleifsson bæjar-
stjóri sagði þetta eðlilega varúðar-
ráðstöfun á meðan menn væru að
skoða aðstæður eftir skjálftana.
Hann sagði að þjóðhátíð yrði haldin
í dalnum í sumar en til skoðunar
væri að flytja flugeldasýningu sem
jafnan hefur verið á hátíðinni.
-------------♦-*-«------
Alvarlegt um-
ferðarslys við
Akranes
ALVARLEGT umferðarslys varð
rétt fyrir utan Akranes á móts við
bæinn Bekansstaði á fjórða tímanum
á sunnudag. Fólksbfl var ekið aftan á
sendiferðabfl með þeim afleiðingum
að sendiferðabfllinn fór út af vegin-
um og endaði ofan í skurði. Okumað-
ur hans er talinn alvarlega slasaður
og var fluttur í sjúkrahús.
Auk þess voru tveir aðrir fluttii' í
sjúkrahúsið á Akranesi minna slas-
aðir, farþegi í sendiferðabflnum og
ökumaður fólksbflsins.
Tveir piltar létu
lífið í slysi á
Svalbarðsströnd
TVEIR piltar,
tæplega 21 árs
gamlir, létu lífið í
umferðarslysi á
Svalbarðsströnd
snemma á sunnu-
dagsmorgun. Þeir
hétu Aðalsteinn
Már Björnsson og
Elvar Hilmarsson.
Aðalsteinn Már
var fæddur 17.
ágúst árið 1979 og
var til heimilis í
Stafholti 12 á Ak-
ureyri. Elvar var
fæddur 2. septem-
ber árið 1979 og
var til heimilis í
Bakkahlíð 25 á Akureyri.
Slysið var tilkynnt til lögreglu
á Akureyri kl. 5.25 á sunnudags-
morgun. Piltarnir höfðu verið í
Vaglaskógi og voru á leið til Ak-
ureyrar. Slysið varð nálægt
bænum Höfn á Svalbarðsströnd,
handan Akureyrar. Þar fór bíll-
inn út af veginum en ökumaður
og farþegi köstuðust báðir út úr
Aðalsteinn Már
Björnsson
Elvar
Hilmarsson
bílnum að sögn lögreglu og er
talið að þeir hafi látist sam-
stundis.
Rannsókn á tildrögum slyss-
ins fer nú fram á vegum rann-
sóknardeildar lögreglunnar á
Akureyri og biður hún þá sem
kynnu að hafa orðið varir ferða
bifreiðarinnar, sem var rauð
Toyota Corolia, að gefa sig fram.
-22.5° -22° -21.5° -21° -20.5° -20° -19.5°
64.4°
642°
64«
63.8°
63 6°
km
0 10 20
A A nÍé? xm <,
■ ........
Veðurstola íslands
2000-06-28 22:18
PLP-4-I Wm Aldur (klst.) 63.6°
0 4 8 1 2 1 620 24
-22.5° -22° -21.5° -21° -20.5° -20° -195
64.4°
64.2°
64°
63.8°
Mun minni
skjálftavirkni
Sérblöð í dag
jti
Á ÞRIÐJUDÖGUM
Heimíli
Nýliðar Fylkis hafa hreiðrað um sig
á toppinum / B3
•••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••
Rúnar Kristinsson til Grazer
eða Lokeren / B1
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is