Morgunblaðið - 27.06.2000, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 27.06.2000, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ylströndin 1 Nauthólsvfk formlega opnuö i^/4u/JD' Ykkur er óhætt að hoppa út í elskurnar mínar, það er enginn „k.... í lauginni". Stóraukin virkni við Geysi HVERAVIRKNI á Geysissvæðinu í Haukadai hefur, að sögn heima- manna, stóraukist í kjöifar jarð- skjálftanna á Suðuriandi. Eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu mátti greina aukna virkni á svæðinu í kjölfar fyrri skjáiftans og að sögn Más Sigurðssonar, sem hefur fylgst grannt með því siðustu áratugi, urðu enn frekari breytingar eftir þann seinni. Ekki sjást merki þess, Morgunblaðið/Brynjar Gauti að sögn Más, að virknin sé á nokk- urn hátt að dvína á ný. Þessi aukna virkni sést einna heist í Konungshver, sem var orðinn nánast þurr fyrir skjálftana. Eftir fyrri skjálftann var hann hins vegar farinn að gefa af sér um hálfan sek- úndulítra af heitu vatni og nú segir Már að úr honum renni u.þ.b. einn iítri á sekúndu. Virkni í Strokki er einnig meiri og segir Már hann bæði gjósa oftar og af meiri krafti en áð- ur. Hvað sjálfan Geysi varðar segir Már að hann bulli enn og ólgi en nái ekki að gjósa vegna pokans sem er í raufinni. MikiII ferðamannastraum- ur er nú um Geysissvæðið, enda veðrið gott og staðurinn sem fyrr vinsæll meðal erlendra ferðamanna. Bíldshöfða, 110 Reykjavik s.510 8000 www.husgagnahollin.is Teg. BR04313 kr. 99.360,- HUSGAGNAHOLUN on á ge&tum? Verð frá 89.420,- Vandaðir ameriskir svefnsófar með innbyggðri springdýnu. Frábær lausn þegar sameina þarf fallegan sófa og gott rúm. Við bjóðum margar gerðir, mikið úrval áklæða og lita. Kór Flensborgarskólans I söngferð til Kanada Þórunn Harðardóttir KÓR Flensborgar- skóla hyggur á ut- anferð 1. júlí nk. til að syngja á kóramóti í Tor- onto í Kanada undir stjóm Hrafnhildar Blomst- erberg, sem er kórstjóri. Kórfélagar eru um þessar mundir að selja happ- drættismiða til styrktar utanferðinni. Kór þessi hefui- starfað við Flens- borgarskóla um langt skeið og sungið víða, meðal annars á kóramóti í Port- úgal í fyrra. Þórunn Harð- ardóttir hefur verið kórfé- lagiíþrjú ár. „A kóramótinu í Toronto mun Kór Flensborgar- skóla syngja bæði einn sér og einnig taka þátt í sam- söng með öllum hinum tólf kómnum sem sækja þetta kóra- móta.“ - Hvaðan koma þessirkórar? „Nokkrir em frá Kanada en einnig koma kórar frá Englandi, Spáni, Noregi, Nýja-Sjálandi, Slóveníu og fleiri stöðum. Allt em þetta unglingakórar, félagar era á aldrinum 15 til 27 ára.“ - Hvað eru margir í Kór Flens- borgarskóla? „Við eram rúmlega fjöratíu og við eram með tiltölulega jafnt hlutfall milli stráka og stelpna, sem er nokkuð sérstakt, venju- lega era stúlkumar mun fleiri.“ - Hvað eruð þið með á eíhis- skránni fyrir tónleikana í Tor- onto? „Við eram aðallega með íslensk lög, einkum ættjarðarlög. En einnig erum við með nokkur er- lend lög á efnisskránni. Við eram með nokkur lög sem við sungum á kóramóti í Portúgal í fyrra en flest lögin era þó nýlega æfð hjá okk- ur.“ - Er mikið tjör í kórstarfsem- inni hjá ykkur? „Já, það er ákaflega skemmti- legt að syngja í svona kór með svona mörgu ungu fólki. Mikið fé- lagslíf er í kringum kórinn og við hittumst mikið fyrir utan sönglíf- ið. Við höldum mikið saman í skól- anum líka, þetta er orðin hálfgerð „klíka“.“ - Syngið þið mikið opinberlega? „Já, það era alltaf haldnir jóla- tónleikar og oft hausttónleikar líka, einnig höfum við verið fengin til að syngja við alls konar tæki- færi, svo sem við brúðkaup, við kynningar og í afmælum. Við syngjum líka alltaf við útskrift Flensborgarskólans, það er eina skylda okkar gagnvart skólan- um.“ -Styrkir skólinn þessa kór- starfsemi? „Já, skólinn hefur styrkt okkur mjög vel og sýnt okkur mikla góð- vild. Við fóram í söngferðalag í kringum landið og sungum á nokkram stöðum. Skólinn styrkti okkur fyrir þetta ferðalag meðal annars en við verðum einnig að vera dugleg við fjáröflun sjálf.“ -Þið eruð núna að selja happdrættismiða - hvað eruð þið með í vinninga? „Það eru listaverk eftir hafnflrska listamenn. Um er að ræða m.a. vatnslita- og olíu- málverk, teikningar, höggmyndir og fleira. Alls era vinningamir sautján að verðmæti um 600 þús- und krónur." - Hvaða fjáröflun hafði þið ver- iðmeðaðra? „Við geram þetta hefðbundna - ► Þórunn Harðardóttir fæddist í Reykjavík 12. desember 1980. Hún stundar menntaskólanám á náttúrufræði- og málabraut við Flensborgarskóla og mun vænt- anlega Ijúka prófi um næstu ára- mót. Hún starfar við garðyrkju- störf um þessar mundir. Þórunn hefur verið í Kór Flensborgar- skóla í Hafnarfirði í þrjú ár. Hún er ógift og bamlaus. að selja klósettpappír. Svo voram við með söngmaraþon i mars, þá sungum við samfellt í heilan sólar- hring í verslunarmiðstöðinni Firði. Einnig reyndum við að vera með kökusölu en það gaf svo lítið af sér að við hættum því.“ - Eru þið búin að koma ykkur upp kórbúningum ? „Já, við gerðum það áður en við fóram til Portúgal. Stelpumar eru ýmist í himinbláum síðum kjólum og/eða svörtum og bláum kjólum, strákarnir era í svörtum buxum og í bláum eða svörtum skyrtum." - Gengur jafn vel að fá allar raddir í kórinn ? „Nei, það gengur erfiðlegar að fá stráka, einkum tenóra, í kórinn. Núna eram við með sjö tenóra. Flestar stelpurnar syngja sópr- an.“ - Er mikið ævintýri að fara til útlanda með svona kór? „Já, það er rosaleg upplifun ef svo má segja. Maður lærir svo mikið á þessu. Við fengum fimmtán sameiginlegu söngverkin send að utan svo við gætum æft okkur og það hefur gengið mjög vel, en þetta era mjög erfið verk, við heyrðum utan að okkur að sumum hinna kóranna þættu verkin full erfið. Það er alltaf gaman að syngja en það hlýtur að vera ótrúleg tilfinning að syngja með fimm hundrað manns - það fáum við að gera í Toronto." - Hvernig hefur gengið að selja happdrættismiðana? „Það hefur gengið vonum fram- ar, við höfum líka fengið styrki frá skólanum og frá Hafnarfjarðar- bæ, við þurfum því ekki að borga nema lítilræði sjálf. Við fáum fæði og húsnæði á mótinu. Við verðum fyrst tvo daga í Boston og syngjum þar við messu. Þriðja júlí förum við á kóramótið í rútu og stendur mótið í sjö daga. Við verðum þó ekki allan tímann á sama stað, heldur fer allur hópur- inn til Ottawa þar sem haldnir verða tónleikar og hugsanlega gerð upptaka af söngnum. Þess má geta að happdrættismiðar fást á Súfistanum í Hafnarfirði og Reykjavík.“ Tiltölulega jafnt hlutfall í kórnum milli stráka og stelpna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.