Morgunblaðið - 27.06.2000, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000 9
FRÉTTIR
Alfreð Þorsteinsson vísar á bug
gagnrýni á stjornarkiör í Línuneti
Sjálfstæðismenn
afsöluðu sér sætinu
„MEÐ því að gefa ekki kost á sér
til endurkjörs í stjórn Línunets að-
eins hálftíma fyrir aðalfund og
lýsa því jafnframt yflr að minni-
hluti sjálfstæðismanna myndi ekki
tilnefna borgarfulltrúa í stjórnina
var Sjálfstæðisflokkurinn sjálfur
að afsala sér sæti í stjórninni,“
sagði Alfreð Þorsteinsson, stjórn-
arformaður Línunets, um gagnrýni
oddvita sjálfstæðismanna á vinnu-
brögð meirihlutans vegna stjórn-
arkjörs í fyrirtækinu á aðalfundi
þess í síðustu viku.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri segir að eðlilegt hefði
verið af Ingu Jónu að ræða fyrst
við sig eða Alfreð í stað þess að
taka málið svo skyndilega upp á
stjórnarfundi rétt fyrir aðalfund.
Borgarstjórn eigi að standa að fyr-
irtækinu sem ein heild en ekki sem
meirihluti og minnihluti, og óeðli-
legt sé að búa til pólitíska deilu
um skipan stjórnarinnar.
Alfreð Þorsteinsson kveðst vísa
á bug gagnrýni Ingu Jónu Þórðar-
dóttur um að vinnubrögðin við
stjórnarkjörið hafi ráðist af geð-
þótta og hann segir hana hafa
brugðist hlutverki sínu með því að
bera í fjölmiðla fréttir af stjórnar-
fundi í þeim tilgangi að sverta fyr-
irtækið.
„Uppástunga Ingu Jónu Þórðar-
dóttur um Þóri Kjartansson,
Reiðjakkar
bama- og
fulloröinsstærðir
Skyrtur
Bindi
Rúiiukraga-|
peysur
Hvítir hanskar
Reiðbuxur
Reiðstígvél
Háaleitisbraut 68, stmi 568 4240
þekktan mann úr unglingahreyf-
ingu Sjálfstæðisflokksins, kom
ekki til greina af minni hálfu,“ seg-
ir Alfreð ennfremur.
„Það var fyrst og fremst vegna
þess að nýir hluthafar í Línuneti
höfðu óskað eftir stjórnarsæti, þar
á meðal Skýrr, og því varð niður-
staðan sú að Hreinn Jakobsson,
forstjóri Skýrr, var kosinn í lausa
sætið sem sjálfstæðismenn skildu
eftir sig. Það taldi ég góðan kost
og er samsetning stjórnarinnar nú
sú að þar sitja þrír borgarfulltrúar
af sjö stjórnarmönnum. Það er í
fullu samræmi við stefnu Reykja-
víkurlistans varðandi hlutafélagið
Línunet að smátt og smátt komi
fleiri aðilar úr atvinnulífinu að
stjórn fyrirtækisins.“
Ber vott um ófagmannleg
vinnubrögð
„Upphlaup Ingu Jónu á stjórn-
arfundi, sem hófst klukkutíma fyr-
ir aðalfundinn, ber vott um ófag-
mannleg vinnubrögð. Að sjálf-
sögðu átti hún að ræða annaðhvort
við borgarstjóra eða mig sem
stjórnarformann með einhverjum
fyrirvara um fyrirætlun sína að
gefa ekki kost á sér til endurkjörs.
Það gerði hún ekki. Það hefði að
mínu mati verið mjög eðlilegt að
annaðhvort Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson eða Jóna Gróa Sigurð-
ardóttir, borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins, kæmu inn í
stjórnina í hennar stað þar sem
bæði sitja í stjórn Orkuveitu
Reykjavíkur, sem er langstærsti
hluthaflnn í Línuneti.
Jafnframt verð ég að segja að
það ber vott um þekkingarskort
Ingu Jónu á hlutafélagalögunum
að vita ekki að það er í verkahring
fráfarandi stjórnar að sjá til þess
að tillögur um nýja stjórn komi
fram á aðalfundi."
Alfreð segir einnig að afskipti
Ingu Jónu Þórðardóttur af Línu-
neti séu dapurleg. „Hún spáði illa
fyrir fyrirtækinu í byrjun og taldi
að með stofnun þess væri verið að
tefla í tvísýnu með fé skattborgar-
anna en Orkuveita Reykjavíkur
lagði 214 milljónir til fyrirtækisins
í upphafi. I dag er Línanet metin á
tvo til þrjá milljarða króna og á
eftir að verða verðmætari á næstu
misserum. Sem stjórnarmaður
brást hún einnig hlutverki sínu
þegar hún bar fréttir af stjórnar-
fundi í fjölmiðla í þeim tilgangi að
sverta fyrirtækið. Eg vísa á bug
fullyrðingum hennar um geðþótta-
vinnubrögð af hálfu meirihlutans.
Þvert á móti hafa meðstjórnendur
hennar í stjórn Línunets sýnt
ótrúlegt langlundargeð í þágu lýð-
ræðisins.
Undir stjórn þeirra borgarfull-
trúa sem kjörnir voru í stjórn
Línunets er fyrirtækið orðið mjög
öflugt á fjarskiptamarkaðnum og
fráleit krafa af hennar hálfu að
krefjast þess að engir borgarfull-
trúar sitji í stjórninni en þekking
borgarfulltrúanna á störfum fyrir-
tækisins er einmitt mjög dýrmæt
fyrir Línunet. Að öðru leyti sé ég
ekki ástæðu til að svara dylgjum
Ingu Jónu Þórðardóttur, málflutn-
ingur hennar dæmir sig sjálfur.“
Gallabuxur
Kvartbuxur — Stuttbuxur
Úrval af bolum
Rita
SKUVERSLU
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030.
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18,
lau. 10-15.
Silki - Hör
Buxiir, kjólar og jakkar frá stærð 34.
7<zM>
BÍ I® I® \^Neíst við Dunhaga Opiðvirka daga frá kl.10-18,
i x sími 562 2230 laugardaga kl. 10-14.
' .... J ..iii!.u.i "!,ui.i jiy.. i.|j.u..ii ni |j iiiii. ii.iii. .i injii ui 11.1 rii j|aiu
Urval af stretsbuxum
og silkibolum
Gott verð
TÍSKUVAL
Bankastræti 14, sími 552 1555
Glæsilegt úrval af
brjóstahöldurum
Yfir 100 tegundir
Póstsendum
Laugavegi 4, sími 551 4473
BORÐSKREYTINGAR
Stjörnuspá á Netinu
% mbl.is
_ALL.TAf= eiTTHVaO HÝTT
Súpa og salatbar
aðeins kr. 890.-
Hollt og huggulegt
Hlaðborð alla
virkadaga
Aðeins
kr. 1.190.-
/ hádeginu!
ASKUR
--- ilNCE 1 t 6 6 -
SUÐURLANDSBRAUT 4
; Náttúrulegarsny r Hvöl ur í lyf og heilsu
i \ FEGURÐ FRÁ N NATURKOSMETIK á T T Ú RUNNAR HENDI