Morgunblaðið - 27.06.2000, Side 10

Morgunblaðið - 27.06.2000, Side 10
10 ÞRIÐ JUDAGUR 27. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Embætti forstöðumanns Rannsóknarstofu í kvennafræðum Reykj avíkurborg greiðir helming kostnaðar PÁLL Skúlason, rektor Háskóla ís- lands, og Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir, borgarstjóri Reykjavíkur, undir- rituðu í gær samstarfssamning sem felur í sér að Reykjavíkurborg greið- ir helming kostnaðar við embætti forstöðumanns Rannsóknarstofu í kvennafræðum við Háskóla íslands til næstu þriggja ára. Alls nemur kostnaður borgarsjóðs vegna samn- ingsins 5,4 milljónum króna. Starfið verður auglýst á næstu dögum. I yfirlýsingu frá Háskóla Island og Reykjavíkurborg segir að for- stöðumanni sé m.a. ætlað greiða fyrir rannsóknum í kvennafræðum í þágu Reykjavíkurborgar en rann- sóknir á sviði jafnréttismála séu nauðsynlegar svo hægt sé að meta stöðu þeirra hjá borginni. Stórauka þurfi fræðilegar upplýsingar um stöðu kynjanna svo hægt verði að taka tillit til þess við alla stefnumót- un og ákvarðanatöku í framtíðinni. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði við undin-itun samningsins að rannsóknir á sviði kvennafræða væru mjög mikilvægar og að hún vænti góðs af samstarfinu við HÍ en samvinna borgarinnar og háskól- ans hefur verið að aukast upp á síðkastið. Morgunblaðið/Sverrir Páll Skúlason, rektor Háskóla Islands, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, undirrituðu í gær samstarfssamning. Við hlið þeirra silja Kristín Blöndal, formaður jafnréttisnefndar Reykjavíkurborgar (t.v.), og Rannveig Traustadóttir, dósent í Félagsvísindadeild HÍ (t.h.). Sigurður Sigurðsson t.v. og veiðifélagi hans með fyrstu laxana úr Laugardalsá við Djúp. Hörkubyrjun í Leirvogsá EKKI verður annað sagt en að veiði hafi farið vel af stað í Leirvogsá er hún var opnuð á sunnudaginn. Alls veiddust 12 laxar fyrsta daginn, sjö fyrir hádegi og fimm til viðbótar á seinni vaktinni. Að sögn Bergs Steingrímssonar hjá SVFR vakti það athygli að laxarnir á morgun- vaktinni voru allir fremur smáir, eða á bilinu 3 til 4 pund. Laxarnir veidd- ust við brúna og í Snoppunni. Ekki sást lax ofar í ánni en í Birgishyl. Glaðnar yfir í Kjósinni Veiði er heldur að hressast í Laxá í Kjós þessa dagana, þannig veiddust sex laxar í beit í Kvíslafossi í gær- morgun og dagsveiðin síðustu daga hefur verið 6 til 10 laxar, sem er mik- il bót frá því sem var í byrjun. Talsvert er að ganga af fiski og lík- legt að meira hefði veiðst ef veður hefði verið hagstæðara, en sól og blíða hefur verið á suðvesturhominu síðustu daga, sem kunnugt er. Dauft yfir Laxá í Dölum og Álftá Laxá í Dölum og Álftá á Mýrum voru opnaðar á sunnudagsmorgun og fengu menn ekki harðsprerrur af fiskidrætti. Gylfi Ingason kokkur við Laxá sagði sex laxa á landi eftir einn og hálfan dag og voru þeir frá 4 og upp í 17 pund. „Nei, menn sjá ekki mikinn lax og þessir sem veiddust voru dreifðir,“ bætti Gylfi við. í Álftá veiddist einn lax, 6 punda, við Hrafnkelsstaðabrú, en menn sáu nokkra laxa á 3-4 stöðum. „Áin er vatnslítil og glær og erfitt að fá lax- inn til að taka,“ sagði Dagur Garð- arsson, einn leigutaka árinnar, sem hóf veiðiskap á sunnudagsmorgun. Úr laxi í silung Pétur Pétursson leigutaki Vatns- dalsár sagði í gærdag að enn væri dræm veiði í ánni og einhvers staðar milli 15 og 20 fiskar veiddir, allt að 18 punda fiskar. „Menn finna sér eitt og annað að dunda, þannig er mikill sil- ungur í ánni og margir hafa gaman af því að veiða hann. Einn útlending- urinn fór t.d. með litla netta stöng og þurrflugu efst í Hólakvörnina og veiddi þar á skömmum tíma fjórar stórar bleikjur, tvo sjóbirtinga og tvo staðbundna urriða og þótti það ekki leiðinlegt,“ sagði Pétur. Fjórir úr Fljótaá í gærdag voru komnir fjórir laxar á land úr Fljótaá, allir á bilinu 10 til 14 pund. Menn sjá fáa laxa í ánni enn sem komið er. Silungsveiði upp og ofan Mokveiði hefur verið á silunga- svæði Vatnsdalsár og hefur heyrst að nærri 1.200 silungar séu komnir á land og er það ólíkindatala miðað við hve skammt er liðið á veiðitímann, en Pétur Pétursson leigutaki laxasvæð- isins staðfesti töluna. Á Amarvatnsheiði hefur verið mjög góð veiði og urriði sem sagður var 7 punda í Morgunblaðinu fyrir helgi var víst 9 pund og leiðréttist það hér með. Snorri veiðivörður sagði hins vegar rólegt í Reykja- vatni, þar hefðu t.d. verið átta karlar í tvo daga með sextíu bleikjur.„Það eru fáir fiskar á marga menn,“ sagði Snorri. Mývargur er að ná sér upp á Heiðinni og óhætt að mæla með að netin gleymist ekki heima. Útvarpsráð um viðbrögð við jarðskjálftanum Hnökrar voru á útsendingu Sjónvarpsins Á FUNDI útvarpsráðs í gær var fjallað um viðbrögð Ríkisút- varpsins og Sjónvarpsins við jarðskjálftanum hinn 17. júní sl. Að sögn Þórunnar Gestsdóttur, ritara ráðsins, sem stjórnaði fundinum, voru lagðar fram greinargerðir frá stofnunum, þar sem farið var yfir viðbrögðin. Sagði hún að fundarmenn hefðu verið sammála um að hnökrar hefðu verið á útsendingum og að gera hefði mátt betur. „Það hefði verið æskilegra að senda út fréttir klukkan 19 í stað 20.45 en maður er alltaf vitur eft- irá. Að öðru leyti stóð starfsfólk útvarps og sjónvarps vel að mál- um,“ sagði hún. „Við erum reynslunni ríkari eins og kom í ljós þegar seinni skjálftinn reið yfir.“ Koma upplýsingnm oftar að í greinargerð Bjarna Guð- mundssonar, framkvæmdastjóra Sjónvarpsins, segir að draga megi margvíslegan lærdóm af viðbrögðunum. Meðal annars er tekið fram að við þær aðstæður sem sköpuðust 17. júní hafi verið rangt að senda ekki líka út frétt- ir kl. 19 á venjulegum fréttatíma Sjónvarpsins og að á meðan á út- sendingu stóð hefði mun oftar þurft að koma upplýsingum til áhorfenda í formi skjátexta, töl- uðum orðum og fréttamyndum eftir því sem þær bárust. Einnig hefði mun oftar þurft að benda áhorfendum á Textavarpið og á útsendingar útvarpsins á FM og langbylgju. „Eftir á að hyggja hefði þurft að gera þetta mun oftar," segir í greinargerðinni. Bent er á að endurgera þurfi verklagsreglur sem unnið er eftir og kynna þær vel starfsmönnum. Mistök að fella niður fréttir „Ég tel Ríkisútvarpið og Sjónvarpið hafa staðið sig býsna vel en við gerðum þau mistök að senda ekki út fréttir klukkan 19 þó að það hafi verið löngu auglýst að fréttir yrðu klukkan 20.45,“ sagði Bogi Ágústsson, fréttastjóri Sjónvarps. „Við vorum búin að vera með marga aukafréttatíma fyrr um daginn og síðast klukkan 18.30 en við hefðum átt að koma inn í það minnsta með skjátexta. Að öðru leyti gekk fumlaust og fljótt fyrir sig að afla frétta, eins og nokkur kostur var á þessum degi þegar álagið var mikið á síma- kerfin. Ég skil að fólk ætlist til mikils af Ríkisútvarpinu og það er eðlilegt að gagnrýna ef ekki er brugðist við á fullkominn hátt en ég tel að þessi gagnrýni sé að sumu leyti full harkaleg." Þingi Sambands ungra framsóknarmanna lauk um helgina á Hólum í Hjaltadal Andstæðar fylking- ar í Evrópumálum EINAR Skúlason var endurkjörinn formaður Sambands ungra fram- sóknarmanna á sambandsþingi sem lauk á laugardagskvöld á Hólum í Hjaltadal. Hæst bar á þinginu um- ræður um utanríkismál en að sögn Einars urðu þar töluverð átök meðal andstæðra fylkinga. Fyrir þingið hafði utanríkismála- hópur SUF útbúið tillögu að ályktun þar sem bókstaflega var mælt með að aðildarviðræður við ESB byrjuðu strax en ekki náðist eining um þá til- lögu á þinginu. í umræðum um málið skiptust ungir framsóknarmenn í þrjár ólíkar fylkingar og um hríð stefndi í að kosið yrði á milli þriggja tillagna að ályktun um Evrópumál. Að lokum var þó sæst á þingsályktun sem Einar viðurkennir að sé nokkurs konar málamiðlun á milli mjög ólíkra skoðana. í þeirri ályktun sem SUF sendi á endanum frá sér kemur íram að Sam- bandsþing ungra framsóknarmanna skorar á ríkisstjóm Islands að hún hefji sem fyrst vinnu við að skilgreina markmið Islands ef til aðildai’við- ræðna við ESB kemur. Segir í álykt- uninni að mikilvægt sé að íslendingar skilgreini stöðu sína þannig að við verðum undir það búin að taka ákvörðun um hvort sótt verður um eður ei. Aðspurður sagði Einar að ályktun- in væri í raun mjög sterk að því leyti að þarna væru ungir framsóknar- menn að skora á utanríkisráðherra að halda áfram þeirri vinnu sem hafist hefði í vetur. Nú vilji SUF að farið verði á næsta stig málsins, þ.e. að staða íslands gagnvart ESB verði skoðuð, beinlínis með aðild í huga. Þá mótmælti Einar þeim orðum Össurar Skarphéðinssonar, sem hann viðhafði í DV í gær, að ungir framsóknarmenn væru að taka stefnu Samfylkingar- innar hráa í þessum efnum. Sagðist Einar ekki muna betur en að Sam- fylkingin hefði á fundi sínum í maí fellt tillögu um að skilgreina samn- ingsmarkmið, en það væri einmitt slík g| tillaga sem SUF væri að samþykkja H núna. Aðspurður hvort SUF væri með þessari ályktun að reyna að koma Framsóknarflokknum í fararbrodd í Evrópusambandsmálunum sagði Einar að það hefði komið í Ijós um helgina að í flokknum væri mjög sterk undiralda með Evrópusambandsað- ild, sérstaklega meðal yngri kjmslóð- ar ílokksins, og sagðist eiga von á því að flokkurinn yrði fýrirferðarmikill í þessain umræðu á næstu mánuðum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.