Morgunblaðið - 27.06.2000, Page 11

Morgunblaðið - 27.06.2000, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000 11 70 ára afmæli Skógrækt- arfélags Islands SKÓGRÆKTARFÉLAG íslands, landsamband skógræktarfélaganna, er 70 ára í dag. Félagið var stofnað á Alþingishátíðinni á Þingvöllum hinn 27. júní 1930. Félögin eru nú 60 tals- ins með yfir 7 þúsund félagsmenn. Meginmarkmið félagsins hefur frá upphafi verið að endurheimta gróð- urlendi, rækta og klæða landið skógi. „Þegar félagið var stofnað voru margir þeirrar skoðunar að erfitt eða jafnvel óframkvæmanlegt væri að rækta skóg á íslandi," segir m.a. í frétt frá félaginu og segir einnig að árangurinn tali sínu máli; í dag séu um 200 svæði, samtals um 20 þúsund ha í umsjón skógræktarfélaganna. „Skógræktarfélag íslands hefur með störfum sínum átt mikinn þátt í að móta viðhorf almennings til skóg- ræktar á íslandi. Félagið hefur lagt mikla áherslu á fræðslu og upplýs- ingamiðlun til almennings, m.a. með öflugu útgáfustarfi, námskeiðahaldi, opnum fræðslufundum og skipulögð- um gönguferðum um skóglendi. Þá hefur félagið notið vaxandi skiinings og stuðnings fjölmarga að- ila, sem hefur gefið félaginu aukinn styrk til að sinna umfangsmiklum verkefnum," segir einnig í fréttinni. Skógræktai’félag Islands vill koma á þessum tímamótum fram- færi þakklæti til þeirra fjölmörgu einstaklinga og fyrirtækja sem lagt hafa málstað skógræktar Iið með ómældum tíma, vinnu og fjármunum og í kvöld verður gestum félagsins boðið til dagskrár á Þingvöllum. ---------------- Hæstiréttur hafnar beiðni um endur- upptöku HÆSTIRÉTTUR hefur hafnað því að taka upp að nýju mál ákæruvalds- ins á hendur Erlu Bolladóttur sem dæmd var í þriggja ára fangelsi fyrir rangar sakargiftir í Geirfinnsmálinu og flem brot. Hæstiréttur bendir á í úrskurði sínum að engin ný gögn hafi verið lögð fram sem styðji beiðni Erlu um endurupptöku málsins. Erla hefur ekki neitað því að hafa gefið skýrslur hjá lögreglu og fyrir dómi sem leiddu til þess að hún var sakfelld. Hún segir á hinn bóginn að lög- regla og rannsóknardómari hefðu þrýst á sig á að gangast við tilgátum um að þeir sem ráku veitingahúsið Klúbbinn hefðu verið viðriðnir hvarf Geirfinns Einarssonar. -----M-«------- Norðurlanda- mót í brids hefst í dag KEPPNI á Norðurlandamótinu í brids hefst á Hótel Örk í Hveragerði í dag. Þar keppa lið frá Norðurlönd- unum sex í opnum flokki og kvenna- flokki. Tvær umferðir verða spilaðar í dag og hefst fyrsta umferð klukkan 10 og hin klukkan 15. Islendingar og Færeyingar eigast við í fyrstu um- ferð í báðum flokkum en aðrir leikir eru milli Svíþjóðar og Danmerkui’ og Finnlands og Noregs. Norðmenn eru núverandi Norður- landameistarar í opnum flokki en Svíar í kvennaflokki. Morgunblaðið/Sverrir Lagadeildin fær skjávarpa RAGNHILDUR Arnljótsdóttir, formaður stjórnar Lögfræðinga- félags Islands, Jónatan Þór- mundsson, forseti lagadeildar Há- skóla íslands, og Halldór Jónatansson, formaður stjórnar Hollvinafélags lagadcildar, við af- hendingu skjávarpa sem félögin færðu lagadeildinni að gjöf. I frétt frá félögunum segir að með gjöfinni vilji félögin sýna í verki stuðning við það fræðslu- starf sem unnið er innan laga- deildar og leggja sitt af mörkum til þess að kennarar við deihlina geti á hverjum tíma nýtt nýjustu upplýsingatækni við störf sín. larus Rúmgóður eðalvagn á hreint ótrúlegu verði! KIA Clarus er einstaklega rúmgóður bíll, hlaðinn þægindum eðalvagnsins og öryggi fjölskyldubílsins. KIA Clarus er knúinn sérlega hjóðlátri en kraftmikilli 2000 vél með rafeindastýrðri fjöl- innsprautun. Snerpa og mýkt einkenna aksturseiginleika KIA Clarus og eini aukabúnaðurinn er vindskeið og dráttarbeisli, allt annað er staðalbúnaður! Kíktu við hjá okkur í KIA ÍSLANDI að Flatahrauni 31, því sjón ersögu ríkari og reynsluakstur KIA Clarus óviðjafnanleg reynsla. Staðalbúnaður: 2 loftpúðar, hraðanæmt vökvastýri, veltistýri,, ABS bremsur, diskabremsur, á öllum hjólum, TCS spólvörn, útvarp og geislaspilari, 6 hátalarar, samlitir stuðarar, samlitir speglar, rafstillanlegir útispeglar, þokuljós að framan og aftan, litað gler, fjölstillanleg framsæti, niðurfellanlegt aftursæti 60/40, fjarstýrð samlæsing, stafræn klukka, hástætt bremsuljós, hreyfiltengd þjófavöm, bamalæsingar, bílbeltastrekkjarar, hæöarstillanleg öryggisbelti, rafmagn írúðum, 14" álfelgur. • Clarus Sedan GLX 2000cc vél, 133 hestöfl, rafeindastýrð efi fjölinnsprautun. • Clarus Sedan OLX sjálfskiptur 2000cc vél, 133 hestöfl, 4 þrepa sjálfskipting, rafeindastýrð efi fjölinnsprautun. • Clarus Wagon GLX sjálfskiptur 2000cc vél, 133 hestöfl, 4 þrepa sjálfskipting, rafeindastýrö efi fjölinnsprautun. FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI SÍMI 555 6025 ! i I Öryggi og þægindi í fyrirrúmi KIA Clarus er nút'mabíll þar sem öll hönnun lýturað fyllsta öryggiog hámarks þægindum þeirra sem aka um iþessari lúxuskerru KIA flotans. KIA ÍSLAND Verð nú aðeins 1.590.000 Clarus Sedan GLX beínskiptur www.kia.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.