Morgunblaðið - 27.06.2000, Side 14

Morgunblaðið - 27.06.2000, Side 14
14 ÞRIÐ JUDAGUR 27. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Vistvernd í verki í Hafnarfírði Vistvænt heimilis- hald, bætt sambúð manns og náttúru HLUTI af daglegu lífi þeirra Önnu Borgar Harðardóttur og Jóns Gunnars Grjetarsson- ar er m.a. að flokka sorp sitt en þau eru þátttakendur í verkefninu Vistvernd í verki eða GAP (Global Action Plan for the Earth). Þau segja þetta lífsstfl sem þau hafa nú tileinkað sér. Morgunblaðið heimsótti hjónin og fékk að fylgjast með því hvernig ein fjölskylda getur lagt sitt af mörkum til að bæta sambúð manns og náttúru. Hvað er GAP? GAP stendur fyrir Global Action Plan, en íslenskt vinnuheiti fyi’ir GAP er Vist- vernd í verki. Verkefnið er al- þjóðlegt, en Landvemd hefur tekið það upp á arma sína og fjármagnað. Markmið verkefnisins er að efla vitund og þekkingu fjöl- skyldunnar og einstaklinga á því hvernig megi í daglegu lífl gera umgengni vistvænni og stuðla að betri nýtingu nátt- úruauðlinda, að því er kemur fram á heimasíðu Landvernd- ar. Náttúran er uppspretta lífsgæða. Maðurinn lifir í og af náttúrunni. Til að stuðla að því að sambýli hans við nátt- úruna gangi vel þarf bæði að sýna tillitssemi í umgengni við hana og fara vel með auð- lindirnar. GAP er áætlun fyrir fjöl- skyldur og einstaklinga sem vilja taka upp vistvænt heim- ilishald og minnka álagið á náttúruna og umhverfið. Með ýmsum einföldum breyting- um á daglegu lífi má gera lífs- stíl vistvænni án þess að draga úr lífsgæðum. Vistvemd í verki byggist á hópastarfi. Fulltrúar fimm til átta fjölskyldna koma reglu- lega saman nokkram sinnum yfir tiltekið tímabil. A fundun- um er heimilishaldið rætt, og leiðir til úrbóta fundnar. Hver fjölskylda fær handbók sem inniheldur góð ráð og leið- beiningar. Orkan spöruð eftir fremsta megni Anna Borg og Jón Gunnar vom meðlimir í hópi sem starfaði í Hafnarfirði frá því í febrúar. Hópurinn lauk störf- Morgunblaðið/Þorkell Hafnarfjarðarbær gaf þátttakendum verkefnisins safnkassa. I hann er lífrænn úrgangur settur og moltaður. Hér má sjá Jón Gunnar og Onnu Borg henda matarleifum í kassann. firði safnkassa þangað seni lífrænu afgangarnir fara. I kassanum em þeir moldaðir. Moldin er svo notuð í blóma- beð þau sem prýða garðinn. Krakkarnir taka virkan þátt í lífsstílnum Börn þehra Önnu Borgar og Jóns Grétars, Andri, Sandra og Tinna, taka virkan þátt í þeim umhverfisvæna lífsstfl sem þau hafa tileinkað sér. Umbúðir utan af nestinu sem þau fara með í skólann, fernur og annað slíkt, koma þau með heim þar sem þær fá rétta meðhöndlun. Fyrir þeim hefur verið biýnt gildi vistvæns lifnaðar- háttar. Þau eru því meðvituð um þau áhrif sem einstakling- urinn getur haft á umhverfið. Allan pappír nýta þau eftir fremsta megni. Gjarnan teikna þau og lita á umslög, en þau era óendurvinnanleg, í stað þess að henda þeim ein- faldlega beint í tunnuna. Einnig nýta þau pappakass- ann sem morgunverðarkorn er selt í. Hann er klipptur nið- ur og notaður til að teikna á eða föndra með. Lífsstfll til frambúðar Þrátt fyiir að þátttöku Önnu Borgar, Jóns Gunnars, Andra, Söndru og Tinnu í verkefninu sé formlega lokið munu þau ekki leggja niður þá fyrirmyndarlífshætti sem þau eru komin upp á lagið með. Einhverjir kynnu að segja að þeir hefðu ekki tíma til að stunda vistvænt líferni. Anna Borg og Jón Gunnar telja það þó ekki gilda afsökun. Um leið og fjölskyldan er komin upp á lagið með að taka tillit til nátt- úrunnar er þetta orðinn hluti af hinu daglega lífi sem minna fer fyrir en ætla mætti. Morgunblaðið/Þorkell Jón Gunnar, Anna Borg og Tinna í garðinum. Andri og Sandra voru fjarverandi þegar myndin var tekin. Morgunblaðið/porkell Krakkarnir taka virkan þátt í að bæta sambúð manns og náttúru. Hér má sjá Tinnu skola fernur. um í maíbyrjun. Fjölskyldan hafði haft nokkra reynslu af vistvænu heimilishaldi áður en þau gerðust þátttakendur í Vist- vernd í verki. Er þau bjuggu erlendis höfðu þau þegar komist upp á lagið með að flokka hluta sorpsins, gler og pappír. Verkefnið vistvernd í verki er fjölþætt. Auk þess að flokka sorp var sjónum beint að orkusparnaði, samgöngu- háttum, innkaupum og vatns- notkun. Anna Borg sagði það skemmtilega viðbót að huga að þessum þáttum sem Is- lendingar era gjarnan ómeð- vitaðir um. Þau gæta þess nú ávallt að láta vatn ekki renna að óþörfu og slökkva á ljósum og öðrum rafmagnstækjum sé þeirra ekki þörf. Einnig nota þau bflinn í hófi og hjóla og ganga mikið. Innkaupaferðir fjölskyld- unnar tóku nokkram breyt- ingum við þátttöku þeirra í Vistvernd í verki. Til að spara umbúðir kaupa þau nú mat- væli í sem stærstum pakkn- ingum og mestu magni. Þau taka vörur í vistvænum Morgunblaðið/Porkell Hér sést inn í cldhússkáp þar scm fernurnar eru geymdar eftir skolun. Þegar fernurnar eru þurrar eru þær brotnar saman og fer þá lítið fyrir þeim. umbúðum fram yfir aðrar. Taupoka hafa þau með í versl- unarleiðangurinn í stað þess að fá plastpoka undir vörarn- ar. Plastpoka sem notaðir eru undir ávexti nýta þau oft og koma því með gömlu pokana með sér að heiman. Einnig leggja þau mikið upp úr því að velja íslenskt. Því nær sem varan er heimabyggð þeim mun minni orka fer í að flytja hana. Vart þarf að taka fram að þau kaupa aldrei einnota vör- ur, svo sem pappadiska og glös. Flokkun sorps Mesta vinnan fer í að flokka sorpið en það gera þau sam- viskusamlega. Gleri, áli, kertavaxi, pappír, femum og lífrænum úrgangi er komið fyrir á viðeigandi stöðum þar sem úrgangurinn er endur- unninn eða honum eytt á rétt- an hátt. Eins og fram hefur komið hafði fjölskyldan þegar tekið til við að flokka sorp í ein- hverjum mæli áður en hún tók þátt í verkefninu. Þau höfðu hins vegar ekki flokkað fernur sérstaklega frá öðram úr- gangi né heldur lífrænan úr- gang. Að sögn Jóns Gunnars minnkaði rusl sem kom frá þeim um helming eftir að þau tóku að skilja fernur frá öðr- um úrgangi. Svo þegar lífræni úrgangurinn var tekinn burt minnkaði það magn rusls sem eftir var enn um helming. Eft- ir eina viku í febrúar vó sorpið sem kom frá fjölskyldunni 7 kg. Viku í maí vó það hins veg- ar 3,6 kg eftir flokkun. Allir meðlimir fjölskyld- unnar taka þátt í að skola fernur eftir notkun. Enginn lætur sitt eftir liggja. Eftir að þær þorna era þær brotnai' saman. Taka fernurnar því mjög lítið pláss uns haldið er í næstu ferð í endurvinnsluna en þangað þarf að fara reglu- lega. Lífrænn úrgangur fer hins vegar ekki Iengra en út í garð. Hafnarfjarðarbær gaf þátt- takendum hópsins í Hafnar- Hafnarfjörður Varalögreglustjóri telur að Gullinbrú, Vflmrvegur og Strandvegur beri hærri hámarkshraða Dómstólar hafa hafnað ökuleyfissviptingu Grafarvogur INGIMUNDUR Einarsson, varalögreglustjóri í Reykja- vík, telur að Gullinbrú, Víkur- vegur og Strandvegur í Graf- arvogi beri hugsanlega hæni hámarkshraða en þar er nú í gildi., Að mínu viti bera þess- ar götur hærri hámarkshraða en SO km/klst og gætu þess vegna borið 60 km/klst hámarkshraða," segir hann. Lögreglan hefur hvatt Reykjavíkurborg til að huga að samræmi í reglum um hámarkshraða í borginni í framhaldi af niðurstöðum dómstóla í málum manna sem ákærðir hafa verið l'yrir of hraðan akstur. Dómarar hafa þar hafnað kröfum lögreglu um ökuleyfis- sviptingu fyrir 94-96 km/klst akstur á Víkurvegi, Strand- vegi og Gullinbrú. Ingimund- ur segir nauðsynlegt að taka mið af þessum dómum; fram hjá þeim verði ekki litið. Sektir dæmdar en sviptingu hafnað „Dómstólar hafa ekki verið okkur sammála um að rétt væri að svipta ökumenn öku- leyfi, sem gerst hafa brotlegir á þessum stöðum. Við eram í klemmu út af þessu,“ sagði hann. Ingimundur nefndi í sam- tali við blaðamann dæmi um tvo dóma frá síðasta ári þar sem menn vora ákærðir fyrir 94-96 km/klst akstur á Víkur- vegi og Gullinbrú. Fyrir dómi var krafist refsingar og öku- leyfissviptingar en dómarar dæmdu 20-50 þús. kr. sektir en sýknuðu ökumenn af kröfu um eins til tveggja mánaða ökuleyfissviptingu. Ingimundur sagði að dóm- ari rökstyddi niðurstöðu sína með tilvísun í góð akstursskil- yrði og að brot hefði verið framið utan íbúðabyggðar á þeim tíma sólarhrings þegar umferð var í lágmarki. Því hafi ekki verið um svo vítaverðan akstur að ræða að hann eigi að leiða til ökuleyfissviptingar lögum samkvæmt. Þessa nið- urstöðu hafi Hæstiréttur stað- fest í öðra tilvikinu. „í framhaldi af þessu gerð- um við borginni viðvart að við teldum rétt að umferðarnefnd borgarinnar tæki til athugun- ar og hugleiddi hámarkshraða á ákveðnum götum, sérstak- lega Gullinbrú, Víkurvegi og Strandvegi," sagði hann og sagði að ekki hefðu verið lagð- ar fram ákveðnar tillögur af hálfu lögreglu, einungis til- mæli um að málið yrði tekið til skoðunar í umferðarnefnd. En telur lögreglan þá rétt að borgin hækki hámarks- hraða á þessum götum? „Hugsanlegt væri að hækka hámarkshraðann þarna upp í 60 km/klst,“ sagði Ingimund- ui'. „Þetta era allt saman vegir sem gefa ökumönnum tilefni til að ætla að þarna sé há- markshraðinn hærri en 50 km/klst. Það er allt í umhverf- inu sem gefur mönnum vís- bendingu um það.“ Ingimundur sagði enn fremur að nú stæði yfir undir- búningur að því að samræma reglur um hámarkshraða á Reykjavíkursvæðinu öllu. „Þetta er liður í því sem við vildum koma á framfæri," sagði hann.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.