Morgunblaðið - 27.06.2000, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Þorvalds-
dalsskokk
HIÐ árlega óbyggðaskokk eftir endi-
löngum Þorvaldsdal í Eyjafirði fer
fram næsta laugardag, 1. júlí, og hefst
kl. 10 við Fomhaga í Hörgárdal, sem
er um 60 m yfir sjávarmáli. Enda-
markið er við Arskógsskóla, sem
einnig er 60 metra yfír sjávarmáli.
Þorvaldsdalsskokkið er ætlað öll-
um, bæði konum og körlum, sem telja
sig komast þessa leið hlaupandi,
skokkandi eða gangandi. Tímatöku
verður hætt eftir 6 tíma. Keppt er í
aldursflokkum 16 til 39 ára, 40 til 49
ára, 50 til 59 ára, 60 til 69 ára og 70 ára
og eldri. Þrír fyrstu í hverjum aldurs-
flokki fá sérstaka verðlaunapeninga
auk þess sem allir fá pening sem kom-
ast í mark á tilskildum tíma.
Skráning er við mætingu, en mæta
á við Arskógsskóla kl. 9 um morgun
þar sem menn geta skilið ökutæki eft-
ir, en þátttakendum er ekið frá Ár-
skógsskóla að rásmarki við Fom-
haga. Þátttökugjald er 1000 krónur.
Þetta er í sjöunda sinn sem efnt er
til þessa skokks en sá sem hraðast
hefur hlaupið var 2 tíma og 7 mínútur
á leiðinni. Elstu þátttakendur hafa
verið 78 ára gamlir.
Vegalengdin er um 26 kílómetrar.
Allbratt er fyrsta spölinn, en eftir um
5 kílómetra leið fer að halla undan
fæti með þeim frávikum sem lands-
lagið býður upp á. Farið er yfir móa,
mýrlendi og norðlenskt hraun og
mega menn búast við að blotna í fæt-
ur við að fara yfír mýrar og læki.
Fjórar drykkjarstöðvar eru á leiðinni
og þar verða björgunarsveitarmenn
til taks og einnig ekur jeppi mönnum
yfir Hrafnagilsá, einu verulegu þver-
ána á hlaupaleiðinni.
Fleiri skrá sig í vélfræðinám í YMA en 1 fyrra
Nýtt átak hleypir lífí í námið
NYLOKIÐ er sérstöku átaki til að
auka nýskráningar nemenda í vél-
fræðinám í Vélskóla íslands í
Reykjavík og í Verkmenntaskólann
á Ákureyri. Verkefnið var styrkt af
aðilum úr atvinnulífinu og var
áhersla lögð á að kynna námið fyrir
væntanlegum nemendum.
Að sögn Hjalta Jóns Sveinssonar,
skólameistara VMA, var í raun
helmingsaukning í umsóknum á
fyrsta ári í vélfræði og var hann
mjög ánægður með þá niðurstöðu.
Ekki var sömu sögu að segja hjá
skólastjóra Vélskóla íslands, Björg-
vini Jóhannssyni, en hann taldi sig
ekki sjá neinn marktækan mun frá
fyrra ári.
Hjalti Jón sagðist afar ánægður
með þessi jákvæðu viðbrögð sem
hefðu skilað sér í 30 umsækjendum,
en 14 sóttu um á fyrsta árinu í
fyrra.
„Þetta fór reyndar heldur seinna
af stað en við hefðum kosið. Við
vorum búnir að standa fyrir kynn-
ingu fyrir 10. bekkinga á svæðinu
áður en þetta kom til. Af þeim
sökum gátum við ekki komið
bæklingnum til þeirra. Þrátt fyrir
það var þessi fjölgun í vélstjórninni
og þetta átak hleypti lífi í námið að
nýju,“ sagði Hjalti Jón. Hann
nefndi einnig að þeir sem hefðu
sótt um væru greinilega sterkir
námsmenn og væru að útskrifast
með góðar einkunnir úr grunn-
skóla.
„Við erum mjög ánægðir með
þetta átak og erum áfjáðir í að
samskonar átak verði gert í iðnnámi
í heild. Að þarna sameinist skólarn-
ir, stjórnvöld og atvinnuvegir í að
gera verknám sýnilegt og aðlaðandi
fyrir ungt fólk,“ sagði Hjalti Jón.
„Ég varð ekki var við neina upp-
sveiflu í umsóknum, hvort sem það
skilar sér seinna," sagði Björgvin
Jóhannsson, skólastjóri Vélskóla Is-
lands. Hann nefndi sem hugsanleg-
ar ástæður, að oft kæmu inn í þetta
nám fólk með grunn í járniðn. Þetta
fólk hefði úr svo mörgum atvinnu-
tækifærum að velja núna að það
tímdi ekki að fara í nám, að sögn
Björgvins. Hann neitaði því ekki að
það urðu honum vonbrigði að engin
aukning væri í umsóknum.
Aðalstyrktaraðilar átaksins voru
LÍÚ og Vélstjórafélag íslands, en
einnig komu að verkefninu Sam-
band íslenskra kaupskipaútgerða,
Sparisjóður vélstjóra og Lands-
virkjun.
Morgunblaðið/Kristján
Dekraðu við
þig og þínai
Ástareldurinn
...kveikir í þér!
Slökunarbaðolían
...ómissandi I
nuddpottinn!
heilsuhúsið
Skólavóróustfe, Krtnglunni. Smdratofgi og Skipagótu 6, Akureyri
Glæsihesturinn SESAR frá Vogum (F: Stígur frá
Kjartansstöðum, M: Gæfa frá Gröf) verður til
afnota í hólfi að Möðruvöllum í Hörgárdal að
afloknu Landsmóti hestamanna. Sesar hefur
hlotið f. hæfileika 8.33, f. byggingu 8.20 og í
aðaleinkunn 8.28. Gjald pr. hryssu kr. 20.000,-
Upplýsingar og pantanir í síma
893 3017 Erling, og 894 1345 Baldvin Ari.
SESAR
FRÁ
VOGUM
Séra Gunnlaugur Garðarsson blessar Frekjuna, nýtt skip Siglingaklúbbsins Nökkva, við hátíðlega athöfn.
Siglingaklúbburinn Nökkvi vígir nýjan kjölbát
Frekjan siglir aftur
um Pollinn
SIGLINGAKLÚBBURINN Nökkvi
á Akureyri vígði nýjan kjölbát
siðastliðinn föstudag við hátíð-
lega athöfn. Það var séra Gunn-
laugur Garðarson, sóknarprestur
í Glerárprestakalli, sem blessaði
bátinn áður en honum var siglt út
á Pollinn í fyrsta sinn.
Að sögn Tryggva Heimissonar
hjá Siglingaklúbbnum Nökkva
hefur félagið ekki átt svona veg-
legan kjölbát siðan fyrir 1980.
Binda menn vonir við að gamlir
siglingamenn snúi nú aftur og af
því tilefni ætlar Nökkvi að bjéða
upp á fullorðinsnámskeið á nýja
bátinn, sem hlotið hefur nafnið
„Frekjan“, á næstu vikum.
„Það má segja að þetta sé nýj-
ung hjá félaginu því að það hefur
ekki átt kjölbát af þessari gerð
síðan á árunum milli 1970 og 80.
Þá átti félagið tvo slíka báta og
hét einmitt annar þeirra „Frekj-
an“, þannig að við erum að nota
gamalt nafn,“ sagði Tryggvi.
Hann sagði að mjög gott væri að
sigla slíkum bátum og vonuðu
menn að gamlir siglingamenn
sem myndu eftir gömlu bátunum
færu að reima á sig björgunar-
vestin að nýju. „Við ætlum að
hefja námskeið fyrir fullorðna
eftir svona tvær vikur,“ sagði
Tryggvi.
Nýja Frekjan kemur frá Bret-
landi og styrkti Akureyrarbær
kaup bátsins en bærinn lagði
fram hálfa milljón við kaupin.
Einnig styrkti Eimskip siglinga-
klúbbinn með því að flytja bátinn
inn ókeypis.
Að sögn Tryggva eru námskeið
fyrir börn og unglinga nú í full-
um gangi. „Við hefjum kennslu
oftast um níu á morgnana og er-
um stundum að allt til kl. 10 á
kvöldin,“ sagði Tryggvi.
Morgunblaðið/Halldór Ingi
Styrkja Dalvíkinga
UNDIRRITAÐUR hefur verið
samningur milli knattspyrnuliðs
Dalvíkinga, Olíufélagsins Esso og
Landflutninga-Samskipa um að
fyrirtækin tvö verði aðalstyrktar-
aðilar meistaraflokks karla í sum-
ar.
Á myndinni handsala samning-
inn þeir Sigurður Bjarnason, um-
dæmisstjóri Esso á Norðurlandi,
Gísli Bjarnason frá knattspyrnu-
deild Dalvíkur og Gunnar Sig-
tryggsson frá Landflutningum
Samskip.
Ljóðakvöld
í Sig’ur-
hæðum
LJÓÐAKVÖLD verður í Sigurhæð-
um - Húsi skáldsins miðvikudags-
kvöldið 28. júní og hefst það kl.
20.30 stundvíslega en húsið er opið
frá kl. 20.
Erlingur Sigurðarson forstöðu-
maður Húss skáldsins ræður dag-
skránni og flytur hana, en hann hef-
ur spunnið þennan þátt í starfi
hússins nánast frá upphafi undir
heitinu Islands þúsund ljóð í leitinni
að fegursta ljóði sem ort hefur verið
á íslenska tungu til að fara með fyr-
ir áheyrendur.
Að þessu sinni verða ljóðin öll
bundin björtum nóttum og komið
víða við meðal skálda.
Ljóðakvöldin verða í Sigurhæð-
um a.m.k. hálfsmánaðarlega í sum-
ar - 2. og 4. miðvikudag hvers mán-
aðar - en ætlunin er að flytja
dagskrá í Davíðshúsi í vikunni þar á
milli.