Morgunblaðið - 27.06.2000, Side 20

Morgunblaðið - 27.06.2000, Side 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Evrópski fjáifestingarbankinn lánar Reykjavíkurborg Nýtt lán til Nesjavalla Morgunblaðið/Þorkell EVRÓPSKI fjárfestingarbankinn (EIB) og Reykjavíkurborg skrifuðu í gær undir samning um lán bankans til borgarinnar. Lánið er ætlað til stækkunar Nesjavallavirkjunar og er um einn og hálfur milljarður ís- lenskra króna með fimmtán ára láns- tíma. Lánar mikið til samgöngu- og orkumála Ewald Nowotny, varaforseti bank- ans, undirritaði lánssamninginn fyrir hönd bankans. í samtali við Morgun- blaðið sagði hann að bankinn hefði lánað til framkvæmda á Islandi frá árinu 1995 og nú næmu útistandandi lán til Islands rúmlega tíu milljörðum króna. Bankinn hefur áður lánað til framkvæmda við Nesjavelli en hann hefur einnig lánað til holræsafram- kvæmda í Reykjavík, vega og ann- arra samgöngumannvirkja. „EIB er í SANYL ÞAKRENNUR Fást í flestum byggingavöru- verslunum landsins. ALFABORG Knarrarvogi 4 • Sími 568 6755 Fyi ir þvottahusið Skolvaskar Intra skolvaskarnir eru framleiddir á vegg eða innfelldir f borð. Stærðir: 48 x 38 x 19 cm 54 x 45 x 23 cm Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur Sfmi: 5841088 • Fax: 5641089 • tengi.is eigu aðildai-ríkja Evrópusambands- ins (ESB) og þjónar sem banki þess,“ sagði Nowotny og bætti við: „Tveir þriðju hlutar lána bankans eru innan ESB en þriðjungur er utan sambandsins. Utan ESB eru það að- allega ríki sem sótt hafa um aðild sem fá lán en EFTA-ríkin eru einnig í viðskiptum við bankann. Bankinn á að standa undir sér þannig að hann veitir ekki styrki eða niðurgreidd lán en fylgir samt ákveðinni stefnu sem ESB mótar. Bankinn er í raun þró- unarbanki að því leyti að hann lánar tiltölulega meira til jaðarsvæða og leggur áherslu á að beina lánum sín- um þangað sem þau nýtast best til að auka hagvöxt. Þess vegna er mikið lánað til uppbyggingar samgöngu- kerfis landa og orkumála. Frá Islandi fer ég til dæmis til Noregs þar sem undirritað verður lán til Statoil vegna smíði oliuleiðslu til Þýskalands.“ Stærsti opinberi þróunarbanki heims Að sögn Nowotny er EIB stærsti opinberi þróunarbanki heims með fimmtíu prósent hærri lánveitingar en Alþjóðabankinn. Bankinn er fjár- magnaður með skuldabréfaútgáfu og Ewald Nowotny, varaforseti Evrópska fjárfestingarbankans, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Jón Sig- urðsson, bankastjóri Norræna íjárfestingarbankans við undirritun láns vegna stækkunar Nesjavallavirkjunar. sagði Nowotny að vegna stærðar og stöðu bankans fengi hann mjög hag- stæð lánskjör en hann er í svokölluð- um AAA-lánshæfisflokki. Stuölar að efnahagslegri einingu Evrópu Þegar Nowotny var spurður út í ástæður þess að aðildarríki ESB reka saman slíkan banka sagði hann bankann hafa verið stofnaðan um leið og ESB sjálft og þá hefði þörfin fyrir fjármagn til uppbyggingar verið gíf- urleg. „Nú hefur bankinn, auk hinna al- mennu lánveitinga til samgöngu- mannvirkja, það hlutverk að fylgja með lánveitingum eftir stefnu ESB um ódýrari orku og bætt umhverfi. Oh'uleiðslan sem við lánum Norð- mönnum fyrir fellur vel að öðru markmiðinu auk þess sem hún styð- ur tengsl þjóða í Evrópu sem er líka á stefnuskrá okkar en lánið vegna Nesjavalla fellur einkar vel að hvoru tveggja. Með því er verið að styðja við hagkvæma og hreina orkufram- leiðslu. Þessu til viðbótar er bankinn far- inn að kaupa í sjóðum sem fjárfesta í nýjustu upplýsingatækni. Sjóðirnir kaupa svo í fyrirtækjum á þessu sviði og þannig styður bankinn líka þá uppbyggingu. Bankinn reynir aftur á móti að gæta þess að starfa ekki á þeim sviðum þar sem einkabankar starfa til að ýta þeim ekki út af mark- aðnum og á hann raunar gott sam- Sonera í samruna- hugleiðingum STÆRSTA fyrirtækið í Finnlandi á sviði þráðlausra fjarskipta, Son- era, mun hugsanlega sameinast öðru fjarskiptafyrirtæki innan sex mánaða, að þvi er fram kemur í Wall Street Journal á Netinu. Nýlega var tilkynnt að finnska ríkisstjórnin hefði fengið heimild til að selja rúman 53% hlut ríkisins í Sonera. Yfirmenn Sonera hafa að sögn átt óformlegar viðræður við nokk- ur fjarskiptafyrirtæki og sjá ekk- ert því til fyrirstöðu að formlegar viðræður hefjist bráðlega og Son- era sameinist öðru fyrirtæki fyrir árslok. Nokkur stærstu fjarskiptafyrir- tæki í Evrópu hafa sýnt Sonera áhuga á síðustu mánuðum, m.a. Telefonica á Spáni, France Tele- com, KPN í Hollandi og Vodafone AirTouch. Talsmaður KPN segir þó ólíklegt að af samruna þess við Sonera verði, þar sem finnski markaðurinn sé lítill. Talsmaður Vodafone segir verðið á Sonera of hátt. Talsmenn France Telecom og Telefonica vildu ekki tjá sig. Sonera er metið á um 2.900 milljarða íslenskra króna og er annað verðmætasta fyrirtækið skráð í Kauphöllinni í Helsinki, á eftir Nokia. Verð hlutabréfa Son- era hefur þó lækkað um 47% síðan það var í árshámarki í mars sl. Fyrirtækið þykir eiga mikla mögu- leika á farsímamarkaðnum en of lítið og einangrað til að ná langt á eigin spýtur. Forsvarsmenn fyrir- tækisins taka undir það og segjast vilja taka þátt á alþjóðlegum mark- aði. Sonera hefur þegar fengið út- hlutað leyfi fyrir rekstri UMTS- farsímakerfis í Finnlandi og á Spáni og mun sækja um í Þýska- landi og Sviss í samstarfí við aðra. Sonera hefur starfað með ís- lenska hugbúnaðarsjóðnum og felst samstarfið í að fjárfesta í fyr- irtækjum í upplýsingatækni á Norðurlöndunum. Sonera og ís- lenski hugbúnaðarsjóðurinn hafa t.d. keypt í samstarfi 45% hlut í ís- lenska hugbúnaðarfyrirtækinu ZOOM hf. Eignarhlutur Sonera í ZOOM nemur 31,6%. Gunnar V. Engilbertsson, framkvæmdastjóri Islenska hugbúnaðarsjóðsins, segir fjárfestingasamstarf fyrirtækjanna í fullum gangi og býst ekki við öðru en að það haldi áfram þrátt fyrir samrunahugleiðingar Sonera. Fyrirmæli frá Samkeppnisráði til INTÍS og Íslandssíma vegna úthlutunar á lénum Oheimilt að veita upplýs- ingar tengdar umsóknum SAMKEPPNISRÁÐ hefur beint þeim fyrirmælum til Internets á ís- landi hf. (INTÍS) og Íslandssíma hf. að óheimilt sé að þeir starfsmenn Internets á Islandi hf. sem koma að eða starfa við skráningu og úthlutun léna veitþöðrum starfsmþnnum Int- ernets á Islandi hf. eða Íslandssíma viðskipta- eða tæknilegar upplýs- ingar sem þeir fá í hendur í tengsl- um við umsóknir á lénum. Hið sama eigi við um stjórnarmenn fyrirtækj- anna. Þá sé óheimilt að starfsmenn Íslandssíma hf. komi að skráningu og úthlutun léna eða hafi aðgang að framangreindum upplýsingum. I ákvörðun samkeppnisráðs segir jafnframt að starfsmenn Internets á Islandi hf. sem hafa aðgang að við- skipta- eða tæknilegum upplýsing- um sem veittar hafa verið í tengsl- um við umsóknir á lénum skuli undirrita yfirlýsingu um trúnað og þagnarskyldu. Hið sama eigi við um stjórnarmenn Internets á íslandi hf. og Íslandssíma. Þá skal Internet á íslandi hf. tryggja að jafnræði ríki milli keppi- nauta fyrirtækjanna og þeirra deilda fyrirtækjanna sem eru í sam- keppni við þá varðandi meðferð á umsóknum um lén. Samkeppnisstofnun barst erindi frá Landssíma íslands hf. í desem- ber 1998 þar sem þess var krafist að mælt verði fyrir um fjárhagslegan aðskilnað milli þeirrar starfsemi Internets á Islandi hf. sem sé í sam- keppnisrekstri og þeirrar starfsemi sem njóti verndar einkaleyfis. Þá var þess farið á leit að athugað verði hvort gjaldtaka fyrir skráningu net- léna gefi ástæðu til íhlutunar sam- keppnisráðs samkvæmt 17. gr. sam- keppnislaga Kröfur Landssíma Islands hf. voru síðan ítrekaðar og endurskil- greindar í febrúar síðastliðnum, auk þess sem sérstaklega var vakin at- hygli á kaupum Islandssíma hf. á 70% hlut í INTÍS. starf við menn í bankaþjónustu í Evrópu. Til að auðvelda þetta eiga fulltrúar þeirra þátt í stefnumótun um lánveitingar bankans," sagði Nowotny. Spurður hvort ástæður lánveiting- anna til Islands væru eingöngu við- skiptalegs eðlis sagði Nowotny að svo væri ekki. Þetta væri hagkvæm lánveiting en einnig spilaði inn í að bankinn vildi stuðla að efnahagslegri einingu Evrópu. Til þess að ná því marki hefði bankinn meðal annars gert samþykkt fyi-r á þessu ári um að lána allt að 1,2 milljarða evra til EFTA-ríkjanna á næstu tveimur ár- um og lánið til íslands væri hluti af þeirri áætlun. Límtré hf. kaupir Garða- stál hf. LÍMTRÉ hf. hefur keypt fram- leiðslutæki og rekstur Garða- stáls hf. í Garðabæ. Garðastál hf. hefur um árabil framleitt þak- og veggklæðningar úr málmi fyrir húsbyggingar, þ.e. garðastál og bárujárn. Starf- semi Garðastáls hf. hófst árið 1977 sem deild í Héðni hf., en í ársbyrjun 1995 hóf Garðastál hf. starfsemi sem sjálfstætt hlutafélag. Velta félagsins hef- ur verið um það bil 160 milljónir króna á ári, að því er fram kem- ur í upplýsingum frá Límtré hf. FBA Ráðgjöf hf. sá um verð- mat vegna kaupanna, leiddi samningaviðræður og hafði umsjón með samningagerð. Rekurtvaer verksmiðjur Límtré hf. var stofnað á Flúðum 1982 og framleiðsla hófst í júní 1983. Fyrirtækið er almenningshlutafélag í eigu einstaklinga, fyrirtækja, sveit- arfélaga og stofnfjárfesta. Hlutafé þess er 136 milljónir. í dag rekur Límtré hf. tvær verksmiðjur, aðra á Flúðum og hina í Reykholti, Biskupstung- um. í verksmiðjunni á Flúðum er framleitt límtré, en í Reyk- holti eru framleiddar þak- og veggeiningar, frysti- og kæli- klefar, milliveggir fyrir mat- vælavinnslu og frystiklefahurð- ir. Límtré hf. hefur nýverið keypt meirihluta hlutafjár í Vírneti hf. í Borgamesi sem framleiðir m.a. saum og nagla, báru- og trapisustál og ál, auk þess að stunda almenna blikk- smíði og járnsmíði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.