Morgunblaðið - 27.06.2000, Síða 22

Morgunblaðið - 27.06.2000, Síða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR Nettd kærir SS til Sam- keppnisstofn- unar vegna sinnepsmáls NETTÓ hefur sent kæm til Sam- keppnisstofnunar þar sem SS hefur neitað að selja Nettó sinnep í 350 gramma umbúðum sem fyrirtækið framleiðir undir vörumerki sínu og selur í Bónus verslanirnar. „Við höfum margsinnis farið fram á að fá að selja þessa stóm sinnepsbrúsa í verslunum okkar, bæði til að geta boðið viðskiptavinum okkar hag- kvæmari kaup og til að veita Bónus samkeppni. Þama er verið að byggja skjaldborg um Bónus til að þeir þurfi ekki að keppa við okkur,“ segir Elías Þorvarðarson verslun- arstjóri Nettó. SS gerði samstarfsamning við Bónus um framleiðslu og sölu á vör- unni og því er hún aðeins seld í Bón- us að sögn Hallgríms Hólmsteins- sonar sölustjóra SS. „Okkar vilji er að leysa þetta mál farsællega og helst ekki á vettvangi fjölmiðla.“ Verslunin Svalbarði opnuð á ný Halda í hefðir fyrri eigenda VERSLUNIN Svalbarði við Framnesveg hefur verið opnuð á ný og verður rekin með svipuðu sniði og áður. Viðskiptavinir eiga því að geta gengið að vest- firska harðfiskinum sínum sem vísum. „Það getur þó verið að sumum finnist austfirskur blær líka svífa yfir vötnum," segja nýir eigendur, Ingvar Gunnarsson og Hulda Hannibalsdóttir, sem eru frá Eskifirði og fluttu nýlega til Reykjavíkur. „Við munum halda í hefðir fyrri eigenda, bjóða upp á vestfírskan harðfísk, vera með siginn físk, maríneraða síld og hákarl að vestan og austan auk þess sem við bregðumst ekki viðskiptavinum þegar kemur að Þorláksmessu. Þá verður til hjá okkur vestfírsk skata og hnoð- mör.“ Ingvar segir að hjá Svalbarða verði til nokkrar útgáfur af salt- físki og hann ætlar að breikka aðeins fískúrvalið og vera með ýmsa fiskrétti og nýjan físk í soðið. „Við erum með fískvinnsiu á Granda og getum útvegað það fískmeti sem fólk vantar." Hann segir að núna sé tölu- vert spurt um svartfuglseggin og að með haustinu verði hægt að fá hjá sér reyktan og sviðinn svartfugl svo og lunda.. Ingvar er bjartsýnn á rekstur- inn, hann segir Vesturbæinga hafa tekið sér vel og hefur trú á því að margir kjósi að eiga við- skipti við kaupmanninn á horn- inu. Morgunblaðið/Sverrir Ingvar Gunnarsson og Hulda Hannibalsdóttir, eigendur Svalbarða, ásamt starfsmanni verslunarinnar, Benedikt Sigurðssyni. Spurt og svarað um neytendamál 40 króna hækkun á pítsum hjá Domino’s Hefur verð á pítsum hjá Dom- ino’s hækkað nýlega? Fyrir skömmu hækkaði grunnverð á 11 og 15 tommu pítsum hjá Domino’s um 40 krónur, en á 8 tommu pítsum um 30 krónur. Einnig hækkaði verð á brauðstöngum og brauð- stangasósu um 10 krónur. „Hækkunin varð meðal annars vegna aukins hráefniskostnaðar. Um áramótin hækkaði ostur um 5,6% en okkur munar alltaf mik- ið um verðhækkanir á osti þar sem hann er stærsti hluti hráefniskostnaðar hjá okkur,“ segir Gunnar S. Guðjónsson, framkvæmdastjóri Domino’s. „Hækkunin á sósunni kemur til af því að við höfum stækkað sósuskammtinn um leið og við höfum fengið nýjar innsiglaðar umbúðir, sem eru dýrari en þær sem við notuðum áður. Að auki hafa kassarnir utan um pítsurn- ar hækkað um 12% í innkaupum og laun starfsfólks hækkuðu 1. mars um 3,9%. Þá er bensínverð alltaf að hækka en þá eykst kostnaður hjá okkur þar sem við erum með heimsendingarþjón- ustu.“ Súpukjöt í Bónus Hvers vegna var súpukjötið ekki til, sem auglýst var að ætti að seljast á 199 krónur kílóið til 28. júní í Bónus? „Kjötið átti að koma í nokkr- um sendingum og fyrsta send- ingin seldist mjög fljótt upp. Síðan fengum við fáar og smáar sendingar frá kjötframleiðand- anum, sem er á Suðurlandi, eft- ir jarðskjálftana í síðustu viku,“ segir Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss. „Framleiðslunni seinkaði vegna þess að fólk var að huga að heimilum sínum og eigum og mætti því skiljanlega ekki til vinnu. Eftir að framleiðslan komst í samt lag bárust fleiri sendingar, til dæmis kom stór sending af kjötinu í búðir á föstudag. Viðskiptavinir hafa nú þegar keypt fimm tonn af kjöt- inu en í allt voru til sjö tonn hjá framleiðanda. Það eru því enn til tvö tonn af kjöti hjá framleið- anda sem eiga enn eftir að koma í búðir.“ Nýverið var stofnaður Vinaklúbbur Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn Arskort ekki lengur fáanleg EKKI er lengur hægt að kaupa árskort í Fjölskyldu- og húsdýra- garðinn í Laugardal sem í fyrra kostuðu 2000 krónur fyrir börn og 3000 krónur fyrir fullorðna. I staðinn býðst gestum að gerast meðlimir í nýstofnuðum Vina- klúbbi Fjölskyldu- og húsdýra- garðsins. Árgjaldið í hann er 6500 krónur en árskort er meðal ann- ars innifalið í því verði að sögn Tómasar Óskars Guðjónssonar, forstöðumanns Fjölskyldu- og VERÐHÆKKUN er fyrirhuguð á nokkrum vörutegundum frá fyrirtækinu Kötlu 1. júlí. Meðal þess sem hækkar eru bökunar- dropar, salt og lyftiduft. Til dæm- is hækkar verð á kardimommu- dropum einna mest, um 16,7%, en hækkunin er mismikil eftir teg- undum, því mismunandi ástæður liggja að baki hækkuninni á hverri tegund að sögn Tryggva Magnússonar, framkvæmdastjóra Kötlu. „Það hefur ekki orðið hækkun á vörunum frá okkur frá SúreJbiisvörur Karin Herzog Silhouette húsdýragarðsins. „Stöku árskort- in eru ekki lengur fáanleg því sala þeirra borgaði sig ekki fyrir okk- ur. I staðinn bjóðum við fasta- gestum að ganga í Vinaklúbbinn sem hefur mælst vel fyrir. Með- limum klúbbsins er boðið upp á ýmsar nýjungar í þjónustu, auk árskortsins standa til boða fræðsluferðir í hverjum mánuði, fréttabréf um starfsemi garðsins, bolur, barmmerki og sérkjör í veitingahúsi garðsins.“ því í október 1997 en síðan þá hefur orðið mikil aukning á fram- leiðslukostnaði í samræmi við al- mennar hækkanir á innlendum markaði, svo sem hækkun á orku- verði um 12% og launahækkanir, en laun hafa hækkað um 25% á þessum tíma. Hráefnin sem við notum og umbúðir hafa einnig hækkað umtalsvert á þessum tíma, sem dæmi má nefna hefur verð á kardimommuolíu sem við notum í kardimommudropa þrefaldast enda eru þeir sú vöru- tegund sem hækkar hvað mest hjá okkur. Þessi hækkun er óhjá- kvæmileg, við höfum verið að reyna að bíta á jaxlinn og hækka ekki en núna verðum við að láta undan ef við eigum að geta haldið áfram." Nýtt Matreiðslurj ómi KOMINN er á markað mat- reiðslurjómi frá Mjólkursamsöl- unni. í fréttatil- kynningu segir að fituinnihald hans sé 15% sem sé innan við helm- ingur þess fitu- og hitaeininga- magns sem er að finna í hefðbundn- um rjóma. Rjóminn hentar vel til matargerðar og sem útálát en hann hentar ekki til þeytingar. Efni fyrir þunnhærða KOMIÐ er á markaðinn Toppik, hárefni fyrir þunnhærða. I frétta- tilkynningu frá Apolló-hárstúdíói segir að efnið sé náttúrulegt, gert úr keratínprótíni. Efnið er greitt í hárið og það fer úr við venjulegan hárþvott. Efnið verður selt í Borg- arapóteki og á hársnyrtistofum. Léttjógúrt KOMIN er í verslanir léttjógúrt frá Pascual. í fréttatilkynningu frá Innnes ehf. segir að fituinnihald jógúrtsins sé 1,2 g í hverjum lOOg. Jógúrtið fæst með þremur bragð- tegundum, með sumarávöxtum, an- anas og melónum, og jarðaberjum. Það er selt í 500 gramma einingum sem hver inniheldur fjórar 125 gramma umbúðir. Jógúrtið er án litar- og rotvarnarefna og geymist í sex mánuði frá framleiðsludegi. Gólfdúkur BÆST hefur í litaval Marmoleum dual gólfdúka, en í fréttatilkynn- ingu frá Kjarani hf. segir að þeir séu nú fáanlegir í 30 nýjum litum og mynstrum. Nýju dúkarnir eru m.a. í rauðum, grænum og bláum lita- tónum. Dúkamir fást í tveggja metra breiðum rúllum en einnig fást 18 litir af dúkaflísum. Þráðlaus veðurstöð SAMEY hefm’ hafið sölu á þráðlaus- um veðurstöðvum. I fréttatilkynn- ingu kemur fram að hún gefi upp- lýsingar um veðurfar, svo sem hita, raka, regn, vindstyrk, vindátt og loftþrýsting. Veðm’stöðin saman- stendur af móttökustöð og nemum og er með snertiskjá. í fyrstu er veð- urstöðin boðin á kynningarverði. Yerðhækkun á vörum frá Kötlu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.