Morgunblaðið - 27.06.2000, Side 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Arafat boðar stofnun Palestínuríkis
Sjálfstæði lýst
yfir eftir
nokkrar vikur?
Jerúsalcm. AP.
YASSER Arafat lýsti því yfir á
sunnudaginn að stofnun sjálfstæðs
ríkis Palestínu kynni að verða lýst
yfir innan fárra vikna. „Palestína er
Rannsókn Egypt
Air-slyssins
FBItek-
ur við
BANDARÍSKA alríkislögreg]-
an, FBI, tekur í dag við rann-
sókn á orsökum þess að farþega-
þota Egypt Air fórst úti fyrir
strönd Bandaríkjanna í október
í fyrra og með henni 217 manns.
Sjónvarpsstöðin CNN segir
þetta benda til þess að yfírvöld
gruni að um skemmdarverk hafi
verið að ræða. Kannanir á
hljóðrita vélarinnar þykja hafa
leitt í ljós að einn áhafnarmeð-
lima hafi farið með bæn áður en
vélin steyptist í hafið.
Fulltrúi flugfélagsins mun
eiga fund með bandarískum
rannsakendum í dag til þess að
fara yfir upptökurnar sem þessi
ályktun er byggð á.
okkar, okkar, okkar!“ sagði hann við
þúsundir fagnandi stuðningsmanna
sinna á Vesturbakkanum.
Israelar saka aftur á móti Palest-
ínumenn um að draga vísvitandi úr
möguleikunum á að friðarviðræður
geti farið fram í Bandaríkjunum en
stefnt er að því að endanlegir friðar-
samningar hafi náðst 13. september.
„Við höfum nokkrar vikur enn til
stefnu en þær eru hinar mikilvæg-
ustu því að undir lok þeirra munum
við lýsa yfir stofnun ríkis,“ sagði
Arafat í bænum Nablus. Aðstoðar-
menn hans sögðu þó að enn væri
ekki búið að ákveða hvenær lýst
yrði stofnun ríkisins.
Arafat ítrekaði enn fremur kröfu
Palestínumanna til Jerúsalem sem
höfuðborgar ríkis þeirra en þeir
vilja að vesturhluti borgarinnar
verði höfuðstaður Palestínu. Israel-
ar segja aftur á móti að borgin ósk-
ipt sé eilíf höfuðborg Ísraelsríkis.
David Levy, utanríkisráðherra
ísraels, brást hart við ummælum
Arafats. „Friðarumleitanir eru
óhugsandi með ógnunum," sagði
hann. „Ef [Arafat] ákveður að gefa
út einhliða yfirlýsingu hefur hann
þar með veitt Israel heimild til að
nota sömu aðferð.“ ísraelar hafa
sagt að ef Palestínumenn lýsi yfir
sjálfstæði muni þeir í staðinn inn-
lima stóra hluta Vesturbakkans.
AP
Yasser Arafat á fundi í bænum Nablus þar sem hann lýsti því yfir að
hann kynni að lýsa yfir stofnun sjálfstæðs ríkis innan fárra vikna.
Bilið
breikkar
aftur
London. Morgunblaðið.
SKJÓTT skipast veður í stjórnmál-
um. Ihaldsmenn höfðu ekki lengi
glaðzt við fréttir um minnkandi mun
mdli þeirra og Verkamannaflokks-
ins, þegar ný skoðanakönnun leit
dagsins ljós í News of the World á
sunnudaginn, sem sýndi bilið milli
flokkanna aftur upp á 13%, en á dög-
unum var það komið niður í 3%.
Könnunin, sem unnin er af Mori-
fyrirtækinu fyrir blaðið, sýnir fylgi
Verkamannaflokksins aftur komið
upp í 47%, Ihaldsflokkurinn er með
34% og frjálslyndir fá 14%.
Skoðanakönnunin sýnir megna
andstöðu Breta við aðild að evrópska
myntbandalaginu; 72% vilja halda
pundinu en aðeins fimmtungur að-
spurðra er tilbúinn til að taka upp
evruna í stað pundsins. Þá telja 63%
að Verkamannaflokkurinn standi að
óþörfu í vegi fyrir umræðum um evr-
una og aðild að myntbandalaginu.
Könnunin færir forsætisráðherr-
anum bæði slæmar fréttir og góðar.
Slæmu fréttimar eru að nú eru þeir
færri sem treysta honum til að ráða
fram úr Evrópumálunum en hinir
sem treysta honum ekki; 43%
treysta Tony Blair en 44% treysta
honum ekki. Góðu fréttirnar eru
þær, að hann er samt sá stjómmála-
maður, sem menn þrátt fyrir allt
treysta bezt í þessum efnum, því
41% treystir formanni frjálslyndra,
Charles Kennedy, og fjármálaráð-
herranum Gordon Broym en aðeins
32% treysta formanni íhaldsflokks-
ins, William Hague, meðan 52%
treysta honum ekki til þess að ráða
fram úr Evrópumálunum.
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn hélt naumlega velli í kosningunum í Japan
Kjósendur völdu
óbreytt ástand
Reuters
Yoshiro Mori, forsætisráðherra Japans (í miðið), brosir eftir að skýrt
var frá fyrstu tölum í þingkosningunum á sunnudag. Með honum eru
tveir af forystumönnum Fijálslynda lýðræðisflokksins.
Tdkýó. AP, AFP.
STJÓRN Japans hélt naumlega velli
í kosningunum til neðri deildar þings-
ins á sunnudag og stjórnmálaskýr-
endur sögðu að kjósendurnir hefðu
valið óbreytt ástand fremur en hið
óþekkta þrátt fyrir efnahagserfið-
leikana í landinu. Stjómarandstaðan
sótti þó í sig veðrið í kosningunum og
konur fengu fleiri þingsæti en nokkru
sinni fyrr í 44 ár.
Stjómarflokkarnir fengu 271 þing-
sæti af 480, eða 56% sætanna í neðri
deildinni, sem er valdameiri en hin
efri. Flokkamir vora með 336 þing-
sæti af 500 fyrir kosningamar, en
þingmönnunum var fækkað um tutt-
ugu.
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn
missti meirihluta sinn í neðri deild-
inni og þingsætum hans fækkaði úr
271 í 233. Flokkurinn er því nú háður
tveimur smærri flokkum í stjóminni,
Komeito, sem nýtur stuðnings
búddatrúarmanna, og íhaldsflokkn-
um. Fylgi samstarfsflokkanna
minnkaði einnig veralega, þingmönn-
um Komeito fækkaði úr 42 í 31 og
íhaldsflokksins úr 18 í sjö.
Stærsti stjómarandstöðuflokkur-
inn, Lýðræðisflokkur Japans, styrkti
hins vegar stöðu sína og fékk 127
þingsæti. Þingniönnum hans fjölgaði
um 32, eða um 30%.
Engar breytingar á efnahags-
stefnunni
Yoshiro Mori forsætisráðherra ját-
aði að hann bæri mesta ábyrgð á fylg-
istapi Fijálslynda lýðræðisflokksins,
sem hefur verið við völd í Japan með
aðeins tíu mánaða hléi frá því hann
var stofnaður árið 1955.
Mori kvaðst þó vongóður um að
flokkarnir þrír gætu haldið áfram
stjómarsamstarfmu. Hann sagðist
einnig vilja að Kiiehi Miyazawa fjár-
málaráðherra og Yohei Kono utan-
ríkisráðherra héldu embættum sín-
um til að þeir gætu undirbúið
leiðtogafund átta helstu iðnríkja
heims sem verður haldinn á japönsku
eyjunni Okinawa 21 .-23. júlí.
Stjómmálaskýrendur spáðu því að
engar breytingar yrðu á efnahags-
stefnu stjómarinnar, sem hefur auldð
útgjöldin til opinberra framkvæmda í
því skyni að blása lífi í efnahaginn.
„Líklegt er að ekkert breytist. Nið-
urstaða kosninganna er að almenn-
ingur vill algera íhaldssemi, óbreytt
ástand,“ sagði viðskiptadagblaðið Ni-
hon Keizai Shimbun í forystugrein.
Þessi niðurstaða kann að virðast
undarleg í Ijósi efnahagserfiðleik-
anna í Japan. Hagvöxturinn var mjög
lítill í fyrra eftir tveggja ára sam-
dráttarskeið. Atvinnuleysið fer vax-
andi og skuldir ríkisins hafa stórauk-
ist, einkum vegna þeirrar stefnu
stjómarinnar að auka útgjöldin í því
skyni að stuðla að hagvexti. Hafa ber
þó í huga að kjósendur í Japan hafa
yfirleitt verið tregir til að kjósa
stjómarandstöðuna þegar illa árar í
efnahagnum.
í kosningabaráttunni var aðallega
tekist á um efnahagsmálin. Fijáls-
lyndi lýðræðisflokkurinn boðaði enn
meiri ríkisútgjöld en litlar efnahags-
umbætur. Lýðræðisflokkiuinn lofaði
hins vegar að minnka ríkisútgjöldin
og draga úr skriffinnsku til að auð-
velda athafnamönnum að stofna ný
fyrirtæki. Flokkurinn boðaði einnig
skattahækkanir til að hægt yrði að
grynna á skuldum ríkisins. Hann
kvaðst vilja hækka skattleysismörkin
og er talið að sú stefna hafi kostað
flokkinn mörg atkvæði.
300 þingmannanna vora kjömir í
einmenningskjördæmum og 180 í
hlutfallskosningum. Lýðræðisflokk-
urinn fékk mest fylgi í borgunum og
fór t.a.m. með sigur af hólmi í 13 ein-
menningskjördæmum af 25 í Tókýó
en Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn í
aðeins átta. í hlutfallskosningunum
fékk Lýðræðisflokkurinn fimm þing-
sæti í borginni og Frjálslyndi lýðræð-
isflokkurinn þrjú.
Stjómarflokkurinn reiddi sig aðal-
lega á stuðning dreifbýliskjósenda,
sem hafa notið góðs af opinbera
framkvæmdunum og niðurgreiðslum
ríkisins.
„Kjósendumir völdu óbreytt
ástand en stjómin hélt mjög naum-
lega velli,“ sagði japanski hagfræð-
ingurinn Yukari Sato. „Þeir sendu
Fijálslynda lýðræðisflokknum þau
óbeinu skilaboð að hann yrði að
breytast.“
Nokkrir af stórlöxum Frjálslynda
lýðræðisflokksins náðu ekki kjöri í
kosingunum, þeirra á meðal Takashi
Fukaya viðsldptaráðherra og Toku-
ichirio Tamazawa landbúnaðarráð-
herra.
Mori kennt um fylgistapið
Yoshiro Mori er einkum kennt um
fylgistap flokksins, en hann er einn
óvinsælasti forsætisráðherra lands-
ins eftir síðari heimsstyijöldina
vegna ýmissa axarskafta frá því hann
tók við embættinu af Keizo Obuchi
fyrir þremur mánuðum. Obuehi fékk
heilablóðfall í byrjun apríl og lést sex
vikum síðar.
Kjörsóknin var 62,49%, sú næst-
minnsta í sögu landsins. Þessi litla
kjörsókn er talin hafa stuðlað að því
að stjómin hélt velli. Margir ungir
Japanir hafa lítinn áhuga á stjórn-
málunum og æ fleiri eldri kjósendur
virðast telja að ekki skipti máli hveij-
ir stjómi landinu, ekkert breytist.
Þingkonum Qölgar
23 konur áttu sæti í neðri deildinni
en þeim fjölgaði í 35 í kosningunum.
Konur hafa ekki verið fleiri á þinginu
frá fyrstu þingkosningunum í landinu
eftir síðari heimsstyijöldina árið
1946, en 39 konur náðu þá kjöri.
202 konur vora í framboði í kosn-
ingunum á sunnudag og fleiri en
nokkru sinni fyrr.
Þótt þingkonunum hafi fjölgað era
þær aðeins um 7% þingmannanna og
það hlutfall er með því lægsta í iðn-
ríkjum heims. Aðeins ein kona, Kay-
oko Shimizu umhverfisráðherra, er í
stjóminni.
Ein af þeim fáu konum sem hafa
komist til áhrifa í japönskum stjóm-
málum er Takako Doi, leiðtogi Jafn-
aðarmannaflokksins sem fékk 19
þingsæti og bætti við sig fimm. Tíu
konur era nú í þingliði flokksins.
Konan sem fékk mesta athygli í
kosningabaráttunni var hins vegar
Yuko Obuchi, 26 ára dóttir Keizo
heitins Obuchi. Hún náði kjöri þótt
hún hefði enga reynslu af stjómmál-
um, en í Japan hefur það næstum
þótt sjálfsögð kurteisi að kjósa ekkju
eða bam stjómmálamanns sem fellur
frá. Sú siðvenja sætir þó vaxandi
gagnrýni.
„Mér líkaði ekki hvernig hún not-
aði samúðaratkvæðin,“ sagði Yuko
Hirana, 25 ára starfskona nýs net-
þjónustufyrirtælds í Tókýó. „Við
þurfum fleiri konur í stjómmálin sem
vita hvað þær era að gera.“