Morgunblaðið - 27.06.2000, Side 26

Morgunblaðið - 27.06.2000, Side 26
26 ÞRIÐJUDAUUR 27. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Guð mætir mann- inum í orðinu BÆKUR Trúarbragðafræði GUÐFRÆÐI MARTEINS LÚTHERS Höfundur: Sig-urjón Árni Eyjólfs- son. Útgefandi: Hið íslenska bók- menntafélag. Útgáfuár: 2000. Stærð: 560 bls. VIÐ minnumst kristnitökunnar árið 1000 og annarra mikilvægra at- burða í íslenskri kristnisögu með ýmsum hætti á þessu ári. Skammt er síðan út kom veg- legt fjögurra binda verk um kristnisögu fslands sem hjálpar okkur til að minnast þeirrar trúar og sögu sem við byggjum menningu okkar á. Annað merkt framlag til skilnings á íslenskri kristni er það ritverk sem hér er til umfjöll- unar. Það er útskýring á helstu þáttum í guð- fræði Marteins Lúth- ers, föður þeirrar kirkjudeildar sem flestir íslendingar til- heyra. Margir helstu þættir guðfræði Marteins Lúthers eru út- skýrðir í þessari bók með hliðsjón af túlkun hans á Jóhannesarguðspjalli frá árunum 1535-40 en þá var guð- fræðihugsun hans að mestu fullmót- uð og siðbótin orðin fost í sessi. Oftast hefur Lúther verið túlkað- ur út frá trúarreynslu sinni og at- höfnum við upphaf siðbótar og skýr- ingum hans á Páli postula sem eru frá yngri árum hans er guðfræði hans var í mótun. í formála segir að guðfræði Lúthers hafi lítið verið skýrð út frá túlkun hans á Jóhann- esarguðspjalli. Þetta verk er því ut- an meginstraums Lúthersrann- sókna síðustu áratuga og nýtt framlag til þeirra. Reynt er að kynna Lúther sem mest með eigin orðum og margar tilvitnanir í verk hans hafa venð þýddar á íslensku. Helstu spurningar sem leitast er við að svara eru: 1. Hvaða guðfræðihefð styðst Lúther við? 2. Hvaða hefðum hafnar hann? 3. Hverjar eru helstu nýjungar í guðfræði hans? Jafn- framt eru helstu þættir Lúthers- rannsókna kynntir. Bókin skiptist í þrjá aðallhluta: Forspjall, Kristsfræði og Líf í trú. í Forspjalli er saga Lúthersrann- sókna rakin, fjallað um aðgreiningu lögmáls og fagnaðarerindis, hinn hulda og reiða Guð og samviskuhug- takið. Efni Kristsfræðihlutans er Jesús sem orð Guðs, holdtekjan, tvenns konar eðli Krists, friðþæg- ingin og tengsl dauða og upprisu Krists út frá Æðstuprestsbæninni í 17. kafla Jóhannesarguðspjalls. Þriðji aðalhlutinn, Líf í trú, fjallar um bænina, réttlætinguna af trú, prófun trúarinnar, trú og skynsemi og trúna andspænis afhelgun ver- aldarinnar. Þessi bók gefur góða mynd af miklum hluta guðfræði Marteins Lúthers og sögu margra hugmynda hans í hefð kirkjunnar. Að baki því liggja margra ára fræðistörf höfund- ar sem hefur efnið á valdi sínu. Ólíkt mörgum guðfræðiritum er þessi bók áhugaverð aflestrai’ og lesandinn nær óvenjugóðu sambandi við höf- undinn. I niðurlagi bókarinnar er guðfræði Lúthers heimfærð inn í að- stæður nútímamannsins og notuð sém svar við tilvistarkreppu hans. Þar segir meðal annars: „Erfiðleikar mannsins í nútímanum felast í því að hann hef- ur lokað sig inni í sjálf- sköpuðum heimi og er fangi í einveru og ein- semd með sjálfum sér...Leiti maðurinn Guðs í Ijósi sjálfskap- aðra mælikvarða finn- ur hann ekki persónu- legan Guð, heldur hinn hulda Guð. Guð nálgast manninn á allt annan hátt en maðurinn telur í ljósi skynsemi sinnar. Guð mætir manninum í orði, hinu talaða orði manna um orð Guðs sem er Jesús Rristur.“ (bls. 505-6) Þessari bók er ekki ætlað að vera tæmandi umfjöllun um guðfræði Marteins Lúthers og ekki er fjallað beint um mörg mikilvæg atriði guð- fræðinnar svo sem sköpunarguð- fræði, tveggja ríkja kenninguna, kirkjuna, skírn og sakramenti. Höf- undur vonast þó til að geta bætt um betur með útgáfu annarrar bókar síðar. Band bókarinnar og allt útlit er vandað. Framsetning höfundar er skýr og ber þess vott að hann er ná- kvæmur vísindamaður. Ef setja má út á eitthvað þá er íslenskan ekki alls staðar alveg hnökralaus og heimildir sem vitnað er í eru flestar á þýsku en kostur hefði verið að gefa einnig upp heimildir á ensku þar sem fleiri eru læsir á hana. Guðfræði Marteins Lúthers er mikið ritverk, á sjötta hundrað blaðsíður. Ekkert sambærilegt rit um lúth- erska guðfræði hefur áður komið út á íslensku. Ljóst er að þetta mun verða grundvallamt um guðfræði Lúthers hér á landi um ókomin ár. Útgáfa þess er mikið afrek og vegleg gjöf til íslenski-ar kristni og sérstaklega lútherskrar kirkju á afmælisári kristnitökunnar. Höfundur og útgefendur eiga mikinn heiður skilið íyrir að ráðast í þetta mikla verkefni. Vonandi verð- m- höfundi að ósk sinni að gefa út aðra bók um guðfræði Marteins Lúthers. Þetta rit er ekki léttmeti en hentar þeim, leikum og lærðum, sem vilja öðlast djúpan skilning á guðfræði Lúthers. Kjartan Jónsson Sigurjón Árni Eyjólfsson Fjarskyldir frændur í Bláu kirkjunni kirkjunnar á Seyðisfirði. AÐRIR tónleikar á dagskrá tón- leikaraðarinnar Bláa kirkjan á Seyðisfirði verða annað kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20.30. Þá koma fram Sigurður Flosason saxófónleikari og orgelleikarinn Gunnar Gunnarsson. „í fyrstu sýnast saxófóninn og orgelið ekki eiga margt sameigin- legt. Annað hljóðfærið á sér margra alda sögu tengda guðs- húsum og helgihaldi. Hitt var fundið upp um miðja nítjánda öld og hefur fyrst og fremst ritað sögu sína í bækur djass- og dæg- urlagatónlistar, bækur sem sjaldnast eru geymdar í guðshús- um. Þegar betur er að gáð kemur í ljós að ýmislegt tengir þessi ólíku hljóðfæri, saxófónninn er knúinn áfram af mannsandanum en orgelið upprunalega af físi- belg,“ segir Muff Worden, for- stöðumaður tónleikaraðarinnar. „Þó að saxófóninn tengist djassi og dægulagatónlist en orgelið kirkjulegri tónlist, eiga bæði hljóðfærin sögu og tilveru í heimi hins. Þannig á saxófóninn sér um- talsverðar klassískar tónbók- menntir og skýtur öðru hvoru upp kollinum í sinfónískri tónlist og kammertónlist. Stöku djasstónlist- armenn hafa hljóðritað á pípu- orgel, þeirra á meðal Fats Waller og Count Basie,“ segir Muff. „Smám saman vék því hugmynd endurreisnarinnar um fjölhæfa listamenn, og hið langa dauða- stríð spunans í klassískri vest- rænni tónlistarhefð hófst. Þó að spuninn hyrfi endanlega úr meg- instraumi klassiskrar tónlistar um aldamótin nítján hundruð átti hann sér tvö örugg fylgsni, annað nýtt en hitt gamalt. Hið eldra var sem fyrr í daglegu starfí organ- ista, hitt í hinni nýju djasstónlist og öðrum tónlistarformum af afró-amerískum uppruna." „Þessir tveir fjarskyldu frænd- ur, kirkjuorgelið og djassinn, hitt- ast hér og það eru fagnaðarfund- REYKJAVÍKURHÖFN KL 18 Fólk og bátar í norðri Fóik og bátar í noröri er fljótandi far- andsýning um borð í flutningaskipinu ms. Nordwest - sýning meö einstöku safni báta frá öllum Noröurlöndun- um, Eistlandi og Hjaltlandseyjum. Flutningaskipiö Nordwest heimsaskir í sumar ellefu hafnir í sex löndum. í dag veröur leiösögn um sýninguna. wap.olis.is ir. Aðrir veislugestir eru kirkjuleg tónlist liðinna alda, klassisk tónlistarhefð og fjöl- breytt spunaform ólíkra tónlistar- tegunda," segir Muff Worden. Miðar á tónleikana má fá á skrifstofu Bláu kirkjunnar, Rán- argötu 3 á Seyðisfirði, og í kirkju fyrir tónleikana. Morgunblaðið /Amaldur Skipasýning ískipinu ms. Nordwest O J Eg m-2000 ( Þriðjudagur 27. júní Leifur heppm fór huldu höfði... LEIKLIST Theatre Thalia „LEIF THE LUCKY“ Leikhópur: Brian Samsboe, Linda Fallentin og Stephan Vemier. Hraunbyrgi, Víðistaðatúni, laugar- daginn 24. júní. ÞAÐ fór mjög leynt að á nýaf- staðinni Víkingahátíð í Hafnarfirði var boðið upp á leiksýningu danska leikhópsins Theatre Thalia sem hingað var kominn með spunasýn- inguna Leif the lueky, um landa- fundi Leifs heppna. Undirrituð mætti á fyrii’hug'aða sýningu á föstudagskvöldi en henni varð að af- lýsa vegna dræmrar aðsóknar. Á laugardeginum klukkan þrjú lék hópurinn fyrir fámennan hóp áhorf- enda sem skemmti sér konunglega á ágætri sýningu, en ekki veit ég hvemig fór um frekari sýningar sem fyrirhugaðar voru á laugar- dagskvöldi og sunnudeginum. Theatre Thalia er þriggja manna leikhópur sem hefur sjálfur sett saman bráðskemmtilegt verk um Vínlandsferð Leifs heppna. Þau lýsa verkinu sem „brjálaðri kómedíu byggðri á Vínlandsfundi víkinga fyr- ir 1000 árum“. Uppbygging sýning- ainnnar minnti mjög á sýningu Ormstunguhópsins íslenska á Gunn- laugs sögu ormstungu, sem margir íslenskir leikhúsgestir muna eftir. Með fáum en útsjónarsamlega hönnuðum leiktjöldum og leikmun- um sigldu leikararnir þrfr vestur um haf, námu land á Hellulandi, Mark- landi og Vínlandi, áttu samskipti við skrælingja og rituðu sögur á bókfell - svo nokkuð sé upp talið. Tíma- rammi leiksins spannaði nokkrar aldir og persónurnar nokkrar kyn- slóðir og brugðu leikararnir þrír sér í hin ýmsu gervi eftir þörfum. Leik- urinn var fluttur á dönsku og ensku og þeir sem ekki skildu allt sem tal- að var náðu samhenginu vel af lát- bragðinu einu saman. Hér var um vel unna og skemmti- lega leiksýningu að ræða og að- standendum Víkingahátíðarinnar er lítill sómi að hinni vægast sagt lé- legu markaðssetningu á sýningunni. Kannski þykir það ekki við hæfi að notast við nútíma fjölmiðlun á hátíð sem leitast við að endurskapa vík- ingaöldina? Eða var kannski við góðviðrið sem ríkti á höfuðborgar- svæðinu um helgina að sakast? Spyr sá sem ekki veit. En þeir þremenn- ingar í Theatre Thalia sem lögðu á sig ferðalag hingað með leikbúnað, leik- og sköpunargleði í farteskinu eiga ekkert nema heiður og þakkir skildar. Lítið þýðir þó að mæla með sýningunni því leikhópm*inn er ef- laust löngu floginn af landi brott þegar þessar línur birtast á prenti. Soffía Auður Birgisdóttir Sumarkvöld við orgelið í Hallgrímskirkju 27 tónleikar á starfsárinu EITT af því sem sett hefur svip á menningar- og listalíf Reykjavíkur- borgai’ á undanfömum sumrum er tónleikaröð Hallgrímskirkju: Sum- arkvöld við orgelið sem nú er að hefja göngu sína í áttunda sinn sunnudaginn 2. júlí og verða 27 tón- leikar við orgelið. Að þessu sinni er tónleikaröðin undirbúin í samvinnu við Reykjavík - menningarborg Evrópu 2000. Org- anistamir sem leika eru allir frá hin- um menningarborgunum og leika þeir hver og einn tónlist frá heima- borg sinni eða heimalandi. Auk tónleikanna á sunnudags- kvöldum kl. 20 leika organistamir einnig á hádegistónleikum kl. 12 laugardaginn fyrfr. Þessir tónleikar standa hálfa klukkustund. Sem íyrr em einnig hádegistónleikar á fimmtudögum í samvinnu við Félag íslenskra organleikara. Þar er í þetta sinn fitjað upp á því nýmæli að með orgelinu heyrist ýmist annað hljóðfæri eða söngrödd. Á fyrstu sunnudagstónleikunum sunnudaginn 2. júlí leikur Karstein Askeland frá Björgvin verk eftir JS Bach, Ketil Hvoslef og Max Reger. 9. júlí leikui’ Hákan Wikman frá Helsinki verk eftir Pekka Kostiain- en, JS Baeh, Philip Glass og Mauri Wiitala. 16. júlí leikur José L. Gonzáles Uriol frá Santiago de Compostela verk eftir Antonio de Cabezón, Pablo Brana, Juan Caban- illas, óþekkt spænsk tónskáld frá 17. og 18. öld, Jesús Guridi og Bemardo Juliá. 23. júh' flytur Andrzej Bialko frá Kraká verk eftir JS Bach, Mend- elssohn-Bartholdy, César Franck, Mieczyslaw Surzynski og Max Reg- er. 30. júlí leikur Andrea Macinanti frá Bologna verk eftir JS Bach, 27 tónleikar verða í Hall- grímskirkju í tónleikaröðinni Sumarkvöld við orgelið. Ottorino Respighi, Gioacchino Ross- ini og Marco Enrico Bossi. 6. ágúst leikur Luc Antonini frá Avignon verk eftir Louis Marchand, JS Bach, Mozart, Mendelssohn-Bartholdy, Saint-Saéns, Marcel Dupré og Oliv- ier Messiaen. Hinn 13. ágúst flytur Jozef Sluys frá Brussel verk eftir Peeter Cornet, Abraham van den Kerckhoven, JN Lemmens, César Franck, Alphonse Mailly og Joseph Jongen. 21. ágúst leikur á orgelið Jaroslav Túma frá Prag verk eftfr JS Bach, Jan Krtitel Kuchar, óþekkt tékkneskt tónskáld frá 18. öld, Jaro- slav Túma, Bedrich Janácek og Petr Eben. Á lokatónleikunum, 3. sept- ember, leikur Hörður Áskelsson verk eftir JS Bach, Jehan Alain, Jón Hlöðver Áskelsson (framflutningur á verkinu Súlur 2000), César Franck og Charles-Marie Widor.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.