Morgunblaðið - 27.06.2000, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 27.06.2000, Qupperneq 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Fagottfraukur með hrossalungu TÖNLIST Hveragerðískirkja BJARTAR SUMARNÆTUR Beethovcn: Píanókvartett nr. 3 í C. Schubert: Fantasía í f Op. 103 f. fjórhent pianó. LeClaire: Fiðlusón- ata í D Op. 9,3. Vivaldi: Fagott- koncert í a. Auður Hafsteinsdóttir, Guðný Guðinundsdóttir, fiðlur; Unnur Sveinbjarnardóttir, víóla; Gunnar Kvaran, selló; Georg Kleutsch, fagott; Jónas Ingi- niundarson, pfanó; Peter Máté, píanó/semball. Föstudaginn 23. júní kl. 20:30. TÓNLISTARÞRÍDÆGRA Hver- gerðinga, Bjartar sumamætur, hófst í fjórða sinn á fóstudaginn var í sól og blíðu. Eftir þakkarávarp forseta bæjarstjórnar til Tríós Reykjavíkur og Gunnars Kvaran sellóleikara, sem verið hafa uppistaða tónleikahalds- ins þar eystra frá upphafi, hófu Peter Máte, Auður Hafsteinsdóttir, Unnur Sveinbjarnardóttir og Gunnar Kvaran dagskrána með æskuverki eftir Ludwig van Beet- hoven, Kvartett nr. 3 í C-dúr fyrir píanó, fiðlu, víólu og selló. Verkið er einn af þremur slíkum kvartettum í Es, D og C (WoO 36), allir samdir í Bonn 1785, sama ár og Mozart samdi fyrri píanókvartett sinn af tveimur í g og Es (K478 og 493). Unglingsverk Beethovens ber merki fransk-þýzkrar rókókó-hefð- ar, þar sem strengirnir eru hugsaðir meir sem undirleikur við píanópart- inn en sem þátttakendur með fullum atkvæðisrétti, og er ólíku saman að jafna við meistaraverk Mozarts frá sama tíma, sem í sinni grein er jafn- afgerandi nýjung og Eroica Beet- hovens varð 18 árum síðar meðal sin- fóm'a. Það er varla hægt að segja að Beethoven hafi gefið strengjunum tækifæri nema rétt snöggvast í mið- þættinum (Adagio con espressione), bezt heppnaða þætti verksins, og klisjukennt lokarondóið er sízt með- al frumlegustu smíða Beethovens frá yngri árum. En fjörlegur flutningur bætti mikið upp, og syngjandi Adagioið var mjög fallegt. Það var áhugavert út af fyrir sig að fá að heyra þetta sjaldflutta verk. Enn áhugaverðara hefði þó verið að fá að heyra g-moll-kvartett Mozarts næst á eftir! Peter Maté og Jónas Ingimundar- son skiptu diskant- og bassahlið flygilsins á milli sín í næsta verki, Fantasíu Schuberts í f-moll Op. 103 fyrir fjórhent píanó. í forkynningu Jónasar kom fram, að fjórhend píanóverk Schuberts fylla ein sex bindi, og er hann tnílega ekki aðeins afkastamestur stórskálda fyrir þá nú vanræktu grein, heldur er fantasían eflaust líka meðal mestu meistara- verka innan hennar. Gróft sagt er hún í ABA-formi, með líflegu 6/8- rondói inni á milli harmþrunginna útkafla í punktaðri hiynjandi og nokkuð úthaldsfrek, ríflega 17 mínútur að lengd, sem er meira en virðist miðað við þær hrikalegu kröf- ur til samstillingar sem greinin al- mennt og þetta verk sérstaklega gera til flytjenda. Það var því varla við að búast að þeir kappar næðu sama árangri og píanistar sem sérhæfa sig í fjórhend- um samleik, líkt og t.a.m. tékknesku hjónin sem iéku sama verk fyrr í vor í Salnum. Leikurinn var engu að síð- ur músíkalskur og oft fallegur, einkum á rólegum og syngjandi stöð- um, þrátt fyrir að hendingamótun hefði almennt mátt vera breiðari og dýnamísk uppbygging markvissari. Til sanns vegar má þó færa að þetta eru atriði sem útheimta mánuði, ef ekki ár, í samæfingu. Finkur og loftnótur hrutu allmargar um loft í hita leiksins, en það gerði í sjálfu sér ekki svo mikið til. Verra var að kraft- mestu punkteruðu staðirnir urðu heldur harðir undir tönn, auk þess sem ótæpur fortefetill hleypti óþarf- lega miklu í graut undir lokin í tölu- verðri hljómgun kirkjunnar. Hinn dansandi þokki Fiðlusónötu Jean-Marie Leclairs undir fjórþættu kirkjusónötuformi, nr. 3 úr Op. 9, komst vel til skila í skínandi góðum leik Auðar Hafsteinsdóttur á móti Peter Máté á sembal. Tvígripin Vika í Barcelona 5. júlí frá kr. Einstakt tækifæri fyrir þá sem vilja kynnast þessari heillandi borg sem er tvímælalaust ein mest spennandi borg Evrópu í dag. Nú getur þú tryggt þér gistingu og sæti til Barcelona á frábærum kjörum. Þú bókar núna og tryggir þér sæti og gistingu, og 4 dögum fyrir brottför hringjum við í þig og segjum þér hvar þú gistir og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Verðkr, 39.990 Verð m.v. 2 í herbergi, flug, gisting, skattar, 5. júií. Austurstræti 17, 2. hæð, sími 595 1000, www.heimsferdir.is Verð kr. 34.955 Verð m.v. hjón með bam 2-11 ára, 5. júlí, flug og hótel. Síðustu 11 sætin HEIMSFERÐIR 34.955 mörgu og syngjandi voru sérlega fallega leikin, að ekki sé minnzt á tápmikinn lokaþáttinn, „Tambour- in“, sem gneistaði af fjöri. Aðeins var spurning upp á jafnvægið hvort hljómborðsparturinn hefði ekki komið betur fram á píanó, úr því fiðlan var ekki með girnisstrengi og semballinn ekki tveggja borða með „piano“ og „forte“. Það sem heyrðist af semballeik Peters á lágværari augnablikum fiðlunnar féll hins veg- ar vel að strófum Auðar, sem voru hvort eð var auðheyranlega í aðal- hlutverki frá hendi franska síðbarokktónskáldsins. Jafnvægisvandinn var einnig nokkuð áberandi í síðasta atriði tón- leikanna, konsert Vivaldis fyrii- fag- ott, strengjasveit og fylgibassa - í „a-moll“, eins og auðkenndur var í tónleikaskrá (án tillits til þess að af um 40 fagottkonsertum Vivaldis eru a.m.k. 4 í a-moll). Eða kannski öllu heldur vandi forms og litbrigða - því andstæðurnar milli „Tutti“ og „Soli“, sem skipta svo miklu í síðbarokkstíl, komu engan veginn nógu vel fram í samleik einleikshljóðfærisins við strengjakvartettinn, þar sem „ritomello“-kaflarnir voru einfald- lega leiknir sterkar en innkomustað- imir með sólistanum, í stað stærri strengjasveitar með kontrabassa. Kom það óhjákvæmilega niður á dramanu í andstæðuríkum rithætti rauða prestsins í Feneyjum og fannst manni sú ráðstöfun miklu síð- ur verjandi en t.d. þegar sumir ein- leikskonsertar Mozarts eru fluttir „a quattro", eins og stundum heyrist, enda tími þrepadýnamíkur og tölu- setta fylgibassans löngu liðinn undir lok á 8.-9. áratug 18. aldar. Burtséð frá þeirri umdeilanlegu framkvæmd var gaman að hressileg- um leik þeirra félaga í stuttum en fyrir sólistann furðukrefjandi kon- sert Vivaldis, sem hlýtur að hafa átt glettilega flinkar fagottfraukur í kvennatónlistarskóla sínum við Ospedale della Pietá - og með sann- kölluð hrossalungu, því alinlangar tónarunur og rúllöður fagottraddar- innar virtust iðulega ekki gera ráð fyrir að spilarinn þyrfti að anda. Leikur Georgs Kleutsch einkenndist ekki merkjanlega af upprunafræð- um síðari ára í barokktúlkun fremur en hjá meðleikurum hans, en þó að rómantískt víbratóið hefði ugglaust mátt minnka til málamynda var tónninn mjúkur og fallegur, og leik- urinn afslappaður og þokkafullur. Ríkarður Ö. Pálsson Nýí" *^§éiBÍkhreinsunin símí 533 3634 gsm 897 3634 Allan sólarhringinn. Reuters Að fíla málverkið MYNDLISTARMAÐURINN Teddy mundar „pentskúfinn" í dýragarðin- um í Jerúsalem. Þessi stæðilegi mál- ari er fæddur í Taílandi fyrir sextán árum og nýtur þeirrar sérstöðu í listheiminum að vera fíll af asísku kyni. Hann hélt fyrir skemmstu sína fyrstu sýningu, ásamt félögum sín- um Susan og Michaelu sem einnig eru fflar með aðsetur í fyrrnefnum dýragarði. Sotheby’s í Tel Aviv efndi í kjölfarið til uppboðs á þrjátíu verkum eftir þríeykið og rann ágóð- inn til fflaverndunar. Snillingur TOiVLIST íslenska óperan SAMLEIKUR Á KLARI- NETTOG PÍANÓ Martin Fröst og Þorsteinn Gauti Sigurðsson fluttu verk eftir Debussy, Poulenc, Anders Hillborg, Kristian Blak, Brahms og D. Lovreglio. Sunnudaginn 25. júní. TÓNLEIKAFYRIRTÆKI er nefnist Nordvest Musik og staðið hefur fyrir tónleikum á Islandi, Grænlandi og Færeyjum var með tónleika í Islensku óperunni sl. sunnudagskvöld, þar sem fram komu sænski klarinettleikarinn Martin Fröst og píanóleikarinn Þor- steinn Gauti Sigurðsson. Það er ekki auðhlaupið að því að koma sér inn á tónleikamarkaðinn hér á landi, sem sannaðist á nefndum tónleikum, þar sem áheyrendur voru í allt 13. Þarna skaust mönnum og það meii'a að segja í menningarborginni, því Martin Fröst er snillingur og hefði t.d. yngri kynslóðin haft gaman af allt að því poppaðri leikrænni túlkun og dansi einleikarans, sem auk þess að brjóta upp hefðbundnar tónleika- venjur lék alvarleg meistaraverk af hreinni snilld. Tónleikarnir hófust á fyrstu rap- sódíunni eftir Debussy og var strax ljóst að Martin Fröst er snillingur. Þrátt fyrir að leikur hans sé á stund- um yfirdrifinn í fágun getur hann „sleppt fram af sér beislinu", svo sem heyra mátti í klarinettsónötunni eftir Poulenc, er var aldeilis glæsi- lega flutt. Konsert fyrir klarinett og hljómsveit eftir Anders Hillborg, sem hér var fluttur í styttri útgáfu og hljómsveitarþátturinn fluttur af geisladiski, var hreint út sagt stór- kostlega útfærður, bæði hvað varðar leikræna og allt að því dansandi út- færslu einleikarans. Því miður var ekki neitt að lesa um Hillborg (1954) í efnisskrá og ekki heldur um Kristi- an Blak (1947), sem er færeyskt tón- skáld, en eftir hann var frumflutt skemmtilegt verk sem nefnist Dia- logue nr. 2, er var sérlega vel ilutt, svo að verkið hljómaði allt að því rómantískt. Klarinettsónatan í f-moll eftir Brahms var glæsilega flutt en eins og fyn- er sagt með nokkuð yfirdrif- inni fágun í tónmótun og túlkun, svo að heildarsvipur verksins var sér- lega fínlegur, er þó naut sin sérstak- lega í hæga þættinum, er var frá- bærlega fallega mótaður. Lokaverkið á tónleikunum var kon- sert-fantasía um stef úr La traviata eftir Verdi sem gerð var af Donato Lovreglio (1841-1907), ítölskum klarinettleikara, sem samkvæmt tísku síns tíma gerði sér mat úr vin- sælum stefjum eftir Verdi og lék sér að því að bæta við þau leiktæknitil- brigðum, sem voru að mörgu leyti skemmtilega útfærð en ekki laus við feilnótur þegai' mest gekk á í hraða og yfirferð. Þorsteinn Gauti Sigurðsson lék einstaklega vel og fylgdi einleikaran- um af nákvæmni og átti sjálfur frá- bæra spretti, sérstaklega í Brahms og Poulenc en einnig var leikur hans sannfærandi í tvíleiknum eftir Ki'istian Blak. Átti Þorsteinn þó nokkuð í þessum frábæra tónleikum, sem var mikill missir fyrir þá sem ekki mættu í íslensku óperuna sl. sunnudagskvöld, því auk þess að flutt var góð tónlist er engum vafa undirorpið að Martin Fröst er snill- ingur á klarinett hvað varðar tækni og túlkun, bæði leikræna og músík- lega, og að samleikur Þorsteins Gauta var hreint frábær að öllu leyti, svo að þessa tónleika verður vert að muna lengi. Jón Ásgeirsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.