Morgunblaðið - 27.06.2000, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000 31
LISTIR
Snilld o g stemmning
TOJVLIST
Hveragerðiskirkja
KAMMERTÓNLEIKAR
Flutt var tónlist eftir Michai Spisak,
Francois Devienne og Becthoven.
Flytjendur voru Unnur Sveinbjarn-
arddttir, Georg Kleutsch, Auður
Hafsteinsddttir, Guðný Guðmunds-
ddttir, Péter Máté og Gunnar
Kvaran. Laugardaginn 24. júní.
BJARTAR sumarnætur í Hvera-
gerðiskirkju er nafn á tónleikaröð
sem Tríó Reykjavíkur, þ.e. Guðný
Guðmundsdóttir, Gunnar Kvaran
og Peter Máté, hefur staðið fyrir
undanfarin ár, nú í fjórða sinn, og
fengið til liðs við sig tónlistarfólk í
fremstu röð. I ár eru það Unnur
Sveinbjarnardóttir, Georg
Kleutsch, Auður Hafsteinsdóttir,
Kristinn Sigmundsson og Jónas
Ingimundarson.
A tónleikunum sl. laugardag voru
flutt þrjú verk, fyrst Duetto
Concertante fyrir lágfiðlu og fagott
eftir Michal Spisak, sem Unnur
Sveinbjarnardóttir og Georg
Kleutsch fluttu. Spisak (1914—65)
var pólskur tónsmiður sem lærði
hjá Nadiu Boulanger í París og
settist þar að. Helstu verk hans eru
konsertar, ýmist fyrir eitt eða tvö
píanó, og kammertónlist. Tónmál
verka hans, svo sem ráða má af
dúettinum, er tematískt, að mestu
tóntegundabundið og nokkuð hefð-
bundið í formskipan, samanber
endurtekningar tónhugmynda.
Kleutsch er „virtúós“ á fagott og
var leikur hans og Unnar aldeilis
glæsilegur, t.d. upphafskaflinn,
Lento, sem er mjög lagrænn, skýr í
tónferli og formskipan. Allegro-
kaflarnir voru afburða vel mótaðir,
sérstaklega þó lokakaflinn. Leik-
tæknin hjá Kleutsch er stórkostleg
og tónmótunin einnig, hvort sem
leikið var á lágsviði eða hásviði
hljóðfærisins, sem Spisak notar til
hins ýtrasta eða þar sem tónmálið
skal „sungið“, sem gerir fagottið
einstaklega mannlegt hljóðfæri.
Samleikur Kleutsch og Unnar var
einstaklega góður og auk þess átti
Unnur glæsilega leiknar strófur,
enda afburðagóður lágfiðluleikari.
Annað viðfangsefnið á tónleikun-
um var kvartett fyrir fagott og
strengi eftir Francois Devienne
(1759-1803), franskan tónsmið
(sjöunda son söðlasmiðs) og flautu-
leikara, er starfaði fyrst við óper-
una í París og seinna í lúðrasveit
þjóðarvarðliðsins, sem var síðar
breytt í almenna tónlistarstofnun,
og um 1795 í „konservatoríum“
Parísar, sem síðar varð einn fræg-
asti tónlistarskóli heims. Þar
kenndi Devienne aðallega á flautu
og lagði grunninn að flautumennt
Frakka en lék þó jöfnum höndum á
óbó og fagott. Sem tónskáld náði
hann fyrst vinsældum eftir stjórn-
arbyltinguna, samdi ellefu óperur
og sérlega skemmtilega kammer-
tónlist. Fagottkvartettinn er leik-
andi lfflegt verk, sem var sérlega
vel flutt og þá ekki síst af Kleutsch,
en bæði fagottið og fíðlan, í höndum
Auðar, höfðu forustu um samskipan
tónhugmyndanna, svo sem mjög
var tíðkað á þessum tíma, en ein-
mitt Mozart mun vera meðal þeirra
fyrstu sem lögðu öllum hljóðfærum
jafnt til í útfærslu tónhugmynd-
anna.
Tónleikunum lauk með „Erkiher-
togatríóinu" eftir meistara Beet-
hoven, en þetta verk er eitt af
mörgum meistaraverkum snillings-
ins. Tríóið fluttu, auk Gunnars,
Guðný x Guðmundsdóttir og Peter
Máté. í heild var verkið hófstillt í
hraða, svo að allar tónhugmyndir
verksins komust einstaklega vel til
skila og samleikurinn var fallega
„dýnamískur“, þar sem sumar tón-
línurnar bókstaflega „sungu“, í sér-
lega vel mótuðum og yfirveguðum
leik. Það sem finna mætti að var að
hröðu kaflarnir voru einum of hæg;
ir, þótt slíkt sé auðvitað álitamál. í
hægu ferli heyrist allt en hraðinn
eykur á spennuna, eins og t.d. í
skersóinu, þar sem í einföldu tón-
ferli (upphafsstefið hreinn dúr-
tónstigi) og snöggum skiptum
stuttra tónhugmynda vantaði galsa
þann er einkennir „skérsó“ Beet-
hovens. Þá var á stundum eilítið of-
gert um áherslur, sérstaklega í
bassanum, bæði hjá sellóinu og ekki
síður píanóinu. Það er hægt að leika
svona meistaraverk á svo marga
vegu og þótt verkið í heild væri of
hófstillt í hraða var margt sem
komst einstaklega fallega til skila,
svo sem í hæga söngþættinum
(Andante cantabile), sem var sér-
lega fallega fluttur og stemmnings-
ríkur.
Jón Asgeirsson
Dverga-
steinn kom-
inn út í
Danmörku
FYRIR skömmu kom út í Danmörku
bókin Dvergasteinn eftir Aðalstein
Asberg Sigurðsson. Bókin nefnist
Dværgstenen í
þýðingu Meta
Fanö, en útgef-
andi er CDR-for-
lagí Arósum.
í umfjöllun
Berlingske Tid-
ende segir m.a.:
.. hafi skrifað
Dvergastein af
einlægni sem
danskar bók-
Islenskar barna-
bækur geti á stundum virkað gamal-
dags en ekki þessi.“ í Fyens
Stiftstidende segir m.a.: „Þetta er
grípandi og óhugnanleg bók, sem er
skrifuð á léttu og upplestrarvænu
máli.“ Ennfremur segir þar að það
sé tilhlökkunarefni að fleiri bækur
höfundarins komi út á dönsku.
Dvergasteinn, sem kom fyrst út
hjá Almenna bókafélaginu 1991,er
væntanleg í nýrri útgáfu á þessu ári.
Aðalstcinn Á.
Signrðsson
menntir skortir.
Yerð 1.588.000 kr.
Mégane Break
C__^ er kominn á kreik
Grjótliáls 1
Sírni 575 1200
Söludeild 575 1220
Mégane Break Grand Comfort
Break státar ekki aðeins af stærra farangursrými en aðrir skutbílar
í sama flokki heldur hefur hann allan þann öryggis- og þaígindabúnað
sem hugurirm gimist. Mégane Break fæst nú í sérstakri Grand Comfort
útgáfu; enn betur búinn.
Komdu og prófaðu stærri og betur búinn bíl.
RENAULT