Morgunblaðið - 27.06.2000, Síða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
„en við skulum
ekki nota orð“
Morgunblaðið/Sverrir
Herra Karl Sigurbjörnsson tekur við bókinni Leyndardómur trúarinnar
úr hendi rithöfundarins, sr. Jakobs Agústs Hjálmarssonar.
Afhent bók um
sakramentið
BÆKUR
Ljóð
LJÓÐASAFN
eftir Stefán Hörð Grímsson, Mál og
menning, Reykjavík, 2000,235 bls.
TILTÖLULEGA lítið hefur verið
rannsakað og ritað um mörg helstu
íslensku nútímaskáldin, miðað við
hvað gerist í öðrum löndum. Kemur
til fámennið, auð-
vitað, og kannski
gætir ákveðinnar
feimni gagnvart
kanónískum
skrifum. Og einn-
ig þetta gamal-
kunna: að það er
erfitt að skrifa
um ljóðlist, því
erfiðara eftir því
sem ljóðin eru
slípaðri og ljóðrænni. Umfjöllunin
hefur tilhneigingu til að blikna fyrir
umfjöllunarefninu og hring eftir
hring verður sífellt komið að því
sama: að ákveðin tegund af þögn sé
eina umfjöllunin sem ekki verður að
innantómu gjammi sem beinlínis
spillir fyrir ljóðinu.
Ljóðagerð Stefáns Harðar má ef
til vill lýsa sem svo að hún eigi sér
stað í spennunni sem myndast milli
annarsvegar þess mikilvægis - of-
uráherslu, afmörkun, vægis - sem
hvert orð er látið hafa í ljóðunum og
hinsvegar vantrúarinnar á tungu-
málinu sem tjáskiptatæki, vantrúar
sem fylgt hefur nútímaljóðagerð
einsog skugginn. Ljóðið „AUt“
(Hliðin á sléttunní) ber merki þessa:
í staðinn hugsar raaður um eitthvað sem
er fext
og hvemig því fari vindur í faxi
en við skulum ekki nota orð
fyrir alla lifandi muni ekki orð
ég bara hangi í hárinu á þér
og sjórinn er fyrir neðan
Ljóð Stefáns Harðar einkennast
af þögnum og eyðum en jafnframt
af leit að mannlegri kviku, kjarna;
þau leita á ókortlagt svæði í manns-
sálinni en í þeim er jafnframt gjarn-
an undirfurðulegur húmor. í ljóðun-
um eru orðin svipt tengslum við
tilteknar áþreifanlegar kringum-
stæður og staðsett á opnu svæði þar
sem lesandanum er látið eftir að
búa sér til nýjar kringumstæður,
nýja náttúrumynd, fyrir orðin. Og
síðast en ekki síst einkennast þau af
fágun og klassískri heiðríkju, svo
gripið sé til orðalepps.
Bækur Stefáns Harðar eru
Glugginn snýr í norður frá 1946,
Svartálfadans frá 1951, Hliðin á
sléttunni frá 1970, Farvegir frá
1981, Tengsl frá 1987 og Yfirheiðan
morgun frá 1989. Það er merkilegt
að rekja sig eftir ártölunum; margir
af módernistunum hafa aðhyllst
alkemíuna gömlu í útgáfustefnu,
ígrundað og slípað vandlega, gefið
út fátt og látið líða langt á milli
bóka, en þó gjarnan styttra á efri
árum. Útilokað er að gera upp á
milli þessara bóka en Svartálfadans
og Yfir heiðan morgun eru ef til vill
þekktastar, enda mögnuð verk. Tit-
illjóð fyrrnefndu bókarinnar ber öll
helstu höfundareinkenni sín, hnit-
miðun, hamrað myndmál - og af og
til dálítið kankvísan tón, sem síðar
má sjá meðal annars í ljóðinu góð-
kunna um fuglaskoðarana og skoð-
endur þein-a. En þannig hljómar
„Svartálfadans":
Lifrauð sólkringlan viðrar dreglana
út um syngjandi hafflötinn
og nóttin kemur í sínum gamla vagni
yfir blátt fjall.
Við blöndum kvöldskininu í fölgult vínið
og bíðum eftir nóttinni sem er að koma.
Hnötturinn snýst og löndin elta hvert
annað.
Friðlaus er snældan
sembláþráðinnvindur.
Kvöldið réttir að nóttinni strengjaspil
tímans
við lyftum glösum
og drekkum stundarskál.
Má ég bjóða í dans?
Eftir hjartslætti tímans
fólskum blóðtónum stundar
stígum við bálvígðan dansinn
og nú á að leika eftirlætið okkar
Rauðagullssinfóníuna.
Má ég einnig biðja um næsta dans
dansinn fram á nóttu allra nátta?
Kannski er Stefán Hörður þekkt-
ari fyrir styttri ljóð, fáeinar línur
þar sem hvert orð er hlaðið, ljóð
með meitlaða titla og klassísk þemu.
í ljóðinu „Mögn“ er þemað oflæti og
fylgifiskur þess ásóknarkenndin:
Verði þér dýri þóttans litazt um
hvarvetna sérðu
augntóttir fylltar svörtu hatri
reka flótta þinn.
Dýrvopnsins!
þær eru þú
ogóttiþinnoghatur
Ljóðasafn Stefáns Harðar Gríms-
sonar sætir tíðindum í íslenskri
bókaútgáfu. Bækur hans eru óað-
skiljanlegur hluti kanónu íslenskrar
ljóðlistar og fagnaðarefni að þær
skuli gerðar aðgengilegri með end-
uiútgáfu svo hægt er um vik að
kynna sér eitt okkar helsta skáld.
TONLIST
Hveragerðiskirkja
BJARTAR SUMARNÆTUR
ítalskir fornsöngvar, sönglög eftir
Wolf og Árna Thorsteinsson og
óperuaríur eftir Tsjækovskij, Verdi
og Donizetti. Kristinn Sigmundsson
bassi; Jónas Ingimundarson, píanó.
Sunnudaginn 25. júm'kl. 20:30.
LOKATÓNLEIKAR Bjartra
sumarnátta, þriggja daga tónlistar-
hátíðar Hvergerðinga, fóru fram á
sunnudagskvöldið var við þvílíka
aðsókn að kirkjubekkir hrukku ekki
til og þurfti að grípa til fjölda auka-
sæta. Af því má marka vinsældir
Kristins Sigmundssonar bassa-
söngvara, sem með Jónasi Ingi-
mundarsyni píanóleikara sér til
fulltingis hefur reynzt einhver öfl-
ugasti kraftsegull sem um getur í
hérlendu tónleikahaldi hin seinni ár,
þá sjaldan sem söngvarinn hefur átt
þess kost að vitja heimahaganna úr
amstri erlendra
óperuhúsa. Sá erill fer sem kunn-
ugt er fremur vaxandi en hitt, og því
skiljanlegt að dagskráin austan
fjalls skyldi í meginatriðum vera
óbreytt frá því er þeir félagar tróðu
upp í Salnum í Kópavogi sl. 6. jan-
úar. Gætu einhverjir hlustenda fyr-
ir hálfu ári sem komu aftur í þetta
sinn því hugsanlega hafa orðið fyrir
vonbrigðum.
Svo var þó hvorki að sjá á storm-
andi undirtektum tónleikagesta í
Hveragerðiskirkju, né heldur á
meðferð þeirra tvímenninga á dag-
skrárefninu, sem var engu lakari en
í fyrra skipti, burtséð frá votti af
einhvers konar kverkaeymslum
sem héldu örlítið aftur af söngvar-
anum í allra fyrstu lögunum og kom
honum til að fella svínslega flúraríu
Alidoros úr Öskubusku Rossinis
niður af dagskrá í seinni hlutanum.
Greinilegt var að innlifun Ki’ist-
ins í hinum ítölsku „arie antiche",
sem í janúar voru sungnar beint af
augum, hafði aukizt stórum í milli-
SKÁLHOLTSÚTGÁFAN hefur gef-
ið út, í tilefni kristnihátíðarárs,
bókina Leyndardómur trúarinnar,
bók um altarissakramentið, eftir sr.
Jakob Ágúst Hjálmarsson. Bókina
tileinkar hann þeim söfnuðum sem
hann hefur þjónað ogaf því tilefni
afhenti hann biskupi Islands, herra
Karli Sigurbjörnssyni, og fulltrúum
safnaða sinna bókina á dómkirkju-
loftinu sl. laugardag.
Að sögn sr. Jakobs er bókin sam-
in til að koma til móts við þann
tíðinni, því túlkunin var orðin miklu
persónulegri en áður, eins og sást
strax á t.d. portamento-söng hans í
Pur dicesti, o bocca bella (Lotti) og
falsettutilþrifunum í Danza,
fanciulla gentile (Durante), auk
fjölda minna áberandi núansa.
Kvefvotturinn (eða hvað það nú var)
gerði aðeins vart við sig í Lungi del
caro bene (Sarti), þrátt fyrir glæsi-
legt sostenútó, og sömuleiðis í
ítölsku smérbassaúttektinni á Malia
eftir Tosti, en söngvarinn reif sig
fljótlega upp með atvinnumennsku-
legri rútínu.
Túlkunarleg fjölbreytni Kristins,
sem í þeim efnum ber af flestum
löndum sínum óperumenntuðum,
var raunar orðin það mikil í ítölsku
fornsöngvunum, að mann grunaði
að eitthvað hlyti hann að hafa sinnt
þeim á þeytingi sínum milli söng-
húsa erlendis á undanförnum mán-
uðum. Eða hvaðan voru annars
komin innileg ástarhryggðin í
Chanson d’adieu og mjúkróma ljóð-
ræni treginn í L’ultima canzone
(bæði e. Tosti), sem svo lítið fór fyr-
ir í janúar? Nema þá Kristinn sé
einn af þessum fádæma snillingum
sem auka við sig á sjömílnastökk-
um, meðan aðrir fara fetið.
Eins og fyrri daginn gerðu hin
kaldhæðnu lög Hugos Wolf mikla
lukku hjá áheyrendum, kannski sér-
staklega súrrealísk lýsing hans á
timburmönnum, Zur Warnung (Víti
til varnaðar), og mynduðu krass-
andi andstæðu við göfugmannlegu
aríu greifans úr Eugen Onegin
Tjækovskíjs. Líkt og í janúar kom
hún í stað tveggja niðurfelldra
Wolf-laga, og vatt Kristinn sér úr
háðfuglsgervi yfir í hávelborinheitin
með jafnlítilli fyrirhöfn og kameljón
bregður litum. Arían var stórkost-
lega vel flutt, blæbrigðaauðug og af
göfugmannlegum tilfinningahita.
Að frátöldu fyrsta laginu af sjö
eftir Árna Thorsteinsson, Vorgyðj-
an kemur, sem var svolítið stirt,
myndaði sú syrpa (enn líkt og fyrri
daginn) músíklegan hátind tónleik-
anna að viti undirritaðs, og mátti
varla á milli einstakra laga sjá, því
hvert var öðru glæsilegra og sér-
mikla fjölda fólks sem hefur lært að
meta altarissakramentið á síðustu
áratugum. Bókin er ætluð leik-
mönnum og þannig ekki samin sem
fræðibók heldur til andlegrar upp-
byggingar.
„Segja má að vakning hafi orðið í
kirkjunni að þessu leyti og tengist
hún almennri eflingu helgihalds
kirkjunnar, aukinni þátttöku leik-
manna í kirkjulegu starfi almennt
en kórastarfsemi kirkjunnar sér-
staklega," segir sr. Jakob að lokum.
staklega til yndisauka þeim er
kunna að meta hið fágaða og fín-
gerða. En til að nefna eitthvað stóðu
kannski ekki sízt upp úr einlægnin
og hlýleikinn í Kirkjuhvoli, lagi sem
auðvelt er að gera væmið en Krist-
inn færði upp í æðra veldi með ein-
hverju sem ekki er of stórt upp í sig
tekið að kalla „geníalítet". Litaskal-
inn var ótrúlega breiður í þessum
oftast lágstemmdu perlum Árna í
meistaralegri túlkun Kristins, og
píanóleikur Jónasar reis þar hvað
hæst á eftirminnilegu kvöldi.
Stórskotaaríur óperusviðsins
voru síðastar á dagskrá. Fyrst heró-
ísk aría Bankós úr Macbeth eftir
Verdi sem kom í stað aríu Alidoros
úr „La Cenerentola“, síðan hin
dramatíska Dalle stanza ove Lucia
úr „Lucia di Lammermoor" eftir
Donizetti og loks D’Egitto lá sui lidi
úr Verdióperunni „Nabucco". Tón-
list fyrir stóra sali, sem útheimtir
styrk, hæð og úthald - oftast á
kostnað nálægðar og fágunar ljóða-
söngsins.
Dæmigert dálæti margra óperu-
unnenda á fyrst og fremst háum,
sterkum og löngum tónum hefur í
vitund annarra komið ákveðnu óorði
á óperusöng, a.m.k. þegar grynnst
ristir, og það kom einmitt upp í
huga undirritaðs hér, enda þótt
hvorki beri að vanmeta þörf flytj-
enda fyrir „dúndrandi" niðurlag né
heldur ósk áheyrenda um að leysa
listamennina út með myndarlegum
bravúr. Þrátt fyrir stórglæsilegan
söng Kristins í þessum aflraunum
var ekki laust við að kenna mætti
vott af grófleika á útopnari stöðum,
og músíklegt inntak, einkum þó í
síðustu aríunni, virtist manni í litlu
samræmi við smágerðari gimstein-
ana framar á dagskrá, þar sem listin
faldi listina í stað þess að útbásúna.
En það væri líklega að berja höfði
við stein að ætla sér að hrófla við
þeim straumi. Alltjent var ekki að
sökum að spyrja; tónleikagestir risu
á fætur að leikslokum við dynjandi
lófatak og náðust ekki niður fyrr en
eftir tvö róleg aukalög.
Ríkarður Ö. Pálsson
Hreinlætistæki
Öðruvísi hreinlætistæki
Margar gerðir fyrirliggjandi á lager
Sérpantanaþjónusta
OPIÐ ÖLLKVÖLD TIL KL. 21
&É% METRO
Skeifan 7 • Sími 525 0800
Stefán Hörður
Grímsson
Hermann Stefánsson
Víti til varnaðar