Morgunblaðið - 27.06.2000, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000 33
_____________LISTIR__
Karnival-stemmning
á Ingólfstorgi
Stemmningfin á sýningn Síríus-leikhópsins á Ingólfstorgi siðastliðinn
sunnudag líktist helst góðu karnivali, segir m.a. í umfjöiluninni.
LEIKLIST
Sirins Tealern
MARTIN LUTHER&
THOMASMÚNZER
Höfundur: Dieter Forte. Leik-
hópur: Harriet Abrahamsson, Heidi
Fredriksson, Niklas Groundstroem,
Mikaela Hasán, Paul Hollánder,
Robert Kock, Peter Liittge,
Markku Nylander, Paul Olin, Frank
Skog, Niklas von Wchorste, Laura
Karén, Stan Saanila, Tanja Rau-
hala, Tom Sjöberg, Am-Henrik
Blomqvist og Leo Gammals.
Ingólfstorg, sunnudaginn 25. júni.
SIRIUS Teatern er frjáls leik-
hópur fínnskra atvinnuleikara sem
stofnaður var árið 1992. Hér er um
götuleikhús að ræða, þ.e. leikhóp
sem hefur ekki fast aðsetur eða
heimilisfang. Leikhópurinn hefur
að markmiði að setja upp nýstár-
legar sýningar sem kalla mætti til-
raunaleikhús. Hann hefur aðallega
fengist við verk sem sjaldan eða
aldrei eru sett upp á fjölum
atvinnuleikhúsa.
í tilefni af menningarborgarár-
inu 2000 hefur hópurinn sett sam-
an fjörlega sýningu sem hann
ferðast um með á milli menningar-
borga Evrópu og er ætlunin að
sýna í öllum menningarborgunum
níu. Hér er um að ræða verk eftir
þýska rithöfundinn Dieter Forte
sem ber titilinn Martin Luther &
Thomas Munzer. Eins og segir í
kynningarbæklingi leikhópsins er
hér um að ræða hárbeitta satíru á
trúarhræsni og gróðafíkn, á valda-
brölt og átök innan kirkjunnar.
Leikurinn gerist á tíma siða-
skiptanna í Evrópu og eins og tit-
illinn gefur til kynna er Marteinn
Lúter meðal aðalpersóna, svo og
sjálfur páfinn í Róm. Segja má að
verkið snúist um átök í hinum
ýmsu lögum samfélagsins: Um
átök á milli kaþólikka og fylgis-
manna Lúters, sem snúast bæði
um vald og túlkun á heilagri ritn-
ingu; um stéttaátök á milli bylting-
arsinnaðra bænda og hins ríkjandi
aðals; og um átök um peninga sem
kristallast í samskiptum okurlán-
ara og skuldara hans. Þetta „graf-
alvarlega" efni er hins vegar fram-
sett af miklum ærslum og fjöri og
tónlist skipar stóran sess í sýning-
unni, sem umbreytist öðru hverju í
dans- og söngleik.
Stemmningin á sýningu Síríus-
leikhópsins á Ingólfstorgi síðast-
liðinn sunnudag líktist helst góðu
karnivali. Leikstíllinn er allur ýkt-
ur og ærslafenginn, búningar mjög
skemmtilegir og ýmissa athyglis-
verðra grasa kennir í leikmunum
(t.a.m. eru klósettburstar notaðir á
mjög nýstárlegan hátt!). Miskunn-
arlaust grín er gert að valdamönn-
um kirkju og hirðar og þeir sýndir
í sem afkáralegustum aðstæðum
(páfínn á klósettinu með harðlífi).
Slík „afkrýning" er aðalsmerki
góðra karnivala, ráðamenn dregnir
sundur og saman í háði og spotti.
Hér er um hressilega skemmtun
að ræða og ég hvet áhugafólk um
leikhús og aðra vegfarendur að
fjölmenna niður á Ingólfstorg í
dag klukkan fímm, en þá er síð-
asta sýning Síríus-leikhópsins hér
á landi.
Soffía Auður Birgisdóttir
Green Tea
Til grenningar
Fæst í apótekum DmmI um gaidl £0
Dilbert á Netinu
ég)mbl.is
ÞAÐ KOSTAR ÞIG
EKKI MIKIÐ AÐ
AUKA AFKÖSTIN
í VINNUNNI
Rekstrarleigusamningur
Engin útborgun
19.851 kr. á mánuði
Fjármbgnunarleiga
Utborgun 199.799 kr.
11.879 kr. á mánuði
R«kstrarlaiga er miBuS er við 24 mánufii og 20.000 km okstur á ári. Fjármögnunarleiga er mi6u8 vi8 60 mánuBi
og 25% útborgun, greiSslur eru án vsU. Vsk leggst ofan á leigugreiBslur en viSkomandi fær hann endurgreiddan
ef hann er me8 skattskyldan rekstur. Allt verS «r án vsk.
ATVINNUBÍLAR
FyRlRTÆKJAÞJÓNUSTA
Grjóthálsi 1
Si'mi 575 1200
Söludeild 575 1225
HYunoni
Sláttuori
Þekkt varahlutaþjónusta l,,,l,l,,,,,,,,^?/Aft|lírTeíe!ZrwíIííl,lorfíAí^««>ríSiir leilrnr 01
urvaii
Sláiu í gegn og erfiiii veriur leikur einn - Útsölustaiir um allt land
VETRARSOL
HAMRABORG 1-3- S 564 1864