Morgunblaðið - 27.06.2000, Síða 42

Morgunblaðið - 27.06.2000, Síða 42
MORGUNBLAÐIÐ 42 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000 } UMRÆÐAN * Islenska óperan - far- og staðfuglar í ís- lensku sönglífi TVEIR íslenskir söngvarar, sem getið hafa sér gott orð á er- ^féndum óperusviðum, kveðja sér hljóðs í dag- blöðum landsmanna nú um þjóðhátíðarhelgina. Þeir eru úr röðum þeirra mörgu og góðu söngvara sem hafa kos- ið að verja starfskröft- um sínum á erlendri grundu. Við heyrum og lesum oft á tíðum góða umfjöllun og gagnrýni um þessa farfugla okk- ar og fyllumst þjóðar- Ásrún stolti. Davíðsdóttir Það munu vera nokkrir tugir íslenskra söngvara starfandi víðsvegar í hinum erlenda -4 tónlistarheimi. Ekki efa ég að oft hef- ur baráttan verið erfið, fjölskyldan fjarri og þeir spurt sig hvort starf at- vinnusöngvara væri virkilega þess virði. En þeir hafa kosið sér þetta hlutskipti, á sama hátt og aðrir hafa kosið sér það hlutskipti að vinna að listsköpun sinni hér heima. Og til allrar hamingju hafa margir tónlist- armenn kosið að verja starfsævinni heima á Islandi. Þeir hafa kosið það, vitandi að það þýddi að þeir gætu ekki gengið að vinnu vísri, heldur gert sér grein fyrir að þeir yrðu að ' skapa sér atvinnutækifæri sjálfir. Tónlistin er ung atvinnugrein á ís- landi. Sinfóníuhljómsveit Islands hélt upp á 50 ára afmælið nú á vordögum og Islenska óperan er 21 árs sé miðað við frumraunina, I Pagliacci í Há- skólabíói, en 18 ára sé miðað við vígsludag heimilis óperunnar, ís- lensku óperunnar, hússins sem varð til þess að Islenska óperan hélt velli og blómstraði. Ofurhugar í íslensku sönglífi stýrðu óperunni og þar hafa verið settar upp metnaðarfullar sýn- ingar, sýningar sem hlotið hafa lof gagnrýnenda, bæði íslenskra og er- lendra. Má þar nefna óperur Verdis, Aida, La Traviata, II Trovatore og Otello, Töfraflautuna, Cosi fan tutte «^og Don Giovanni eftir Mozart, Évgeni Onegín Tjækovskys, Butterfly Puccinis, Ástardrykldnn og Luciu di Lammermoor eftir Donizetti, bama- óperur Brittens, „Búum til óperu“ og Nóaflóðið, Carmina Burana eftir Carl Orff og svo mætti lengi telja. Þessum sýningum hef- ur verið haganlega komið fyrir á litlu sviði hússins, húsið og sviðið mætti svo sannarlega bæta, en það kostar peninga og peningar hafa aldrei verið ís- lensku óperunni útbær- ir. Þjóðin hefur verið svo heppin að Kristján Jóhannsson hefur ekki kennt öllum íslenskum söngvurum að verð- leggja sig! „Eg held að það skásta sem væri gert fyrir Islensku óperuna væri að loka henni. Ég get ekki séð að ástandið sé neitt betra en það var fyrir tuttugu árum þegar Tónlist Frumkvöðlarnir skila nú óperunni til næstu kynslóðar, á brauðfótum peningalega, segir Ásrún Davíðsdóttir, en með dýrmætan reynslusjóð uppbygg- ingaráranna. J,Q IC INNRÉTTINGAR VORTILBOÐ 20-30% afsláttur Friform | HÁTÚNI6A (i húsn. Fðnix) SÍMI: 552 4420 óperan var að taka til starfa, og hef ekki orðið var við mikið skapandi starf þar nema þar sem er óperukór- inn.“ Svo mörg voru þau orð Krist- jáns Jóhannssonar í viðtalinu! Tutt- ugu ára starf vegið og léttvægt fundið. Ef til vill spretta óperukórar fullbúnir úr höfði Seifs sunnar í álf- unni, en hér á landinu bláa kostar uppbygging kórs á borð við Kór Is- lensku óperunnar mikla og óeigin- gjarna vinnu, vinnu, sem hefur ekki verið seld út á taxta Kristjáns. Það hefur verið keppikefli óperunnai- að bjóða upp á sýningar þar sem kórinn hefur notið sín, áhorfendum til óblandinnar gleði, þar hefur hann þroskast á þessum tuttugu „hallæris- árum“ undir stjórn framúrskarandi leikstjóra, en fyrst og fremst stjórn- andans, Garðars Cortes, sem hefur mótað kórinn frá upphafi og á allan heiðurinn af gæðum kórsins, þótt ekki hafi launatékki hans verið skráð- ur rneð mörgum aukanúllum. íslenska óperan, sem „skást væri að leggja niður“, hefur því alið af sér kór sem Kristján telur sér samboðið að syngja með. Þeir tónlistarmenn Gæfukort SÍBS SÍBS hefur iátið hanna og prenta kort sem ætlað er til fjáröflunar fyrir byggingarsjóð þjálfunarhúss Endurhæfing- armiðstöðvar SÍBS að Reykja- lundi. Fólk er hvatt til að senda gæfukort þegar fagnað- artilefni gefast og láta með því fjárhæð renna til að styðja sjúka til sjálfsbjargar. Afgreiðslu og sendingu korts- ins annast skrifstofa SÍBS, Suðurgötu 10, sími 552 2150 og skrifstofa Reykjalundar, sími 566 6200. cj&W-áj bchir liann móUer.íd g/Of i iHefrt dogíms •Á'náx txf bestu Osi.fr um y.efu ag yiv»g»' Operuborg Evrópu? sem hér hafa kosið að starfa hafa líka komið saman sinfóníuhljómsveit, hljómseit sem Kristján getur sungið með. Þeir eru ekki heldur á „Krist- jáns-taxta“. - Nei, íslenskir tónlistar- menn eru ekki á slíkum töxtum og það er það sem gerir ykkur kleift, kæru farsöngvarar, að syngja hér á íslandi. Það, að einhver skuli vilja leika hlutverk litlu gulu hænunnar, sá, uppskera og þreskja, svo þið getið komið heim og sungið með og við undirleik þeirra íslensku tónlistar- manna sem eru og hafa verið að byggja upp tónlistarlíf hér sl. fimmtíu ár. Við erum fámenn þjóð, listin er dýr. Fimmtíu ár - það er nú allur tím- inn sem uppbygging tónlistarlífs á íslandi hefur staðið! Rannveig Fríða er hissa, skilur ekki að ekki skuli vera hægt að skipu- leggja tvö ár fram í tímann og ráða hingað íslenska farsöngvara. Hver ræður starfsfólk tvö ár fram í tímann (jafnvel bara á íslenska taxta) sem veit ekki hvort fyrirtækið getur greitt út laun morgundagsins? Þeir sem búnir eru að ganga fyrir fjárveitinga- valdið sl. tuttugu ár eru löngu búnir að ganga sig upp að hnjám. Þeir eru útslitnir, og kannski hálfsvekktir, lái þeim hver sem vill, að söngvarar sem syngja á Kristjánstöxtum úti í hinum stóra heimi skuli vera að senda þeim tóninn, ládeyða hafi ríkt þessi tuttugu ár, verk þeirra hafi verið óþurftar- verk, engum árangri skilað, jafnvel áskorun um að loka óperunni. Frumkvöðlamir hafa lokið braut- ryðjandastarfi sínu. Þeir skila nú óperunni til næstu kynslóðar, á brauðfótum peningalega, en með dýr- mætan reynslusjóð uppbyggingarár- anna. Ég skora á ykkur, íslenskir far- söngvarar og staðsöngvarar, að taka höndum saman og sýna að þið viljið styðja íslensku óperuna, nú þegar hún á erfitt uppdráttar, styðja hana í verld. Orð ykkar ná eyrum ráða- manna og fjárveitingavaldsins. Slátr- ið ekki gæsinni þótt hún verpi bara íslandstaxta-eggjum í dag, hún á eft- ir að verpa gulleggjum í framtíðinni ef að henni er hlúð. Ég skora á ykkur: Gangið á fund nýráðins óperustjóra, Bjama Daní- elssonar, honum veitir ekki af stuðn- ingi. Gangið á fund hans, en ekki til að vita hvað óperan getur gert fyrir ykk- ur, heldur spyrjið: „Hvað get ég gert fyrir íslensku óperuna - nefndu nafn mitt ef þér liggur h'tið við!“ Höfundur er söngkennari og söngvari íKór Islensku óperunnar. EF TIL vill yrði þessi grein áhrifameiri ef ég væri innfæddur ís- lendingur, en ég vil koma þessum skrifum á framfæri af tveim ástæðum: I fyrsta lagi veit ég að margir íslendingar era sama sinnis og ég, og nokkrir hafa þegar lát- ið skoðanir sínar í Ijós í þessu blaði. í öðra lagi finnst mér ég hafa til þess sama rétt og hver annar íslendingur að gera mér væntingar um að fá eitthvað fyrir þá háu skatta sem við (öll?) greiðum hér. Guðrún Pétm-sdóttir hefur lýst með frábær- um hætti þeim verk- efnum og vandamálum sem blasa við íslensku óperanni. Hún hefur samt ekki út- skýrt hvers vegna sú leið var valin sem hlaut að leiða til uppsagnar manns sem, að því er best verður séð, uppfyllti allar kröfur til þess Menning Óperuhús sem ekki hef- ur á að skipa haefum listrænum stjórnanda er ekkert annað, segir Richard Simm, en enn ein yfírprísuð stein- steypuhöllin. starfs sem auglýst var, enda ráðinn til starfans, hóf að vinna verkið og skilaði mjög góðum árangri! Hvað er svona flókið við þetta mál? Sam- kvæmt grein sem birtist í Morgun- blaðinu fyrir nokkra var hér um að ræða ráðningaklúður fremur en persónulegan ágreining. Það var vissulega afar leitt að lesa um hvern- ig ráðningarsamningi var klúðrað. Augljóslega hafa menn mismunandi skoðanir á því hvernig reka beri óp- erahús, en að nota slíkt sem átyllu til að hrekja hæfan listrænan stjórn- anda úr starfi hlýtur að lokum að hafa neikvæð áhrif á gæði þeirra verka sem óperahúsið setur á svið. Þetta er ekki einhver menningarviti í fíla- beinstumi, heldur mjög hæfur tónlistar- maður og tónlistar- flytjandi. Hann hefur helgað sig tónlistinni og hann er afar vel að sér varðandi val á verk- efnum. Hann er ein- faldlega rétti maðurinn í þetta starf. Nú væri það vel við hæfi, þegar mönnum hafa orðið á mistök, að biðjast af- sökunar og reyna að leiðrétta mistökin. Hvers vegna var ekki reynt að telja Gerrit hughvarf og leyfa honum að halda áfram þvi starfi sem hann augljóslega vinnur svo vel? Reynsla sú og hæfni sem hann býr yfir er ekki á hverju strái. Gott óperahús hefur ekki efni á að fleygja frá sér hæfileikum þessa manns. Ekki era heldur jafn hæfir einstaklingar standandi í biðröð til að ganga í starf hans. Er það svona sem stjóm óperahússins kveður og þakkar fyrir sig, án þess að gefa honum einu sinni tækifæri til að koma í framkvæmd jafnvel broti af þeim áætlunum sem hann eflaust hefur unnið að? Þessi tónlistarmað- ur hefur veitt íslenskum söngvuram margvísleg tækifæri til að skapa sér fjölbreyttari efnisskrá. Með tilliti til þessa og frábærrar frammistöðu hans era þessi við- brögð mér með öllu óskiljanleg. Það er ekki lítið mál og ómerki- legt að svona listamaður skuli hafa séð sig tilneyddan til að rita „dapur- legasta bréf sem hann hefur nokkru sinni skrifað". Þess ber og að minn- ast að óperuhús sem ekki hefur á að skipa hæfum listrænum stjórnanda er ekkert annað en enn ein yfirprís- uð steinsteypuhöllin. Á Menningar- borg Evrópu virkilega ekki betra skilið? Höfundur er píanóleikari Richard Simm Fj árhags vandi íþrdttafé- laga - hugmynd að lausn EINS og almenning- ur veit hrjáir fjárhags- vandi mjög mörg íþróttafélög hér á landi. Þessi vandi virðist fara vaxandi og oftar en ekki endar hann á borði sveitastjómanna sem neyðast til að reiða fram fúlgur til að bjarga málunum. Margar ástæður era fyrir þessu og má nefna sem dæmi að sífellt dregur úr styrkjum, sníkjum og sölumennsku því að miklu fleiri aðilar en íþróttafélögin nota þessa aðferð nú en áður var. Fólk hefur nóg annað að starfa og er upptekið og eins era margir orðnir þreyttir á þessari söfnunarað- ferð. Meiri kröfur í dag era kröfur sífellt meiri um að þjálfarar séu með einhverja menntun og svört vinna er á undanhaldi og verður þetta allt dýrara fyrir félögin. Æfingakostnaður verður hærri fyrir iðkendur og þetta leiðir hvert af öðra. Félögin hafa löngum fengið alls konar styrki frá bæjarfélögunum upp í kostnað og oft hefur sá styrkur rann- ið til meistaraflokkanna. Nú era fleiri og fleiri félög að skilja unglingastarfið frá og jafnvel að stofna hlutafélög í kringum meistaraflokkana og er þaðvel. Ég er á þeirri skoðun að bæjarfélögin eigi að stíga skrefið til fulls og greiða í sérhvert viður- kennt íþróttafélag sem sinnir unglingastarfi, einhvers konar pott sem þjálfarar geta sótt laun sín í. Þessi pottur yrði eingöngu fyrir barna- og unglinga- starfið. Þannig fengju þjálfararnir laun sín greidd úr potti félagsins og má nefna sem dæmi um þetta að kennarar tónlistaskóla fá laun sín frá bæjarfélögunum. Bæjar- félagið byggir og rekur mannvirkin og greiðir launin - og hvað er þá eftir? Ekkert dýrara Foreldrar geta lagt eitthvað af mörkum og sá peningur færi í bolta og önnur leiktæki, einnig ferðalög og fleira. Bæjarfélögin þyrftu ekki leng- ur að taka á móti öllum erindunum varðandi styrki. Iþróttafélögin skil- uðu svo kvittunum frá þjálfuram eftir hvert ár og með því væra öll fjármál á hreinu. Ég efast um að þetta yrði bæjarfélögunum miklu dýrara þegar allt er tínt til en ég hef nýlega kynnt íþróttastarf Greiðslan úr sameigin- legum sjóði yrði fyrir börn og unglinga, segir Ásdis Ólafsdóttir, og síðan verða stóru karl- arnir og konurnar að bjarga sér sjálfar. mér þjálfarakostnað hjá nokkrum stóram félögum. Það er hægt að fyrirbyggja skulda- söfnun sem loðir við mörg félög sem treysta á bæjarfélagið. Greiðslan úr sameiginlegum sjóði yrði fyrir böm og unglinga og síðan verða stóra karl- arnir og konurnar að bjarga sér sjálf- ar. Gaman væri að reyna þessa aðferð sem ég tel að muni verða ofaná í framtíðinni og er ég viss um að það væri öllum til góðs. Það er bara spuming hvaða sveitarfélag verður fyrst og ég er viss um að það verður Kópavogur eins og í svo mörgum öðr- um málum sem tekið er á með mynd- arbrag. Höfundur er fþróttakennari og varabæjarfulltrúi i Kópavogi. Ásdís Ólafsdöttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.