Morgunblaðið - 27.06.2000, Síða 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Hundalíf
Spotti.
Sæll brdðir góður.
Þú lítur vel út.
„Vel“, að teknu
tilliti til aðstæðna.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavik • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Hljóðfæri Beethovens.
A slóðum meistar-
anna með Ingólfí
Frá Hermanni Sveinbjörnssyni
HINN 4. júní sl. hélt 38 manna hóp-
ur undir leiðsögn Ingólfs Guð-
brandssonar í tíu daga ferð til
Austurríkis og Tékklands á slóðir
mestu stórsnillinga tónlistarsögunn-
ar. Ferðin var í beinu framhaldi og
nokkurs konar hápunktur nám-
skeiðs Ingólfs um klassísku meistar-
ana á sl. vetri. Ferðin var pflagríms-
ferð í heimabæ og dvalarstaði mesta
undrabarns og fjölhæfasta stórsnill-
ings tónlistarsögunnar fyrr og síðar,
Wolfgangs Amadeusar Mozarts, í
Salzburg, Vín og Prag. I Vínarborg
var að sjálfsögðu einnig lögð rík
áhersla á líf og sköpun meistara
Beethovens og stórsnillingsins
Franz Sehuberts.
í ferðinni allri sótti hópurinn tón-
leika í heimsklassa nánast á hverju
kvöldi, en aðgöngumiðar voru allir
löngu fráteknir á vegum Ingólfs af
einstakri fyrirhyggju og fag-
mennsku. Hápunkturinn í tónleika-
veislu hópsins var flutningur á
Töfraflautu Mozarts í Vínaróperunni
fimmtudaginn 8. júní sl.
í allri ferðinni í langferðabifreið
hópsins fléttaði fararstjórinn saman
leiðsögn, söguskýringum og tónlist-
arflutningi af slíkri fagmennsku,
þekkingu og innlifun að unun var á
að hlýða. Samdóma álit farþeganna
er að einn áhrifamesti hápunktur
ferðarinnar hafi verið ávarp Ingólfs
við styttu Beethovens í Heiligen-
stadt, úthverfi Vínarborgar. Þar tár-
uðust margir tónlistarunnendur
þegar Ingólfur lýsti sálarstríði Beet-
hovens og hvemig hann öðlaðist aft-
ur trú á lífið og tilganginn á þeim
stað og staðfesti í hinu fræga
Heiligenstadt-testamenti sínu.
Ævistarf Ingólfs Guðbrandssonar
er einstakt og ótrúlegt. I rúmlega
hálfa öld hefur hann af hugsjón verið
brautryðjandi á heimsmælikvarða í
kennslu, kórstarfi og ferðum á vit
menningar, lista og fegurðar. Rauði
þráðurinn í gegnum allt starf Ingólfs
er mannrækt, hugljómun og hið já-
Ingólfur ávarpar hóp þijátíu og
átta íslendinga við styttu Beet-
hovens í Heiligenstadt í Vínar-
borg.
kvæða hugarfar. Alsjáandi maður
getur oft þurft aðstoð manns eins og
Ingólfs til að lýsa upp sálina og þann-
ig njóta og skynja sanna fegurð og
listsköpun. Það getur talist sannkall-
að afrek að ná að opna sálarglugga
sumra og draga gardínuna frá þar
sem þungi og drungi ríkir. Ég er
sannfærður um að ferð með Ingólfi
hefur fyrir margan íslendinginn ver-
ið ígildi Heiligenstadt-heilunar, þar
sem menn líkt og Beethoven öðluð-
ust nýja trú á lífið og náðu aftur lífs-
gleði, jákvæði og forvitni - eiginleik-
um sem eru undirstaða allra
framfara og sköpunar mannsandans.
Lífsstarf Ingólfs Guðbrandssonar
er óður til gleðinnar og lífsnautnar í
besta og fýllsta skilningi þeirra orða.
Hafi hann ævarandi og heila þökk
fyrir.
HERMANN SVEINBJÖRNSSON,
Kjartansgötu 7, Reykjavík
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.