Morgunblaðið - 27.06.2000, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000 57
I DAG
BRIDS
Ilmsjón (luAmundiir
l’áll Ariiarsnn
NORÐURLANDAMÓTIÐ í
opnum flokki og kvenna-
flokki hefst í dag á Hótel Örk
í Hveragerði, en mótið er
haldið annað hvert ár. ísland
vann sinn. fyrsta sigur í opna
flokknum í Reykjavík 1988.
Arið 1990 vannst kvenna-
flokkurinn í Færeyjum, opni
flokkurinn vannst aftur 1992
í Svíþjóð, og enn aftur 1994 í
Finnlandi, en 1996 og 1998
enduðu Islendingar í öðru
sæti. Norðmenn eru ríkjandi
meistarar í opna flokknum,
en Danir í kvennaflokki.
Tveir spilarar úr norska lið-
inu 1998 eru meðal þátttak-
enda nú, en það eru Boye
Brogeland og Erik Sæl-
ensminde, en með þeim spila
nú Tom Höyland og Geir
Brekka. Þeir Erik og Boye
fengu verðlaun fyrir bestu
sagnröðina í eftirfarandi spili
úr mótinu 1998:
Suður gefur; NS á hættu
Norður + DG72 vD ♦ A10853 + KD10
Vestur Austur
♦Kl09 +64
* K972 vG864
♦ KG74 ♦ D962
+96 +742
Suður
AÁ853
»Á1053
♦ -
+ÁG853
Vestur Norður Austur Suður
1 iauf
Pass 1 tíglll] Pass 1 hjarta
Pass 1 grand Pass 2 spaðar
Pass 3spaðar Pass 41auf
Pass 4 hjörtn Pass 4grönd
Pass 5lauf Pass ötfglar
Pass 6iauf Pass 6spaðar
Pass Pass Pass
Kerfið er eðlilegt að grunni
til, en þeir luma á ýmsum
tæknibrellum. Tígulsvarið er
annaðhvort veikt með langan
tígul eða geimkrafa með
minnst fjóra. Suður myndi
segja grand með hálit og
jafna skiptingu, svo hann lof-
ar minnst fimmlit í laufi til
hliðar við hjartað með með
endursögn sinni á einu
hjarta. Grandsögn norðurs
er krafa í þeirra kerfi, en síð-
an lýsir suður skiptingunni
að fullu með tveimur spöðum
og eftir að norður styður
spaðann taka við fyrirstöðu-
sagnir. Það er eftirtektarvert
að norður hirðir ekki um að
sýna tígulásinn á móti sann-
aðri eyðu, né heldur svara
honum við fjórum gröndum,
sem er lykilspilaspuming.
Fimm tíglar er spuming um
trompdrottningu, sem norð-
ur sýnir ásamt laufkóng með
sex laufum.
Slemman er góð og ætti
a.m.k að vinnast oftast í 3-2-
tromplegu. Erik var í suður
og fékk út tígul. Hann
trompaði og spilaði smáum
spaða að blindum, sem vest-
ur tók og spilaði aftur spaða.
Það var tekið með ás, laufi
spilað á kóng til að trompa
tígui og eftir hjartaás og
stungu var síðasta trompið
tekið og lagt upp. Tólf slagir.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
núiner. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Arnað heilla
/7A ÁRA afmæli. I dag
i U þriðjudaginn 27. júní
verður sjötugur Þórarinn
Þórarinsson, bygginga-
meistari og kennari, Mána-
braut 9, Kópavogi. Þórar-
inn verður að heiman á
afmælisdaginn en mun láta
andvirði afmæliskaffis
renna til Umhyggju, félags
til stuðnings langveikum
börnum og biður hann þá
sem hugðust gleðja hann
með skeytum og gjöfum á
afmæhsdaginn að láta Um-
hyggju njóta þess. SPRON
1150 reikn: 26-653 Um-
hyggja kt. 691086-1199.
F A ÁRA afmæli.í dag,
U U þriðjudaginn 27.
júni, verður fimmtugur
Tryggvi Þór Aðalsteinsson
framkvæmdastjóri Brev-
bararegatan 5 i Örebro Sví-
þjóð. Eiginkona hans er
Svanhvít G. Ingólfsdóttir. Á
afmælisdaginn taka þau á
móti gestum á heimili sínu í
Örebro.
SKAK
limsjón Helgi Áss
(irétarsson
ALÞJÓÐLEGI meistarinn
Manuel Bosboom (2.461) er
íslenskum skákmönnum vel
kunnur, en þó sér-
staklega hafnfirskum
þar sem hann er
meðlimur í Skákfé-
lagi Hafnafjarðar. Á
hollenska meistara-
mótinu voru honum
oft mislagðar hendur
eins og framvinda
stöðunnar gegn stór-
meistaranum Jeroen
Piket (2.633) leiddi í
ljós. 30. ... Hxb2! 31.
Hxb2 Hvítur tapar
manni eftir 31. Dxb2
Bxe4. 31. ... Dcl+
32. Kh2 Bxe4 33.
Bxe4 He6! 34. Db8 Eftir
hið eðlilega svar 34. Dd4
hefur svartur unnið tafl
með 34. ... Hxe4! 34. ...
Hxe4 35. Hb6 Hh4+ 36.
Kg3 Dhl 37. Kf3 Ddl+ og
hvítur gafst upp þar sem
eftir verður 38. Kg3 Dg4 er
hann mát.
“mrr'
k k Í
. ■/ : ■
Al
2 ........
■
Svartur á leik.
Með morgunkaffinu
O
Má ég fá hamarinn
þinn lánaðan, Þór?
Þú deyrð úr hlátri þeg-
ar þú sérð myndbandið
frá skíðaferðinni okkar.
UOÐABROT
Stormur
Ég elska þig stormur, sem geisar um grund
og gleðiþyt vekur í blaðstyrkum lund,
en gráfeysknu kvistina bugar og brýtur
og bjarkirnar treystir, um leið og þú þýtur.
Þú skefur burt fannir af foldu og hól,
þú feykir burt skýjum frá ylbjartri sól,
og neistann upp blæs þú og bálar upp ioga
og bryddir með glitskrúði úthöf og voga.
Þú þenur út seglin og byrðinginn ber
og birtandi, andhreinn um jörðina fer.
Þú loftilla, dáðlausa lognmollu hrekur
og lífsanda starfandi hvervetna vekur.
Og þegar þú sigrandi um foldina fer,
þá finn ég, að þrótturinn eflist í mér.
Ég elska þig kraftur, sem öldurnar reisir.
Ég elska þig máttur sem þokuna leysir.
Ég elska þig, eiska þig eilífa stríð,
með ólgandi blóði þér söng minn ég býð.
Þú alfrjálsi loftfari, hamast þú hraður.
Hugur minn fylgir þér djarfur og glaður.
Hannes Hafstein
STJÖRNUSPA
eftir Frances Drake
KRABBI
Afmælisbarn dagsins:
Pér hættir til að horfa
á málin um offrá eigin
sjónarhóli. Mundu að aðrir
hafa líka sitt að segja.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Þú þarft að skapa þér
betri yfirsýn yfir verkefni
þitt. Áð öðrum kosti áttu
það á hættu að geta ekki
lokið við það.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þér finnast of margir
sækja að þér í einu og vilt
því leita uppi einveruna.
Gættu þess þó að brenna
ekki allar brýr að baki þér.
Tvíburar . ^
(21. maí - 20. júní)
Þér hefur gengið vel að
vinna aðra til liðs við þig
og nú reynir á forystu-
hæfileika þína að leiða
málið til lykta.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þegar allt kemur til alls er
það vináttan sem skiptir
mestu máli. Sinntu því vin-
um þínum og gefðu þér
tíma til að hlusta á þá.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) m
Þú hefur engar efasemdir
varðandi markmið þín og
átt því auðveldara með að
fá fólk til samstarfs við
þig. Rómantíkin blómstr-
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.) <SÍk
Það er engin skömm að
því að skipta um skoðun ef
öll rök hníga til þess. Fjör-
ug skoðanaskipti eru alltaf
til ánægju.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú ert glaðlyndur og öll
samskipti ganga vel bæði í
starfi og einkalífi. Nú er
rétti tíminn til að ganga að
samningaborði.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú munt komast að því að
hæfileikar þínir liggja á
mörgum sviðum. Finndu
þeim þvi farveg þar sem
þeir fá notið sín.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. des.) AO
Hugmyndaauðgi þín dreg-
ur langt í samkeppni við
aðra. Búðu þig samt undir
harða samkeppni sem þú
þó átt að geta sigrast á.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) 4MP
Nú þarftu að taka á hon-
um stóra þínum í fjármál-
unum. Gættu sérstaklega
að útgjöldunum og dragðu
þau saman eftir mætti.
Vatnsberi , .
(20. jan. - 18. febr.) eÍ®
Þú veltir fyrir þér lífinu og
tilverunni þessa dagana.
Gefðu þér tíma til að njóta
fegurðar náttúrunnar með
þínum nánustu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars) >%■»
Það er svo sem gott og
blessað að gera áætlanir
en gakktu ekki svo langt
að þú hafir ekkert svigrúm
fyrir sjálfan þig.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
EVO-STIK |
TRELIM
«< evo-stik|
ÞÉTTIEFNI
ÁRVÍK
ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
ÁRVÍK
ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
Ertu að breyta? Ertu að flytja? Ertu að breyta um stíl? 25% afsláttur í nokkra daga Antikhúsgögn, ljósakrónur, lampar, veggklukkur, gömul dönsk postulínsstell. Raðgreiðslur
Antik er fjárfesting Antik er lífsstíll Opið mán.—fös. kl. 12—18 og iau. kl. 11—17.
— Þú finnur ýmsa valkosti hjá okkur —
Viktoria Antik • Grensásvegi 14 • Sími 568 6076
Fræðsluauglýsing frá Landlæknisembættinu
www.landlaeknir.is
Lífið er línudans
Okkur getur auðveldlega skrikað
fótur á lífsins leið, en afleiðingarnar
þurfa ekki að vera alvarlegar,
því mikill munur er á fífldirfsku
og fyrirhyggju.
Áhætta er eðlileg í daglegu
umhverfi okkar.
Hafðu vaðið fyrir neðan
þig og hugsaðu um
afleiðingar gerða þinna:
• Snertu ekki fíkniefni.
Ein tilraun getur gert
útaf við þig
• Spenntu beltin og aktu hægar
en þig langar til
• Njóttu kynlífs með fullri
meðvitund og notaðu smokkinn
• Óvissuferðir eru frábærar en ekki án fyrirhyggju
• Reykingar eru aldrei áhættunnar virði
• Ef þú notar áfengi notaðu það í hófi
• Ekki gleyma hvíldinni, reglubundinn svefn er öllum nauðsynlegur
Lifðu lífinu lifandi og njóttu þess!
Landlæknisembættið
■>
HUGSKOT
Brúðkaupsmyndatökur
Nethyl 2, sími 587 8044
Kristján Sigurðsson, Ijósmyndari