Morgunblaðið - 27.06.2000, Side 59

Morgunblaðið - 27.06.2000, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000 59 FÓLK í FRÉTTUM TðNLEIKAR Háskólabfó SELMA BJÖRNSDÓTTIR Útgáfutónleikar Selmu Björnsdótt- ur í Háskólabiói laugardaginn 24. júní ásamt hljómsveit undir stjórn Þorvalds Bjarna Þorvaldssonar. ÞAÐ MÁ segja að tónleikar Selmu Bjömsdóttur síðastliðinn föstudag hafi að vissu leyti verið í sérflokki. Þar sem popptónleikar eru vanalega haldnir seint að kvöldi til í einhverju öldm'húsanna og gestir eru milli tví- tugs og fertugs var nokkuð skemmti- leg nýbreytni að mæta í Háskólabíó klukkan tvö efth’ hádegi þar sem barnakösin gekk í bylgjum og meðal- aldur var, lauslega áætlað, um 12 ár. Áður en í tónleikasalinn kom gat að líta ægimarga og stóra auglýsinga- fána frá Mjólkursamsölunni og af- hent var forláta derhúfa við inngang- inn. Einhvem veginn verða tónlistarmenn að fjánnagna list sína... eða iðn, hugsaði ég með mér. Salurinn var smekkfullur og stjömumar í augum bamanna lýstu hann upp þegar Selma steig á svið í alh-i sinni neonbleiku dýrð. Hún olli þeim ekki vonbrigðum, enda afbragðs skemmtikraftur og sjarmerandi söngkona sem stjómaði sýningunni af öryggi og hressileik, jafnt hljóm- sveit og dönsurum sem áhorfendum. Ekki slæm fyrirmynd fyrir ungviðið. Textamh' við lögin á dagskránni vom allir á ensku nema viðlagið í einu þeirra, Respect Yourself. Ég fór ekki að velta því neitt sérstakiega fyrir mér fyrr en frasar eins og „put your hands together“, sem þýðir á góðri ís- lensku: klappið saman lófunum fóra að renna af vöram Selmu á milli laga. Þá vai'ð mér litið á bömin sem sátu sitt hvoram megin við mig og athug- aði hvort stjömurnar í augum þeirra hefðu nokkuð breyst í spurningar- merki. Svo var ekki, aðdáun þeirra vai’ hrein, athyglin óskipt. Þegar heim kæmi myndu þau kannski fara í Selmuleik, syngja lögin hennar og segja „put your hands together" fyrir framan spegil. Þegar svo tvö gömul Todmobile- lög vora dregin ofan af háaloftinu og í ljós kom að textunum við þau hafði verið snúið á ensku fór ég að spyrja mig spuminga. Hér voram við stödd í Reykjavík, á tónleikum þar sem meirihlutinn var íslensk börn og text- unum hafði verið snúið af móðurmáli þeirra og yfir á ensku. Hver var til- gangurinn með því? Vora Selma, Þor- valdur Bjami og félagar þeirra að æfa sig fyrir heimsreisuna? Viidu þau vita hvernig „put yom- hands togeth- er“ hljómaði í Háskólabíói áður en lengraværi haldið? Vindurinn undir vængjunum Ég var f\jót að bægja þessum hug- leiðingum frá til þess að einbeita mér að tóniistinni, því um hana snýst þetta nú allt saman, eða hvað? Það var gam- an að sjá hvemig hjjómsveit og bak- raddir sameinuðust sem einn hugm- í flutningnum undir söng Selmu, enda sannkallaðir fagmenn á ferðinni. Þeir voru óbrigðult úrverk sem missti aldrei úr slag, tryggur vindm- undir vængjum Selmu. Hljóðfæraleikaram- ir vissu hver stjaman var og vora því ekkert að hafa sig meira í frammi en til var ætlast en gerðu það líka vel. Það var einna helst Kjartan Valdimarsson hljómborðsleikari sem slysaðist til að sýna örlítil tilþrif. Morgunblaðið/Sverrir „Hún [Selma] hefur röddina með sér auk þess að hafa þá heillandi návist sem poppstjömur þurfa að hafa til að ná langt á sínu sviði, eins og sýndi sig í Háskólabíói," segir m.a. í dómnum. Lögin á dagskránni sem ekki vora gamlir diskó- eða poppsmellir eftir ýmsa erlenda höfunda vora flest eftir Þorvald Bjarna. Ef til væri eitthvað sem héti „meðal-lög“ ætti það mjög vel við þau sem flutt vora. Þ.e. lög sem allir geta sungið með og margir haft gaman af, lög sem 900 gestir Há- skólabíós vora komnir til að heyra og njóta. Dægurflugur augnabliksins sem eflaust verður skipt út fyrir ótal aðrar á hraða poppsins en enginn spáir í það hvorki á líðandi stund né síðar meir. Þegar kom að því að flytja smellinn góðkunna All out of luck var „smekkvísinni gefið frí í stundar- korn“, eins og sessunautur minn komst að orði. Áður en uppranalega útgáfan af því var flutt var spiluð endurhljóðblöndun af laginu af bandi. Selma yfirgaf þá sviðið, þrír dansarar komu inn hennar í stað og hljómsveitin sat aðgerðalaus. Meira að segja rödd Selmu hljómaði af bandi og höfundur endurhljóðblönd- unarinnar ekki nefndur einu orði. Þetta var afskaplega einkennileg uppsetning, reyndar fullkomlega hallærisleg og stakk nokkuð í stúf „Salurinn var smekkfullur og sljörnurnar í augum banianna lýstu hann upp þegar Selma steig á svið í allri sinni neon- bleiku dýrð,“ segir Kristín Björk m.a. í dómnum. því þangað til hafði sýningin virkað ágætlega sem slík. Selma er ágæt söngkona og mikill kraftur í henni, það verður að segjast eins og er. Hún hefur röddina með sér auk þess að hafa þá heillandi ná- vist sem poppstjörnur þurfa að hafa til að ná langt á sínu sviði, eins og sýndi sig í Háskólabíói. Salurinn bókstaflega stóð eða settist, klappaði saman lófunum eða setti upp derhúf- ur fyrir Selmu eins og viljalaus verk- færi í hennar höndum. En líkt og þeg- ar eldað er ofan í mikinn fjölda fólks á maturinn það til að verða dálítið bragðdaufur. Hvar var neistinn og metnaðm’inn? Af hveiju semja Þor- valdur Bjarni og Selma ekki ný lög í stað þess að jaska út gömlum Tod- mobile-lögum? Er ástæðan hug- myndaleysi eða ótti við að taka áhættu og koma með lög sem leggjast ekki nógu vel í fjöldann? Annars er það auðvitað frjálst val tónlistarfólks hvort það kemur fram við tónlistina sem listgrein eða iðn. En er þetta draumur bamanna sem fara í hljóm- sveitaleiki, dansa hliðar saman hliðar °g syngja í hárbursta fyrir framan spegil? Kristín Björk Kristjánsdóttir Klappið saman lófunu Kr.3.995,- Vindhani 24 ál/ svartur Skráðu þig |) / vefklúbhinn www.husa.is verð Garðkanna 7,5 1 HÚSASMIÐJAN Sími 525 3000 • www.husa.is Kr.1.995,- Hitaniælir inni/úti digital -10"+70"C skynjari dregur 2,8m-max/min

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.