Morgunblaðið - 27.06.2000, Síða 60

Morgunblaðið - 27.06.2000, Síða 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Jobeth Williams, Jeff Goldblum, Mary Kay Place, Tom Berenger, William Hurt, Meg Tilly, Kevin Kline og Glenn Close í The Big Chill. LAWRENCE KASDAN Kathleen Turner er ein eftirminnilegri „femme fatale" hvíta tjaldsins á ofanverðri 20. öld en er engu að síður svo gott sem gleymd og grafin. Hér er hún ásamt Willliam Hurt í Body Heat. Á TÍMABILI virtist sem hand- ritshöfundurinn og leikstjúrinn Lawrence Kasdan væri að tryggja sig í sessi sem vænlegasti kvik- . myndagerðarmaður Banda- ríkjanna. Handrit hans voru eftir- sóknarverð, bæði vitræn og með afbragðsafþreyingargildi í senn. Honum var líkt við menn eins og Woody Allen sem hafa staðist betur timans tönn. Á niunda áratugnum og við upphaf þess tiunda kom hver gæðamyndin frá Kasdan sem siðan hefur ekki náð fyrra formi. Kasdan er fæddur fyrir 51 ári á Miami Beach í Flórída. Hugðist gerast enskukennari í framtíðinni er hann útskrifaðist frá Michiganháskóla en leiðin lá til Chicago þar sem hann sneri sér í þveröfuga átt og fór að skrifa auglýsingatexta sem sumir unnu til verðlauna. Kasdan reyndi snemma fyrir sér við kvikmynda- ' handritaskriftir en varð lítið ágengt uns hann komst i félagsskap George Lucas síðla á áttunda ára- tugnum og átti hlut í frábæru hand- riti The Empire Strikes Back (’80) og samdi síðan sögu og skapaði persónu Indiana Jones í annarri metaðsóknarmynd, Raiders of the Lost Ark (’81). Hlutdeild í handritum tveggja vel skrifaðra metaðsóknarmynda er gildur farseðill í leikstjórastólinn og fyrsta afurðin var enn ein há- gæðamyndin, Body Heat (’81). Vel skrifuð, stýrð og leikin og nú stóðu hinum rétt þrítuga Kasdan allar dyr opnar í kvikmyndaborginni. Continental Divide (’81) var skrifuð af Kasdan og framleidd og tókst illa til á báðum vígstöðvum. Ævin- týramynd úr Klettafjöllunum með John Belushi þótti þunn í roðinu og gekk illa. Betur heppnaðist sam- starf hans við Lucas, þeir skrifuðu í bróðerni handrit þriðju Stjörnu- stríðsmyndarinnar, The Retum of the Jedi (83). Sama ár var einnig frumsýnd The Big Chill, ein besta mynd Kasdans fyrr og síðar. Kasd- an náði ekki að fyigja henni fylli- lega eftir með vestranum Silverado (’85) sem var engu að síður bráð- skemmtilegur vel skrifaður og stýrður með frábæran hóp Ieikara í helstu hlutverkum: Kevin Kline, Kevin Costner, Jeff Goldblum, Scott Glenn, Danny Glover, Brian Dennehy, Linda litla Hunt og John Cleese krydda siðan mannvalið. Þrjú ár liðu, þá birtist The Accid- ental Tourist á tjaldinu. Dálítið van- metin, hlý og manneskjuleg mynd með William Hurt. feykigóðan í hlut- verki ferðabókahöfundar sem hefur lokað sig af eftir sonarmissi og skilnað. Geena Davis stelur senunni sem sætur og notalegur furðufugl sem kemur höfundinum aftur á rétt spor. I Love You to Death (’90), er vanmetinn, geggjaður farsi með Kevin Kline í sínu besta formi á ferlinum í hlutverki kvensams eig- inmanns. Tracy Ullman er síðri sem eiginkona hans sem vill bósann feig- an og gerir allt sem í hennar valdi stendur til að stytta honum aldur. 1991 kemur Grand Canyon, besta mynd höfundar á sfðasta áratug. Kasdan hefur ekki tekist að fylgja gæðum hennar eftir. Hann skrifaði og framleiddi The Bodyguard (’92) sem var lítið eftirminnileg ástar- vella um poppstjörnu og lífvörð hennar. Sjálfsagt á söngkonan Whitney Houston stóran þátt í vel- gengninni sem hin klisjum hlaðna mynd naut um allan heim og gerði Kasdan að stórefnuðum manni. Hvort sem ríkidæminu er um að kenna hefur fátt komið bitastætt frá Kasdan síðan. Stórvestrinn Wyatt Earp (’94), er glæsilegur fyr- ir auga og eyru (tónlist eftir James Newton Howard, taka í höndum Owens Roizman) og leikaraliðið ekki árennilegt: Costner, Hackman, Pullman, Madsen, Rosselini, Size- more með Dennis Quaid í farar- broddi sem Doe Holliday. Costner er aftur á móti til baga framan af sem titilpersónan, fógeti Tomb- stone. Ári síðar kom French Kiss, versta mynd leikstjórans, hreinasta hörmung á að horfa. Kline, sá eðal- leikari og stórsjarmör, getur ekk- ert gert til bjargar fáránlegu hlut- verki fransks kvennabósa og þjófs sem verður ástfanginn af fórnar- lambi sínu (Meg Ryan). Þá er röðin komin að nýjasta verkinu, Mumford (’99) sem fékk ágæta dóma en mun fara viðstöðu- laust á myndbandamarkaðinn hér- lendis. Sem segir okkur að hún hef- ur ekki verið talin hafa þá burði sem með þarf í bíóslaginn. Slík ör- lög jafnvel ágætustu mynda gerast æ tíðari. Sæbjörn Valdimarsson Sígild myndmönd BODY HEAT (1981) ★ ★★’Á Leikstjórnarferill Kasdans byrjaði með látum. Myndin vakti geysilega athygli, þótti djörf og heldur enn sínum erótíska sjarma. Ekki síst fyrir tilstuðlan munaðarlegs leiks Kathleen Turner (í sínu fyrsta hlutverki) sem skipar sér í fremstu röð tæfa hvíta tjaldsins með túlkun sinni á dularfullri og varasamri kvenpersónu sem kemur óvænt inn í > líf reynslulítils lögfræðings (William Hurt) sem hún vefur um fingur sér. Fyrr en varir hefur lögmaðurinn fallist á að myrða bónda hennar. Yfir og allt um kring er kæf- andi hitabylgja Suðurríkjanna. Ástarsenur Hurts og Turners eru óvenju sannfærandi og Mickey Rourke á snjalla innkomu í minnisstæðu smá- verki. Allt þetta ágæta fólk (sem sumt er þegar gleymt) var að feta sín fyrstu skref á tjaldinu og ' ígerir það með stakri prýði. THE BIG CHILL (1983) ★★★% Leikarar:. Drama. Bandaríkin. 1983.103 mín. Er einn þeirra fellur frá koma gamlir skólafé- lagar saman og endumýja kynnin frá tímum hins róttæka sjöunda áratugar. Flestum hefur vegnað vel og nú snýst kappið um peninga frekar en hug- sjónir. Gamlar ástir og árekstrar koma upp á yfir- borðið en að lokum una allir tiltölulega sáttir við sitt. Að mörgu leyti ásækið handrit og skýr per- sónusköpun auk magnaðs leikhóps (Tom Bereng- er, Glenn Close, Jeff Goldblum, William Hurt, Kevin Kline, Meg Tilly, JoBeth Williams), sem fylgt hefur Kasdan að einhveiju leyti í flestum hans myndum, gera Stóra hroll að hrífandi þjóðfé- lagsskoðun og persónulegu uppgjöri við umbrota- tíma. Skemmtanagildið er ótvírætt, ekki síst áhorfendum af sömu kynslóð. Tónlist áratugarins smekklega notuð til að undirstrika eftirsjána. GRAND CANYON (1991) ★★★% Gerð á meðan Kasdan var tæpast farinn að slá vindhögg og var enn einn af hákörlunum í Holly- wood. I Miklagljúfri íýnir hann skemmtilega í mannlífsflói-una og kvikmyndaiðnaðinn í Los Ang- eles. Fylgst með sundurleitum hóp íbúanna; lög- fræðingum, vörubfistjórum, húsmæðrum, kvik- myndaframleiðendum, sem tvinnast saman af tilviljun í laglega fléttaðri framvindu og mynda vináttubönd. Þrátt fyrir mismunandi hörundslit, efni og aðstæður. Hlý, notaleg mynd, frábærlega vel skrifuð af Kasdan hjónunum sem sjá ekki að- eins skoplegu hliðina á daglegu amstri í stórborg- inni heldur vekja spumingar og draga athyglina að því sem betur mætti fara. Ekki síst í samskipt- um kynþáttanna. Leikhópurinn er stóríínn, með Kevin Kline, Danny Glover og Steve Martin í þeirra venjulega, trausta formi. MYNDBOND Ovenjuleg mynd Tony litli (Kleine Teun) Stríðsmynd ★★★% Leikstjóri: Alex van Warmerdam. Aðalhlutverk: Alex van Warmcr- dam, Annet Malherbe, Ariane Schluter. (95 mín) Holland. Berg- vík, 1998. Bönnuð innan 12 ára. ÁSTARÞRÍHYRNINGUR mynd- ast þegar einföld bóndahjón fá kennslukonu til þess að bóndinn læri loksins að lesa. Hér er gott dæmi um frábært innihald í lélegum umbúðum. Þegar kápan á myndinni er skoð- uð gæti verið um eina af bandarísku „Hallmark“-sjón- varpsmyndum að ræða. En myndin er svo langt frá því að vera venjuleg. Þróun þessa sál- sjúka ástarþríhymings er glæsilega unnin af öllum sem koma nálægt myndinni. Leikstjórinn, handritshöf- undurinn og aðalleikarinn Warmer- dam sinnir öllum störíúm sínum af stakri snilld. Konurnar em einnig frábærar í sínum hlutverkum. Myndataka Mai-c Felpelaan er minn- isstæð en hún er líkust málverki sem virðist kyrrlátt á yfirborðinu en undir niðri liggur eitthvað óhugnanlegt. Það er lítil hreyfing á myndavélinni í gegnum alla myndina en þegar hún hreyfist er það gífurlega áhrifamikið. Varast ber að taka þessa mynd sem afþreyingu því hún á eftir að skilja við mann algjörlega þmrausinn tilfinn- ingalega og með óbragð í munninum. Ottó Geir Borg / A hrakhólum Rótleysi (Tumbleweeds) I) rama ★★★ Leikstjórn og handrit: Gavin O’Connor. Aðalhlutverk: Janet McTeer og Kimberley Brown. (102 niín.) Bandarikin, 1999. Myndform. Bönnuð innan 12 ára. HÉR SEGIR frá rótlausri tilveru suðurríkjadömunnar Mary Jo Walk- er og dóttur hennar Ovu. Mary Jo á að baki röð mis- heppnaðra ástar- sambanda og fyrir vikið hafa þær mæðgur ferðast um þver og endi- löng Bandaríkin. Móðirin hefur nefnilega þann háttinn á að hlaup- ast á brott í stað þess að horfast í augu við vandamálin. Þetta er mjög vel gerð kvikmynd sem segir sögu af flóknu sambandi móður og dóttur af einstöku næmi. Þær Mary Jo og Ava eru trúverðugar og lifandi persónur, móðirin hefur sína galla en er ekki fordæmd fyrir þá á neinn hátt. Þeh- eru einfaldlega hluti af óheftum en dálítið manískum persónuleika henn- ar sem breska sviðsleikonan Janet McTeer túlkar hér á eftirminnilegan hátt. Kimberley Brown gefur hinni skynsömu dóttur einkar manneskju- legt yfirbragð, og er það ánægjuleg tilbreyting að sjá svo þroskaðan leik í bamshlutverki í bandarískri kvik- mynd. Leikstjóri og meðhöfundur myndarinnar, Gavin O’Connor, leik- ur sjálfur vörubflstjórann sem Mary Jo tekur saman við og er einkar góð- ur í því hlutverki. Rótleysi er því í alla staði eftirminnileg kvikmynd sem ég mæli hiklaust með. Heiða Jóhannsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.