Morgunblaðið - 27.06.2000, Síða 61

Morgunblaðið - 27.06.2000, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000 61 FÓLK í FRÉTTUM Reuters Þessir búningar sveitarinnar KISS fóru fyrir nokkrar milljónir á uppboðinu um helgina. Gerviblóð og leðurólar Uppbod á vegum hljómsveitarinnar Kiss cS*HÐ<* Styðjum bö o E nff»v ar Segjum nei vlð unglingadrykkju www.mbl.is Á LAUGARDAG var opnað uppboð á fylgihlutum rokksveitarinnar Kiss í Los Angeles. Þangað þyrptust að- dáendur hljómsveitarinnar og létu sig ekki muna um að eyða 62 milljón- um króna í ýmsa muni sem einkennt hafa hljómsveitina í gegnum árin. Það voru forsprakkar sveitarinnar, þeir Gene Simmons og Paul Stanley, sem höfðu safnað óteljandi hlutum saman í nokkrar vöruskemmur, frá ferli sem spannar næstum þrjátíu ár. Tilefni uppboðsins var að þeir fé- lagar vildu að aðdáendum gæfíst kostur á að eignast smáhlut í hljóm- sveitmni, hlut sem annars færi for- görðum. Hljómsveitin er nú á tón- leikaferð um Bandaríkin og Kanada og að mun þetta að öllum líkindum verða síðasta tónleikaferðalag sveit- arinnar. En gítarar og auglýsingavegg- spjöld voru það allra vinsælasta á uppboðinu. Þá voru handskrifuð nótnablöð með lögum á borð við Christine Sixteen þegin með þökk- um og rifist var um alla búninga sveitarinnar frá fyrstu árum hennar. Þá er líklegast best fyrir þá sem keyptu eitthvað á uppboðinu að halda því fyrir sig því í vörulistanum var skýrt tekið fram að Stanley og Simmons hefðu einkaleyfi á að nota hluti tengda hljómsveitinni Kiss í gróðaskyni. Eða eins og Simmons sagði eitt sinn: „Við erum alltaf að fara í mál við alla út af hverju sem er. Við munum lögsækja ykkur svo inni- lega að afkomendur ykkar munu finna til.“ NáttúruLegt C~vftamfn! ilsuhúsiö SkólavörOustíg, Kringlunni, Smáratorgi og Skipagötu 6, Akureyri Éa iim mia r " s, w fra mertil ||»0|||| á mbl.is Skemmtilegur netleikur - glæsilegír vinningar Búningar vinsælir Uppboðið fór fram í húsnæði í eigu Paramount Pictures í Hollywood. Um 300 manns mættu á svæðið en fjöldi annarra bauð í hluti í gegnum Netið og síma. Það sem fór fyrir hæsta upphæð voru fjórir búningar sem meðlimir sveitarinnar notuðu á Alive tónleika- ferðinni á árunum 1996 og 1997. Rúmlega 13 milljónir voru greiddar fyrir búningana góðu og ámóta upp- hæð var greidd fyrir búninga sveit- arinnar frá tónleikaferðlagi þeirra árin 1998 og 1999. En það voru ekki aðeins milljóna- mæringar sem höfðu efni á að versla á uppboðinu því gerviblóð sem Simmons notaði til að spýta yfir áhorfendur fór á 38 þúsund krónur. Þá fóru bleikir skór fyrir 44 þús- und. Myndir, belti og kælibox (?) fóru fyrir enn minni upphæðir og runnu ljúflega ofan í unga og félitla aðdáendur. Sæl í sólinni TÓNLEIKAGESTIR á Glastonbury tónlistarhátíðinni nutu kvöldsólar- innar á sunnudag, síðasta degi há- tíðarinnar. Stuttu síðar tók David Bowie lagið, en hann hefur ekki komið fram á Glastonbury síðan ár- ið 1971, þegar hátíðin var haldin í annað sinn. Nú, 29 ánim síðar, var Bowie tekið álíka vel og fyrrum og kunnu tónleikagestir greinilega að meta það sem hann hafði fram að færa. Notaðir bílar Nissan Patrol SE - árg. 1998 Ekinn 111.000 km - Verð kr. 3.950.000,- Nissan Micra - árg. 1998 Ekinn 20.000 km - Verð kr. 990.000,- Opel Vectra B Cara - árg. 1998 Ekinn 63.000 km - Verð kr. 1.550.000,- MMC Lancer 1.6 Wag - árg. 1999 Ekinn 15.000 km - Verð kr. 1.480.000,- Alfa Romeo 156 - árg. 1998 Ekinn 23.000 km - Verð kr. 2.400.000,- Staðsetning: BORGARBÍLASALAN Subaru Forester Turbó - árg. 1999 Ekinn 15.000 km - Verð kr. 2.590.000,- BILAHUSIÐ Greiðslukjör við allra hæfi Opið: mán.-fös. kl. 09-18 lau. kl. 12-17 BORGARBÍLASALAN GWfftnAriWtíiií 11 ■ sitrii nnti S300

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.