Morgunblaðið - 27.06.2000, Page 68
Eignaskipti LU Ráðgjöf
ehf
Gerö eignaskiptayfirlýsinga
Sími 5886944
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
>
( M>r
Siglt á
sumarnóttu
ÞAÐ var bjart yfir í Húnaflóanum
þegar nokkrir Norðlendmgar
skelltu sér í kvöldsiglingu á nýjum
skemmtisiglingabát, Kóp HU 2, fyr-
ir skemmstu. Hætt er við að ekki
verði jafn bjart yfir sunnanlands
næstu daga en Veðurstofan spáir
austanátt með rigningu. Skil eru á
hægri hreyfingu norður yfir landið
og má gera ráð fyrir að nokkuð
hvasst verði við suður- og vestur-
strönd landsins, eða á bilinu 10-18
metrar á sekúndu. Norðanlands
verður þó miklu hægara fram eftir
vikunni.
Fylkir á
toppnum í
fyrsta skipti
LIÐ Fylkis í Árbæjarhverfí tók for-
ystuna í Landssímadeildinni í knatt-
spyrnu í gærkvöld er liðið vann
Grindavík 2:0. Fylkir hefur ekki áður
í 33 ára sögu félagsins verið á toppi
efstu deildar en nýliðarnir eru nú
einir ósigraðir í.deildinni og hafa eins
stigs forskot á KR-inga.
Atta umferðum er lokið af átján og
aðeins fimm stig skilja að sex efstu
lið deildarinnar.
■ Ósigraðir/B3
Nýheimsmynd
kallará
nýjan Atlas
- iBook Grafít
Sklpholtl 21
Síml 530 1800
Fax 530 1801
www.applo.la
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
milljarða króna í þeim tilgangi að
styrkja gengi íslensku krónunnar.
Seðlabankinn átti í gær fund með
fjármálafyrirtækjum vegna þessara
mála.
Miklar sveiflur hafa verið á gengi
krónunnar að undanfömu en gengið
lækkaði á fímmtudag og enn meira á
föstudag. „Við fórum eðlilega á
föstudaginn að reyna að greina hvað
þarna hefði verið á ferðinni," sagði
Birgir ísleifur.
„Okkar niðurstaða var sú að það
væri ekkert í undirliggjandi tölum
sem skýrði þessa lækkun á genginu.
Til dæmis höfum við nýlega hækkað
vexti um 50 punkta og vaxtamunur-
inn milli íslands og annárra landa er
mjög mikill og hefur sennilega sjald-
an verið meiri. Að vísu er viðvarandi
viðskiptahalli en fjármagnsjöfnuður
hefur verið hagstæður vegna þess
að það eru miklir íjármagnsflutn-
ingar til landsins og ekki sjáanlegt
að neitt lát sé þar að verða á. Niður-
staða okkar var því sú að þarna væri
fyrst og fremst um spákaupmenn að
ræða, þ.e.a.s. að einhverjir aðilar á
markaðnum vildu reyna að hagnast
á því að knýja fram lækkun á gengi
krónunnar. Bankastjóm Seðlabank-
ans tók þess vegna þá ákvörðun að
snúast til varnar. Við viljum halda
gengi krónunnar sterku í baráttunni
gegn verðbólgunni.
Við teljum að þessar aðgerðir
okkar hafi heppnast og erum stað-
ráðnir í að verja gengi krónunnar og
ætlum ekki að láta gengið síga
vegna svona spákaupmennsku,“
sagði Birgir Isleifur.
Inngrip Seðlabankans hafði þau
áhrif að gengið hækkaði um 1,6%
miðað við dagslok á föstudaginn var,
síðan lækkaði gengið aftur og varð
svipað og í upphafí viðskipta um
morguninn, en hækkaði aftur er á
leið daginn.
Viðskipti á gjaldeynsmarkaði
námu 19,3 milljörðum í gær
BIRGIR ísleifur Gunnarsson seðlabankastjóri segir að atlaga hafi verið gerð
að gengi íslensku krónunnar í gær þegar spákaupmenn hafi selt mikið af
krónum í þeim tilgangi að hagnast á lækkun krónunnar. Viðskipti með krónur
á gjaldeyrismarkaði námu 19,3 milljörðum í gær en svo mikil viðskipti hafa
aldrei farið fram á einum degi. Seðlabankinn greip til þess ráðs í gærmorgun
að kaupa krónur fyrir 2,3 milljarða. Gengið hækkaði um 0,9% og segist Birgir
ísleifur telja að aðgerðir Seðlabankans hafi skilað tilætluðum árangri.
Birgir Isleifur sagðist telja að það
hefði verið gerð atlaga að gengi
krónunnar í gær. Bankinn hefði
hinsvegar haft upplýsingar um hvað
gæti verið í uppsiglingu og verið
undirbúinn. „Þetta er í fyrsta sinn,
eftir að fjármagnshreyfingar voru
gefnar frjálsar milli Islands og ann-
arra landa, sem við upplifum þetta
hér á landi. Land með sjálfstæðan
gjaldeyri getur alltaf búist við að
svona nokkuð gerist og við höfum
alltaf verið við þessu búnir. Við er-
um með samninga við erlendar fjár-
málastofnanir sem við getum gripið
til ef við þurfum á að halda og eru
langt umfram gjaldeyrisforðann en
við veitum sem kunnugt er mánað-
arlegar upplýsingar um stöðu hans.“
Morgunblaðið hafði samband við
Kaupþing í New York og spurði
hvort fyrirtækið hefði í gær og fyrir
helgi stundað spákaupmennsku með
krónur í þeim tilgangi að knýja fram
lækkun á gengi íslensku krónunnar.
Hreiðar Már Sigurðarson, forstöðu-
maður Kaupþings í New York, sagði
að fyrirtækið gæfi ekki upplýsingar
um viðskipti fyrirtækisins eða við-
skiptamanna þess. Hann vísaði því
aftur á móti alfarið á bug að fyrir-
tækið hefði staðið fyrir atlögu að
gengi krónunnar.
Gengikrónunnar
hækkaði um 0,9%
Viðskipti á gjaldeyrismarkaði í
gær námu 19,3 milljörðum og er það
met en viðskipti með krónur á einni
viku eru að jafnaði 10-13 milljarðar.
Gengisvísitala íslensku krónunnar
hækkaði um 0,9% frá upphafi til
loka viðskipta gærdagsins eftir inn-
grip Seðlabankans í gærmorgun en
bankinn seldi gjaldeyri fyrir 2,3
Loðnu-
skipin fylla
sig út af
Langanesi
ÖRN KE var væntanlegur til
Siglufjarðar um klukkan þrjú í
nótt með fullfermi af loðnu, um
1.100 tonn, sem skipverjar
fengu í þremur köstum á fimm
tímum í gær.
Mokveiði hefur verið á loðn-
unni um 50 mílur norðaustur af
Langanesi undanfarna daga en
þrjú íslensk skip eru byrjuð á
loðnuveiðum og fleiri óðum að
bætast við.
Huginn VE og Guðmundur
Ólafur ÓF hafa farið tvo túra
en Örn KE var í sínum fyrsta
túr í gær. „Hún er í kantinum
út af Þistilfirði og er á mikilli
ferð í norðvestur,“ segir Sig-
urður Sigurðsson, skipstjóri á
Emi. „Hún stendur djúpt en
það eru góðar torfur í þessu."
Verð á loðnumjöli hefur að-
eins verið að þokast upp á við
að undanförnu, en verðið er
samt enn lágt eða um 37.500 kr.
fyrir tonnið.
■ Mokveiði/23
Áhugi á vél-
fræðinámi
ÞRJÁTÍU nemendur hafa
skráð sig í vélfræðinám við
Verkmenntaskólann á Akureyri
en 14 skráðu sig í þetta nám í
fyrra.
Hjalti Jón Sveinsson, skóla-
meistari VMA, segir þetta
ánægjulega þróun en að skýr-
ingin á þessari aukningu sé fyrst
og fremst sú að skólinn hafi
staðið ásamt Vélskóla íslands að
sérstakri kynningu á náminu
fyrir væntanlega nemendur.
■ Nýtt átak/16
110,0
Gengisvísitala
ístensku krónunnar
mánudaginn 26. júní
113,0-
112,5
112,0
111.5-
111,0
110.5-
26 . j ú n í
9.00
16.11
Birgir fsleifur Gunnarsson seðlabankastjóri um gengisþróun síðustu daga
Atlaga gerð að gengi
íslensku krónunnar