Morgunblaðið - 05.09.2000, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Stefnt að því að malbika brautamót Reykíavíkurvallar í vikunni ef veður verður hagstætt
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Framkvæmduni við Reykjavíkurflugvöll hefur seinkað örlítið en stefnt er að því að ljúka malbikun brautamótanna í vikulok. Verður í framhaldi af því
unnt að taka norður-suður brautina í notkun á ný.
Stefnt að
opnun á ný
á laugardag
HALDIST veður þurrt í Reykja-
vík síðari hiuta vikunnar er
stefnt að því að taka megi í notk-
un norður-suðurbraut Reykjavík-
urflugvallar á laugardag eftir að
brautamðtin hafa verið malbikuð.
Verkinu átti að ljúka á miðnætti
annað kvöid en tveggja sólar-
hringa seinkum er fyrirsjáanleg.
Búið er að maibika annað lagið
á brautamótunum og segir Ólafur
Hilmar Sverrisson verkefnissljóri
að veður verði að vera vel þurrt
til að unnt sé að malbika síðara
lagið. Útlit sé nokkuð óvíst næstu
daga en stefnt sé að því að verk-
inu ljúki á föstudagskvöld.
Ólafur Hiimar segir verkið í
heild örlítið á eftir áætlun en
Ijúka átti framkvæmdum við
austur-vestur brautina í lok sept-
ember. Segir hann ljóst að það
dragist um nokkra daga. Búið er
að endurnýja vestari hluta aust-
ur-vestur brautarinnar og er
unnt að nota þann kafla sem er
930 metra langur fyrir takmar-
kað flug. Meðan brautamótin eru
endurnýjuð hefur norðaustur-
suðvesturbrautin aðallega verið
notuð. Takist að ljúka verkinu
eins og nú er áætiað verður í
framhaldi af því unnt að aflétta
ákveðnum takmörkunum sem
verið hafa umferð stórra flug-
véla.
Nokkur röskun varð á flugi
framan af degi í gær vegna óhag-
stæðrar vindáttar.
Áhugahópur myndaður til baráttu gegn umferðarslysum
Boðar til borgarafundar
um umferðaröryggismál
Trjávöxtur
með ágæt-
um í sumar
TRJÁVÖXTUR hefúr verið með
betra móti í sumar, að sögn Brynjólfs
Jónssonai-, framkvæmdastjóra Skóg-
ræktarfélags íslands.
„Trjávöxtur hefur verið með ágæt-
um um land allt í sumar,“ segir Brynj-
ólfúr. „Sumarið hefur verið hlýtt. Það
hafa ekki verið nein stórveður sem oft
fara illa með tré, en nývöxtur á trjám
er viðkvæmur fyrir veðri.“ Brynjólfur
segir einnig líklegt að vöxtur verði
góður næsta sumar, sérstaklega telur
hann að barrtré muni dafna vel.
„Barrtré eru þeim eiginleika gædd
að þau taka út mesta vöxtinn sumarið
eftir. Það hefúr verið mjög góður
vöxtur í sumar, en sumarið í fyrra var
einnig ljómandi gott og það hefur skil-
að sér nú. Sumarið í ár er vel yfir
meðallagi og með betri vaxtarsumr-
um hér á landi,“ segir Brynjólfur.
STANZ-HÓPURINN heita samtök
fólks sem vill sporna gegn umferðar-
slysum og koma með tillögur til úr-
bóta í umferðaröryggismálum. Hóp-
urinn boðar til almenns borgara-
fundar í ráðhúsi Reykjavíkur 6.
september kl. 17.30 nk. Meðal þeirra
sem taka til máls verða fórnarlömb
umferðarslysa og aðstandendur
þeirra auk framsögumanna og full-
trúa stjórnvalda, lögreglu, heilbrigð-
isþjónustu o.fl.
Meðal þess sem Stanz-hópiuinn
leggur til er að umferðarlöggæsla
verði efld um allt land og lögreglan
hafi þannig fyrirbyggjandi áhrif.
Hópurinn vill tvöfalda Reykjanes-
brautina og útrýma einbreiðum
brúm, auka vegmerkingar og herða
aðhald og eftirlit með hönnun um-
ferðarmannvirkja. Þá vekur Stanz-
hópurinn athygli á því að í öðrum
löndum hafi verið farin sú leið að
veita ungum ökumönnum ökurétt-
indi í áföngum. Þannig er ökuskír-
teini þeirra stigskipt þannig að
heimild þeirra til að aka kraftmiklum
bílum er takmörkuð og kröfur til
endumýjunar á ökuskírteinum eru
háðar því að ungir ökumenn hafi
ekki verið ákærðir eða dæmdir fyrir
alvarleg umferðarlagabrot. Einnig
hafi gefist vel að takmarka heimildir
þeirra til aksturs að næturlagi og að
bílar þeirra eru sérmerktir til að
byrja með. Þá er hvatt til þess að
ökunemum verði gefinn kostur á sér-
hönnuðu æfingasvæði svo þeir geti
æft sig í akstri við mismunandi að-
stæður.
Almenningnr komi að málinu
Stanz-hópurinn vill að rannsókn-
arnefnd umferðarslysa vinni á svip-
aðan hátt og rannsóknarnefnd flug-
slysa þannig að allir þættir
umferðarslyssins verði rannsakaðir
ofan í kjölinn og birtar eins fljótt og
auðið er. Hópurinn vill að dómsmála-
ráðherra skipi nefnd þar sem m.a.
sitji fulltrúar almennings og aðrir
aðilar sem hafa reynslu af umferðar-
málum s.s. atvinnubílstjórar, lækn-
ar, lögreglumenn og aðstandendur
látinna og slasaðra.
Meðal þeirra sem standa að stofn-
un Stanz-hópsins eru foreldrar fóm-
arlamba umferðarslysa, ökukennar-
ar, ökumaður sem er
mænuskaddaður eftir umferðarslys,
lögreglumaður o.fl. Á heimasíðu
hópsins; www.stanz.is, er hægt að
koma með tillögur og ábendingar í
umferðarmálum.
Héraðsdómur Reykjaness fellst á kröfu lögreglimnar í Kópavogi um nálgunarbann
Nálgunarbanni beitt í
fyrsta skipti hérlendis
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness
féllst í gær á kröfu lögreglunnar í
Kópavogi um að maður, sem ók á
erlendan mann nýlega, sæti nálgun-
arbanni. Mun þetta vera í fyrsta
skiptið sem slíkt bann er sett sam-
kvæmt lögum sem sett voru fyrr á
þessu ári.
Samkvæmt úrskurðinum er
manninum óheimflt í sex mánuði að
koma í eða vera við hús eða bif-
reiðageymslur á afmörkuðu syæði í
Kópavogi sem afmarkast af Hamra-
borg í norðri, Vallartröð og Neð-
stutröð í austri, Digranesvegi í
suðri og Hafnarfjarðarvegi í vestri.
Jafnframt er honum bannað að
veita eftirför, heimsækja eða vera
með öðru móti í beinu og milliliða-
lausu sambandi við eiginkonu sína,
dóttur hennar og erlendan sam-
starfsmann konunnar.
Mörg kærumál til rannsóknar
I dómsúrskurðinum kemur fram
að lögreglan í Kópavogi hafi til
rannsóknar allmörg kærumál á
hendur manninum sem öll eru sögð
hafa átt sér stað í eða við Kópavog
þar sem eiginkona mannsins býr
ásamt dóttur sinni og öðrum manni.
Konan rekur jafnframt fyrirtæki
þar sem hinn maðurinn vinnur.
Maðurinn og konan standa í skiln-
aðarmáli og hafa samskipti þeirra
verið stirð frá því í júlí. Maðurinn
hefur verið kærður fyrir lík-
amsárásir, fyrir að stinga gat á
hjólbarða bíls í eigu hins mannsins
og brjóta glugga í húsnæðinu þar
sem konan rekur fyrirtækið. Mað-
urinn mun m.a. hafa brotið fram-
rúðu bifreiðar þeirra þar sem hún
stóð í bifreiðageymslunni. Hann gaf
þá skýringu á verknaðinum að kon-
an hafi ekki viljað tala við hann og
því hefði hann brotið rúðuna. Bif-
reiðin væri hins vegar eign þeirra
beggja.
Hinn 19. ágúst hafði lögregla af-
skipti þar sem komið hafði til
handalögmála. Segir í úrskurðinum
að konan muni hafa lent í átökum
við vinkonu mannsins og hann hafa
gripið til svokallaðrar stuðbyssu.
Að sögn dótturinnar mun maðurinn
hafa beitt stuðbyssunni gagnvart
henni, móður hennar og samstarfs-
manni en því neitar maðurinn. Sam-
kvæmt lögregluskýrslu var maður-
inn mjög illur og hótaði að snúa
aftur um kvöldið og lemja hinn
manninn og rústa íbúðina. Daginn
eftir kom maðurinn enn á staðinn
og veitti fólkinu eftirför í fólksbif-
sreið inni í bílageymslu við Hamra-
borg og ók þar á samstarfsmann
konunnar með þeim afleiðingum að
hann kastaðist upp á vélarhlíf bif-
reiðarinnar og framrúðu en konurn-
ar tvær munu hafa náð að forða sér
á hlaupum, samkvæmt framburði
sjónarvotta. Maðurinn ók því næst
á brott án þess að huga að meiðsl-
um mannsins sem hann ók á en var
handtekinn skömmu síðar.
ítrekað raskað friði
Maðurinn var úrskurðaður í
gæsluvarðhald í héraðsdómi en
Hæstiréttur hnekkti þeim úrskurði.
í úrskurði héraðsdóms nú segir
ljóst að maðurinn hafi á undanförn-
um vikum ítrekað raskað friði um-
rædds fólks með ofsóknum, ónæði
að næturlagi, ofbeldi og hótunum
um beitingu ofbeldis en vettvangur
háttseminnar sé yfirleitt í eða við
heimili þeirra og starfsstöð í Kópa-
vogi. Beri rannsóknargögn málsins
með sér að stígandi hafi verið í
þeim ofsóknum og keyrði um þver-
bak þegar maðurinn veitti fólkinu
eftirför í fólksbifreið og ók á hinn
manninn. I héraðsdómi segir síðan
að fallast megi á það með lögreglu
að rökstudd ástæða sé til að ætla að
maðurinn muni fremja afbrot gagn-
vart umræddu fólki eða að minnsta
kosti halda áfram að raska friði
þess verði ekki tafarlaust gripið í
taumana. Því sé rétt að verða við
kröfu um nálgunarbann. Þar breyti
engu þótt maðurinn dvelji nú tíma-
bundið í Kópavogi og sé búið óhag-
ræði af því að geta ekki sótt opin-
bera þjónustu innan þess svæðis
sem nálgunarbannið tekur til.