Morgunblaðið - 05.09.2000, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000 13
Afmælisdagskrá Nóa-Síríuss
Leyfísbeiðnin
rataði ekki
rétta boðleið
SKEMMTIDAGSKRÁ Nóa-Sír-
íuss á Lækjartorgi á föstudaginn
var stöðvuð af lögreglunni en
markaðsstjóri fyrirtækisins hafði
fengið rangar upplýsingar frá lög-
reglunni þegar hann bað um leyfi
fyrir skemmtiatriðunum. Leyfis-
beiðnin rataði ekki rétta boðleið
innan lögreglunnar og því stöðvaði
varðstjóri lögreglunnar þau eftir
að hafa fengið kvörtun um hávaða.
Mannleg mistök urðu til þess að
Hjálparsveit skáta í Reykjavík láð-
ist að biðja um leyfi fyrir tendrun
neyðarblysa í Esjuhlíðum.
Hjalti Jónsson, markaðsstjóri
Nóa-Síríuss, segir afar miður að
annars vel heppnaður afmælis-
fagnaður fyrirtækisins á föstudag-
inn hafi endað sem raun ber vitni.
Varðandi notkun neyðarblysa í
Esjuhlíðum segir hann að Hjálpar-
sveit skáta í Reykjavík hafi verið
fengin til að skipuleggja þann
hluta hátíðarhaldanna. Tendrun
blysanna var lokaþátturinn í
skemmtidagskrá starfsmanna
Nóa-Síríuss og fjölskyldna þeirra
sem hafi haldið á Esjuna í góðri
trú um að gengið hefði verið frá
öllum formsatriðum. Það kom
hinsvegar á daginn að fyrir mistök
hafi hjálparsveitin ekki sótt um
formlegt leyfi fyrir flugeldasýning-
unni.
Hjálparsveitin gleymdi að
sækja um leyfi fyrir blysum
skemmtiatriðin í krafti 4. gr. lög-
reglusamþykktar Reykjavíkur þar
sem segir að lögreglustjóri geti
„bannað notkun hátalara, hljóm-
flutningstækja, hljóðfæra, eða ann-
ars þess háttar á eða við almanna-
færi, ef ástæða er til að ætla að
hún valdi ónæði eða truflun".
Taldi ekki
þörf á leyfi
Kristín Einarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri miðborgarinnar,
segir að hún hafi talið að ekki væri
nauðsynlegt að fá leyfi frá lög-
reglunni til að vera með skemmti-
atriði á Lækjartorgi. Hún hafi því
gefið starfsmanni Nóa-Síríuss þær
upplýsingar að engin leyfi þyrfti til
skemmtanahalds af því tagi sem
fyrirtækið ætlaði að standa fyrir,
svo lengi sem ekki fylgdi hávaði.
Kristín segir að það hafi komið sér
mjög á óvart að lögreglan hafi
stöðvað skemmtiatriðin. „Eg hélt
að Lækjartorg væri opinbert torg
og það mætti nota það innan vissra
takmarka,“ sagði Kristín. „Við get-
um ekki alltaf verið að kvarta und-
an nágrannanum þótt við heyrum
aðeins í honum.“ Hún segist vona
að þetta verði ekki til þess að fólk
hætti að sækjast eftir því að vera
með uppákomur í miðborginni.
„Eg vil gjarnan að fólk komi og
sýni listir sínar í miðborginni.“
Löggæslumenn landsins sækja námskeið í landamæraeftirliti
Ljósmynd/Gunnlaugur Arnason
Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra ávarpaði þátttakendur á námskeiðinu í gær.
Smygl á fólki arðbærara
en eiturly fj asmy gl
NÁMSKEIÐ í landamæraeftirliti á
vegum Lögregluskóla ríkisins var
haldið í Keflavík í gær. Allir lög-
gæslumenn landsins, sem sinna
landamæraeftirliti, sóttu námskeið-
ið en um 140 starfsmenn lögreglu,
tollgæslu og Landhelgisgæslu ís-
lands fræddust um persónueftirlit á
landamærum. Námskeiðið er tví-
skipt og fyrr í sumar fór fram al-
menn fræsla um efnisatriði Scheng-
en-samningsins. ísland gerðist aðili
að samningnum árið 1996. Samn-
ingurinn leggur áherslu á að herða
svokallað ytra landamæraeftirlit en
aðildarlönd samningsins slaka á
landamæraeftirliti sín á milli.
Sólveig Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra ávarpaði þátttakendur og
sagði nauðsynlegt að leggja áherslu
á það að löggæslumenn landsins
fengju markvissa þjálfun í landa-
mæraeftirliti svo að hægt væri að
annast persónueftirlit með þeim
hætti sem skylt er samkvæmt
Schengen-samningnum. Að hennar
sögn hefur hún beitt sér fyrir nán-
ari samvinnu íslenskra og banda-
rískra lögregluyfirvalda. Fjórir
bandarískir sérfræðingar frá
Innflytjendastofnun Bandaríkjanna
komu hingað til lands vegna nám-
skeiðsins og sáu þeir um kennsluna
í gær og fræddu þátttakendur með-
al annars um hvernig þekkja má
fölsuð skilríki.
John Hughes, starfsmaður Inn-
flytjendastofnunar Bandaríkjanna í
Kaupmannahöfn, sagði smygl á
fólki hafa aukist til muna í Norður-
Evrópu. Að hans sögn er það orðið
arðbærara að smygla fólki á milli
landa heldur en að smygla eitur-
lyfjum. Hughes sagði smygl á fólki
ekki vera eins algengt á íslandi og
annars staðar í Norður-Evrópu og
hrósaði hann íslenskum stjónvöld-
um fyrir að grípa í taumana áður
en smygl á fólki yrði að alvarlegu
vandamáli sem erfitt væri að upp-
ræta.
Kristinn Ólafsson, sveitarforingi
Hjálparsveitar skáta í Reykjavík,
segir að fyrir misskilning hafi
þeim láðst að sækja um leyfi fyrir
neyðarblysunum. Mannlegum mis-
tökum sé um að kenna og félögum
í hjálparsveitinni þyki þessi at-
burður mjög miður. Sá sem upp-
haflega fékk verkefnið fór til út-
landa og sá sem tók við taldi víst
að leyfi lægju fyrir.
Rétt fyrir klukkan fjögur á
föstudaginn var skemmtiatriði á
vegum Nóa-Síríuss stöðvað á
Lækjatorgi. Skemmtidagskráin
fólst í því að tveir landskunnir lyft-
ingakappar buðu vegfarendum að
reyna á krafta sína og hljóta að
launum súkkulaði. Hjalti segir að
framkvæmdastjóri miðborgar hafi
tjáð honum að fyrirtækið þyrfti
engin leyfi fyrir skemmtiatriðun-
um á Lækjartorgi. Starfsmaður
Nóa-Síríuss hafi einnig sagt lög-
reglumanni, sem hafði verið tengil-
iður hans vegna annarrar upp-
ákomu á föstudaginn, af
fyrirhugaðri skemmtidagskrá á
Lækjartorgi og fengið þær upp-
lýsingar að sá lögreglumaður
myndi sjá um að útvega leyfi.
Jónas Hallsson, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn í Reykjavík, segir að
markaðsstjóri Nóa-Síríuss hafi
fengið rangar leiðbeiningar frá
lögreglunni þegar hann spurðist
fyrir um leyfi fyrir skemmtidag-
skrá á Lækjartorgi. Af einhverjum
ástæðum hafi beiðni hans ekki rat-
að rétta boðleið innan embættisins.
Að öðru leyti sé bannað að notast
við hátalarakerfi á Lækjartorgi á
skrifstofutíma Héraðsdóms og
Stjórnarráðsins. Þegar kvörtun
barst til lögreglunnar vegna háv-
aða á Lækartorgi hafi hún stöðvað
Grunnnám í
Höfuðbeina- og
spjaldhryggsjöfnun
hefst 14. okt. 2000
Leiðþéinandi
Thomas Attlee DO,MRO,RCST
COLLEGE OF CRANIO-SACRAL THERAPY
sími 699 8064/564 1803
www.simnet.is/cranio
Þú verður fær um að dansa við 90% af öllum lögum sem leikin eru ö
venjulegum dansleik eftir 6 tíma
44. starfsár
ííimé&m
Auðveldir og skemmtilegir. Bók fylgir
með lýsingu á dánsunum
10 tíma námskeið
Ásgeir, margfaldur Islandsmeistari, og
Gummi kenna.
Samkvæmisdansar - hamadansar
Áratuga reynsla okkar og þekking tryggir þér bestu fáanlegu kennslu.
14 vikna námskeið fyrir fullorðna
14 vikna námskeið fyrir börn.
Dansleikur i lokin.
Freestyle
Gömlu dansamir
10 tima námskeið
og þú lærir ótrúlega mikið.
Keponisdansar
Erla Haraldsdóttir kennir.
Salsa
Dansinn sem fer sigurför
um heiminn.___________
10 tíma námskeið
Svanhildur Sigurdardóttir og Ingibjörg Róbertsdóttir
frábærir þjálfarar í keppnisdönsum.
14 vikna námskeið - Mæting lx, 2x eða 3x i viku
Brúðarvalsmn
Kenndur í einkatíma.
Uaprifíunarttmar
Einn tími á sunnudögum
Einn dans tekinn fyrir í hvert skipti
Dans ársim
La Luna
Taktu sporið—Frír danstími
Hjón og einstaklingar ókeypis
1 kynningardanstími = ÓO mín.
Kennt verður: 1 spor í s-amerískum dansi.
1 spor í standard dansi.
Músík: Að kunna að dansa í takt við tónlist
Innritun fer fram í síma 552 0345
milli kl. 15 og 22 daglega til 12. sept.
Bðrn - Ókeypis kytmmaartimL
Panta þarf tíma í síma 552 0345.
Geymið augtýsinguna