Morgunblaðið - 05.09.2000, Side 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
NEYTENDUR
Póstþjónustan
breytist hægt
og sígandi
SVIPAÐAR breytingar eiga sér nú
stað í póstþjónustu hér á landi og í
Svíþjóð, að sögn Einars Þorsteins-
sonar, forstjóra Islandssíma. Mun-
ur sé þó á hvernig að breytingunum
sé staðið. Þær gerist hægt og síg-
andi hér á landi en þeim sé ætlað að
gerast hratt í Svíþjóð.
Fyrirhugaðar breytingar á póst-
þjónustunni í Svíþjóð felast í því að
hinum 900 hefðbundnu
póstafgreiðslustöðvum þar verður
lokað og einfaldari stöðvar munu
taka við. Jafnframt er áætlað að
fjölga afgreiðslustöðvunum veru-
lega, eða í a.m.k. 3.000. Gert er ráð
fyrir að stöðvar verði m.a. staðsett-
ar í matvörubúðum og bensínstöðv-
um en að mun einfaldari þjónusta
verði þar í boði en nú er. Að mati
yfirmanna sænska Póstsins hefur
fyrirhuguð breyting betri þjónustu
í för með sér fyrir viðskiptavini.
Svipað samstarf
við sparisjóðina
Einar segir að með þeim breyt-
ingum sem fyrirhugðar séu í Sví-
þjóð sé ekki verið að draga úr
kjarna póstþjónustunnar, heldur sé
Pósturinn þar að draga sig út úr því
að sinna greiðsluþjónustu fyrir fjár-
málastofnanir. Hann segir að sam-
starf Islandspósts, t.d. við sparis-
jóðina hér á landi, gangi á vissan
hátt út á það sama og fyrirhugað sé
í Svíþjóð. „Víða um land starfar ísl-
andspóstur með sparisjóðum, og
reyndar bönkum líka, á þann hátt
að þar sem þessar stofnanir eru í
sama húsi drögum við okkur út úr
greiðsluþjónustu. Við erum með
þessu að mæta breyttum tímum því
greiðslumiðlunarþátturinn hjá ís-
landspósti fer hratt minnkandi. Þá
hefur einnig dregið verulega úr
þjónustu okkar fyrir Landssímann.
A þeim stöðum sem við höfum tekið
upp samstarf við fjármálastofnanir
erum við því að leita leiða til að við-
halda okkar póstþjónustu í öðru
rekstrarformi sem er hagkvæmara.
Þess vegna er ýmislegt líkt með því
sem er að gerast hér hjá okkur og í
Svíþjóð."
Póstþjónusta almennt
að breytast
Einar segir að það sé sammerkt
með póstþjónustu nánast alls staðar
að hið hefðbundna hlutverk póst-
hússins sé jafnt og þétt að breytast.
Þeim fækki stöðugt sem þurfí á af-
greiðslu yfir afgreiðsluborð í póst-
húsi að halda. Hlutverk pósthússins
sé því að breytast og minnka. „Þá
má geta þess að Islandspóstur
keyrir sendingar orðið í töluverðum
mæli heim til viðtakenda á stærri
þéttbýlisstöðum um landið. Við
segjum því að þær breytingar sem
hafa verið að eiga sér stað og munu
eiga sér stað gangi út á að viðhalda
eða auka þjónustuna, en við erum
hins vegar að aðlaga reksturinn
verulega breyttu umhverfi.“
Gjöld fyrir GSM hér
á landi hærri en fyrir
UMTS í Svíþjóð
í SÍÐUSTU viku rann út frestur til
að sækja um leyfi til rekstrar þríðju
kynslóðar farsímakerfisins, UMTS, í
Svíþjóð. Tíu fyrirtæki og fyrirtækja-
hópar sóttu um þau fjögur leyfi sem í
boði eru. Sænska póst- og fjar-
skiptastofnunin mun veita leyfin og
munu þau félög sem hreppa þau
greiða 12.000 evrur í sænska ríkis-
sjóðinn, eða um 900 þúsund íslensk-
ar krónur, fyrir leyfin, auk 0,15% af
árlegri veltu.
Gjöld sem íslensku fjarskiptafyr-
irtækin, Landssíminn hf. og Tal hf.,
greiða í ríkissjóð fyrir GSM-far-
símakerfin eru hærri en þau gjöld
sem greidd verða fyrir þriðju kyn-
slóðar farsímakerfin í Svíþjóð.
Islensku fjarskiptafyrirtækin
greiddu 15 milljónir króna við út-
hlutun farsímaleyfa til Póst- og
fjarskiptastofnunar hér á landi. Ár-
lega greiða fyrirtækin 0,25% af veltu
GSM-farsímakerfanna til stofnunar-
innar. Þá greiða þau einnig ákveðið
gjald af hverri talrás í radíóstöð.
Landssíminn greiðir
um 26 milljónir á ári
Ólafur Þ. Stephensen, forstöðu-
maður upplýsinga- og kynningar-
mála Landssímans, segir að áætluð
velta farsímaþjónustu Landssímans
á þessu ári verði um 4,8 milljarðar
króna, sé tekið mið af veltunni á fyrri
helmingi ársins. Þar í séu bæði
GSM- og NMT-kerfin. Miðað við það
gefur það 0,25% gjald sem Lands-
síminn greiðir af veltu farsímakerfis-
ins til Póst- og fjarskiptastofnunar
um 12 milljónir króna á ári.
Samkvæmt upplýsingum frá Póst-
og fjarskiptastofnun var fjöldi tal-
rása sem Landssíminn hafði á síðast-
liðnum áramótum samtals 4.141.
Gjald fyrir hverja talrás er 3.300
krónur. Miðað við fjölda talrása á
síðustu áramótum greiðir Landssím-
inn um 14 milljónir króna á ári fyrir
talrásir í radíóstöðvum. Heildargjöld
Landssímans í ríkissjóð fyrir rekst-
ur farsímakerfisins eru því samtals
um 26 milljónir króna á ári.
Ekki fengust upplýsingar hjá Tali
hf. um veltu GSM-farsímakerfis fyr-
irtækisins. Hafa má þó í huga að ný-
lega var greint frá því að 50 þúsund-
asti viðskiptavinur fyrirtækisins
hefði tengst GSM-farsímakerfi þess.
Viðskiptavinir Landssímans, sem
tengdir eru GSM-farsímakerfi hans,
eru um 125 þúsund.
Samkvæmt upplýsingum frá Póst-
og fjarskiptastofnun var fjöldi tal-
rása sem Tal hf. hafði um síðustu
áramót samtals 1.472. Gjöld Tals hf. í
ríkissjóð vegna talrása eru því um 5
milljónir króna á ári.
---------------
Basisbank
hefur
starfsemi
NETBANKINN Basisbank, sem
hefur engin útibú önnur en hin raf-
rænu,_ hóf starfsemi í Danmörku í
gær. I fréttatilkynningu frá bankan-
um segir að sú staðreynd að bankinn
reki engin útibú þýði að hann geti
boðið viðskiptavinum sínum hag-
stæðustu vexti sem í boði séu. Þar
fyrir utan greiði viðskiptavinir nær
aldrei þóknun fyrir þjónustu bank-
ans. Bankinn er alltaf opinn og þjón-
ustufulltrúar hans svara í símann til
klukkan tíu öll kvöld.
Basisbank hefur í hyggju að hefja
starfsemi víðar á Norðurlöndunum á
næstu mánuðum, en að sögn Svan-
bjöms Thoroddsen, framkvæmda-
stjóra einkabankaþjónustu íslands-
banka-FBA og stjórnarmanns í
Basisbank, eru engin áform uppi um
að hefja starfsemi hér á landi.
Miklar breytingar í Galleri Sautján-húsinu
Verslanirnar Eva og Gall-
eri opnaðar á ný í október
Morgunblaðið/Ásdís
Skóverslunin hefúr verið flutt á sömu hæð og dömudeildin.
VEGNA samruna NTC hf. og Evu
ehf. á síðasta ári standa nú yfir
breytingar hjá fyrirtækinu. Versl-
unin Eva og verslunin Galleri hafa
nú verið fluttar af Laugavegi 42 og
munu opna á Laugavegi 91, í Galleri
Sautján- húsinu, í byrjun október.
„Framkvæmdir standa nú yfir og
mun verslunin Eva verða opnuð þar
sem skóverslunin var áður en um er
að ræða 300 fermetra rými sem er í
endurhönnun,“ segir Svava Johan-
sen, eigandi NTC hf. „Ekkert hefur
verið sparað til að gera þessa versl-
un sem glæsilegasta og höfum við
fengið breska arkitektinn Chris
Wiezcycki til að vinna með okkur en
hann er fær á sínu sviði.“
Skóverslunin hefur þegar verið
flutt og opnuð á hæðinni þar sem
dömudeildin er.
Að sögn Svövu verða miklar
breytingar gerðar á útliti verslunar-
innar Evu, verslunin verður áfram
stílhrein en fær nýtt útlit á nýrri
öld.
„Við verðum engu að síður með
skemmtilega hluti sem minna á
þessa fallegu og rótgrónu verslun
sem var lengi staðsett á Laugavegi
42 en Marta Bjamadóttir hafði sér-
stakt handbragð í versluninni.
Hólmfríður Óskarsdóttir verður
áfram verslunarstjóri á nýja staðn-
um og ég veit að viðskiptavinir
kunna vel að meta það.“
Meiri breidd í húsinu
Vandaður og stflhreinn fatnaður
fyrir konur verður áfram ein-
kennandi fyrir verslunina Evu að
sögn Svövu. „Við höldum öllum
helstu merkjum okkar áfram eins
og Nicole Farhi, DKNY, Gerard
Darel, Virmani, Free Lance og
Bassotto. Þá verða skemmtilegar
nýjungar eins og Joseph sem nýtur
vinsælda erlendis fyrir góða hönn-
um og áhugaverð efni.“
Öll merldn sem eru seld í Evu eru
í sérverslunum erlendis en það hef-
ur verið að færast í vöxt síðustu ár
að hátískufyrirtæki opni sínar sér-
verslanir. „Sömu fyrirtæki bjóða
upp á afmarkaða deild („consess-
ion“) fyrir hvert merki í stærri
verslunarhúsum líkt og verður í
Evu.
Það skemmtilega við þetta er að
þama er auðvelt að máta fatnað frá
mörgum merkjum á sama tíma.“
Verslunin Galleri, sem var einnig
á Laugavegi 42, verður sett upp á
dömuhæðinni á annarri hæð. Hún
verður afmörkuð að sögn Svövu og
kemur til með að halda utan um 4
merki; French Connection, DKNY
jeans, Calvin Klein jeans og Diesel.
„Þessi merki vinna öll mjög vel sam-
an og em í svipuðum verðflokld.
Húsnæðið að Laugavegi 91 er
stórt og það verður gaman að sjá
þessa nýju breidd í því.“
Aukið vöruúrval
fyrir karlmenn
Þá standa yfir breytingar á fyrstu
hæðinni þar sem herradeildin er
staðsett.
„Verið er að opna búðina mikið,
hún verður öll léttari og betra að sjá
fötin áður en komið er að. Vömúr-
valið þar er breitt; DKNY- herralín-
an, Paul Smith, Van gils og 4 you
hefur verið á boðstólnum en ýmsar
nýjungar verða þai- einnig eins og
French Connection. Þá verður skó-
úrvalið aukið.“
I kjallaranum, sem er 200 fer-
metrar, er hversdagsfatnaður eins
og Diesel, Levis, Fila og fleira fyrir
bæði kynin.
Dömufatnaður í
stórum stærðum
Fleiri nýjungar em væntanlegar
frá fyrirtækinu innan skamms. I
byrjun október stendur tfl að opna
Part Two verslun í Kringlunni þar
sem Centmm var áður til húsa.
„Part Two er sérlína frá In Wear
sem er dömufatnaður í fallegum
efnum á góðu verði og í stærri
stærðum. Með þeirri verslun emm
við að þjóna nýjum hópi viðskipa-
vina.
Hvað varðar verslunina Centmm
þá er vörumerkjum hennar gerð
góð skil í öðram verslunum okkar
eins og In Wear og DKNY. Ekki
hefur endanlega verið ákveðið hvað
verður um sjálfa verslunina."
Verð á sykri
hækkar um 5-12%
NÝLEGA hækk-
aði Nathan & 01-
sen, umboðsaðili
Dansukker á ís-
landi, verð á öll-
um sykurvömm
um 5 til 12%.
Að sögn Þor-
steins Gunnars- Strásykur
sonar, markaðs- Melis 2 kg.
stjóra Nathan &
Olsen, hafa hækkanir á heims-
markaðsverði verið miklar undan-
farna mánuði. „Aðalástæður þess-
ara hækkana em að framboð af
sykri hefur minnkað í heiminum
samhliða aukinni eftirspurn. Þá
hefur sterkur bandaríkjadollari
áhrif, “ segir Þorsteinn og bætir við
að strásykurinn hækki mest.
14% verðhækkun á
SMA Gold þurrmjólk
ar féllu niður á þeirri síðarnefndu
sem kemur upp á móti hækkun á
dollaranum.“
B-SUPER
K
Sérvalin bætiefni
fyrír taugarnar
ÉK
náttúrulega!
€ilsuhúsið
Skólavörðustlg, Kringlunni & Smératorgi
HINN 10. september mun SMA
Gold þurrmjólk frá Austurbakka
hækka um 14%.
Að sögn Auðar Guðmundsdóttur,
deildarstjóra dagvömdeildar Aust-
urbakka, hefur þurrmjólkin verið á
sama verði í tólf ár. „Astæða hækk-
unarinnar er fyrst og fremst hækk-
un á þurrmjólkinni erlendis og síð-
an hefur bandaríkjadollar hækkað
um tæp 11% á stuttum tíma.“
Að sögn Auðar er hér um að
ræða þurrmjólkina SMA Gold.
„Við emm með fleiri tegundir af
þurrmjólk þar sem verðið stendur í
stað eins og SMA Progress, fyrir
böm eldri en sex mánaða, og Nur-
soy-sojamjólkina, en ákveðnir toll-