Morgunblaðið - 05.09.2000, Síða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
GUÐFINNUR ÓLAFUR
EINARSSON
+ Guðfínnur Ólaf-
ur Einarsson,
fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri í Bol-
ungarvík, fæddist í
Hnífsdal 17. október
1922.
Hann Iést á Hrafn-
istu í Hafnarfirði
sunnudaginn 27.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar: Elísabet
Hjaltadóttir húsmóð-
ir og Einar
Guðfínnsson útgerð-
ar- maður í Bolung-
arvík.
Guðfínnur var elstur átta syst-
kina sem öll lifa bróður sinn. Þau
eru: Halldóra, gift Haraldi Ás-
geirssyni; Hjalti, kvæntur Guð-
rúnu Halldóru Jónsdóttur; Hildur,
gift Benedikt Bjarnasyni; Jónatan,
kvæntur Sigrúnu Oskarsdóttur;
Guðmundur Páll, kvæntur Kri-
stínu Marsellíusdóttur; Jón Frið-
geir, kvæntur Margréti Kristjáns-
dóttur; Pétur Guðni, kvæntur
Helgu Aspelund.
17. apríl 1955 kvæntist Guðfinn-
ur Maríu Kristínu Haraldsdóttur
frá Sauðárkróki, f. 17. aprfl 1931.
Foreldrar hennar
voru Guðrún Ingi-
björg Bjarnadóttir
húsmóðir og Haraldur
Júlíusson kaupmaður
á Sauðárkróki. Bróðir
Maríu er Bjarni, kaup-
maður á Sauðárkróki,
kvæntur Ásdísi Kri-
stjánsdóttur.
Börn þeirra Guð-
finns og Maríu eru: 1)
Einar Kristinn, al-
þingismaður, búsettur
í Bolungarvík, f. 2.12.
1955, kvæntur Sig-
rúnu J. Þórisdóttur
kennara. Börn þeirra eru Guð-
finnur Ólafur og Sigrún María.
Sonur Einars er Pétur. 2) Hara-
ldur, sölustjóri, búsettur í Hafnar-
firði, f. 25.11.1957, kvæntur Önnu
Rós Bergsdóttur, kennara: Börn
þeirra eru: María Kristín, Ingi-
björg Huld og Ragnheiður Harpa.
Sonur Haralds er Einar. 3) Guðrún
Kristín, stjórnsýslufræðingur á
heilbrigðissviði, búsett í Kópavogi,
f. 8.7.1961.
Guðfínnur lauk námi frá
Verslunarskóla íslands árið 1941.
Var lengst af frá þeim tíma og til
ársins 1992 stjórnandi og fram-
kvæmdastjóri í fyrirtækjum Ein-
ars Guðfinnssonar í Bolungarvík.
I stjórn Sölumiðstöðvar Hrað-
frystishúsanna frá árinu 1961 til
1992. í stjórn Coldwater Seafood
corp. í Bandaríkjunum frá 1962-
1992 þar af stjórnarformaður frá
1977. í stjórn Jökla hf. frá 1976 til
1988 þar af stjórnarformaður frá
1978. í stjórn Tryggingamið-
stöðvarinnar hf frá 1965 til 1995.
Þar af formaður frá 1977 til 1991.
í stjórn Sparisjóðs Bolungarvíkur
frá 1942 til 1995 og þar af formað-
ur frá 1962 til 1995.1 stjórn Lífeyr-
issjóðs Bolungarvíkur frá stofnun
og um árabil. Varaformaður Sfld-
arútvegsnefndar frá 1977-1979 og
í stjórn Sfldarverksmiðja ríkisins
um all mörg ár. f stjórn og um tíma
stjórnarformaður Vélbátaábyrgð-
arfélags Isfírðinga. Sat í áratugi í
stjórn og samninganefndum Ut-
vegsmannafélags Vestfjarða.
Minningarathöfn um Guðfínn
Einarsson var haldin í Hólskirkju í
Bolungarvík laugardaginn 2. sept-
ember sl.
Útför Guðfinns fer fram frá
Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í dag
og hefst athöfnin klukkan 13.30.
borða ísinn flögraði stór fugl í kring-
um hann og reyndi að taka ísinn af
honum. Það var sama hvert afi fór,
fuglinn elti hann. En afi gaf sig ekki
heldur borðaði ísinn hratt og örugg-
lega. Meira að segja eftir að afi
veiktist og var kominn inn á Hrafn-
istu, þá fór Guðfinnur stundum til
hans með litra af ís og þeir nafnar
kláruðu hann saman.
Rætur afa voru fyrir vestan í Bol-
ungarvík enda var hann uppalinn
þar og vann þar alla sína starfsævi.
Eftir að hann flutti suður vegna
veikindanna dvaldi hugur hans fyrir
vestan, við atvinnulífið, vinina og
fjölskylduna. Afi var reyndar mjög
ánægður með íbúðina sína í Hafnar-
firði. Hann sýndi okkur stoltur út-
sýnið af svölunum hjá sér og naut
þess að fylgjast með umferð bát-
anna.
Óhveheittégunniþér-
Allt hið besta í hjarta mér
vaktir þú og vermdir þinni ást.
Æskubjart um öll mín spor
afturglóðisólogvor
og traust þitt var það athvarf, sem mér
aldrei brást.
(Steinn Steinarr.)
Elsku afi. Þú varst okkur sönn og
góð fyrirmynd og veittir okkur mikla
gleði og ánægju. Við eigum margar
góðar og kærar minningar um þig og
fyrir þær erum við þakklát.
Guðfínnur Ólafur Einarsson og
Sigrún María Einarsdóttir.
Sásem eftir lifir
deyrþeimsem deyr
en hinn dáni lifir
íhjartaogminni
mannaerhans sakna.
Þeireruhimnamir
honumyfir.
(Hannes Pét.)
Góður maður er genginn þar sem
Guðfinnur tengdafaðir minn var.
% Ljúft er að minnast allra þeirra góðu
stunda sem ég átti með honum.
Tíminn er fugl sem flýgur svo
hratt. Rúmlega tuttugu ár eru liðin
síðan ég kynntist tengdaföður mín-
um og fjölskyldu hans. Minningarn-
ar hrannast upp. Eg, borgarbarnið,
sem ekki hafði getað hugsað mér áð-
ur búsetu annars staðar en á hinu
svo kallaða Stór-Reykjavíkursvæði
er allt í einu komin til Bolungarvík-
ur. Allt er breytt, sjóndeildarhring-
urinn stækkar og aðrar áherslur
komnar inn í líf mitt. Atvinnulífið er
blómlegt og mikill uppgangur. Lífið
gengur út á það hvað bátamir eru að
fiska og að næg vinna sé í landi. Stór
og samhent fjölskylda tengdaföður
míns lætur sér hag bæjarbúa miklu
skipta. Fyrirtæki Einars Guðfinns-
sonar eru máttarstólpar bæjarins.
Tengdafaðir minn ásamt tveimur
bræðra sinna stýrir fyrirtækjunum.
Faðir þeirra, Einar Guðfinnsson, er
heldur aldrei fjarri þótt árin séu far-
in að færast yfir.
Á þessum árum hafði Guðfinnur í
mörg horn að líta. Það gefur að skilja
að ærið starf hefur það verið að
stjórna stóru fyrirtæki og sinna
stjórnunarstörfum í ýmsum öðrum
fyrirtækjum. Vinnudagurinn var því
oft langur, ýmis erfið mál varð að
leysa og hugurinn bundinn við það
að allt gengi upp hinn næsta dag.
Guðfinnur var vakinn og sofinn yfir
að allt gengi sem best i Bolungarvík.
" Hann var alinn upp við það að helga
Bolungarvíkinni krafta sina.
Þegar ég lít til baka til þessara ára
stendur upp úr mannkostamaðurinn
Guðfinnur Einarsson, einlægur, blíð-
ur og laus við allan yfírgang. Það
kom mér mjög á óvart að svo önnum
kafínn maður skyldi ætíð gefa sér
tíma til að sinna þeim sem til hans
leituðu, háum sem lágum, ungum
sem öldnum og í annan tíma hef ég
ekki kynnst bambetri manni. Eg tók
strax eftir því að börn löðuðust að
honum og það eitt segir hvaða mann
rfiann hafði að geyma.
Guðfinnur var mikill fjölskyldu-
maður og unni konu sinni og börnum
heitt. Eftir að við tengdadæturnar
bættumst við fengum við að njóta
ástúðar hans í ríkum mæli. Sjaldan
hef ég séð stoltari afa en þegar
fyrsta bamabarnið hans, alnafni
hans Guðfinnur Ólafur, leit dagsins
.rfjós. Síðan bættust sex barnabörn
við og öllum þeim var hann afar kær.
Guðfinnur var afi í þess orðs bestu
merkingu. Bamabörnin nutu þess að
vera í návist hans og ætíð hafði afi
tíma fyrir þau. Notalegt var að fá að
sofa hjá ömmu og afa, láta þau dekra
við sig og þegar þreytan helltist yfir
hnippa í afa og fá hann til að lesa fýr-
ir svefninn.
Fyrir mig sem kem úr lítilli fjöl-
skyldu var það ómetanlegt að kynn-
ast svo stórri og samhentri fjöl-
skyldu sem fjölskylda Einars Guð-
finnssonar er. Mér eru minnisstæð
jólaboð fjölskyldunnar á jóladag. Þá
kom öll stórfjölskyldan í Bolungar-
vík saman og gerði sér glaðan dag.
Þá var tengdapabbi í essinu sínu með
stóran barnaskara í kringum sig.
Ekki sparaði hann sig við að ganga
marga hringi i kringum jólatréð, lék
og söng allt eftir því hvað textinn
bauð upp á hverju sinni. Þá ljómaði
Guðfinnur.
En nú er hans fallegi tenórsöngur
hljóðnaður. Tengdafaðh minn átti
við mikla vanheilsu að stríða síðustu
ár. Sjúkdómurinn rændi þennan
mikla mann þreki og gerði hann lít-
inn og máttfarinn. Ekki vil ég láta
hjá líða að minnast á tengdamóður
mína í þessu sambandi. Hún stóð
eins og klettur við hliðina á manni
sínum í veikindastríði hans og reyndi
af öllum mætti að gera honum lífið
bærilegt. Sjaldan hef ég séð eins ást-
ríkt samband og þeirra hjóna. Þegar
erfiðleikarnir steðjuðu að kom það
enn frekar í ljós. María var sannköll-
uð hetja og við sem næst stóðum
dáðumst að umhyggju hennar og
dugnaði.
I hvert sinn er ég heyri góðs
manns getið kemur tengdafaðir
minn upp í hugann. Ég er ríkari eftir
að hafa kynnst hans hreinu sál og
góðu eiginleikum. Nú er skarð fyrir
skildi. Við bömin, tengdadætur og
barnabörn söknum elskulegs föður,
tengdaföður og afa. En mestur er
missir Maríu, tengdamóður minnar.
En öll erum við þakklát góðum Guði
fyrir að binda enda á þjáningar hans.
En meðan árin þreyta hjörtu hinna,
sem horfðu eftir þér í sárum trega,
þá blómgast enn, og blómgast ævinlega,
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.
(Tómas Guðm.)
Hvil í friði, kæri tengdafaðir.
Sigrún J. Þórisdóttir.
Elsku Guðfinnur minn.
Ég sit hér og horfi á mynd af þér.
Þú brosir á þessari mynd. Mikið
varstu fallegur maður. Fallegur í
víðtækri merkingu þess orðs.
Hávaxinn, grannur og teinréttur.
Alltaf vel klæddur. En þú hafðir líka
svo fallegt hjarta. Þú gast glaðst
innilega þegar vel gekk en tókst líka
nærri þér þegar á móti blés.
Börn áttu greiðan aðgang að
hjarta þínu og gilti þá einu hvort það
voru þín eigin bamaböm eða önnur
börn. Þú gafst þeim athygli þína
óskerta.
Mér varstu góður tengdafaðir. Þú
hvattir mig til dáða þegar ég leitaði
til þín og varst óspar á hrós í minn
garð. Dætrum mínum varst þú ynd-
islegur afi og minningarnar em okk-
ur dýrmætar.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
GekkstþúmeðGuði,
Guðþérnúfylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Þín tengdadóttir,
Anna Rós.
Ein af fyrstu minningum okkar
um afa tengdust heimsóknunum á
skrifstofuna hans í Bolungarvík.
Hann gaf sér alltaf tíma fyrir okkur
og skipti þá engu máli hversu upp-
tekinn hann var. Þetta var dæmigert
fyrir afa. Hann hafði alltaf nægan
tíma fyrir okkur barnabörnin og öll
börn löðuðust að honum. Afi var
barnbesti maður sem við höfum
þekkt, jafnt við okkur sem önnur
börn.
Við munum líka þegar afi var
sendur upp til að svæfa okkur. Hann
var kvöldsvæfur og bækurnar ekki
alltaf svo spennandi fyrir fullorðið
fólk. Það byrjaði að hægja á lestrin-
um hjá honum og á endanum datt
bókin á ennið á afa. Aldrei slapp
hann þó svo auðveldlega, því við
vöktum hann alltaf til að halda lestr-
inum áfram. Alltaf tók afi þessu með
þeirri ljúfmennsku sem einkenndi
hann.
Eftir að við byrjuðum í skóla
fylgdist hann vel með hvernig námið
gekk hjá okkur. Hann vildi að okkur
gengi vel í skólanum. Við systkinin
vorum mjög ung þegar afi byrjaði að
kenna okkur að reikna. Stærðfræðin
var hans uppáhald. Ymsan hugar-
reikning lærðum við þannig, sem
hefur komið okkur að góðum notum.
Þá kom ósjaldan fyrir að lesturinn
fyrir svefninn varð að víkja fyrir
reikningi. Þótt veikindin sæktu á afa
hin síðari ár gleymdi hann aldrei að
spjorja okkur hvernig gengi í skólan-
um. Hann var mjög stoltur af því að
alnafni hans hefði ákveðið að feta í
fótspor hans og fara í Verzlunarskól-
ann.
Afi okkar var sælkeri í meira lagi
og þá sérstaklega þegar kom að ís.
Þá gat hann borðað endalaust. Eins
og þegar við vorum úti í Flórída.
Við fórum í dýragarð og afi fékk
sér ís. Allan tímann meðan afi var að
Elsku afi.
Við söknum þín mikið en um leið
erum við þakklátar fyrir að nú geti
þú hvílst í friði. Nú vitum við líka að
þér líður vel. Við eigum margar góð-
ar minningar frá því að við vorum
yngri eins og þegar þú fórst með
okkur í sund, kenndir okkur lög, last
fyrir okkur á kvöldin og þegar þú
fórst með okkur niður á bryggju í
Bolungarvík.
Svo fyrir þremur árum fluttuð þið
amma hingað í Hafnarfjörðinn. Þar
sagðir þú alltaf að þér liði vel. Þú
varst svo ánægður með íbúðina ykk-
ar ömmu við sjóinn. Það var gaman
að geta komið til þín því þú varst svo
góður vinur og afi. Okkur finnst líka
gott að hafa verið hjá þér síðustu
dagana þína.
Þú, Guð mins lífs, ég loka augum mínum
í líknarmildum fóðurörmum þínum
og hvíli sætt, þótt hverfi sólin bjarta,
ég halla mér að þínu fóðurhjarta.
(M. Joch.)
Þínar afastelpur,
María Kristín, Ingibjörg Huld
og Ragnheiður Harpa.
Eftir einstaklega gott sumar hér
vestur í Bolungarvík sjáum við nú
fyrstu merki haustsins. Birtu bregð-
ur fyrr, húmið sækir á. Brátt mun
sumarskrúði náttúrunnar hopa fyrir
litum haustsins, sem þrátt fyrir feg-
urð sína marka á sinn hátt upphaf
endalokanna. Þeir minna okkur á að
allt hefur sinn tíma, sitt upphaf og
sinn endi. Það var einnig farið að
hausta í lífi föðurbróður míns, Guð-
finns Einarssonar, síðustu árin. 111-
vígur sjúkdómur sótti að honum og
dró hann til dauða 27. ágúst sl. Með
Guðfinni er genginn mikilhæfur at-
hafnamaður. Alla starfsævi sína var
hann í forystu fyrir útgerð og fisk-
vinnslu fyrirtækja Einars Guðfinns-
sonar, sem um áratugaskeið vonj
burðarás heils byggðarlags. Hann
átti þess ekki einungis kost að horfa
á heimabæ sinn Bolungarvík, breyt-
ast úr litlu sjávarþorpi í myndarleg-
an kaupstað, heldur lék hann stórt
hlutverk í þeirri íramfarasögu. Jafn-
framt voru honum falin margvísleg
trúnaðarstörf innan sjávarútvegsins.
Hann sat um langa hríð í stjórn Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna og
ýmissa dótturfyrirtækja og gegndi
trúnaðarstörfum innan margra fé-
laga og samtaka í vestfirskum sjáv-
arútvegi. Þá sat Guðfinnur í stjórn
Sparisjóðs Bolungarvíkur frá tví-
tugsaldri og fram yfir sjötugt, eða í
meira en hálfa öld, þar af sem for-
maður síðasta aldarþriðjunginn.
Ég man Guðfinn fyrst sem ungan
mann, þá undir fertugu. Hann var
óvenju hár maður, brosmildur og
hlýr, en jafnframt alvörugefinn.
Skrifstofuherbergið hans á gömlu
skrifstofunni, sem þá var nýja skrif-
stofan, var á milli herbergja afa og
föður míns. Símarnir hringdu lát-
laust og margir þurftu að ná tali af
þeim feðgum. Þrátt fyrh- það annríki
sem að sjálfsögðu íylgdi umsvifa-
miklum rekstri, gaf Guðfinnur sér
alltaf tíma til að tala við okkur
krakkana. Mér eru minnisstæðar
heimsóknir okkar til hans á skrif-
stofuna. Þá sýndi hann okkur gjarn-
an skipamyndir í erlendum blöðum,
klippti þær út og gaf okkur. Þótt
honum hafi eílaust oft fundist komur
okkar tíðar, man ég aldrei eftir að
hann vísaði okkur á bug, í mesta lagi
bað hann okkur að mæta örlítið
seinna. Guðfinnur hóf snemma að
vinna með föður sínum, Einari Guð-
finnssyni í ört vaxandi atvinnu-
rekstri hans í Bolungarvík. Hann var
sendur til náms í Verzlunarskóla Is-
lands, sem títt var um drengi sem
hasla vildu sér völl í viðskiptum á
þeim tíma. Meðfram náminu þótti
sjálfsagt að hann sæi um ýmis inn-
kaup fyrir útgerðina og verslunina
heima í Bolungarvík. Mörg skemmti-
leg sendibréf hafa varðveist sem
fóru á milli þeirra feðga á skólaái'um
Guðfinns. Bréfin sýna að til mikils
var ætlast af skólapiltinum sem þá
var enn á táningsaldri. Þótt boðið
hafi verið upp á framhaldsnám til
stúdentsprófs í Verzlunarskólanum
hefur það vart verið valkostur fyrir
Guðfinn frænda. Hugurinn var
heima í Bolungarvík og störfin köll-
uðu. Ekki var síst þörf fyrir ungan
mann með góða menntun í færslu
bókhalds. Enda varð það hans hlut-
skipti fyrstu árin eftir að námi lauk
að handfæra bókhaldið fyrir atvinnu-
reksturinn. Bókhaldsvinnan var að
miklu leyti unnin um kvöld og helg-
ar, þannig að vinnuvikan var oft
löng.
Atvinnureksturinn varð viðameiri
með hverju árinu sem leið. Tveir af
yngri bræðrum Guðfinns, Jónatan
og Guðmundur Páll, komu til starfa
við fyrirtækin, næg voru verkefnin.
Fyrirtækin urðu stór og öflug, rekst-
urinn var afar fjölþættur. Nýir bátar
og síðar skip bættust í flotann.
Frystihúsið var stækkað, rækju-
verksmiðja var sett á laggirnar,
byggð var síldarverksmiðja, ný
verslun tók til starfa. Á síldaráran-
um var rekin söltunarstöð á Siglu-
firði í samvinnu við Skafta Stefáns-
son og síðar var einnig rekin
söltunarstöð á Seyðisfirði. Allt að
átta bátar voru gerðir út á síld á veg-
um fyrirtækjanna, þannig að umsvif-
in vora ærin. Bolungarvík óx og
dafnaði í takt við vöxt fyrirtækisins,
þótt íbúum fækkaði víðast á Vest-
fjörðum. Þeir voru fáir Bolvíking-
arnir sem ekki komu einhverju sinni
að starfi við fyrirtækin, á síðustu
fjóram áratugum aldarinnar.
Guðfinnur var framkvöðull. Dæmi
um það er að eftir hran síldarstofns-
ins ferðaðist hann um Bandaríkin
ásamt Hjalta bróður sínum, sem var
einn af framkvæmdastjóram S.H., til
að kynna sér veiðar og verkun á
skelfiski. Sú ferð varð kveikjan að
því að Bolvíkingar hófu að nýta
hörpudisk, og komu ýmsir í kjölfarið.
Vinnslan stóð í þrjú ár en var hætt
sökum skorts á vinnuafli.
Jónatan faðir minn og Guðfinnur
vora nánir samstarfsmenn við
stjórnun fyrirtækjanna í tæp 50 ár.
Mikil vinátta var á milli þeirra
bræðra og reyndar fjölskyldunnai-
allrar. Ég þekkti því Guðfinn vel allt
frá barnæsku. Ég átti þess kost að
vinna náið með þeim bræðrum í tæp
fimmtán ár. Fyrstu árin var Einar
afi jafnframt í fullu fjöri. Það var af-
ar lærdómsríkur tími fyrir mig og ég
kynntist Guðfinni með öðram hætti.
Eftir að hafa unnið í áratugi við sjáv-
arútveginn, hafði hann yfirgrips-
mikla þekkingu, bæði á veiðum og
vinnslu. Hann hafði ungur fengið
mannaforráð. Hálfþrítugur fór hann
fyrst til Siglufjarðar að sjá um síld-
arkaup og útréttingar við nótaskip
fyrirtækisins.
Meðan síld var söltuð á Siglufirði,
dvaldist Guðfinnur því langdvölum
fyrir norðan. Aldurinn var heldur
ekki hár, þegar hann samdi um smíði
á fyrsta bátnum erlendis, en þeir
samningar urðu nokkrir áður en yfir
lauk. Guðfinnur bjó því að afar fjöl-
þættri og langri reynslu. Sem fyrr