Morgunblaðið - 28.09.2000, Page 1

Morgunblaðið - 28.09.2000, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA B 2000 U FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER BLAÐ Andri samdi við Salzburg ANDRI Sigþórsson úr KR, markakóngur efstu deildar- innar í knattspymu, gekk í gær frá samkomulagi við austurríska félag- ið Salzburg, samkvæmt frétt sem birtist á heimasíðu félagsins síð- degis í gær. Þar er jafnframt sagt að Salzburg leggi mikla áherslu á að fá hann strax frá KR og fyrir hann verði greitt það sem til þm-fi. Eins og áður hefur komið fram hafa KR-ingar ekki viljað ganga frá félagaskiptunum fyrr en tryggt væri að þeir fengju greiðslu fyrir Andi-a. Hann er með samning við KR til áramóta. Ekki náðist í Andra í gær og Eyj- ólfur Bergþórsson, umboðsmaður hans, viidi ekkert segja um málið annað en: „Andri er enn leikmaður KR.“ Á heimasíðunni segir: „Salzburg og hinn 23 ára gamli Islendingur hafa komist að samkomulagi um samning til nokkuira ára. Allt útlit er fyrir að Sigþórsson verði kominn strax um miðjan október í fremstu víglínu hjá Salzburg.“ Samkvæmt þessu er stefnt að því að Andri spili gegn GAK í úrvals- deildinni hinn 14. október en eftir 13. umferð deildarinnar næsta laug- ardag er hálfs mánaðar frí í Austur- ríki vegna landsleikja. Með fréttinni fylgja tvær myndir af Andra með trefil Salzburg um hálsinn og á annarri býður Giinter Kronsteiner framkvæmdastjóri hann velkominn til félagsins. „Við höfum ekkert heyrt frá Salz- burg en bíðum bara spenntir," sagði Björgólfur Guðmundsson, formaður KR-Sport, við Morgunblaðið í gærkvöld, en KR-Sport sér um mál Andra fyrir hönd KR. Salzburg er í fjórða sætinu í Aust- urríki, fimm stigum á eftir topplið- inu Rapid Wien. Liðinu hefur geng- ið illa að skora mörk, hefur gert 16 mörk gegn 15 í 12 leikjum, og vantar tilfinnanlega sóknarmann. Salzburg hefur verið í fremstu röð í Austur- ríki á undanfornum árum og unnið meistaratitílinn þrívegis frá 1994. Fyrir eru hjá félaginu sjö erlendir leikmenn, þar af fjórir Ungveijar. Bubka úr leik SERGEI Bubka, mesti stang- arstökkvari allra tíma, verð- ur ekki meðal þeirra tólf bestu þegar úrslitakeppnin í stangarstökki Ólympíuleik- anna fer fram. Bubka komst ekki yfir 5,70, sem var byrj- unarhæð hans og féll því úr keppni án þess að komast yf- ir rána. Bubka, sem er 36 ára gam- all frá Úkraínu, hefúr átt við meiðsli að stríða undanfarið ár og átt í erfíðleikum með að komast byqunarhæð sína í hveiju mótinu af öðru. Stangarstökkskeppnin í Sydney hafði staðið í rúmar þrjár klukkustundir þegar Bubka mætti til lejks og ráin var komin í 5,70. Áhorfend- ur hylltu hann með lófa- klappi en þeir höfðu ekki ástæðu til að klappa oftar fyrir honum því hann hljóp undir rána í fyrstu tilraun en felldi hana í næstu tveimur og gekk í síðasta sinn út af Olympíuleikvangi sem kepp- andi. Bubka setti 17 heimsmet á ferlinum og er núverandi heimsmetshafi með 6,14 metra og varð meðal annars fyrstur til að stökkva yfir sex metrana. Hann varð sex sinnum heimsmeistari en að- eins einu sinn ólympíumeist- ari, 1988 í Seoul. Kristinn R. tekur við Fram Kristinn R. Jónsson var í gær ráðinn knattspyrnustjóri Fram og er samningur hans til þriggja ára með hefðbundnum ákvæðum um endurskoðun eftir hvert tímabil. Kristinn, sem þjálfaði Eyjamenn í sumar, er ekki ókunnur hjá Fram því hann lék með meistaraflokki fé- lagsins á árunum 1981-1993 og vann til ófárra titla með því. „Þetta er mjög áhugavert verkefni ef menn ætla að byggja liðið upp á þremur árum eins og stjórn félagsins stefn- ir að,“ sagði Kristinn þegar samn- ingurinn var undirritaður í gær. Sveinn Andri Sveinsson, formað- ur Fram Fótboltafélags Reykjavík- ur hf. sagði við þetta tækifæri að ákveðin tímamót væru hjá félaginu, ungir piltar að koma upp, piltar sem væru aldir upp í félaginu og ætlunin væri að byggja á þeim kjarna. Kristinn tók í sama streng og sagði að hann myndi á næstu dögum ræða við leikmenn meistara- flokksins og síðan yrði kannað hvort og þá með hverjum kjarna- hópurinn yrði styrktur. Samningamál félagsins eru þann- ig að allir leikmenn eru með eins til tveggja ára samning nema Guðgeir Steinarsson sem er með lausan samning. Spurður um hvort hann héldi að hann fengi frið til að byggja upp gott lið á þremur árum sagði Krist- inn: „Eg treysti því vegna þess að það hefur vantað ákveðinn kjarna hjá Fram undanfarin ár, nú er hann til staðar og úr því þarf að vinna. Það hefur verið verslað talsvert á þessum bæ undanfarin ár án þess að það hafi skilað árangri og nú er kominn tími til að líta til baka og gefa sér tíma til að byggja upp.“ Þess má geta í framhjáhlaupi að knattspyrnudeild Fram var að flytja í gær, fór úr félagsheimilinu yfir í íþróttahúsið en gamla félags- heimilið verður notað sem félags- miðstöð. Morgunblaðið/Sverrir „ÉG er sátt við mitt verk og get hætt afar sæl með mína frammi- stöðu á leikunum," sagði Guðrún Arnardóttir, eftir að hafa hafnað í sjöunda sæti í úrslitahlaupi 400 m grindahlaupsins á Ólympíuleikun- um í Sydney í gær. Guðrún hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir afar glæsilegan feril á hlaupa- brautinni. Hér á myndinni sendir hún áhorfendum kveðjukoss. ■ Kveðjustund.../B6 ■ Sterkir mótherjar.../B6 ■ Vonast eftir.../B7 Orri skoraði fýrir Stoke ORRI Freyr Hjaltalín, markakóngnr 2. deildarinn- ar í knattspyrnu úr Þór á Akureyri, æfir þessa dag- ana með Stoke City og verð- ur hjá enska félaginu út næstu viku. Hann lék í gær með varaliði Stoke og skor- aði eitt mark í sigurleik gegn Wrexham, 3:1, með skalla eftir aukaspyrnu. Orri Freyr er tvítugur og skoraði 20 mörk fyrir Þórs- ara í deildinni í sumar og mörg íslensk félög hafa rennt til hans hýru auga en bæði Grindavík og Breiða- blik freistuðu þess að fá hann í sínarraðir fyrir loka- sprettinn á íslandsmótinu. MIKIL VONBRIGÐI HJÁ JÓNIARNARI í SYDNEY /B4, B5

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.