Morgunblaðið - 28.09.2000, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
"2°^ QQ9
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2000 B 7
I-
Morgunblaðið/Sverrir
mpíuleikvanginum í Sydney í gær, í sínu síðasta hlaupi - fremst á mynd-
inni er sigurvegarinn Irina Privalova.
Jlfinningar í mér núna, ætli það
il tilfinningaleg ólga,“ sagði Guðrún
sér 7. sætið í úrslitum 400 m
num í Sydney í gær. „Ég er sátt við
lína frammistöðu á leikunum. Ég er
(ifæri og ég vona að allir heima séu
slenska íþróttahópnum höfum gert
onsverðlaun Völu Flosadóttur
ita til þess að vera þjóð minni til
ir séu ekki sáttir við ákvörðun hennar,
telja að hún eigi enn eftir að eiga góð ár til
viðbótar í fremstu röð þá virðist Guðrúnu
ekki verða hnikað.
Úrslitahlaupið í Sydney átti að vera
lokapunkturinn og verður það að sögn
Guðrúnar. „Þetta var síðasta stórmótið,
það er á hreinu. Ég er hins vegar ekki
hætt að hreyfa mig, það er einnig alveg
Ijóst ogþað er aldrei að vita nema félagar
mínir í Armanni geti haft eitthvað gagn af
mér áfram í bikarkeppninni," sagði Guð-
rún með bros á vör og vitnar til þess fé-
lags sem staðið hefur með henni í gegnum
súrt og sætt undanfarin ár.
„Árin í íþróttunum hafa gefið mér mik-
ið, þótt ekki hafi þau alltaf verið dans á
rósum. En núna, þegar öllu er botninn
hvolft, er ég einfaldlega þakklát fyrir að
hafa fengið tækdfæri til að keppa á tvenn-
um Ólympíuleikum, það er nokkuð sem
fáir fá möguleika á.“ Guðrún sagði að
samstaða íslenska hópsins á leikunum
hafi verið mikil og hafi þau deilt sorg og
gleði vegna írammistöðunnar á leikunum.
,úUidinn er frábær, alveg frábær, síðan
við komum til Ástralíu, hér höfum við
samglaðst yfir góðum árangri og einnig
deilt sorgum þegar miður hefur vegnað.
Hópurinn er fámennur en einstaklega vel
skipaður og ég tel að við getum borið höf-
uðið hátt, í íslenska ólympíuhópnum eru
aðeins sannir íþróttamenn og það má alls
ekki hengja haus þótt ekki hafi allt gengið
upp hjá öllum. íþróttirnar eru einfaldlega
þannig að það skiptast á skin og skúrir."
En heldur Guðrún ekki að hún fái fíðr-
ing í fætumar þegar hún fylgist næst
með stórmóti í frjálsíþróttum sem áhorf-
andi?
„Eflaust fæ ég einhvem fiðring, sér-
staklega þegar ég sé hlaupið, enda hefur
verið samasemmerki milli mín og hlaupa
verulegan hluta ævinnar, segja má að
hlaup og ég séu eitt. Það er aldrei að vita
nema ég poti mér eitthvað áfram þannig
að menn verði ekki alveg lausir við mig.
Sjáum til hvað setur,“ sagði Guðrún Am-
ardóttir.
Paul Doyle, þjálfari Guðrúnar Arnardóttur, segir
að hún eigi meira inni sem íþróttamaður
Vonast eftir
henni á
nýjan leik
„TILFINNINGAR mínar eru
blendnar, en ég er ánægður
fyrir hönd Guðrúnar að henni
skuli hafa tekist að komast í
úrsiit á Ólympíuleikum, það er
mikið afrek,“ sagði Banda-
ríkjamaðurinn Paul Doyle,
þjálfari Guðrúnar Arnardóttur,
eftir að hún hafði lokið keppni
á Ólympíuleikunum.
Það fyrsta sem hún sagði við mig
eftir hlaupið var að hún hefði
svo gjaman viljað hlaupa hraðar og
það sýnir vel hversu
jvar metnaðarfullur
Benediktsson íþróttamaður hún er.
skrifar Hún er ekki fullkom-
frá Sydney iega ánægð með það
sem hún hefur gert. Þessi metnaður
hefur fleytt henni svo langt sem raun
ber vitni og við sáum í kvöld,“ sagði
Doyle sem hefur séð um þjálfun Guð-
rúnar frá síðasta vetri. Guðrún er
einn sex íþróttamanna sem hann
þjálfar sem tekur þátt í Ólympíuleik-
unum í Sydney.
Ég er einnig ánægður fyrir hönd
íslands, þjóðin á tvo keppendur í úr-
slitum frjálsíþróttakeppninnar og
þeir ná framúrskarandi árangri.
Þannig tel ég að allir á íslandi geti
verið ánægðir og stoltir af sínu fólki
sem hefur tekið þátt í leikunum.“
Guðrún hefur tekið framfömm
undir stjórn Doyles þótt hún hafi
ekki verið undir hans stjórn nema í
minna en eitt ár. Honum hefur tekist
að draga kosti hennar fram og koma
meira jafnvægi á frammistöðu henn-
ar. Doyle segist ekki hafa eina skýr-
ingu á því hvernig standi á framför-
um hennar. Hann hafi í sjálfú sér
ekki breytt miklu í æfingum hennar
frá því sem verið hefur undanfarin
ár.
„Breytingamar eru ekki neitt
gríðarlegar. Snemma árs unnum við
mikið í tæknilegum atriðum, bættum
styrkinn og reyndum að bæta tækni
hlaupsins. Það sem ég held að hafi
haft góð áhrif á Guðrúnu er sú góða
stemmning sem er innan þess hóps
sem hún æfir í, áður var hún meira
ein við æfingar, en síðan hún kom til
mín hefur hún verið hluti af hópi og
það hefur laðað fram það besta í
henni, veitt henni stuðning auk þess
að hún hefur félagsskap af íþrótta-
mönnum sem stefna að sama marki.“
Nú ætlar Guðrún að hætta, fínnst
þér hún ekki hætta of snemma?
„Það finnst mér. En ég veit hins
vegar að hana langar til þess að rifa
seglin eftir að hafa lagt mikið á sig til
þess að ná árangri á undanförnum
áram. I mínum huga er enginn vafi á
að hún getur enn bætt veralega við
sig, efniviðurinn er fyrir hendi. Ég
hef að undanförnu minnt hana á það
á hverjum degi að á næsta ári komi
hún aftur og fari að æfa fyrir 100
metra grindahlaup, sem mig langar
til þess að hún spreyti sig á.
Guðrún hefur tekið sína ákvörðun
og ég virði hana þótt ég leyfi mér um -
leið að láta þær skoðanir mínar í ljósi
að hún eigi að taka slaginn eitthvað
lengur.
En ég ætla hinsvegar að gera mitt
besta til þess að hún endurskoði
ákvörðun sína.
Það reynir mjög á taugarnar, ekk-
ert síður en líkamann, að vera íþrótt-
maður og til þess að ná árangri þurfa
menn að leggja sig alla fram, gefa sig
fullkomlega í hlutverkið. Það er
mjög krefjandi og getur verið lýjandi
til lengdar. En ég vona svo sannar- f
lega að hún verði komin á fullt við
æfingar á nýjan jeik þegar kemur
fram á næsta ár. Ég get bara vonað,
ákvörðunin um að halda áfram eða
taka upp þráðinn á nýjan leik er al-
gjörlega í valdi Guðrúnar," sagði
Doyle.
Knvaiova
Rússlandi
Ólympíumeistari í 400 metra
grindahlaupi kvenna.
Fædd: 22. nóvember 1968 í
Malakhoa, Rússlandi. Á 12
ára gamlan son.
Helstu afrek: Varð í þriðja
sæti í 100 metra hlaupi á Ól-
ympíuleikunum í Barcelona
1992 og var í silfursveit Rússa
í 4x100 metra boðhlaupinu.
■ Náði öðm sæti í 200 metra
hlaupi á heimsmeistaramót-
inu í Gautaborg 1995 og varð
þriðja í 100 metra hlaupinu.
■ Er Evrópumeistari í 200
metra hlaupi frá því í Búda-
pest 1998 og varð önnur í 100
metra hlaupinu.
■ Sneri sér að 400 metra
grindahlaupi fyrr á þessu ári
og hefur náð betri árangri
með hverju hlaupi.
■ Lagði stund á skautahlaup
áður en hún sneri sér að
spretthlaupum.
Rússinn Irina Privalova kemur í mark sem sigurvegari í 400 m
grindahlaupi kvenna, með Guðrúnu Arnardóttir á vinstri hönd
og á hægri hönd hennar er Nouzha Bidouane frá Marokkó.
Gaf ekki á sjóinn
ÞAÐ gaf ekki á sjóinn hjá Haf-
steini Ægi Geirssyni siglinga-
manni á Ólympíuleikunum í
gær. Þá átti að fara áttunda
umferð keppninnar á Laser-
kænum sem frestað var í
fyrradag vegna veðurs. Kepp-
endur voru í bið í sex klukku-
stundir niðri við höfn í gær
eftir að þeir fengu merki um
aðhefja keppni en vegna ótta
mótshaldara um að leiðinda-
veður með þrumum og elding-
um væri í aðsigi var keppninni
sífellt frestað. Ekkert varð úr
óveðrinu eins og óttast var
heldur brást á með þvílíkri
blíðu. Samt sem áður var hik á
mótsstjórninni og því varð
ekkert úr keppni að sögn
Birgis Ara Hilmarssonar sem
er Hafsteini til halds og
trausts á leikunum. Nú er
stefnt að því að sigla þrjár um-
ferðir í dag en upphaflega var
áætlað að fara tvær. Síðasta
umferðin er síðan áformuð á
föstudaginn en byr ræður.
3*