Morgunblaðið - 28.09.2000, Síða 6
6 B FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
1. braut:
|Nathasa Danvers, Bretlandi, 19.09.197/
í fyrsta sinn í úrslitum á stórmóti.
2. braut:'7 Guðrún Arnardóttir, íslandi, 24.09.1971
4.sæti í 400 m grindahalupi á EM í Búdapest 1998.
3. braut: [—-| Irina Privalova, Rússlandi, 22.11.1968
1 .sæti í 200 m hlaup á EM í Búdapest 1998
2. sæti í 200 m halupi á HM í Gautaborg 1995
3. sæti í 100 m hlaupi á HM í Gautabrog 1995
l.sæti í 100 m hlaupi á EM í Helsinki 1994
1 .sæti í 200 m hlaupi á EM í Helsinki 1994
3.sæti í 100 m hlaupi á ÓL í Barcelona 1992
4. braut:
5. braut:
Nouzha Bidouane, Marokkó, 18.09 1969
1. sæti í 400 m grindahlaupi á HM í Aþenu 1997
2. sæti i 400 m grindahlaupi á HM í Sevilla 1999
Daimi Pernia, Kúbu, 27.12.1976
l.sæti i 400 m grindahlaupi á HM í Sevilla 1999
tsæti í 4x400 m boðhlaupi á HM í Sevilla 1999
l.sæti (400 m grindahlaupi á heimsleikum stúdenta 1999
1. sæti í 400m grindahlaupi á Mið Amerkíkuleikunum 1999
6. braut: Deon Hemmings, Jamaíku, 9.10.1968
1-sæti í 400 m grindahlaupi á Ólympíuleikunum i Atlanta 1996
3.sæti í 400 m grindahlaupi á HM í Sevilla 1999
2. sæti í 400 m grindahlaupi á Samveldisleikunum 1998
2. sæti í 400 m grindahlaupi á HM í Aþenu 1997
3, sæti í 400 m grindahlaupi á HM í Gautaborg 1995
7. braut: I E lonela Tirlea, Rúmeníu, 9.2.1976
7. sæti í 400 m grinahlaupi á ÓL í Atlanta 1996
1. sæti í 400 m hlaupi á HM innanhúss í Japan 1999
1 .sæti í 400 m grindahlaupi á EM í Búdapest 1998
| Tetyana Tereshcuk-Antipova, Úkraínu, 11.10.1069
7.sæti í 400 m grindahlaupi á HM í Sevilla 1999
2. sæti í 400 m grindahlaupi á EM í Búdapest 1998
4, sæti í 400 m grindahlaupi á HM í Aþenu 1997
5. sæti í 400 m grindahlaupi á Hm í Gautabrog 1995
8. braut;
Getha
Guðrún Arnardóttir á ferðinni á Ólyi
Mótherjar Guðrúnar
í kveðjuhlaupinu
Úrslit í 400 m grindahlaupi á OL í
Guðrún Arnardóttir varð í 7. sæti í úrslitum 400
EINS og við mátti búast lagði Guðrún Arnardóttir sig alla fram í
því sem hún hefur sjálf kallað síðasta alvöru keppnishlaup ferils-
ins á þeim stað sem hún ætlaði sér, í úrslitum 400 m grinda-
hlaups á Ólympíuleikum. Eftir að hafa tekið ákvörðun fyrir all-
nokkru um að rifa seglin að leikunum loknum lagði Guðrún sig
fram um að komast skrefinu iengra en fyrirfjórum árum í Atlanta,
þ.e. í úrslitin. Og henni brást ekki bogalistin. Hún hafnaði í 7.
sæti á 54,63 sekúndum, fjórða besta tíma ferilsins.
Olympíumeistari varð Rússinn
Irina Privalova á 53,02 og
stórbætti sinn fyrri árangur. Silfr-
ið kom í hlut ól-
jvgr ympíumeistarans
Benediktsson frá því fyrir fjórum
skrifar árum, Deon Hemm-
fráSydney ings frá Jamaíku,
sem kom í mark á 53,45 sem er
hennar besta á þessu ári og brons-
ið féll í skaut heimsmeistarans frá
1997 og silfurverðlaunahafans á
HM í fyrra, Nouzha Bidoune frá
Marokkó. Hún mældist hafa komið
í mark 53,57 sekúndum eftir að
viðbragðsmerkið var gefið.
Guðrún var mjög einbeitt fyrir
hlaupið, undirbjó sig af kostgæfni
en sýndi lítil svipbrigði þegar út á
völlinn var komið. Hún var á ann-
arri braut með Bretann Natasha
Danvers sér til vinstri handar á
fyrstu braut og rússnesku ham-
hleypuna Privalovia á hægri hönd
á þriðju braut. Nokkurn tíma tók
að koma hlaupinu af stað sökum
þess að mikið var um að vera á
vellinum sem endranær þegar
keppt er til úrslita í mörgum
greinum á sama tíma. Loks gaf
ræsir hlaupsins merki og stúlkurn-
ar skutust af stað. Guðrún náði
góðu viðbragði en tókst e.t.v. ekki
að fylgja því sem skildi eftir. Var
hún um tíma síðust en eftir mitt
hlaup var hún komin á skrið. Fum-
laust stökk hún yfir hverja grind-
ina á fætur annarri, tæknin var í
lagi en hraðann, sem vantaði að-
eins upp á í fyrri hlutanum, tókst
henni aldrei að vinna upp að fullu.
Síðasti kaflinn var sterkur hjá
Guðrúnu, hún hristi bresku stúlk-
una af sér þegar 150 metrar voru
eftir og á síðustu 100 metrunum
sótti hún að Evrópumeistaranum,
Ionelu Tirleu frá Rúmeníu. Sú
sókn tókst ekki sem skyldi, bilið
var of mikið. Guðrún kom sjöunda
í mark, sæl og ánægð, sátt við sinn
hlut á 54,63.
Privalova hafði nokkra sérstöðu
í hlaupinu. Hemmings ólympíu-
meistari réði ekki við kraft og
snerpu gamla spretthlauparans
sem á vordögum söðlaði um eftir
að hafa verið í nokkrum ógöngum
með feril sinn sem spretthlaupari
á skemmri leiðum. Privalova fagn-
aði ákaft enda hennar fyrstu gull-
verðlaun á Ólympíuleikum og
sennilega þau sem hún átt sist von
á fyrir svo sem um hálfu ári. Bid-
ouane átti heldur ekki neitt í
Privalovu að gera og varð að gera
sér þriðja sætið að góðu og Pernia
heimsmeistari, sem ætlaði sér svo
mikið í þessari grein, varð að bíta í
það súra epli að verma það sæti
sem oft er kallað versta sætið, þ.e.
það fjórða. Hennar bíður að koma
reynslunni ríkari að fjórum árum
liðnum.
Guðrún hefur hins vegar ekki
uppi neinar áætlanir að mæta til
leiks að fjórum árum liðnum. Petta
var hennar síðasti dans á hlaupa-
brautinni. Hann var eftirminnileg-
ur eins og reyndar öll þáttaka
hennar á leikunum. Ekki einatt
ritaði hún nýjan kafla í eigin sögu
sem afreksmaður í fremstu röð í
heiminum heldur og ekki síður
ruddi hún íslenskum hlaupurum
nýja braut á Ólympíuleikum með
því að tryggja sér sæti í úrslitum í
hlaupagrein fyrst íslenskra hlaup-
ara. Þar með undirstrikaði hún um
leið að allt er hægt ef vilji, einurð,
dugnaður og stefnufesta er hafður
að leiðarljósi og um leið sú vitn-
eskja að síst skuli gefast upp þótt í
mót blási á köflum. Vilji er allt
sem þarf, það hefur Guðrún Arn-
ardóttir sannað með frábærri
frammistöðu sinni undanfarin ár á
hlaupabrautum vítt og breitt um
heiminn, frammistöðu sem reis
hæst á ólympíuleikvanginum í
Sydney í gær. Um leið stóð Guð-
rún við það heit sem hún hafði gef-
ið fyrir nærri fjórum árum er hún
gerði samning við afreksmanna-
sjóð ÍSÍ, að komast í úrslit á Ól-
ympíuleikunum í Sydney, það lof-
orð fannst Guðrúnu sér bera
skylda til að efna, sjálfrar sín
vegna og ekki síður fyrir þjóð sína
sem hún hefur víða verið merkis-
beri fyrir. Vart er hægt að hugsa
sér samviskusamari íþróttamann.
Morgunblaðið/Sverrir
Guðrún Arnardóttir þakkar fyrir sig eftir kveðjuhlaupið. Hún
gat ekki valið betri stað til kveðjustundar en í úrslitum á ÓL.
„ÞAÐ bærast svo sannarlega ýmsar 1
megi ekki segja að það ríki í mér miki
Arnardóttir, eftir að hún hafði tryggt i
grindahlaups kvenna á Ólympíuleiku
mitt verk og get hætt afar sæl með m
þakklát fyrir að hafa fengið þetta tæl
ánægðir með þar sem ég og aðrir úr í
hér á leikunum og þá ber auðvitað br
hæst. Ég naut þess að gera mitt ítras
sóma,“ sagði Guðrún.
Ivar
Benediktsson
skrifar
frá Sydney
Guðrún sagði um hlaupið í gær að hún
hafi verið vel fyrirkölluð og alls ekki
verið nein sérstök spenna í sér. Henni
hafi tekist að einbeita sér
vel. „Ég er orðin of sjóuð
til þess að fara á taugum
á þessari stundu og veit
hvemig best er að haga
sér til þess að halda jafnvægi á stundum
sem þessari. Ætli ég hafi ekki verið svo
ákveðin í að gera vel að það komst ekkert
annað að. Enda tókst það, þótt ég hefði ef
til vill viljað byrja aðeins betur en ég
gerði. Hvemig á því stendur veit ég ekki
enn. Tæknilega tókst hlaupið vel en hrað-
inn hefði mátt vera og átti að vera aðeins
meiri á fyrri hluta hlaupsins."
Þetta var síðasta keppnishlaup Guð-
rúnar á stórmóti í íþróttum og þótt marg-
Vala
vekur
athygli
AFREK Völu Flosaddttur í
stangarstökkinu á mánu-
dag, þar sem hún vann til
BBHI bronsverð-
Ingibjörg launa, hefur
Hinriksdóttir vakið tals-
verða athygli
fráSydney meða, al. S
mennings hér í Sydney.
Astralir eru óragir við að
spyrja aðkomumenn hér
hvaðan þeir séu úr heimin-
um og eftir afrek Völu
hafa vinsældir íslendinga
tekið mjkið stökk uppá við.
„Ó, já, ísland vann verð-
laun í stangarstökkinu um
daginn. Það var frábært.
Hún var svo innilega glöð
islenska stúlkan sem fékk
bronsverðlaunin. Hljóp
fagnandi um völlinn og
grét í fanginu á þjálfaran-
um sínum. Það var frá-
bært,“ sagði einn grænmál-
aður Ástrali við mig fyrir
framan Ólympíuleikvang-
inn í gær. „Ég vildi að allir
fögnuðu svona innilega
eins og hún gerði,“ bætti
hann við.
Og Vala hefur líka vakið
athygli í Ólympíuþorpinu.
Þegar hún sat ásamt félög-
um sínum í íslenska liðinu
að snæðingi komu tveir litl-
ir snáðar, sem voru þar í
heimsókn, til hennar og
óskuðu eftir eiginhand-
aráritun. Var það auðsótt,
en þegar nánar var að gáð
voru þessir ungu herra-
menn í heimsókn í þorpinu
á vegum afa síns, Juan
Antonio Samaranch, for-
seta Alþjóðaólympíusam-
bandsins.
Kveðjustund
í Sydney