Morgunblaðið - 28.09.2000, Qupperneq 8
8 B FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
KÖRFUKNATTLEIKUR
■ JOHN JOHNSON sem lék með
Fram og ÍA á sínum tíma hefur
skorað mest allra í einum leik í úr-
valsdeildinni frá upphafi eða 71 stig
gegn IS árið 1979. Næstur kemur
Joe Wright sem skoraði 67 stig fyr-
ir Breiðablik í sigurleik gegn
Njarðvík árið 1993.
WíVALUR INGIMUNDARSON er
sá islenski leikmaður sem skorað
hefur mest í einum leik í deildinni
frá upphafi, 54 með liði Tindastóls
gegn Haukum 1988. Valur bætti
þar með metið sem hann átti reynd-
ar sjálfur frá árinu 1985 er hann
skoraði 53 stig þá sem leikmaður
Njarðvíkur gegn ÍR.
■ NÆSTIR koma Keflvíkingamir
Guðjón Skúlason sem skoraði 49
stig gegn KR árið 1989 og Kristinn
Geir Friðriksson, sem setti 49 stig
fyrir Þór A. gegn ÍA 1995.
■ FLEST fráköst leikmanns í ein-
um leik eru 35 og það met á
Rondey Robinson sem hann setti í
leik rneð Njarðvík gegn Haukum
1990. Islensku leikmennimir Guð-
mundur L. Bragason og Helgi
Rafnsson eiga sameiginlega frák-
astsmet innlendra manna, 29 frá-
köst í leik. Guðmundur með
Grindavík gegn ÍS 1988 og Helgi
með Njarðvík gegn Keflavík 1989.
UFLESTAR stoðsendingar í ein-
um leik á David Edwards sem var
einn af mörgum erlendum leik-
manna KR árið 1996. Edwards
mataði félaga sína með 18 stoð-
sendingum gegn ÍR. Jón Kr. Gísla-
son á met íslensku leikmannana en
Jón gaf 17 stoðsendingar í leik
Keflavíkur og Vals árið 1991.
■ METIÐ í flestum vörðum skotum
í einum leik eiga þeir John Rhodes
og Hjörtur Þór Hjartarson eða_9
varin skot í leik. Rhodes fyrir IR
gegn Þór á Akureyri árið 1996 og
Hjörtur gegn ÍR sem leikmaður
Vals árið 1997.
■ ÞAÐ met sem fæstir vilja eiga í
úrvalsdeildinni á Valur Ingimund-
arson en hann tapaði 20 sinnum
boltanum fyrir Tindastól gegn ÍR
árið 1989. Franc Booker kemur
næstur á eftir Val með 13 tapaða
bolta sem leikmaður ÍR gegn
Njarðvík árið 1991.
■ „MESTI ÞJÓFURINN“ í úrvals-
deildinni gæti verið Raymond
Harding sem stal 15 sinnum bolt-
anum frá leikmönnum ÍR í leik
gegn Snæfelli árið 1994. Það kemur
nokkuð á óvart að Hermann Geir
Þórsson er sá Islendingur sem
stolið hefur flestum boltum í einum
leik. Skagamaðurinn stal boltanum
12 sinnum frá leikmönnm Þórs á
Akureyri í lok síðasta leiktímabils.
UMETIÐ í flestum þriggja stiga
körfum skoruðum í einum leik á
Franc Booker og það gerði hann
tvisvar sinnum árið 1991. Booker
skoraði 15 þriggja stiga körfur fyr-
ir ÍR gegn Njarðvík og endurtók
leikinn gegn Snæfelli stuttu síðar.
Damon Johnson kemur næstur
með 14 þriggja stiga körfur fyrir
Keflavík gegn KFI árið 1999 og
Páll Axel Vilbergsson er sá ís-
lenski leikmaður sem skorað hefur
flestar þriggja stiga körfur í einum
leik eða 12 stykki fyrir Grindavík
gegnVal.
■ FJÓRIR af fimm stigahæstu leik-
mönnum í úrvalsdeild frá upphafi
eru Suðurnesjamenn og þeir eru:
Valur Ingimundarson sem skorað
hefur 7.220 stig í 382 leikjum eða
18,9 stigað meðaltali.
Teitur Örlygsson með 5.877 stig í
351 leik og 16,78 stig að meðaltali.
UÞRIÐJI Suðurnesjamaðurinn á
þessum lista er Guðjón Skúlason
með 5.780 stig í 339 leikjum sem
gerir 17,lstig að meðaltali og Guð-
mundur Bragason er fjórði Suður-
nesjamaðurinn á þessum lista með
4.879 stig í 269 leikjum og 18,1 stig
að meðaltali. Jónatan Bow er í
fimmta sæti með 4.790 í 207 leikj-
um, 23,1 stig að meðaltali.
Eggert Garðarsson spáir í meistarabaráttuna
Reynsla
Keflvíkinga
vegurþungt
ÚRVALSDEILDIN í körfuknatt-
leik hefst í kvöld og margir
áhugamenn um íþróttina eru
eflaust fegnir að biðin sé loks
á enda. KR stóð uppi sem ís-
landsmeístari eftir rimmu við
Grindvíkinga sem aftur á móti
sigruðu KR í úrslitaleik bikar-
keppninnar. Fyrsti titill Tinda-
stóls í körfuknattleik leit dags-
ins Ijós með sigri í Eggjabikar-
keppninni og í ár er þessum
liðum spáð misjöfnu gengi á
íslandsmótinu. Forráðamenn,
fyrirliðar og þjálfarar úrvals-
deildarliðana 12 hafa spáð í
spilin um stöðu liðanna í lok
deildarkeppninnarog Morgun-
blaðið fékk þjálfara 1 .deildar-
liðs Breiðabliks, Eggert Garð-
arsson, til að velta fyrir sér
möguleikum liðanna í vetur.
Liðin koma í sömu röð og spáin
segir fyrir um.
Brenton Birmingham á hér í höggi við núverandi þjálfara sinn
hjá Njarðvík, Friðrik Ragnarsson.
Morgunblaðið / Kristinn
Eggert Garðarsson með
soninn Sigvalda.
Forráðamenn, fyrirliðar og þjálf-
arar úrvalsdeildarliðanna 12
hafa spáð í spilin um stöðu liðanna í
lok deildarkeppninn-
Sigurður Elvar °B Morgunblaðið
Þórólfsson fékkþjálfaral.deild-
skrifar arliðs Breiðabliks,
Eggert Garðarsson,
til að velta fyrir sér möguleikum lið-
anna í vetur.
Liðin koma í sömu röð og spáin
segir fyrir um.
Skallagrímur 12. sæti
„Það hafa fáir séð til Borgnesinga
það sem af er enda er það staðreynd
að liðið var frekar þunnskipað og tók
því ekki þátt í neinum mótum á und-
irbúningstímabilinu. Útlendingarnir
eru lykilmenn þeirra, tveir stórir
Rússar og Peebles, en þetta verður
mjög erfiður vetur hjá Alexander Er-
molinskij þjálfara liðsins. Heimavöll-
ur þeirra hefur verið þekktur sem
„gryfja“ en hefur eitthvað dalað í
takt við misjafnt gengi Borgnesinga.
Þeirra hlutskipti verður fall.“
KFÍH.sæti
„Karl Jónsson, þjálfari KFÍ, var
líkt og Ermolinskij að skrapa saman í
lið á síðustu stundu og það boðar ekki
gott. Þeir leikmenn sem komið hafa
til liðsins hafa ekki verið að leika lyk-
ilhlutverk hjá öðrum liðum og eru
ungir að árum. Margir af evrópsku
leikmönnunum sem hafa komið til
landsins á undanfömum misserum
hafa ekki verið neinir „stjörnuleik-
menn“ og KFI er með þannig leik-
menn. Liðið verður að berjast fyrir
veru sinni í deildinni líkt og Borgar-
nes. Það sem hjálpar Isfirðingum er
heimavöllurinn og flest lið hafa átt í
einhverjum erfiðleikum að sýna sitt
rétta andlit í „ísjakanum."
ÍR 10. sæti
„Jón Örn Guðmundsson þjálfari
hefur fengið til baka þá Eirík Ónund-
arson og Halldór Kristmannsson og
ég held að ÍR geti gert góða hluti í
vetur. Það eru efnilegir leikmenn í
liðinu í bland við þá sem eldri og
reyndari eru og byrjunarlið þeirra er
mjög sterkt. ÍR hefur ekki sýnt stöð-
ugleika í leik sínum á undirbúnings-
tímabilinu en ef þeir ná að slípa sig
betur saman þá geta þeir verið að
berjast um sæti í úrslitakeppninni."
Hamar 9. sæti
„Nú er fyrsta árs veislan búin hjá
Hvergerðingum og oft er annað árið í
úrvalsdeild erfiðara en það fyrsta.
Hamar leikur fastan vamarleik líkt
og þjálfari þeirra, Pétur Ingvarsson,
er þekktur fyrir og liðið virðist vel á
sig komið líkamlega. Ægir Hrafn
Jónsson er liðinu mikill styrkur
ásamt Chris Dade sem er mjög al-
hliða leikmaður. Pétur er einn efni-
legasti þjálfari landsins og er með lið-
ið þriðja árið í röð. Ég held að Hamar
sé líklegt til að slást um sæti í úrslita-
keppninni."
Þór Akureyri 8. sæti
„Þórsarar eiga heimavöll sem hef-
ur verið að styrkjast með ámnum og
árangur þeirra á síðasta ári var ekki
nein heppni. Clifton Bush er reyndar
enginn Maurice Spiller og ég held að
Ágúst Guðmundsson þjálfari eigi eft-
ir að sakna Davíðs Guðlaugssonar
þegar fram líða stundir. Akureyrar-
liðið er að mestu skipað efnivið frá
heimabænum og önnur lið taka ekki
neina áhættu með því að vanmeta lið-
ið i vetur. Sæti í úrslitakeppni hlýtur
að vera takmarkið hjá Þór og það er
allt útlit fyrir að þeir verði í hörkub-
aráttu í vetur við ÍR og Hamar um 8.
sætið.“
Valur 7. sæti
„Valsliðið virðist vera þungt eftir
erfitt undirbúningstímabil og spurn-
ing hvemig þeir verða í kvöld. Þeir
leikmenn sem komu liðinu upp í vor
verða að mestu á varamannabekk
liðsins þar sem margir góðir leik-
menn hafa komið til Vals í sumar.
Herbert Arnarsson verður „maður-
inn“ í liðinu en þeir Brynjar Karls
Sigurðsson og króatíski leikstjórn-
andinn geta líka skorað. Liðið þarf
eflaust einhvem tíma til að stilla
saman strengi og það verða mikil
vonbrigði fyrii- Pétur Guðmundsson
þjálfara ef liðið verður ekki á góðum
skriði í úrslitakeppninni. Valsmenn
eiga eftir að koma á óvart í vetur.“
Tindastóll 6. sæti
„Tindastóll vann titil í fyn-a í
fyrsta sinn og ég held að menn hafi
dæmt liðið eftir frammistöðu þeirra í
Valsmótinu í ágúst. Valur Ingimund-
arson þjálfari var djarfur í fyrra er
hann gaf ungum leikmönnum tæki-
færi og það á eftir að skila sér í vetur.
Það virðist sem Tindastólsliðið geti
gert usla í vetur, með 2.12 m Rússa,
grískan leikstjórnanda og þeir fá til
baka Bandaríkjamanninn Shawn
Myers. Þeir eiga eftir að koma á
óvart ásamt Valsmönnum."
Haukar 5. sæti
„Haukamir eru stórt spumingar-
merki, Guðmundur Bragason hefur
verið meiddur og ég held að brott-
hvarf Ingvars Guðjónssonar og Sig-
fúsar Gizurarsonar vegi þungt. Lýð-
ur Vignisson styrkir liðið en hann
verður að leika vel ásamt Jóni Arnari
og Braga Magnússyni til að allt gangi
upp. Haukarnir hafa ekki náð að gera
stóra hluti í úrslitakeppninni undan-
farinn ár og þeir verða að bæta úr því
til að ná í einhveija titla. Haukai-nir
hafa verið undir handleiðslu Eggerts
Bogasonar í lyftingaæfingum í sumar
og það hjálpar kannski liðinu eitt-
hvað undir lok mótsins.“
Grindavík 4. sæti
„Miklar breytingar era á liði
Grindavíkur, besti leikmaður deild-
arinnar, Brenton Birmingham, far-
inn til Njarðvíkur, sá sem var lykil-
maður í bikarúrslitaleiknum,
Alexander Ermolinskij, er einnig far-
inn og Bjami Magnússon er hættur.
Þeir leikmenn sem komið hafa í stað-
inn fylla ekki skörð þeirra og Einar
Einarsson þjálfari liðsins þarf að
beita allri sinni kunnáttu til að halda
liðinu á meðal toppliðana í vetur. Kim
Lewis er sterkur leikmaður en ef
Dagur Þórisson lendir í villu-
vandræðum er lítið um stóra menn,
þrátt fyrir að Pétiu- Guðmundsson
hafi stórt hjarta þá er hann ekki
mjög hávaxinn."
Keflavik 3. sæti
„Reynsla er það fyrsta sem manni
dettur í hug með Keflavík. Falur
Harðarson, Albert Óskarsson og
Birgir Örn Birgisson era marg-
reyndir landsliðsmenn og komnir til
þess að vinna titla. Ég held að Kefla-
vík leiki til úrslita í öllum þremur
keppnunum. Þeir verða kannski ekki
langbestir í deildarkeppninni en þeg-
ar komið verður út í úrslitaleiki leika
þeir best. Sigurður Ingimundarson
veit hvað þarf til að vinna titla og það
liggur í loftinu að Keflavík á eftir að
blása á þessa spá með því að gera
mun betur en þriðja sætið.“
Ný og glæsileg
heimasíða - kki.is
Körfuknattleikssamband ís-
lands hefur hefur gert miklar
endurbætur á heimsíðu sam-
bandsins, sem hefur slóðina
www.kki.is, og þar má fínna
mikið af fróðleik og hagnýtum
upplýsingum.
Fullyrða má að tölfræðiupp-
lýsingamar sem flnna má á
heimasíðunni séu einstakar í
sinni röð og sem dæmi má nefna
að nú er hægt að leita að ein-
staka leikmanni og fá fram all-
ar tölfræðiupplýsingar á ferli
þess leikmanns á mjög einfald-
an hátt.
Úrslit allra leikja frá keppn-
istímabilinu 1978-1979 til dags-
ins í dag er að finna á kki.is og
einnig er hægt að sækja ýmis
eyðublöð varðandi körfuknatt-
leik á síðunni auk almennra
frétta af gangi mála hjá sam-
bandinu.
Atvinnumenn snúa heim
Helstu félagasklptin í úrvalsdeild karla í
körfuknattleik fyrir þetta tímabil eru þessi:
Davíð Pór Jónsson, Keflavík/Grindavík
Elentínus Magnússon, Keflavík/Grindavík
Kristján Guðlaugsson, Keflavík/Grindavík
Kim Lewis, Snæfell/ Grindavík
Páll Axel Vilbergsson, Belgía/Grindavik
Ægir Hrafn Jónsson, ÍA/Hamar
Chris Dade, Haukar/Hamar
Lýður Vignisson, Bandar./Haukar
Ray Mickens, BandarTHaukar
Halldór Kristmannsson, KFÍ/ÍR
Eiríkur Önundarson, Danm./f R
Cedrick Holmes, Bandar./ÍR
Hreggviður Magnússon, Bandar/IR
Birgir Öm Birgisson, Pýskal/Keflavík
Calvin Davis, Bandar./Keflavík
Falur Harðarson, Finnl/Keflavík
Birgir Guðfinssson, Selfoss/Keflavík
Branislav Dragojlovic, Júgósl/KFÍ
Dwayne Fontana, Bandar/KFÍ
Steve Ryan, Ástral/KFÍ
Hermann Hauksson, Njarðvík/KR
Tómas Hermannsson, KFÍ/KR
Jes V. Hansen, Danm/Njarðvík
Halldór Karlsson, Keflavík/Njarðvík
Jóhannes Kristbjömsson, Stjarn/Njarðvík
Brenton Birmingham, Grindavík/Njarðvík
Sævar Garðarsson, Grindavík/Njarðvík
Alexander Ermolinsldj, Grindav/Skallagr.
Warren Peebles, Bandar/Skallagr.
Andrey Krioni, Rússl/Skallagr.
Evgjenij Tomaillovski, Rússl/Skallagr.
Ómar Sigmarsson, Hamar/Tindast.
Tony Pomones, Snæfell/Tindast.
Michail Antropov, Rússl/Tindast.
Kári Marísson, Smára/Tindast.
Herbert Arnarsson, Holland/Valur
Brynjar K. Sigurðsson, ÍA/Valur
Drasen Jojic, Bandar/Valur
Delawn Grandison, Bandar;/Valur
Pétur Már Sigurðsson, KFÍ/Valur